Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Blaðsíða 15
þriðjudagur 27. janúar 2009 15Umræða
Hver er maðurinn? „Björgvin guðni
er nafnið, heiti eftir afa og ömmu í föð-
urættina, Björgvini Benediktssyni
prentara og guðnýju Sigurðardóttur
hárgreiðslukonu.“
Hvað drífur þig áfram? „Lífsgleði
og löngun til að breyta heiminum til
hins betra. Meiri jafnaðarstefna. Minni
frjálshyggja.“
Ísland er...? „... einstakt land sem er í
klakaböndum blindrar markaðs-
hyggju síðustu 15 ára.“
Hvað er að gerast í íslenskri
pólitík? „nýir tímar og gríðarlega
spennandi. Mikil uppstokkun. Endalok
frjálshyggjunnar og upphaf nýs
tímabils félagshyggju og jöfnuðar.“
Er nauðsynlegt að skipta um
áhöfn í Seðlabanka Íslands? „já,
það blasir við. Traustrof er á milli
þjóðar og stjórnvalda. Sérstaklega
þeirra sem sköpuðu verkið sem hrundi
yfir okkur í haust.“
Hvers vegna axla íslenskir
stjórnmálamenn ekki ábyrgð?
„Veit ekki, inngróið í kúltúr okkar að
menn sitji af sér vond mál og ábyrgðir
sínar.“
Hvernig stjórn vilt þú sjá næst?
„Öfluga félagshyggjustjórn.“
Tækir þú að þér ráðherrastól? „já,
ég myndi gera það.“
Fyrst þú axlar ábyrgð eru þá ekki
mun fleiri sem þyrftu að fylgja
þínu fordæmi? „jú, örugglega í
tímans rás. það á að vera hefð að
menn fari ef pólitísk ábyrgð er
afgerandi til staðar. nú er allt
breytingum háð.“
Hvernig líður þér persónulega
eftir allt sem hefur gegnið á
undanfarna mánuði? „þokkalega
vel. þetta hefur tekið mikinn toll,
persónulega og pólitískt. En ekkert
sem ekki jafnar sig. þegar maður hefur
áður upplifað alvarleg og lífshættuleg
veikindi náinna þá eru hinir veraldlegu
hlutir býsna léttvægir þó að alvarlegir
séu.“
Finnst þér auðmenn og banka-
menn sleppa létt? „já, enn þá, en
spyrjum að leikslokum. Ég trúi á
makleg málagjöld.“
Ertu sátt/ur við stjórnarslitin?
„já, loksins verður hægt að byrja að
taka til.“
Guðmunda EirÍkSdóTTir
20 ára nEMi
„Í ljósi aðstæðna er ég mjög sátt, já.“
anna HEra BjörnSdóTTir
29 ára STærðfræðingur
„Mér finnst að þetta hefði átt að gerast
fyrir löngu og tel stjórnina gefa frekar
ódýrar forsendur fyrir þessum slitum.
þetta hefur verið ósk þjóðarinnar mjög
lengi. Einnig ætti davíð Oddsson að
vera löngu farinn úr sínu starfi.“
BErGróS HilmarSdóTTir
54 ára BókaSafnS- Og uppLýSinga-
fræðingur
„Ég er nú ekki sáttur en get heldur ekki
sagt hvað annað hefði verið gott að
gera í stöðunni.“
ólaFur GunnarSSon
61 árS riThÖfundur
Dómstóll götunnar
BjörGvin G. SiGurðSSon tók
af skarið og axlaði pólitíska ábyrgð
fyrstur stjórnmálamanna eftir hrunið
á síðastliðnu ári. Sögulegur atburður
í íslenskum stjórnmálum. Björgvin vill
sjá öfluga félagshyggjustjórn og telur
tíma gamalla valdaflokka liðinn.
