Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2009, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2009, Síða 12
fimmtudagur 5. mars 200912 Fréttir Riddarinn Kennedy Ted Kennedy, einn áhrifamesti með- limur Kennedy-ættarveldisins sem trónaði yfir bandarískum stjórnmálum á síðustu áratugum tuttugustu aldar, verður þess heiðurs aðnjótandi að verða aðlaður. Ted Kennedy, öldungadeildarþing- maður fyrir Massachusetts í hátt í fimmtíu ár, mun taka við viðurkenn- ingunni fyrir þátt sinn í samskiptum Bandaríkjanna og Bretlands og friðar- ferlinu á Norður-Írlandi. Kennedy mun þó ekki heimilt að nota titilinn „sir“ því einungis breskir þegnar mega það. Hann má hins vegar setja skammstöf- unina KBE fyrir aftan nafn sitt, en hún stendur fyrir Knight of the British Emp- ire, riddari breska heimsveldisins. Menn leggja ýmislegt á sig fyrir trúna. Lögreglan í Kyoto, höfuðborg Japans til forna, fann á heimili manns þar í borg fjöldann allan af Búddalíkneskjum. Tjáði maðurinn að hann hefði stolið þeim svo hann gæti beðið til þeirra. Alls fann lögreglan tuttugu og eitt líkneski af Búdda í kjölfar handtöku mannsins, en hann var upphaflega grunaður um að hafa stolið viðarlíkneski af Búdda í hofi í Kyoto. „Ég stal því vegna trúrækni minn- ar,“ hafði talsmaður lögreglunnar eftir Itsuo Abe, þegar Abe var spurður út í sjötíu sentímetra líkneski frá fyrri hluta sautjándu aldar, sem tilheyrði Kenn- inji, Zen-hofi sem stofnað var 1202. „Ég kann vel að meta Búddalíkneski. Ég fór með það heim og bað til þess daglega,“ sagði Abe. Að sögn talsmanns lögreglunnar var eitt herbergi á heimili Abes nánast fullt af styttum, og var eplum og ban- önum komið fyrir fyrir framan þær sem fórnargjöfum. Undanfarna mánuði hafa nokkur hof í Kyoto orðið fyrir því að Búdda- líkneski hafa horfið. Einn starfsmað- ur Kenninji, Zenyu Asano, var himin- lifandi yfir uppgötvun lögreglunnar. „Okkur hafði liðið eins og sögu fjög- ur hundruð ára hefði verið stolið. Við trúðum að við fengjum þetta aftur. Við erum allir mjög spenntir,“ sagði Asano. Kenninji hefur nú fengið örygg- isverði til að fylgjast með eign sinni. Einnig var öryggismyndavélum fjölg- að um helming og innrauðum nem- um komið fyrir, sagði Soseki Unrini, munkur í Kenninji-hofinu. Japanska lögreglan fann fjölda Búddalíkneskja á heimili í Kyoto: strangtrúaður þjófur Í gær gaf alþjóðlegi glæpadómstólinn í Haag út handtökuheimild á Omar al-Bashirm, forseta Súdan, og er hann fyrsti sitjandi þjóðarleiðtoginn sem nýt- ur þess vafasama heiðurs. Dómstóllinn fór að beiðni Luis Moreno-Ocampo yf- irsaksóknara um að leggja fram kærur á hendur Bashir vegna stríðsglæpa og glæpa gegn mannkyninu í Darfúr-hér- aði í vesturhluta Súdans. Þar hafa yfir 200.000 manns misst lífið síðan 2003. Í handtökuheimildinni var ekki minnst á umdeilda ákæru um þjóðar- morð vegna meintrar tilraunar til að þurrka út þrjú þjóðarbrot sem ekki eru af arabísku bergi brotin. Kokhraustur forseti Mannréttindasamtök fögnuðu þeirri ákvörðun dómstólsins að reyna að koma lögum yfir Omar al-Bashir sem er sakaður um að vera heilinn á bak við aðgerðir stjórnarhersins gegn upp- reisnarmönnum; aðgerðir sem fólu í sér fjöldamorð, nauðganir og pynting- ar í Darfúr. „Þetta sendir sterk skilaboð um að alþjóðasamfélagið líði ekki lengur frið- helgi manna í valdastöðum sem brjóta með alvarlegum hætti á mannréttind- um,“ sagði Twanda Hondora, aðstoð- arframkvæmdastjóri Afríkudeildar mannréttindasamtakanna Amnesty International. Súdan viðurkennir ekki