Húnavaka - 01.05.2005, Side 61
BIRGITTA H. HALLDORSDOTTIR, SyM-Löngumýri:
Draumurinn um ástina á
elliheimilinu
Ellin.
Hún var eitthvert hugtak sem mér liaföi alltaf þótt svo fjarlægt en þó
svo skelfilegt.
Elli, hrumleiki, hrukkur, tilgangsleysi og bið eftir dauðanum. Já, ég
hafði alltaf óttast það að verða gömul. Tilhugsunin um það að andlitið á
mér yrði eins og bókfell fannst mér hryllileg. Ef til vill þyrfti ég að fá
falskar tennur, grá hár og hnýttar hendur. Eg vildi ekki verða gömul
kona. Verða fyrir öllum, gamlingi á elliheimili sem starfsfólkinu þætti ef
til vill óþolandi nöldurskjóða. Eg hafði séð svo margt gamalt fólk sem ég
vorkenndi. Mér fannst að líf þess hlyti að vera svo tilgangslaust og innan-
tórnt. Allt búið sem vert var að lifa fyrir.
En auðvitað sagði ég aldrei neinum frá þessum ótta mínum við ellina.
Mér fannst það sjálfri hálf sjúklegt. Eg sem er í skemmtilegri vinnu, á in-
dæla fjölskyldu, er á kafi í félagslífi, stunda erobik, ljós og sund og á
aldrei eina mínútu aflögu, ég hafði enga ástæðu til að kvíða framtíðinni.
En ég verð að viðurkenna að margt af því sem ég geri er eingöngu til
þess að líta vel út, vera áfram ung.
Það gerðist svo einn morguninn að ég vaknaði upp meira undrandi
en ég hafði orðið fyrr. Það var venjulegur miðvikudagsmorgunn, klukkan
hringdi. Eg hreyfði mig ekki en starði út í loftið. Eg var varla með sjálfri
mér. Maðurinn minn rumskaði, böh'aði og stöðvaði vekjarann en ég tók
varla eftir því. Mér leið einkennilega, dásamlega, ólýsanlega. Mig hafði
dreymt draum. Eg mundi hann allan, þarna sem ég lá í rúminu rnínu og
allt í einu fannst mér ég sjá heiminn í nýju ljósi. Eg var ekki lengur
hrædd við ellina. Eg lokaði augunum og upplifði drauminn í huganum.
Drauminn um ástina á elliheimilinu.
Eg var í húsinu mínu en þar voru engin húsgögn. Eg stóð með tösku í
annarri hendi og vissi með sjálfri mér að ég var að flytja. En hvers vegna?
Eg leit á hendurnar á mér og hrökk við. Þær voru grannar og beinaber-
ar. Með skjálfandi höndum tók ég upp spegil úr töskunni og leit í hann.
Þar hafði ég það. Við mér blasti andlit sem ég varla þekkti. Dökkt hár
mitt var nú orðið silfurgrátt, húðin dálítið hrukkótt, sérstaklega í kring-
um augun.