Trúir á makleg
málagjöld
„Mjög svo og þótt fyrr hefði verið. Ég
vil líka sjá seðlabankastjórnina víkja.“
GEorG ÁrnaSon
62 ára VÉLfræðingur
maður Dagsins
Þeir sem taka við Íslandi nú ættu
að segja einhliða upp samningum
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, skila
peningunum í íslenskum krónum
og lækka vexti í framhaldinu. Eitt
til tvö prósent stýrivextir er það
sem við þurfum, breytta samsetn-
ingu neysluvísitölu ef þörf þykir, og
eða að núllstilla og taka upp aðra
neysluvísitölu. Þetta er jú allt búið
til af mönnum. Taka af öll gjaldeyr-
ishöft, þau virka ekki, fyrirtæki sem
fá ekki gjaldeyri í íslenskum banka
skila honum ekki inn í landið ef þau
komast upp með það. Aftur á móti
er hægt að skattleggja kaup á gjald-
eyri með mismunandi aðferðum
og það mundi virka betur. Efla þarf
og styrkja allan smáiðnað og nota
tækifærið og laða erlenda túrista
til Íslands með auglýsingu og öll-
um tiltækum ráðum meðan krón-
an er ódýr. Styrkja útgerðina með
öllum ráðum. Útgerðin er það sem
við þurfum nú á að halda til gjald-
eyrisöflunar, við höfum mjög gott
kvótakerfi, við megum ekki breyta
einhverju bara til að breyta því.
Hefja hvalveiðar strax í vor og leyfa
myndarlegan kvóta eins og
Norðmenn. Við getum eflt
rafmagnssölu til annars
konar iðnaðar en áls, til
dæmis í ylrækt og annan
orkufrekan smáiðnað. Við
getum lagt niður dráttar-
vexti því ef fólk getur ekki
borgað skuldir sínar á al-
mennum vöxtum getur
það alls ekki borgað þær á
dráttarvöxtum.
Gott væri
að leggja niður vísitölutryggingu
og ef lífeyrissjóðirnir eru á móti
því er hægt að koma til móts við þá
með því að ríkissjóður hafi vísitölu-
tryggingu eingöngu á löngum ríkis-
skuldabréfum eins og í Bandaríkj-
unum.
Höldum krónunni, þeir sem vilja
taka upp einhliða annan gjaldmið-
il þurfa að hugsa sig betur um og
ég hygg að það séu ýmisleg önnur
úrræði hægt að nota til styrkingar
krónunnar. Ég er hjartanlega sam-
mála Einari Má Guðmundssyni og
Birni Bjarnasyni að við höf-
um ekkert að gera inn
í Evrópusambandið eins og hlut-
irnir eru. En eitt er þó öðru mikil-
vægara og það er að hætta að eyða
orkunni í að rífast um Evrópusam-
bandið og krónuna. Þjóðin er smáð
og sundruð, við verðum að vinna
saman, sýna hvert öðru virðingu og
reyna að stjórna landinu inn í fram-
tíðina eins vel og við getum, og velta
hverjum steini við. Hlúum að fjöl-
skyldunni og fyrirtækjunum, ef ekki
þá er allt búið.
Konfúsíus sagði: „Að ljúga að
öðrum er ljótur vani en að ljúga að
sjálfum sér er hvers manns bani.“
Nýja neysluvísitölu, vexti í eitt prósent
kjallari
svona er íslanD
1 Bjarni bauð Glitni íbúð og
málverk
Bjarni ármannsson bauð nýja glitni íbúð
og málverk til sölu eftir hrun bankans.
Íbúðina og málverkin keypti hann af
glitni eftir að hann hætti hjá bankanum.
2 óli Palli sá margfalt
ólafur páll gunnarsson, útvarpsmaður á
rás 2, kynnti tónleika d.a.d. sem voru í
beinni útsendingu. hann sagði allt vera
að fyllast þegar afar fáir voru mættir í
salinn.
3 Fegurst fljóða í Bandaríkjunum
hin 22 ára katie Stam var valin ungfrú
ameríka í fyrrakvöld.
4 össur hafnaði því að verða
forsætisráðherra
fyrsti kostur ingibjargar Sólrúnar
gísladóttur í embætti forsætisráðherra
var Össur Skarphéðinsson. hann hafnaði
því boði.
5 Clay aiken er ástfanginn
Bandaríska idol-stjarnan Clay aiken er
ástfangin. hinn heppni er reed kelly.
6 Þingheimur hló að Höskuldi
„það verður að taka á þessu með
almennilegum vettlingatökum,“ sagði
höskuldur þórhallsson, þingmaður
framsóknarflokksins. hann leiðrétti
mismælið eftir hlátur þingmanna.
7 össur: „niðurstaðan mun
koma á óvart“
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
vildi í gærmorgun ekkert segja um afdrif
ríkisstjórnarinnar. hann sagði hins vegar
að niðurstaðan kæmi á óvart.
mest lesið á dV.is
Guðmundur
FranklÍn jónSSon
kaupsýslumaður skrifar
„Við getum eflt raf-
magnssölu til annars
konar iðnaðar en áls,
til dæmis í ylrækt og
annan orkufrekan
smáiðnað.“