Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Blaðsíða 2
þriðjudagur 27. janúar 20092 Fréttir RíkisstjóRniR íslands FullveldisstjóRnin 4. janúar 1917 – 25. febrúar 1920 Forsætisráðherra Jón Magnússon. Heimastjórnarflokkur, Sjálfstæðisflokkur þversum og Framsóknarflokkur. BoRgaRastjóRn 25. febrúar 1920 til 7. mars 1922 Forsætisráðherra Jón Magnússon Heimastjórnarflokkur og utan flokka BoRgaRastjóRn 7. mars 1922 – 22. mars 1924 Forsætisráðherra Sigurður Eggerz Sjálfstæðisflokkur og utan flokka HágengisstjóRn 22. mars 1924 til 8. júlí 1926 Forsætisráðherra Jón Magnússon Íhaldsflokkur BoRgaRastjóRn 8. júlí 1926 – 28. ágúst 1927 Forsætisráðherra Jón Þorláksson Íhaldsflokkur FyRsta stjóRn FRamsóknaR 28. ágúst 1927 – 3. júní 1932 Forsætisráðherra Tryggvi Þórhallsson Framsóknarflokkur samstjóRn lýðRæðissinna 3. júní 1932 – 28. júlí 1934 Forsætisráðherra Ásgeir Ásgeirsson Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur stjóRn Hinna vinnandi stétta 28. júlí 1934 – 2. apríl 1938 Forsætisráðherra Hermann Jónasson Framsóknarflokkur og alþýðuflokkur ÞRiðja stjóRn HeRmanns 17. apr. 1939 – 18. nóv. 1941 Forsætisráðherra Hermann Jónasson - Framsóknarfl. stjóRn geiRs HallgRímssonaR 28. ágúst 1974 – 1. september 1978 Forsætisráðherra Geir Hallgrímsson Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarfl. vinstRistjóRn 1. september 1978 – 15. október 1979 Forsætisráðherra Ólafur Jóhannesson Framsóknarflokkur, alþýðubandalag, alþýðuflokkur FyRsta stjóRn steingRíms HeRmannssonaR 26. maí 1983 – 8. júlí 1987 Forsætisr. Steingrímur Hermannsson Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur stjóRn gunnaRs tHoRoddsen 8. febrúar 1980 – 26. maí 1983 Forsætisráðherra Gunnar Thoroddsen Hluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokkur, alþýðubandalag stjóRn ÞoRsteins PálssonaR 8. júlí 1987 – 28. sept. 1988 Forsætisráðherra Þorsteinn Pálsson - Sjálfstæðisfl., Framsóknarfl., alþýðufl. ÖnnuR stjóRn HeRmanns 2. apríl 1938 – 17. apríl 1939 Forsætisráðherra Hermann Jónasson Framsóknarflokkur vinstRistjóRn 14. júlí 1971 – 28. ágúst 1974 Forsætisráðherra Ólafur Jóhannesson Framsóknarflokkur, alþýðubandalag, Samtök frjálslyndra og vinstri manna 1965 1966 1967 1968 1969 1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 minniHlutastjóRn alÞýðuFlokks 15. október 1979 – 8. febrúar 1980 Forsætisráðherra Benedikt Gröndal alþýðuflokkur 1917 1918 1919 1920 1921 1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949 1950 1951 1952 1953 1954 1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964 Forysta Sjálfstæðisflokksins batt vonir við það að ekki þyrfti að leysa Davíð Oddsson frá störfum í Seðla- bankanum. Geir H. Haarde, for- maður Sjálfstæðisflokksins, lét í veðri vaka þegar upp úr stjórnar- samstarfinu slitnaði í gær, að unnið hefði verið að því að breyta lögum um Seðlabankann og Fjármálaeft- irlitið. Í smíðum væri lagafrumvarp um sameiningu Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans. Samkvæmt heimildum DV var það von Geirs og annarra ráðherra Sjálfstæðisflokksins að unnt yrði að sefa Samfylkinguna með frum- varpinu. Gert var ráð fyrir að lögin tækju þegar gildi og að sameining Fjármálaeftirlitsins og Seðlabank- ans færi fram 1. mars, sama dag og Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME, léti af störfum. Forysta Sjálfstæðisflokksins von- aðist til þess að þennan tiltekna dag, 1. mars, yrði Davíð Oddsson kom- inn í nýtt starf og því kæmist Geir hjá því að segja honum upp störfum í Seðlabankanum. DV hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að unnið hafi verið að því að koma Árvakri, útgáfufélagi Morgun- blaðsins, í hendur manna sem hlið- hollir eru Sjálfstæðisflokknum og að Davíð Oddsson hafi átt að verða