Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Síða 17
þriðjudagur 27. janúar 2009 17Sport
ÖRLÆTI PAC MAN Eftir að ricky Hatton fékk nóg af samningaþófinu í
Manny Pacquiao fyrir bardaga þeirra í maí og hóf viðræður við de la Hoya og
Floyd Mayweather jr. stökk Pacquiao til og samþykkti rúmlega 117 milljón-
ir dollara auk helmings af sjónvarpsréttindum fyrir að stíga í hringinn með
Hatton. Pac Man vildi 60% af öllum peningum en hefur nú fundið auðmýkt
og örlæti í hjarta sínu og sætt sig við fjórtán og hálfan milljarð króna fyrir að
hámarki 48 mínútur í hringnum. þá eru ótaldar tekjur af sjónvarpsútsending-
um sem vonandi færa Pacquiao greyinu aðeins meira salt í grautinn. Bardagi
Hattons og Pacquiaos fer fram í Las Vegas 2. maí.
Evrópu- og Englandsmeistarar
Manchester United jöfnuðu um þar-
síðustu helgi met Chelsea frá því
tímablið 2004-05 með því að halda
hreinu tíunda leikinn í röð. United,
sem hefur verið á mikilli siglingu,
tryggði sér þar þrjú mikilvæg stig á
lokamínútu leiksins þegar Dimitar
Berbatov skallaði knöttinn í netið
gegn Bolton á útivelli.
Manchester United getur bætt
metið í kvöld og haldið hreinu ellefta
leikinn í röð þegar liðið mætir neðsta
liði úrvalsdeildarinnar, West Brom,
á útivelli. Það sem meira er, United
getur sett meiri pressu á Liverpool
með sigri. Liverpool leikur ekki fyrr
en á morgun gegn Wigan á útivelli og
getur United því verið með sex stiga
forskot þegar Liverpool-liðar halda
inn á JJB-völlinn.
Ryan Giggs segir fyrri leik liðanna
sem endaði með 4-0 sigri meist-
aranna ekki endurspegla hvernig
sá leikur þróaðist. „WBA var mun
betra en við á löngum köflum og
hélt hreinu í hálfleik. Það er á miklu
skriði þessa stundina, sérstaklega
á heimavelli og þetta er lið sem vill
spila fótbolta. Þetta verður erfiður
leikur,“ segir örvfætta goðsögnin á
Old Trafford.
Meiðslalisti meistaranna lengdist
þó um helgina í bikarsigrinum gegn
Tottenham en Fabio, bróðir Rafaels
sem hefur verið að geta sér gott orð
með aðalliðinu, gekk ásamt hinum
unga Danny Welbeck af velli meidd-
ur.
Fjórir leikir eru á dagskrá í kvöld.
Tottenham, sem fjárfesti í tveimur
nýjum mönnum í gær, mætir Stoke á
heimavelli, Portsmouth tekur á móti
Aston Villa og þá sækir Fulham lið
Sunderland heima á Leikvang ljóss-
ins.
tomas@dv.is
Manchester United getur bætt met Chelsea í kvöld:
hALdA þeIR hReINu í eLLefu LeIkI?
BeTRI eN SChuMI
nýr framkvæmdastjóri McLaren-
liðsins í Formúlu 1, Martin
Whitmarsh, segir heimsmeistarann
Lewis Hamilton getað jafnað og
jafnvel bætt met þjóðverjans
Michaels Schumacher sem státar af
hvorki fleiri né færir en sjö
heimsmeistaratitlum. Hamilton
vann sinn fyrsta síðasta haust. „Hann
getur svo sannarlega bætt þetta
met. Hann hefur alla burði til þess
en hann mun sjálfur aldrei tala um
það því hann er svo hógvær,“ segir
Whitmarsh. „aðalatriðið að muna er
að Hamilton er aðeins 24 ára gamall
núna og þegar búinn að vinna
heimsmeistaratitil. Hann hefur ekki
enn toppað,“ segir Martin Whit-
marsh.
