Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Blaðsíða 3
þriðjudagur 27. janúar 2009 3Fréttir
RíkisstjóRniR íslands
ÞRiðja stjóRn
HeRmanns
17. apr. 1939 – 18. nóv. 1941
Forsætisráðherra Hermann
Jónasson - Framsóknarfl.
ólafía
16. maí 1942 – 16. desember 1942
Forsætisráðherra Ólafur Thors
Sjálfstæðisflokkur
UtanÞingsstjóRn
16. desember 1942 – 21. okt. 1944
Forsætisráðherra Björn Þórðarson
ráðherrar utan þings
ÞjóðstjóRn
18. nóvember 1941 – 16. maí 1942
Forsætisráðherra Hermann
Jónasson - Framsóknarflokkur,
Sjálfstæðisflokkur og alþýðuflokkur
nýsköpUnaRstjóRnin
21. október 1944 – 4. febrúar 1947
Forsætisráðherra Ólafur Thors
Sjálfstæðisflokkur, Sósíalista-
flokkur, alþýðuflokkur
emilía
23. desember 1958
– 20. nóv. 1959,
Forsætisráðherra
Emil Jónsson
- alþýðuflokkur
ViðReisnaRstjóRn
20. nóvember 1959 – 14. júlí 1971
Forsætisráðherrar Ólafur Thors, Bjarni Bene-
diktsson, Jóhann Hafstein - Sjálfstæðisflokkur,
alþýðuflokkur
VinstRistjóRn
28. september 1988 – 10. september 1989
Forsætisráðherra Steingrímur
Hermannsson - Framsóknarflokkur,
alþýðuflokkur, alþýðubandalag
VinstRistjóRn
10. september 1989 – 30. apríl 1991
Forsætisráðherra Steingrímur
Hermannsson - Framsóknarflokkur, alþýðu-
flokkur, alþýðubandalag, Borgaraflokkur
ViðeyjaRstjóRn
30. apríl 1991 – 23. apríl 1995
Forsætisráðherra Davíð
Oddsson - Sjálfstæðisflokkur,
alþýðuflokkur
stjóRn sjálfstæðisflokks
og fRamsóknaRflokks
23. apríl 1995 – 24. maí 2007
Forsætisráðherra Davíð Oddsson, Halldór Ásgrímsson, Geir H. Haarde
Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur
ÞingVallastjóRn
24. maí 2007 –
Forsætisráðherra Geir H. Haarde
Sjálfstæðisflokkur, Samfylking
1965 1966 1967 1968 1969 1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009
stefanía
4. febrúar 1947 – 6. des.1949
Forsætisráðherra Stefán
J. Stefánsson - alþýðufl.,
Sjálfstæðisfl., Framsóknarfl.
ólafía
6. des.1949 – 14. mars 1950
Forsætisráðherra Ólafur Thors
Sjálfstæðisflokkur
VinstRistjóRn
24. júlí 1956 – 23. desember 1958,
Forsætisráðherra Hermann
Jónasson - Framsóknarflokkur,
alþýðubandalag, alþýðuflokkur
RíkisstjóRn steingRíms
steinÞóRssonaR
14. mars 1950 – 11. september 1953,
Forsætisr. Steingrímur Steinþórsson
- Framsóknarfl. og Sjálfstæðisfl.
1917 1918 1919 1920 1921 1922 1923 1924 1925 1926 1927 1928 1929 1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949 1950 1951 1952 1953 1954 1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964
RíkisstjóRn ólafs tHoRs
11. september 1953 – 24. júlí 1956
Forsætisráðherra Ólafur Thors
Sjálfstæðisfl. og Framsóknarfl.
Stjórnin Sprakk á Davíð
lendra skulda bankanna sem fóru í
þrot. Þá er ríkissjóði mikill vandi á
höndum vegna gríðarlegs fjárlaga-
halla í kjölfar bankahrunsins. VG
vill auk þess fá erlenda sérfræðinga
til starfa vegna fjárhagsvandans og
rannsóknar á bankahruninu, efna
til stjórnlagaþings í upphafi næsta
kjörtímabils og afnema eftirlauna-
lögin.
Ljóst er að erfitt verður að verja
velferðarkerfið. Tilboð Samfylking-
arinnar um að Jóhanna Sigurðar-
dóttir leiði ríkisstjórn næstu vikur
og mánuði má skoða sem tilboð sér-
staklega ætlað vinstri-grænum sem
leggja þunga áherslu á að verja vel-
ferðarkerfið líkt og Jóhanna. Ingi-
björg Sólrún sagði jafnframt í gær að
Jóhanna væri óumdeild sem stjórn-
málamaður með mikla reynslu.
DV hefur heimildir fyrir því
að svo seint sem í fyrrakvöld hafi
nöfn eins og Dags B. Eggertsson-
ar og Helgu Jónsdóttur, bæjarstjóra
í Fjarðabyggð, verið uppi á borði
Samfylkingarinnar. Enda kvaðst Jó-
hanna í gær ekki hafa fengið tilboð
um forsætisráðherraembættið fyrr
en í gærmorgun. Fyrsti kostur Ingi-
bjargar var þó að leita til Össurar
Skarphéðinssonar þótt hann neiti
því sjálfur að svo hafi verið.
Stjórnarmyndun í
hendur Samfylkingar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, hefur það nú í sinni hendi
hverjum hann afhendir umboð til
þess að mynda ríkisstjórn þar eð
Geir H. Haarde fór ekki fram á það í
gær að þing yrði rofið.
Við þessi skilyrði fær tilboð Fram-
sóknarflokksins um að verja minni-
hlutastjórn VG og Samfylkingar falli
fram að vorkosningum aukið vægi.
Eins og frá var greint í DV síðastlið-
inn fimmtudag hafa líkur á myndun
slíkrar ríkisstjórnar verið miklar. Sig-
mundur D. Gunnlaugsson, nýkjör-
inn formaður Framsóknarflokksins,
sagði í samtali við DV þennan dag
að hann teldi að Sjálfstæðisflokkur-
inn væri ekki í standi til þess að leiða
einn minnihlutastjórn. „Það er mik-
ill vilji til þess í Framsóknarflokkn-
um að Sjálfstæðisflokkurinn fái frí
frá ríkisstjórnarsetu.“
Yfirlýsing Framsóknarflokksins
og orð Sigmundar benda í sömu átt
og orð Steingríms J. Sigfússonar hér
að framan; að formanni Samfylk-
ingarinnar verði falið umboðið til að
reyna myndun nýs meirihluta á Al-
þingi og þar með nýrrar ríkisstjórn-
ar VG og Samfylkingar, með þátttöku
eða hlutleysi Framsóknarflokksins.
Að þessu samanlögðu bendir allt
til þess að Ólafur Ragnar kalli Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur, for-
mann Samfylkingarinnar, á sinn
fund í dag og feli henni umboð til að
kanna möguleika á myndun nýrrar
ríkisstjórnar. „Um 75 prósenta líkur
eru á að þetta takist,“ sagði einn af
forkólfum Samfylkingarinnar í gær.
Varnarmúrinn rofinn geir H. Haar-
de taldi sig hafa teflt varnartaflið fyrir
davíð Oddsson til enda. Samfylkingin
var á annarri skoðun.
MynD Gunnar GunnarSSOn
VG inn úr kuldanum?
Steingrími j. Sigfússyni
líst ekki á þjóðstjórn og
setur ekki fyrir sig hvaða
fólk stjórni ef markmið-
um er náð.
MynD rakEl ÓSk SiGurðarDÓTTir