Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Síða 13
þriðjudagur 27. janúar 2009 13Fréttir
Spilltir lávarðar
Fjórir þingmenn úr bresku lávarða-
deildinni sæta nú ásökunum um
að hafa verið reiðubúnir að breyta
lögum gegn greiðslu. Fjallað var
um mál mannanna í The Sunday
Times. Þar sagði að Taylor lávarður
frá Blackburn hefði sagt við blaða-
mann að honum hefði tekist að
seinka löggjöf fyrir eitt fyrirtæki.
Þannig hafi honum tekist að vinna
á bak við tjöldin að hagsmunum
þeirra sem hafa greitt honum fé.
Haft er eftir honum að hann hafi
fengið 25 þúsund til 100 þúsund
pund á ári frá fyrirtækjum.
Lávarðarnir sem um ræðir eru allir
skipaðir af Verkamannaflokknum.
Krabbamein í blöðruhálskirtli gæti tengst kynlífi ungra manna:
Karlmenn sem lifa miklu kynlífi eða
fróa sér oft á tvítugs- og þrítugsaldri
virðast eiga frekar á hættu en aðrir
að fá krabbamein í blöðruhálskirtil.
Þetta kemur fram í rannsókn vísinda-
manna við háskólann í Nottingham
sem spurði 800 menn út í kynlífs-
reynslu þeirra. Samkvæmt frétt BBC af
rannsókninni virðist fylgni á milli þess
hversu mikla kynferðislega útrás karl-
menn fá og líkanna á því hvort þeir fái
krabbamein í blöðruhálskirtil.
Vísindamenn undir forystu Polyx-
eni Dimitropoulou ræddu við rúm-
lega fjögur hundruð menn sem hafa
greinst með krabbamein í blöðruháls-
kirtli og álíka marga menn sem höfðu
aldrei þjáðst af sjúkdómnum.
Að sögn vísindamannanna telja
þeir að aukið magn kynlífshormóna
í sumum mönnum leiði hvort tveggja
til þess að þeir séu virkari í kynlífi
og eigi meiri hættu á að fá meinið.
„Hormónar virðast leika lykilhlutverk
um myndun krabbameins í blöðru-
hálskirtli og það er mjög algengt að
veita mönnum meðferð sem felst í
því að draga úr hormónunum sem ýta
undir krabbameinsmyndunina,“ sagði
Dimitropoulou.
Rannsóknin er áhugaverð, sagði
John Neate, yfirmaður samtaka sem
berjast fyrir lækningum á krabba-
meini í blöðruhálskirtli. Hann sagði
þó að styðja yrði rannsóknina frekari
sönnunargögnum áður en væri hægt
að taka hana fullgilda. Þá benti hann
á að það gæti reynst erfitt fyrir menn
að rifja upp hversu oft og með hversu
mörgum félögum þeir hefðu stundað
kynlíf tveimur til þremur áratugum
áður en rannsóknin var gerð.
Kynóðir fá krabbamein
Neita hjálparávarpi
Stjórnendur tveggja stærstu frétta-
sjónvarpsstöðva Bretlands hafa
neitað að senda út hjálparkall frá
Gaza, þar sem fólk er hvatt til þess
að styðja við bakið á Gaza-búum
eftir innrás Ísraela.
Mark Thompson, yfirmaður BBC,
og John Ryley, yfirmaður Sky News,
segja báðir að útsendingin brjóti
í bága við þá skyldu stöðvanna að
vera hlutlausar í umfjöllun sinni.
Stjórnendur nokkurra annarra sjón-
varpsstöðva hafa hins vegar ákveðið
að senda hjálparkallið út. Það er í
formi sjónvarpsþáttar.
BBC hefur sætt mikilli gagnrýni fyr-
ir að senda þáttinn ekki út.
BÖRN NOTUÐ TIL AÐ DREPA OG NAUÐGA
vitnastúkuna á miðvikudaginn en
það er fyrrverandi barnahermað-
ur. Því næst verður faðir hans látinn
bera vitni.
Þrátt fyrir óteljandi sannanir
gegn Lubanga heldur hann því statt
og stöðugt fram að hann hafi verið
að reyna að koma á friði í Ituri-hér-
aðinu í Austur-Kongó. Í mörg ár hafa
þar geisað blóðug átök milli hópa
sem vilja ráða yfir steinefnaauðlind-
um héraðsins.
Skýr skilaboð
Réttarhöldin hafa vakið mikla at-
hygli í Ituri-héraðinu og segir frétta-
ritari BBC í Kongó að fjögur hundruð
manns muni fylgjast með á stórum
skjá í höfuðborg héraðsins, Bunia.
Hann segir enn fremur að börn séu
enn neydd til að berjast í nágrenni
héraðsins.
Martin Plaut, sem fæst við grein-
ingu á Afríku fyrir BBC-fréttastofuna,
segir að með þessum réttarhöld-
um sendi stríðsglæpadómstóllinn
skýr skilaboð til uppreisnarmanna
um allan heim sem hafa framið ófá
ódæðisverk á síðustu árum án þess
að vera sóttir til saka.
Dómarar stríðsglæpadómstólsins
munu ákveða bráðlega hvort þurfi
að gefa út handtökuheimild á hend-
ur Omar al-Bashir, forseta Súdans,
en hann er sakaður um þjóðarmorð
í Darfur.
Notaðar sem kynlífsþrælar
Stúlkurnar sem hnepptar voru
í ánauð Lubanga voru notaðar
sem kynlífsþrælar um leið og þær
náðu kynþroskaaldri.
Hættuleg hormón Hormón
sem ýta undir kynferðislega
virkni gætu líka ýtt undir
krabbamein.