eITT MARk, eITT
hÖgg
það var skammvinn gleðin hjá
brasilíska framherjanum adriano hjá
inter. adriano fékk örlitla uppreisn
æru þegar hann skoraði sigurmark
inter gegn Sampdoria um helgina
en Brassinn hefur staðið í endalausu
stríði við þjálfarann, jose Mourinho. Í
leiknum kýldi adriano leikmann
Sampdoria en dómarinn sá ekki
atvikið og gerði því eðlilega ekkert í
því. Í gær fór svo aganefnd ítalska
knattspyrnusambandsins yfir atvikið
á myndbandi og dæmdi framherj-
ann kraftmikla í þriggja leikja bann.
TveIR TIL ToTTeN-
hAM
Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham
heldur áfram að styrkja sig fyrir
seinni hlutann í deildinni en
Lundúnaliðið nældi sér í tvo
leikmenn í gær. Fyrst var tilkynnt að
félagið hefði náð samningum við
ítalska markvörðinn Carlo Cudicini
sem kemur til liðsins frá Chelsea þar
sem hann hefur verið undanfarin ár.
Cudicini var aðalmarkvörður Chelsea
og einn sá besti í úrvalsdeildinni
áður en Petr Cech kom og hirti af
honum stöðuna. Mörg lið hafa reynt
að fá Cudicini undanfarin ár en hann
hefur haft það gott á fínum launum
á tréverkinu hjá Chelsea.
Seinna um daginn var gengið frá
kaupum á franska hægri bakverðin-
um Pascal Chimbonda frá Sunder-
land en hann þekkir ágætlega til hjá
félaginu. Chimbonda lék með
Tottenham í tvö ár áður en hann hélt
til Sunderland í sumar en snýr nú
aftur eftir aðeins nokkurra mánaða
fjarveru.
uMSjón: TóMaS þór þórðarSon, tomas@dv.is / SVEinn WaagE, swaage@dv.is
Síðustu vikur og mánuðir hafa
verið knattspyrnufélögunum erfið.
Mýmörg þeirra hafa beðið leikmenn
sína um að taka á sig launalækkanir
og fyrir leikmenn sem nú þegar hafa
misst vinnuna eða treystu á fótbolt-
apeninginn með skólagöngunni eru
góð ráð dýr.
Floy sem leikur í þriðju efstu deild
í Noregi hugsar sér gott til glóðarinn-
ar á íslenskum markaði. Liðið hefur
nú þegar tryggt sér þjónustu Jóhann-
esar Harðarsonar sem flutti sig til í
Noregi, Óli Stefán Flóventsson hef-
ur æft með liðinu og bíður nú eft-
ir samningstilboði og þá hefur liðið
verið að bera víurnar í Tryggva Guð-
mundsson, leikmann Íslandsmeist-
ara FH.
Kreppunni að kenna
„Já, það má eiginlega segja það
hreint út. Kreppan varð til þess að ég
fór að spá alvarlega í þessi mál,“ seg-
ir Óli Stefán Flóventsson, miðvörður
Fjölnis, sem sló í gegn í Landsbanka-
deildinni í sumar. „Ég hef verið í skóla
síðustu tvö árin og unnið aðeins með
skólanum. Það ásamt peningunum
fyrir fótboltann hefur tryggt manni
að ná endum saman,“ segir Óli sem
er að læra sjúkraliðann og starfaði í
lausamennsku við það áður en hann
missti starfið.
Líklega verið áfram
Óli fór utan að æfa með Floy og
bíður eins og áður segir eftir samn-
ingstilboði frá liðinu. En hefði ekkert
breyst í knattspyrnuheiminum væri
hann þá áfram í Fjölni? „Það er mjög
hugsanlegt,“ svarar Óli sem viður-
kennir að Fjölnir hafi beðið hann um
að taka á sig launalækkun. Hjá Floy
fer hann ekki í fulla atvinnumennsku
en með knattspyrnunni fær hann
starf og konan hans líka.
