Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Qupperneq 20
þriðjudagur 27. janúar 200920 Fókus
Frank og April Wheeler eru ung
hjón með tvö börn sem búa í út-
hverfi í Connecticut í Bandaríkj-
um sjötta áratugarins. Hún er lærð
leikkona en í upphafi myndar gefur
hún leiklistina upp á bátinn eftir að
hafa frumsýnt misheppnað leikrit
og Frank segir hana hæfileikalausa
leikkonu. Frank vinnur skrifstofu-
starf hjá sama fyrirtæki og faðir hans
hafði unnið hjá í tvo áratugi í tilbreyt-
ingarsnauðu starfi. Föður hans lík-
aði aldrei starfið og Frank er við það
að feta sömu leið óhamingjusams
lífs, þrátt fyrir að hafa lofað sjálfum
sér að gera ekki sömu mistök. Apr-
il er ekki hamingjusöm sem hús-
móðir en hvorugt hjónanna lætur á
neinu bera út á við og líta aðrir bæj-
arbúar hin fögru hjón öfundaraug-
um. Þegar April viðrar óvenjulega
hugmynd við eiginmanninn hriktir
í glansmyndinni sem til staðar er;
að þau flytji til Parísar þar sem hún
yrði fyrirvinna heimilisins á meðan
hann reyndi að átta sig á hvað hann
vilji gera í lífinu. Eftir smá umhugs-
un tekur Frank vel í hugmyndina og
Wheeler-hjónin ákveða að flytja bú-
ferlum haustið eftir. En þegar Frank
býðst stöðu- og launahækkun renna
á hann tvær grímur.
Revolutionary Road fjallar í aðra
röndina um það átak sem þurfti til að
konur kæmust út á vinnumarkaðinn
í álíka mæli og karlar. Og hún fjallar
um þessa byltingu með því að segja
sögu konu sem þráir að taka þátt
í henni en lendir á vegg. Húsvegg
heimilisins. Eiginmaðurinn hindrar
April í að fá draum sinn uppfylltan.
Hann er fangavörðurinn sem heldur
henni í prísundinni, sem áberandi
rimlumlíkir gluggalistarnir á heim-
ili Wheeler-hjónanna undirstrika,
og kemur skýrast fram í ógnarsterku
atriði þar sem April stendur við einn
glugga fangaklefa síns og afdrifarík-
ir atburðir eru að eiga sér stað. Yfir-
fangavörðurinn aftur á móti er venj-
an og óskrifuðu lögin að karlar ættu
að vinna fyrir heimilinu.
Wheeler-hjónin eru góðum kost-
um gædd en ná hins vegar ekki að
nýta það sem þau hafa til brunns
að bera vegna þess að þau elta ekki
drauminn. Þau gera öðrum til hæfis
með því að vera um kyrrt í stað þess
að brjótast út úr viðjum vanans og
hefðarinnar. Þau taka fyrstu skrefin
niður veg byltingarinnar en það þarf
hugrekki og dug til að halda göng-
unni áfram allt til enda.
Framvindan er hæg og örugg og
undirbygging dramatískra hápunkta
frábær. Hér er feikilega sterk mynd á
ferð í leikstjórn Sams Mendes, þess
sama og gerði American Beauty. Re-
volutionary Road er gjörólík þeirri
fyrrnefndu en ástir og átök Wheel-
er-hjónanna, í túlkun „Titanic-pars-
ins“ Leonardos DiCaprio og Kate
Winslet, gefa hinni eftirminnilegu
og meinfyndnu rimmu úthverfa-
hjónanna Kevins Spacey og Annette
Bening lítið eftir. Bæði Winslet og
DiCaprio sýna afbragðsleik og eng-
in furða að Winslet hafi fengið Gold-
en Globe-verðlaunin fyrir leik sinn
á dögunum. Þá skal getið stórgóðr-
ar óskarstilnefningarframmistöðu
Michaels Shannon í hlutverki geð-
veiks manns og eins konar samvisku
hins kjarklausa Franks.
Kristján Hrafn Guðmundsson
á þ r i ð j u d e g i
Fyrirmyndir toppa milljarðamæringa
gamanmyndin Role Models sem frumsýnd var um helgina var mest sótta mynd
helgarinnar í kvikmyndahúsum landsins. Hún vék þar með hinni rómuðu Slumdog
Millionaire úr toppsætinu sem kom ný inn á lista helgina áður. Hún situr nú í öðru sæti
en þar fyrir neðan er önnur gamanmynd, Bedtime Stories með AdAM sAndleR. nýjasta
mynd leonARdo diCApRio og KAte Winslet, revolutionary road sem frumsýnd var um
helgina, nær einungis sjöunda sæti listans.
