Fréttablaðið - 22.07.2015, Side 38
22. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 26
SUMARDRYKKURINN
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Breska tónlistarkonan og söng-
dívan Jessie J heldur stórtónleika
í Laugardalshöllinni þriðju-
daginn 15. september en
hún hefur verið ein skær-
asta poppstjarna heims
undan farin ár. Hún
er best þekkt fyrir að
flytja risasmelli á borð
Price Tag, Bang Bang
og Domino.
„Mér finnst hún
alveg frábær. Það er
alveg meiriháttar
að ná listamanni
til landsins sem
er akkúrat núna
á toppnum á
sínum ferli.
Hún er frá-
bær á sviði
og með eina flottustu röddina í tón-
listarheiminum í dag,“ segir Guð-
bjartur Finnbjörnsson sem stend-
ur fyrir tónleikunum.
Jessie J kom fyrst á sjónarsvið-
ið árið 2011 með fyrstu plötunni
sinni, Who You Are, en á þeirri
plötu komust sex lög á topp tíu í
Bretlandi og lagið Price Tag
fór í efsta sætið um allan
heim. Er hún fyrsta
konan til að ná sex
lögum af sömu plötu
inn á topp tíu. Lagið
Domino kom svo næst
og fór það beint í efsta
sæti um allan heim
en með því lagi náði
Jessie J fótfestu í
Bandaríkjunum.
Með nýjasta
smellinum
sínum, Bang
Bang, þar
sem hú n
fær Ariana
Grande og Nicky Minaj með sér, er
hún virkilega búin að stimpla sig
inn sem ofurstjörnu.
„Hlutur kvenna hefur ekki verið
mikill í erlendu tónleikahaldi hér
á landi undanfarin misseri og því
finnst mér það líka sérlega frábært
að fá hana til landsins. Hún er líka
frábær karakter og rakaði meira að
segja af sér hárið fyrir nokkrum
árum til að styrkja gott málefni,“
segir Guðbjartur.
Margir sáu hana árið 2012 í sjón-
varpinu á lokaathöfn Ólympíuleik-
ana í London, þar sem hún söng
We Will Rock You með hljómsveit-
inni Queen. Hún hefur einnig verið
þjálfari og leiðbeinandi í The Voice
í Bretlandi og Ástralíu.
Ólíkt mörgum öðrum stjörnum í
tónlistarheiminum semur hún flest
af sínum lögum sjálf en áður en hún
hóf söngferil sinn vann hún við að
semja lög fyrir aðra. Hún hefur
meðal annars samið lög og texta
fyrir Miley Cyrus, Justin Timber-
lake, Chris Brown, David Guetta og
marga fleiri. Lítið hefur verið um
tónleika hér á landi með erlendum
poppstjörnum. „Þessi tegund tón-
listar hefur verið skilin svolítið út
undan í tónleikahaldi hér á landi,“
bætir Guðbjartur við.
Jessie J er á tónleikaferð um
heiminn að kynna sína þriðju breið-
skífu. Hún verður með hljómsveit
með sér skipaða topphljóðfæraleik-
urum og bakröddum. „Þetta er alveg
tuttugu manna hópur sem kemur
með henni,“ segir Guðbjartur.
Ekki liggur fyrir hvaða hljóm-
sveit eða listamaður sér um upp-
hitun á tónleikunum að svo stöddu.
Miðasala hefst þriðjudaginn 28.
júlí á midi.is klukkan 10.00. Einnig
verður hægt að fá miða í verslunum
Brim Laugavegi og Kringlunni.
gunnarleo@frettabladid.is
Jessie J kemur fram
á tónleikum á Íslandi
Breska tónlistarkonan Jessie J, sem hefur verið ein skærasta poppstjarna heims
undanfarin ár, ætlar að halda tónleika í Laugardalshöllinni þann 15. september.
➜ Jessie J er 27 ára gömul tónlistarkona, fædd og uppalin í London.
➜ Hún hefur gefið út þrjár breiðskífur; Who You Are árið 2011, Alive árið
2013 og Sweet Talker árið 2014. Hún hefur selt yfir þrjár milljónir platna og
yfir tuttugu milljónir smáskífulaga um heim allan.
➜ Fyrsta plata Jessie J naut strax mikilla vinsælda um heim allan, náði fyrsta
sæti víða og hefur náð platínusölu í yfir 15 löndum.
