Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2009, Page 22
„Ég hef verið að vinna mikið með
Nicholas og við ákváðum að stofna
framleiðslufyrirtæki saman,“ seg-
ir Þórir Snær Sigurjónsson kvik-
myndaframleiðandi um danska leik-
stjórann Nicholas Winding Refn sem
er einna þekktastur fyrir danska þrí-
leikinn Pusher. Þórir er nýkominn
heim af Sundance-kvikmyndahá-
tíðinni þar sem hann kynnti nýjustu
mynd Refns, Bronson, sem og stutt-
myndina Smáfugla eftir Rúnar Rún-
arsson.
„Það er sem sagt ég fyrir hönd Zik
Zak, Nicholas og svo Lene Borglum
fyrir hönd Zentropa sem stofnuð-
um fyrirtækið,“ en Zentropa er fram-
leiðslufyrirtæki leikstjórans Lars Von
Trier sem gerði meðal annars mynd-
ina Dancer in the Dark með Björk
Guðmundsdóttur í aðalhlutverki.
„Við erum svona í start-
holunum með þetta en
við erum að vinna að
ýmsum verkefnum.
Til dæmis erum við
að vinna að danskri
mynd ásamt DR
(danska ríkis-
sjónvarp-
inu).“
Nich-
olas og
hasar-
myndahetjan Ja-
son Statham
eru góð-
ir vinir og
aðspurður
hvort fyrir-
tækið muni
starfa með
leik-
ar-
anum í
framtíðinni
segir Þórir það
óskandi. „Þeir eru
mjög góðir vinir og eru
reglulega í sambandi.
Það er aldrei að vita nema eitt af
þessum verkefnum henti Statham.“
Ásamt því að koma að fram-
leiðslu myndarinnar Bronson, sem
fjallar um hættulegasta fanga Bret-
lands, vann Þórir einnig með Refn
að myndinni Valhalla Rising sem er
væntanleg á árinu. Þar er á ferðinni
víkingamynd sem skartar danska
leikaranum Mads Mikkelsen í aðal-
hlutverki. Mads er einn frægasti leik-
ari Dana og hefur leikið í myndum
eins og Pusher, Blinkende Lygter og
Adams Æbler. Hann er þó þekktast-
ur fyrir hlutverk sitt sem óþokkinn
Le Chiffre í Bond-myndinni Casino
Royale.
asgeir@dv.is
þriðjudagur 27. janúar 200922 Fólkið
Kvennagullið Fjölnir Þorgeirs-
son hefur nú trúlofast kær-
ustu sinni til nokkurra mánaða,
Sjöfn Sæmundsdóttur. Fjölnir
og Sjöfn eru búsett í Hveragerði
og stunda þar hestamennsku af
miklum krafti en eins og mörg-
um ætti að vera kunnugt rekur
Fjölnir heimasíðuna hestafrett-
ir.is ásamt öðru sem viðkemur
hestamennsku.
Skömmu áður en Sjöfn varð á
vegi Fjölnis lýsti hann því yfir í
tímaritinu Séð og Heyrt að hann
vildi ekki sjá konur og ætlaði að
taka sér frí frá kvenþjóðinni. Það
frí entist þó stutt og bárust fljót-
lega fréttir af því að Fjölnir hefði
fundið ástina á ný. Má því ætla
að Sjöfn hafi heillað kvennagull-
ið upp úr skónum.
Íslenska stórsveitin Hjaltalín hélt í sinn
fyrsta Evróputúr í janúar og hefur hann
gengið einstaklega vel fram að þessu.
Síðastliðið föstudagskvöld spilaði sveit-
in á stað sem nefnist Lumiaire og er í
London og er óhætt að segja að blaða-
maður Financial Times hafi heldur bet-
ur hrifist af sveitinni.
Blaðamaðurinn fer fögrum orðum
um sveitina og segir Högna Egilsson,
söngvara sveitarinnar, ná rödd sinni
vel upp á háu nóturnar og líkir hon-
um meðal annars við Guy Garvey, for-
sprakka hljómsveitarinnar Elbow, en í
sveitalegum líkama tennisstjörnunnar
Björns Borg.
Að auki segir blaðamaður frá því
þegar Hjaltalín spilaði vinsælasta lag
Íslands síðastliðið ár, Þú komst við
hjartað í mér, sem þýðist yfir á ensk-
una „You Touched My Heart“. Segir
hann Högna hafa viðurkennt að nafnið
á laginu hljómaði væmið, klúðurslegt
og smeðjulegt á ensku en sé í rauninni
mjög töff á íslensku. Blaðamaður seg-
ir vinsældir lagsins ekki hafa leynt sér
þegar allir Íslendingar á svæðinu hafi
þotið alveg upp að sviðinu þegar lagið
hófst.
Og svo virðist sem Hjaltalín hafi leik-
ið á als oddi milli laga í London og jafn-
vel haft húmor fyrir efnahagsástandi Ís-
lands: „Komið til Íslands. Það er ódýrt
og skemmtilegt og það eru óeirðir og
ýmislegt þar,“ ku Högni hafa sagt.
Að lokum segist blaðamaður vera
sannfærður um að ef orðspor sveitar-
innar muni berast komi Hjaltalín til
með að vera „Festival favourites“ eða
uppáhald tónlistarhátíða sumarsins,
líkt og Sigur Rós hafi verið hingað til.
krista@dv.is
Eins og svEitalEgur Björn Borg
Náði háu tónunum vel Blaðamað-
ur Financial Times fer fögrum orðum
um Högna, söngvara hljómsveitar-
innar Hjaltalín, og líkir honum við
tennisstjörnuna Björn Borg.
Fjölnir
trúloFast
Blaðamaður Financial Times hreiFsT mjög aF hjalTalín í london:
þórir snær:
„Er ég sá eini sem er til í að lóga
þessum mótmælendum niðri
í bæ? Hvaða drasl er þetta? Er
Æsufellið tómt á kvöldin? Ugly
Protestors Bothering Beautiful
People! Þú sérð ekki Þorgrím
Þráins eða Störe mótmæla,“ segir
Gillzenegger, eða Störe, eins og
hann vill láta kalla sig um þessar
mundir í nýrri bloggfærslu sinni
eftir töluverða bloggpásu.
Einnig lýsir vöðvastælti blogg-
arinn því yfir að hann þrái að
henda sér í vestið, setja á sig
hjálminn, halda niður í bæ með
kylfur og bakka upp lögguna.
„Skil ekki af hverju þetta er látið
bitna á grey lögreglumönnun-
um,“ segir Störe hneykslaður.
ljóta
Fólkið
mótmælir
FramlEiðir Í
Þórir Snær Sigurjónsson hjá Zik Zak hefur stofnað framleiðslufyrirtæki ásamt danska
leikstjóranum Nicholas Winding Refn. Fyrirtækið er þegar byrjað að vinna að ýmsum
verkefnum og gæti verið að hasarhetjunni jason statham brygði fyrir í einhverju þeirra.
Þórir Snær Er sonur
Sigurjóns Sighvatsson-
ar stórframleiðanda.
Jason Statham Er
góðvinur nicholas
Winding refn.
Mads Mikkelsen Leikur
aðalhlutverkið í myndinni
Valhalla rising þar sem þórir
er einn framleiðanda.
Danmörku