Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Page 12
þriðjudagur 27. janúar 200912 Fréttir
Fjórtán ára lögga
Lögreglustöð í einu úthverfa Chic-
ago liggur undir ámæli þessa dagana
eftir að fjórtán ára gömlum pilti tókst
á laugardaginn að ganga inn á stöð-
ina og fá úthlutað verkefni. Því næst
fór pilturinn upp í lögreglubíl ásamt
lögreglumanni og ók með hon-
um um götur borgarinnar í fimm
klukkustundir.
James Jackson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn á stöðinni segir að upp hafi
komist um málið þegar pilturinn
snéri til baka til að skila bílnum. Yf-
irmenn stöðvarinnar tóku eftir að
hann var ekki með lögreglustjörnu á
búningnum sem venja er á búning-
um alvöru lögregluþjóna.
Segir lögreglan að um alvarlegan ör-
yggisbrest sé að ræða en pilturinn á
yfir höfði sér kæru.
Hjólabrettaæði hefur gripið um sig
í nokkrum íbúðarhverfum í Kabúl,
höfuðborg Afganistans. Áhuginn á
þessari vestrænu íþrótt er orðinn svo
mikill meðal ungmenna, að Ástr-
ali að nafni Oliver Percovich, sem
búsettur er í Kabúl, hefur ákveðið
að setja á fót fyrsta hjólabrettaskóla
borgarinnar á næstu mánuðum.
Hann segir íþróttina gefa ungling-
um og börnum kost á því að upplifa
eðlilegt líf og eiga sér uppbyggileg
áhugamál án mikils tilkostnaðar. Í
hverfi einu í Kabúl, safnast nú reglu-
lega saman afgönsk ungmenni við
gamalt sovéskt steypumót, sem nú
þjónar nýjum tilgangi sem hjóla-
brettagarður af frumstæðri gerð.
Percovich hefur hins vegar fé til
þess að byggja glæsilegan hjóla-
brettagarð í útjaðri Kabúl. Borgar-
yfirvöld hafa þegar gefið land undir
framkvæmdirnar og eru miklar von-
ir bundnar við framkvæmdina.
Meðal þeirra sem stunda hjóla-
brettamennsku reglulega er hin níu
ára gamla stúlka Maro. „Hjólabrett-
in veita mér kjark og um leið og ég
fer að renna mér, þá gleymi ég öllum
mínum áhyggjum,“ segir hún.
Í síðustu viku sprengdi afgansk-
ur vígamaður sig í loft aðeins 20
metra frá hjólabrettagarðinum, en
slíkir harmleikir eru daglegt brauð í
lífi afganskra barna. Önnur afgönsk
stúlka, Hadisa, sem stundar hjóla-
brettamennsku af krafti, segir þó að
íþróttin sé ekki viðurkennd af fjöl-
skyldu hennar. „Bræður mínir börðu
mig fyrir að renna mér á hjólabretti.
Það er hins vegar í lagi, þeir hafa rétt
á því.“ Þegar ungu stúlkurnar ná kyn-
þroska, neyðast þær hins vegar til að
hætta að stunda íþróttina, því þá ber
þeim skylda til að hylja sig frá toppi
til táar. Vonir standa hins vegar til að
leysa megi það vandamál með því
að aðgreina hjólabrettaaðstöðu fyrir
stráka og stelpur í nýju höllinni.
valgeir@dv.is
Ástralskur ofurhugi stefnir á byggingu fyrsta hjólabrettaskólans í Kabúl:
Hjólabrettaæði grípur um sig í afganistan
Ungu stúlkurnar sem Lubanga rændi
voru notaðar sem kynlífsþrælar af
leiðtogum uppreisnarmanna um
leið og þær urðu kynþroska.
Thomas Lubanga, fyrrverandi
leiðtogi uppreisnarmanna í Aust-
ur-Kongó, kom fyrir dómara stríðs-
glæpadómstóls Sameinuðu þjóð-
anna í Haag í Hollandi í gær. Þar
lýsti hann sig saklausan af ákærum
um að hafa notað barnahermenn í
fimm ára átökunum í Ituri-héraðinu
í Kongó sem lauk árið 2003. Í átökun-
um var mörgum óbreyttum borgur-
um rænt og þeir neyddir til að vinna
fyrir uppreisnarmennina.