➜ Hennar vinsælustu lög eru Price Tag, Domino, Bang Bang og Who You Are,
svo nokkur séu nefnd.
➜ Hún hefur unnið fjölda verðlauna og má þar nefna Critic‘s Choice-verð-
launin á Brit Awards árið 2011, iHeartRadio-tónlistarverðlaunin fyrir besta
samstarfið með Ariana Grande og Nicki Minaj í laginu Bang Bang og fjölda
verðlauna frá MTV.
➜ Þá var hún tilnefnd til Grammy-verðlaunanna í ár fyrir samstarf sitt með
Ariana Grande og Nicki Minaj í laginu Bang Bang.
➜ Lagið Bang Bang er með tæpar 400 milljónir áhorfa á Youtube. Price Tag
er með nærri því hálfan milljarð áhorfa og Domino með rétt tæplega 200
milljón áhorf.
➜ Jessie J hefur samið fyrir Miley Cyrus, Justin Timberlake, Chris Brown,
David Guetta og marga fleiri.
Hver er Jessie J?
Á LEIÐINNI Jessie J hefur verið ein skærasta poppstjarna heims undanfarin ár. Hún kemur fram ásamt hljómsveit í Laugar-
dalshöllinni þann 15. september næstkomandi. NORDICPHOTOS/GETTY
Skipulagsnefnd Druslugöngunnar stendur
fyrir svokölluðu peppkvöldi í kvöld. Veislan
hefst klukkan níu á skemmtistaðnum Húrra
en mælt er með því að mæta snemma þar sem
færri komust að en vildu á seinasta ári. „Þetta
er nokkurs konar upphitun fyrir gönguna á
laugardaginn. Það koma fram tónlistarmenn,
það verða tilboð á barnum og síðast en ekki síst
verðum við að selja varninginn svo að fólk geti
druslað sig upp fyrir gönguna,“ segir Sunna
Ben, sem mun meðal annars spila í kvöld.
Sunna mun þeyta skífurnar í lok kvölds en á
undan henni verða meðal annars dj Flugvél og
geimskip, Vaginaboys og Sturla Atlas.
„Við eigum von á mjög mörgum í kvöld enda
hefur farið mikið fyrir umræðunni um Druslu-
gönguna undanfarið. Það hafa 1.000 manns
boðað komu sína á Facebook en það er mun
meira en Húrra þolir svo að við mælum með
því að mæta fyrr en seinna og nýta tilboðin á
barnum. Í fyrra þurftum við að vísa fólki frá
vegna eftirspurnar. Við verðum með derhúfur,
boli og tyggjótattú til sölu svo að fólk geti verið
undirbúið fyrir gönguna.
Það sem verður eftir verður selt í Druslu-
göngunni. Varningurinn seldist hratt upp í
fyrra þannig að við urðum að panta inn meira
magn í ár og við vonum að sem flestir nái að
næla sér í eitthvað til þess að skreyta sig með.“
- gj
Upphitun fyrir Druslugönguna
Í kvöld verður haldið svokallað peppkvöld fyrir gönguna á laugardaginn.
SKIPULAGSNEFNDIN Ingileif Friðriksdóttir, Helga
Margrét Mar, Sunna Ben, Gréta Þorkelsdóttir og
María Rut Kristinsdóttir. Á myndina vantar nokkra
meðlimi nefndarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Við eigum von á mjög mörg-
um í kvöld enda hefur farið
mikið fyrir umræðunni um
Druslugönguna undanfarið.
„Ég verð að segja San Miguel bjór,
bara út af því að ég á heima í bæ
sem heitir San Miguel.“
Máni Orrason tónlistarmaður
– fyrir lifandi heimili –
R e y k j a v í k o g A k u r e y r i
E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
w w w . h u s g a g n a h o l l i n . i s
NÝTT
TWIST
ÓTRÚLEGA
ÞÆGILEGUR
TWIST
hægindastóll
Tilboð: 59.990
Fullt verð: 69.990
TWIST skemill
Tilboð: 24.990
Fullt verð: 29.990
ASTRO hægindastóll, Dökkgrár, kakí,
appelsínugulur og dökkrauður.
Verð: 59.990. Tilboðsverð: 49.990.
ASTRO
NÝTT
Í HÖLLINNI
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
1
-8
0
0
C
1
7
5
1
-7
E
D
0
1
7
5
1
-7
D
9
4
1
7
5
1
-7
C
5
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
1
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K