Húnavaka - 01.05.2005, Page 172
170
H U N A V A K A
Benjamín Magnús Sigurðsson,
Skagaströnd
Fæddur 30. október 1917 - Dáinn 30. september 2004
Benjamín var fæddur að Ásmundarnesi í Bjarnarfirði í Strandasýslu. For-
eldrar hans voru, Guðrún Ingibjörg Benjamínsdóttir og Sigurður Hólm
Guðjónsson sem lengst af voru bændur á E)jum 1 í Kaldrananeshreppi.
Þau hjónin eignuðust átta börn en sjö komust til fullorðinsára.
Benjamín ólst upp við sjósókn og sveitastörf eins og þau voru á Strönd-
um á uppvaxtarárum hans. Hann var aðeins barn að aldri, langt innan
við fermingu, þegar hann var farinn að sækja
sjóinn með Guðjóni afa sínum. Hann fór 15
ára gamall fýrsta sinni á vertíð suðtir í Hafnir
og var þar þrjár vetrarvertíðir en heima á
sumrin.
Benjamín kvæntist þann 8. desember árið
1944 eftirlifandi eiginkonu sinni, Láru Lofts-
dóttur frá Bólstað í Steingrímsfirði. Þau eign-
uðust þijár dætur sem eru: Pálfríður Guðrún,
Sóley og Guðrún Ragnheiður sem lést árið
1999.
Benjamín og Lára voru fyrstu búskaparár-
in til heimilis á Eyjum en fluttu til Skaga-
sU andar árið 1949 og bjuggu þar í tvo áratugi.
Hann var mikið til sjós, m. a. 36 vetrarvertíðir fyrir sunnan. Hann sótti
einnig sjóinn á eigin bátum og réri stíft jafnvel á fjórðahundrað róðra á
ári. Oft lenti hann í erfiðum veðrum en þó aldrei sem á Húnaflóa haust-
ið 1951 þegar hann og Stefán Hólrn lentu, á vélarvana bát, í aftaka veðri.
Þeir náðu landi í Hindisvík á Vatnsnesi eftir 12 tíma hetjulega baráttu
sem reyndi verulega á þá. Auk sjómennsku vann Benjamín við vörubíla-
akstur, ekki síst þegar hann bjó á Skagaströnd.
Arið 1968 fluttu Benjamín og Lára suður og hann vann til að byrja
með í Isbirninum, síðar hjá Eimskip og Skeljungi. Um miðjan sjöunda
áratuginn fór hann að gera út á grásleppu frá Eyjum og einnig að hlúa
að æðarvarpinu þar en hann naut þess mjög að vera heinta á E)jum.
Benjamín hafði alla tíð ánægju af sjósókn. Hann var söngvinn og hafði
gaman af söng, einkum kórsöng og hann kunni ógrynni af vísum sem
hann sönglaði gjarnan. Hann var sögumaður góður, ákveðinn í skoðun-
um og áhugasamur um þjóðmál og hann var opinn og vakandi fjTÍr þeim
tækifærum sem samtíminn býður upp á til mennta og athafna.
Benjamín var barngóður og börn löðuðust að hontun. Hann var kapp-