Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Blaðsíða 9
þriðjudagur 27. janúar 2009 9Fréttir
Friðrik Már Jónsson, fyrrverandi
flugumferðarstjóri og friðargæslu-
liði, fer fram á fimmtíu milljónir
króna í bætur frá utanríkisþjón-
ustunni vegna miska sem hann
varð fyrir þegar hann starfaði sem
friðargæsluliði í Kabúl árið 2004.
Friðrik er einn þeirra sem urðu
fyrir sjálfsmorðssprengjuárás við
Kjúklingastræti þegar Hallgrím-
ur Sigurðsson, yfirmaður íslensku
friðargæslunnar í Kabúl, fór þang-
að ásamt undirmönnum sínum og
fylgdarliði að kaupa teppi.
Friðrik hefur stefnt utanríkis-
þjónustunni vegna þessa og var
málið þingfest fyrir helgi.
Skortur á þjálfun
Eina þjálfunin sem Friðrik Már
fékk áður en hann fór til Kabúl var
stuttleg kynning á notkun skamm-
byssu, sem tók hluta úr degi. „Var
þar nokk ólíku saman að jafna að
aðrir sem voru á leið til Afganistan
héldu til Noregs til tveggja vikna
þjálfunar hjá norska hernum. Af
slíkri þjálfun frétti [Friðrik] svo af
afspurn frá öðrum friðargæslulið-
um...“ segir í stefnunni.
Sömuleiðis fékk Friðrik enga
kynningu eða þjálfun í notkun
þess búnaðar sem hann notaði
í Kabúl, svo sem hríðskotariffils,
eiturefnagalla og gasgrímu.
Vanþekking og vanmat
Í stefnu Friðriks segir að hann og
starfsfélagar hans hafi verið „...
starfsskyldna sinna vegna stadd-
ir í Kabúl og urðu þar fyrir árás
vegna vanmats á aðstæðum og
ófullnægjandi verndar sem til var
komið vegna vanþekkingar og
vanþjálfunar.“ Vanbúnaður þessi
er á ábyrgð utanríkisþjónustunn-
ar, að mati Friðriks Más sem tek-
ur fram að hann ætli henni ekki
ábyrgð á sjálfri árásinni. Hallgrím-
ur, sem var yfirmaður Friðriks,
hafði sömuleiðis metið að óhætt
væri að fara að Kjúklingastræti
þennan dag.
Friðrik slapp að mestu við lík-
amleg meiðsli, að heyrnarskemmd
undanskilinni, en hins vegar hef-
ur hann þjáðst af alvarlegri áfall-
astreituröskun sem hefur leitt til
þess að allt líf hans hefur farið úr
skorðum.
Hann er menntaður flugum-
ferðarstjóri. Tilraun hans til að
koma aftur til starfa sem slíkur eft-
ir slysið gekk ekki og hefur hann
verið algjörlega óvinnufær.
Friðrik krefst bóta vegna 65
prósent varanlegrar örorku og 30
stiga varanlegs miska, auk réttar
til þjáningarbóta í 355 daga.
„Shit happens“
Eftirminnileg eru orð Hallgríms
sem hann lét falla eftir árásina
en hann sagði einfaldlega: „Shit
happens.“ Hann baðst síðar af-
sökunar á þessari athugasemd og
sagðist ekki hafa ætlað að særa
neinn. Í árásinni lést þrettán ára
gömul afgönsk stúlka og banda-
rísk kona. Fjórir íslenskir friðar-
gæsluliðar særðust í árásinni auk
fjölda heimamanna. Við komuna
heim frá Kabúl klæddust þeir bol-
um sem á stóð „Chicken street
– Shit happens“ og sögðu þeir að
um svartan húmor væri að ræða.
Friðargæsluliðarnir sem slös-
uðust í árásinni fóru þegar fram á
bætur frá Tryggingastofnun ríkis-
ins. Beiðni þeirra var upphaflega
hafnað vegna þess að talið var að
þeir hefðu slasast í frítíma sínum.
Sú ákvörðun hlaut mikla gagnrýni.
Árið 2005 skipti forstjóri Trygg-
ingastofnunar um skoðun og var
ákveðið að veita þeim bætur. Rök-
in fyrir sinnaskiptunum voru þau
að greinarbetri upplýsingar hefðu
borist frá utanríkisráðuneytinu
sem leiddu í ljós að friðargæslu-
liðarnir ættu rétt á bótum. Friðrik
var þá metinn 30 prósent öryrki og
ákvarðaðar rúmar 5,4 milljónir í
bætur, sem hann telur óviðunandi
upphæð miðað við þann skaða og
tekjutap sem árásin hefur valdið
honum.
Viðbrögð ráðuneytis
gagnrýnd
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra skipaði í apríl á síð-
asta ári hæstaréttardómarana fyrr-
verandi Guðrúnu Erlendsdóttur
og Harald Henrysson til að kanna
til hlítar atburði þá sem áttu sér
stað í Kabúl 23. október 2004. Þau
kynntu skýrslu um árásina í ágúst
og eru viðbrögð utanríkisráðu-
neytisins þar gagnrýnd harðlega.
Meðal annars er tekið til að ekki
hafi verið til viðbragðsáætlun sem
hægt var að styðjast við og að við-
brögð ráðuneytisins hafi verið til-
viljanakennd. Þá kom einnig fram
að þrír af fjórum friðargæsluliðum
sem særðust í árásinni höfðu enn
ekki fengið greiddar bætur.
Þegar DV náði tali af Friðrik Má
sagðist hann ekki vilja tjá sig um
málið fyrr en málarekstri væri lok-
ið.
Friðrik Már Jónsson hefur stefnt utanríkisþjónustunni vegna örorku og miska sem hann varð fyrir í sjálfs-
morðsárás þegar hann sinnti störfum friðargæsluliða í Kabúl árið 2004. Hann var í fylgdarliði Hallgríms
Sigurðssonar, yfirmanns friðargæslunnar, sem hafði augastað á teppum sem seld voru við Kjúklingastræti.
Friðrik Már segist enga þjálfun hafa fengið til að geta brugðist við þeim aðstæðum sem sköpuðust við árás-
„Var þar nokk ólíku
saman að jafna að
aðrir sem voru á leið
til Afganistan héldu
til Noregs til tveggja
vikna þjálfunar hjá
norska hernum.“
Erla HlynSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
afdrifarík teppakaup Fjórir íslenskir
friðargæsluliðar fylgdu yfirmanni íslensku
friðargæslunnar í Kabúl þegar hann fór
þangað til að kaupa afgönsk teppi.
Mynd Fréttablaðið
friðargæsluliði
vill 50 milljónir