Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Blaðsíða 14
Nú er Svarthöfði orðinn veru-lega hræddur. Nú er Svart-höfði alveg steinhættur að skoða nokkra þá vefsíðu þar sem kynni að vera að finna fáklætt kvenfólk, hvað þá að hann myndi láta sér detta til hugar að skoða síður þar sem er að finna allsbert kvenfólk - nú eða karlmenn ef út í það er farið. Svarthöfði veit nefnilega sem er að innan fáeinna daga mega þeir sem slíkt gera eiga von á heimsókn frá netlögreglunni. Jú, landsmenn góðir. Vinstri-græn eru á leið í ríkisstjórn og þá má búast við að ýmis af þeirra stefnumálum nái fram að ganga. Eða varla fer þessi hjartahreini og hug- sjónaríki flokkur að mynda stjórn bara til að mynda stjórn. Steingrím-ur J. Sigfús-son verður náttúrulega fjármálaráðherra. Minna getur það ekki verið ef hann lætur forsætisráðherra- embættið eftir til Jóhönnu Sigurðardóttur. Fjármálaráðuneyt- ið er náttúrulega næstvaldamest allra ráðuneyta. Og hverju má búast við þegar Steingrímur er kominn með puttana í fjár- málin? Skattar hækka og út- gjöld aukast. Og í núver- andi árferði þegar skuldir hins opinbera nema þegar sex til sjö milljón krónum á hvern Íslending, frá nýfæddum börnum til gamalmenna á grafarbakkanum, get- ur auðvitað ekkert blasað við nema þjóðargjaldþrot. Nú. Hann Atli Gíslason hlýtur að verða dóms- og kirkju-málaráðherra. Og þá mega klámhundar landsins al- deilis fara að vara sig. Eða við hverju er að búast þegar femínistarnir taka völdin, sérstaklega þegar þeir eru karlkyns? Ekki getur það verið neitt gott. Innreið netlögreglunnar hefst og sennilega verður víkingasveit lögreglunnar skorin niður við trog á móti. Byssubófar og mótmælendur geta þá farið sínu fram meðan hart verður sótt að heiðvirðum aðdáendum hins kven- lega líkamsforms. Og sennilega sendir hún Kolbrún Halldórsdóttir okkur öll á fjöll til að tína fjallagrös þegar hún verður orðin umhverfisráðherra. Ætli hún taki sig ekki til og láti loka álverum og rífa stíflur? Minna getur það vart ver- ið í tilfelli flokksins sem barðist sem harðast gegn þessu. Eða ætla vinstri- græn að standa aðgerðalaus frammi fyrir orðnum hlut? Alla vega verða engin ný álver reist og hvað þá að fólk fái vinnu við þau. Ekki líst Svarthöfða betur á að Ögmundur Jónasson verði utanríkisráðherra. Ísland úr Nató og herinn... umm, sleppum því. Ísland segir sig úr öllum bandalögum, nema við hin hundfúlu Norðurlönd og verður skilið eftir með öllu varnarlaust. Eða héldu menn að Íslendingar þyrftu virkilega bara á vörnum að halda gegn innlendu fjármálalífi? Og verst af öllu er að Ísland verður lýst kjarnorku- vopnalaust land og hafsvæðið líka. Katrín Jakobsdóttir verður svo vænt-anlega gerð að menntamálaráð- herra. Ég held að við vitum öll hvað það þýðir. Hér eftir verða skólabörn- in okkar ekki látin lesa Íslendingasögurnar og Halldór Laxness, hvað þá Indriða G. Þorsteinsson og fleiri andans jöfra. Nú verða allir látnir lesa glæpasögur, senni- lega með túlkunum bókmenntafræðings- ins á ráðherrastóli. þriðjudagur 27. janúar 200914 Umræða Rauða hættan svarthöfði spurningin „Nei, ég veit ekki hvort fólk er tilbúið í það. Ég held að margir taki mig ekki alvarlega.“ Snorri Ásmundsson, listamaður og fyrrum forsetafram- bjóðandi, íhugar að bjóða sig fram sem formann Sjálfstæðisflokks- ins. Samkvæmt Snorra er flokkurinn fárveikur og þarf á heilun að halda. ER búið að bjóða þéR foRsætisRáð- hERRastólinn? sandkorn n Líf Davíðs Oddssonar seðla- bankastjóra hefur svo sann- arlega ekki verið neinn dans á rósum undanfarið. Lífverðir eru gjarn- an skammt undan til að verja hann gegn ofbeld- ismönnum og hann fær ekki um frjálst höf- uð strokið. Tugir mótmælenda mættu þeg- ar árshátíð Seðlabankans var haldin en það tókst að skjóta Davíð fram hjá þeim. Morgun- inn eftir árshátíðina sást Davíð sitja í bíl sínum utan við Nóa- tún á meðan eiginkonan fór inn að kaupa í matinn. Hann mun ekki vera ginnkeyptur fyr- ir því að vera á almannafæri. n Björn Bjarnason, fráfar- andi dómsmálaráðherra, þótti fara nokkuð á kostum á fundi sjálfstæð- ismanna á Reyðarfirði fyrir nokkru. Þar var hann meðal ann- ars spurður hvort ekki væri eðlilegt að reka Dav- íð Oddsson úr embætti seðla- bankastjóra. Svaraði Björn með því að spyrja á móti hvort ætti þá líka að segja öllum seðla- bankastjórum í heiminum upp störfum. Davíð væri einstak- lega klár og traustur maður! n Á Reyðarfjarðarfundinum var Björn Bjarnason einnig spurð- ur út í efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra og brot- lendingar hennar í málverka- fölsunarmálinu, Baugsmálinu