rit- stjóri Morgunblaðsins. Þannig átti Davíð að fara sjálfviljugur frá bank- anum en ekki með valdboði. Breytingar strax! Samfylkingarmenn voru ekki ginn- keyptir fyrir tilboði sjálfstæðis- manna í þessum efnum enda trúnaðurinn að engu orðinn milli flokkanna vegna seinfærni og vax- andi tortryggni. Geir Haarde og fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa fullyrt að Samfylkingin hafi augljóslega sett fram óaðgengileg skilyrði um að hún fengi forsætisráðherraembætt- ið. Hafa ber í huga að með því hefði valdið yfir Seðlabankanum færst til Samfylkingarinnar. Því má líta svo á að brotnað hafi á enn einum múrnum sem Sjálfstæðisflokkurinn reyndi að setja upp til varnar Davíð. Í þessu ljósi ber að meta orð Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur þegar hún brást hart við ásökunum Geirs Haarde á stuttum þingfundi á Alþingi í gær. Þar sagði hún að Samfylkingin hefði sýnt Sjálfstæðisflokknum mik- ið langlundargeð: „Ýmislegt sem varðar breytingar í fjármálakerfinu okkar sem lýtur ekki síst að Seðla- bankanum og því að endurreisa traust á þessari æðstu stofnun efna- hagsmála í landinu, sem er Seðla- bankinn, hefur mistekist. Við viljum að á því verði breyting eigi síðar en strax. Við teljum ekki að það sé hægt að bíða lengur. Við erum búin að bíða frá því í haust, við getum ekki beðið lengur eftir þeirri breytingu. Hún verður að gerast núna. Það er ekki hægt að vísa henni inn í fram- tíðina með hugmyndum um hugs- anlegar lagabreytingar. Þetta þarf að gerast núna.“ Rauðgræn stjórn í smíðum „Við útilokum engan kost fyrir fram og við göngum ekki til slíkra við- ræðna með fyrirframskilyrði, allra síst um menn eða verkaskiptingu því að það er málefnið og verkefnið sem skiptir öllu hér og að því þurfa menn að hyggja,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, á Alþingi í gær. Þessi orð Steingríms strax að lokinni yfirlýsingu Geirs H. Haarde um stjórnarslit geta hæglega þýtt að hann hafi lítið við það að athuga að Jóhanna Sigurðardóttir verði forsæt- isráðherra í ríkisstjórn sem starfar skamma hríð. Orð hans mátti einn- ig skilja á þann veg að eftir harka- lega magalendingu fráfarandi ríkis- stjórnar væri þjóðstjórn allra flokka fjarlægur möguleiki. „Þjóðstjórn verður þá að vera alvöruríkisstjórn, fær um að vinna þau verk sem þarf að vinna á næstu vikum og leiða svo landið inn í kosningar. Maður hlýt- ur að hafa vissar efasemdir eftir það sem á dagana hefur drifið og eink- um í dag í þeim efnum.“ Gátlisti eða stefnuyfirlýsing? Eins konar málefnasamningur eða gátlisti nýrrar ríkisstjórnar kveð- ur á um samvinnuna við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn, kosningar með fyrra fallinu, bráðaaðgerðir gegn atvinnuleysi, fjöldagjaldþrotum heimila og fyrirtækja og meðferð er- Stjórnin Sprakk á Davíð Varnarmúr Sjálfstæðisflokksins um Davíð Oddsson seðlabankastjóra rofnaði þegar ríkisstjórnin sprakk í gær. Hann átti að verða Morgunblaðsritstjóri fyrir lok febrúar áður en FME yrði sameinað Seðlabankanum með nýjum lögum. Samfylkingin gafst upp og setti skilyrði sem rufu múrinn. Allt bendir til þess að forseti Íslands fái for- manni Samfylkingarinnar umboð í dag til þess að mynda starfhæfan meirihluta á þingi og nýja ríkisstjórn. JÓHann HaukSSOn blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Forysta Sjálfstæðis- flokksins vonaðist til þess að þennan til- tekna dag, 1. mars, yrði Davíð Oddsson kominn í nýtt starf og því kæm- ist Geir hjá því að segja honum upp störfum í Seðlabankanum. Stungið saman nefjum jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherraefni ráðfærir sig við ingibjörgu Sólrúnu gísladóttur eftir stjórnarslitin í gær. MynD RakEl ÓSk SiGuRðaRDÓTTiR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.