Betur staddur
„Þetta er auðvitað ekkert í hendi
en félagið talaði um tveggja ára
samning. Ég myndi fá vinnu með
boltanum og konan líka. Bara með
því að fara út að vinna væri ég bet-
ur staddur en hér heima,“ segir Óli
og hlær við. „Þetta er samt ekki allt
slæmt því þetta er fínt tækifæri til
að prófa eitthvað nýtt og eins og ég
sá þegar ég var úti er þetta flott fót-
boltalið,“ segir Óli Stefán Flóvents-
son og játti því að hann hefði heyrt af
fleiri leikmönnum í kringum sig sem
væru að skoða svipaða hluti og hann.
Þá tjáði hann einnig blaðamanni að
hann hefði einnig heyrt af leikmönn-
um sem væru að hugsa um að flytja
út til þess eins að fá vinnu og knatt-
spyrnan væri þá í aukahlutverki, ef
einhver væri.
Tveir til Færeyja
Það eru ekki aðeins lið í Svíþjóð
og Noregi sem sækja í íslenska leik-
menn heldur nældi færeyska B-
deildar liðið MB1905 sér í tvo minna
þekkta í byrjun mánaðarins. Mark-
vörðinn Halldór Skarphéðinsson frá
BÍ/Bolungarvík og Daða Má Steins-
son frá Aftureldingu. Sá síðarnefndi
segir kreppuna vera ástæðu vista-
skiptanna.
„Ég missti vinnuna hjá Árdegi
þannig að það kom lítið annað til
greina hjá mér þegar þetta bauðst.
Peningarnir eru ekki beint í fótbolt-
anum þarna. Þetta er voða svipað og
hefði ég gert samning við eitthvert lið
hér heima. Ég fæ þó húsnæði og all-
an útbúnað frítt. En þarna úti fæ ég
vinnu. Félagið hefur lofað mér bygg-
ingarvinnu með góðum launum og
góðum vinnutíma,“ segir Daði Már
Steinsson.
Kreppan hér heima hefur neytt marga knattspyrnumenn til að líta í kringum sig. Neðri-
deildarlið í Skandinavíu horfa nú girndaraugum til íslenskra leikmanna sem þeir geta
fengið á sannkölluðu krepputilboði. Óli Stefán Flóventsson bíður nú eftir tilboði frá 2.
deildar liðinu Floy en Óli viðurkennir að kreppan valdi því að hann fer utan eftir að
Fjölnir bað hann um að taka á sig launalækkun.
„Bara með því að fara
út að vinna væri ég
betur staddur en hér
heima.“
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Farinn
guðmundur
Steinarsson er
farinn til
Liechtenstein
MyNd GUNNAR
GUNNARSSON
Á leið út
óli Stefán Flóventsson er
að reyna flýja kreppuna.
MyNd FÓTBOLTi.NeT
Krepputilboð á
íslensKum leiKmönnum
LeiKMeNN FARNiR UTAN:
Guðmundur Steinarsson frá
Keflavík til FC Vaduz - Svissneska
a-deildin
Halldór Skarphéðinsson frá BÍ
til MB1905 - færeyska B-deildin
daði Már Steinsson uMFa til
MB1905 - færeyska B-deildin
Pétur Heiðar Kristjánsson frá
Hömrunum/Vinum til Stryn -
norska d-deildin
Kristján Sigurólason frá þór til
Stryn - norska d-deildin
Atli Heimisson frá ÍBV til asker -
norska C-deildin
Peter Gravesen frá Fylki til
Blokhus - danska C-deildin
Harður
Serbinn nemanja Vidic hefur
lagt allt í sölurnar til að halda
marki united hreinu.
MyNd GeTTy iMAGeS