Lay Low á
rósenberg
Lay Low verður með tónleika á Café
Rósenberg í kvöld. Lovísa mun þar
stíga á stokk, ásamt gítarleikara
sínum, Pétri Hallgrímssyni. Miðað
við hversu mikið er fram undan hjá
Lovísu erlendis á þessu ári er óljóst
hvenær hún muni spila á Íslandi
næst, segir í tilkynningu. Í fyrra-
málið halda hún Pétur til London
og ganga um borð í rútuna hennar
Emilíönu Torrini sem þau ætla að
túra með á næstu vikum. Stefnan er
sett á Frakkland þar sem tónleika-
ferð Emilíönu hefst 29. janúar. Auk
Frakklands verður spilað á Ítalíu, í
Þýskalandi, Sviss, Austurríki, Belgíu,
Hollandi og Lúxemborg eða á sautj-
án tónleikum alls.
MiðasaLa haF-
in á jón Fingra-
FiMa
Miðasala er hafin á tónleikaröð-
ina Af fingrum fram undir stjórn
Jóns Ólafssonar sem verður í Saln-
um og hefst í næsta mánuði. Þar
mun Jón sitja við flygilinn og fara
í gegnum sjóð íslenskra dægur-
laga með gestum sínum sem eiga
það sameiginlegt að hafa glatt
landsmenn með tónlist sinni í
lengri eða skemmtri tíma. Margir
muna sjálfsagt eftir samnefndnum
þáttum hans sem voru á dagskrá
RÚV. Fyrsti gestur Jóns er enginn
annar en Magnús Eiríksson sem
hefur samið ótal lög og texta sem
íslenska þjóðin hefur tekið ást-
fóstri við. Sérstakur gestur er Ellen
Kristjánsdóttir. Næstu gestir verða
svo Magnús Þór Sigmundsson og
Valgeir Guðjónsson.
guLLöLd
í bæjarbíói
Fjórar myndir sem gerðar voru á tíma
japönsku gullaldarinnar verða sýndar
hjá Kvikmyndasafni Íslands á næstu
vikum. Fyrsta myndin verður sýnd í
kvöld, myndin Ukigusa sem á ensku
nefnist Floating Weeds, í leikstjórn
Yasujiro Ozu. Myndin er frá árinu
1959 og er endurgerð Ozu á einni af
hans vinsælustu myndum, A Story of
Floating Weeds. Hópur farandleik-
ara með Komajuro nokkurn með í för
sækir heim lítið þorp þar sem hann á
bæði ástkonu og táningsson sem veit
ekki um föður sinn. Leiðtogi hópsins
og núverandi ástkona Komajuros
þekkir þó leyndarmálið og sakir af-
brýðisemi narrar hún unga leikkonu
úr hópnum til að draga drenginn á
tálar. Sýningin er klukkan 20.00 og
kostar 500 krónur inn.
Danssýningin Systur verður sýnd
að nýju í Iðnó frá og með næsta
laugardegi, 31. janúar, en hún var
sýnd fyrir fullu húsi og við góðar
viðtökur í maí í fyrra. Tvær sýning-
ar voru í Samkomuhúsinu á Akur-
eyri um síðastliðna helgi og voru
viðtökur sömuleiðis afbragðsgóð-
ar þar nyrðra að því er frá greinir
í fréttatilkynningu. Gagnrýnandi
DV gaf sýningunni þrjár stjörn-
ur í dómi sínum síðastliðið vor
og sagði hana forvitnilega. Aðr-
ir gagnrýnendur fóru ívið lofsam-
legri orðum um sýninguna.
Systur er rússíbanareið um
hugaróra tveggja kvenna. Ástrós
Gunnarsdóttir og Lára Stefáns-
dóttir túlka ýmis minni kvenna við
texta Hrafnhildar Hagalín og fjöl-
breytta tónlist þar sem viðfangs-
efnin eru meðal annars spenna,
söknuður, erótík, unaður, losti,
limir, hreinleiki og trú.
Ástrós og Lára eru báðar á með-
al reyndustu dansara og danshöf-
unda landsins. Þær bregða sér í
ýmis gervi í sýningunni, auk þess
sem karlmaður stígur með þeim
á svið á Adamsklæðum. Þórhild-
ur Þorleifsdóttir var listrænn ráð-
gjafi þeirra við gerð sýningarinnar,
Björn Bergsteinn Guðmundsson
hannaði lýsingu, Dýrleif Örlygs-
dóttir sá um búninga og tónlist var
í höndum Guðna Franzsonar, ým-
ist frumsamin eða valin úr ýmsum
áttum.
Kristján Hrafn Guðmundsson
rússíbanareið í iðnó
venjunnar
í FangeLsi
kvikmyndir
RevolutionaRy Road
Leikstjóri: Sam Mendes
Aðalhlutverk: Leonardo diCaprio, Kate
Winslet, Kathy Bates, Michael Shannon
Systur Ástrós gunnarsdóttir og
Lára Stefánsdóttir eru höfundar
og dansarar sýningarinnar.