og rannsókn á fjárdrætti hjá Lífeyrissjóði verkfræðinga og hvað þau hefðu kostað ríkis- sjóð. Björn hafði engar kostn- aðartölur á reiðum höndum en sagði að það væri algjör bábilja að halda því fram að stjórnvöld ættu að vinna öll mál, sem þau höfðuðu. „Engum datt í hug að dómarar kæmust að þeirri niðurstöðu sem raun varð á í Baugsmálinu og í málverka- fölsunarmálinu. Og það eru meðmæli með dómskerfinu hérlendis hverjar þessar lyktir urðu,“ sagði ráðherrann. n Margir hugsa sér gott til glóðarinnar að komast á þing eftir kosningarnar í vor. Með- al þeirra sem nú stíga á stokk er Ólína Þorvarð- ardóttir, fyrrverandi skólameist- ari Mennta- skólans á Ísafirði. Ólína berst nú fyrir bættu lýð- ræði og þá væntanlega gegn ráðherraræðinu sem einkennt hefur Ísland. Sjálf var hún sökuð um einræðistilburði á menntaskólatímanum og hraktist á endanum úr starfi eftir mikla ólgu innan skólans. LyngháLs 5, 110 Reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.iS aðalnúmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50. Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Ég ber ekki ábygð á því að Samfylk- ingin er í tætlum sem stjórnmála- flokkur.“ n Geir H.Haarde um að hann beri ekki á ábyrgð á því að ríkisstjórn Íslands hafi liðast í sundur.- RÚV. „Það þýðir ekkert annað en að taka þetta almenni- legum vettlingatökum.“ Höskuldur Þórhallsson, „fyrrverandi“ formaður Framsóknar, um hvernig þurfi að taka á málefnum þjóðarinnar.-RÚV. „Ég hef lengi hugsað til þess.“ Jón Sigurðsson, fráfarandi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, um að losna undan starfinu.-DV. „Maður er aldeilis kominn í félagsskap.“ Geir H.Haarde um að hann sé á lista Guardian yfir þá sem eru valdir að heimskreppunni, ásamt George Bush og fleirum.-RÚV „Þetta var hreint og beint hættu- legt hjá Páli.“ Styrmir Sævarsson, fyrrverandi samstarfsmaður Páls Winkel fangelsismálastjóra, sem var áminntur fyrir að skutla fólki hingað og þangað þegar hann var á vakt sem lögreglumaður 1999.-DV. Farvel, Davíð Leiðari 26. janúar markar upphafið að end-urreisn íslenska lýðræðisins. Þann dag voru valdataumarnir hrifsað- ir úr höndum Sjálfstæðisflokks Davíðs Odds- sonar, sem hafði étið lýðveldið að innan með þeim afleiðingum að efnahagurinn hrundi og upplausn blasti við í landinu. Það sem blasir við nýjum stjórnvöldum er ekki björg- unarstarf eða slökkvistarf, heldur hreinsun- arstarf eftir þær manngerðu hamfarir sem flokkurinn kallaði yfir þjóðina. Við þurfum fyrst og fremst hreinsitækna við stjórnvöl- inn til að sópa út úr kerfinu klíkumeðlimum flokksins. Geir H. Haarde gagnrýndi Samfylking- una harðlega við stjórnarslitin fyrir að hafa ekki verið rígbundin sama flokksaga og Sjálfstæðisflokkurinn. Honum misbauð að flokkurinn skyldi ekki allur hafa verið sam- mála formanninum. Þetta ráðherraræði og flokksveldi er mesta böl íslensks lýðræðis og lýðveldis. Um leið eru frjáls skoðanaskipti helsti styrkur Samfylkingarinnar. Þingmenn eru samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins aðeins bundnir sannfæringu sinni. Þeir eiga að ganga gegn flokki sínum ef þeim líst svo á. Almenningur hefur enga hagsmuni af því að stjórnmálamenn syndi eins og fiskar í torfu eða gangi eins og kind- ur í hjörð. Sá stjórnmálamaður sem mælir fyrir flokksveldi á Íslandi mælir um leið gegn stjórnarskránni og heggur í lýðræðið. Kjósendur ættu að muna að það var Björg- vin G. Sigurðsson sem braut upp valdakerfið og breytti íslenskri stjórnmálasögu með af- sögn sinni, og það var Ólafur Ragnar Gríms- son forseti sem gaf tóninn fyrir endurreisn íslensks lýðræðis úr rústunum. Mikilvægast er þó að muna hvernig foringjar Sjálfstæð- isflokksins náðu að leggja undir sig stjórn- kerfið, rústa íslenskum efnahag og láta sak- lausan almenning borga brúsann. Valdatíð Davíðs ætti að vera kennd í skóla, komandi kynslóðum sem víti til varnaðar, líkt og hjá öðrum þjóðum sem hafa sigrast á sérhags- munum hinna fáu. Nú reynir á að brjóta upp ráðherraræðið og flokksveldið svo þjóðinni verði gert kleift að veita ríkisstjórninni virkt aðhald. Við get- um ekki treyst því í blindni að vinstri-græn- ir og Samfylking viðhaldi ekki sömu stjórn- arháttum og Davíð. Hagsmunum fjöldans er best borgið í höndum almennings. Við þurf- um ekki nýjan flokk til valda. Við þurfum al- menning til valda. jón tRausti REynisson RitstjóRi skRifaR. Valdatíð Davíðs ætti að vera kennd í skóla, komandi kynslóðum sem víti til varnaðar. bókstafLega xxx xxx

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.