Notaði þrjátíu þúsund börn
Ákæran á hendur Lubanga er í sex
liðum og er hann ákærður fyrir að
nota þúsundir barna undir fimmt-
án ára aldri til að berjast í fimm ára
átökunum. Saksóknarar halda því
fram að barnahermennirnir hafi
verið notaðir til að drepa meðlimi
Lendu-hópsins og að Lubanga hafi
notað hermennina sem lífverði sína.
Lubanga á að hafa ráðið barnaher-
mennina í þjónustu sína frá 1. sept-
ember 2002 til 13. ágúst 2003. Meira
en þrjátíu þúsund börn voru fengin
í þjónustu Lubanga á þessu tímabili
en talið er að átökin hafi kostað sex-
tíu þúsund manns lífið.
Drepa, ræna og nauðga
Réttarhöldin hófust í gær eftir sjö
mánaða töf þar sem dómarar og sak-
sóknarar ræddu um trúnaðarsönn-
unargögn. Luis Moreno-Ocampo
tók fyrstur til máls fyrir hönd ákæru-
valdsins og sagði Lubanga hafa notað
börnin til að drepa, ræna og nauðga.
„Börnin þjást ennþá vegna glæpa
Lubanga. Þau gleyma ekki hvað þau
gengu í gegnum, hvað þau sáu og
hvað þau gerðu. Þau voru níu, ell-
efu og þrettán ára,“ segir Moreno-
Ocampo. Hann segir enn fremur að
nokkur barnanna noti nú fíkniefni til
að lifa af og einhver þeirra hafi leiðst
út í vændi.
Í réttarhöldunum sýndi hann
myndbandsupptöku af æfingabúð-
um Lubanga þar sem hann var í fé-
lagsskap ungra manna og barna og
sum þeirra voru klædd í herbún-
inga. Moreno-Ocampo krefst þess
að Lubanga fái að sitja í fangelsi í allt
að þrjátíu ár vegna alvarleika glæps-
ins.
Saklaus friðarsinni
Börnunum var að sögn ákæru-
valdsins rænt á leiðinni í skóla eða
á íþróttavöllum. Ungu stúlkurnar
sem Lubanga rændi voru notaðar
sem kynlífsþrælar af leiðtogum upp-
reisnarmanna um leið og þær urðu
kynþroska.
Ákæruvaldið heldur því fram að
börnin hafi þurft að þola grófar bar-
smíðar og misnotkun af ýmsu tagi.
Mörgum börnunum var gefið mar-
ijúana og þeim sagt að það ætti að
vernda þau gegn göldrum.
93 fórnarlömb Lubanga eru varin
af átta lögfræðingum í réttarhöldun-
um en 34 vitni verða kölluð í vitna-
stúkuna. Þar á meðal eru fyrrverandi
barnahermenn, fyrrverandi með-
limir uppreisnarmanna og sérfræð-
ingar af ýmsu tagi en réttarhöldin
munu að öllum líkindum standa yfir
í marga mánuði. Fyrsta vitnið fer í
BÖRN NOTUÐ TIL AÐ DREPA OG NAUÐGA
LiLja KatríN GuNNarSDóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
thomas Lubanga, fyrrverandi leiðtogi uppreisnar-
manna í Austur-Kongó, kom fyrir dómara stríðsglæpa-
dómstóls Sameinuðu þjóðanna í gær. Hann er sakaður
um að hafa notað barnahermenn í fimm ára átökunum
sem lauk árið 2003. Lubanga lýsti yfir sakleysi sínu en
margir barnahermenn Lubanga hafa leiðst út í fíkni-
efni og vændi. Meira en þrjátíu þúsund börn undir
fimmtán ára aldri voru fengin í þjónustu Lubanga en
þeim var rænt á leið í skóla eða á íþróttavöllum.
Blóðug átök Talið er að um sextíu
þúsund manns hafi látið lífið í fimm
ára átökunum í austur-Kongó.