alþjóðlega glæpadómstólinn í Haag og í fyrradag sagði Bashir að dómstóllinn gæti „étið“ handtökuheimildina, sem hann sagði vera samsæri Vesturlanda til að koma í veg fyrir þróun í Súdan Þrátt fyrir að Bashir sé kokhraust- ur er talið að ákvörðun dómstólsins muni hafa áhrif á stjórnmálalega fram- tíð hans og að hann muni eiga erfitt um vik að ferðast út fyrir landsteina Súdans án þess að eiga á hættu að vera hand- tekinn. Glæpadómstóllinn hóf störf sem sjálfstæð stofnun árið 2003 og þetta mál er talið það stærsta og umdeildasta sem hann hefur tekist á við. Vitnisburður fyrr- verandi hermanns Fréttamaður BBC tók viðtal við einn fyrrverandi liðsmann stjórnarhersins. Ríkisstjórn landsins hefur ávallt fullyrt að allar ásakanir um mannréttindabrot og óhæfuverk væru af pólitískum toga, en Khalid, eins og hermaðurinn kallar sig, hefur ófagra sögu að segja. „Samkvæmt skipunum áttum við að brenna þorpin til ösku,“ segir Khal- id. „Við áttum jafnvel að eitra í brunn- ana. Og okkur var skipað að drepa allar konur og nauðga stúlkum undir þrett- án og fjórtán ára aldri.“ Khalid segist hafa verið ófús til að taka þátt í óhæfuverkunum, en hann hefði verið drepinn ef hann hefði óhlýðnast. Að eigin sögn reyndi hann að skjóta yfir fólkið, en hann hefði ekki komist hjá því að bera eld að húsunum. „Þeir sögðu okkur að hlífa engum, drepið alla,“ segir Khalif í viðtalinu. „Jafnvel börnin, ef þau urðu eftir í kof- unum, við urðum að drepa þau.“ Khalif segir að Omar al-Bashir beri ábyrgðina. „Hann er fyrst og fremst ábyrgur fyrir þjóðarmorðinu, drápun- um á börnunum, öllu. Hann ætti aldrei að segja „Ég drap ekki og veit ekkert“,“ sagði Khalif, sem barðist við tárin á meðan á viðtalinu stóð. Fáir efast um ábyrgð forsetans Bashir, sextíu og fimm ára, hefur verið við völd í Súdan í tuttugu ár og slæst nú í hóp Charles Taylor, fyrrverandi forseta Líberíu, og Slobodan Milósevitsj, for- seta Serbíu, en þeir sættu báðir ákæru sérstakra dómstóla þegar þeir voru enn í embætti. Báðum var síðar komið frá völdum og í kjölfarið var réttað yfir þeim í Haag. Það eru ekki margir óháðir aðil- ar sem efast um að Bashir beri stór- an hluta ábyrgðar á hinum mannlega harmleik sem átt hefur sér stað í Darf- úr. Í kjölfar uppreisnar í febrúar 2003, sem menn af öðru bergi en arabísku brotnir stóðu að vegna misréttis, þjálf- aði ríkisstjórnin og vopnaði og fjár- magnaði hersveitir skipaðar aröbum til að ráðast á þorp í Darfúr. Í slóð þess- ara hersveita voru þorp í rústum, fórn- arlömb morða, nauðgana og rána. Her landsins veitti stuðning í lofti og á láði. Moreno-Ocampo segir að aðgerð- irnar hafi kostað 35.000 mannslíf og fullyrðir að ætlun Bashirs hafi verið að útrýma þjóðarbrotunum Fur, Marsa- lit og Zaghawa sem hann áleit hliðholl uppreisnarmönnum. En margir sérfræðingar í málefnum Súdans eru efins um að ákæra um þjóð- armorð stæðist auk þess sem ákvörð- unin um að saksækja Bashir á meðan hann er enn leiðtogi óútreiknanlegrar ríkisstjórnar í óstöðugu ríki er umdeild. Beðið um frest Bandaríkin, Bretland og Frakkland voru hlynnt handtökuheimildinni og standa vonir þeirra til að ríkisstjórn Súdans láti undan þrýstingi um endur- bætur og lok átakanna sem staðið hafa í sex ár. Arabaríkin og Afríkusambandið höfðu hins vegar farið fram á frest til að gefa Omar al-Bashir síðasta tækifærið til að binda enda á átökin í Darfúr, án þess að vera undir þrýstingi. Sameinuðu þjóðirnar geta lagt fram ályktun um að málshöfðun verði frestað um tólf mánuði en ekki er tal- ið að sú verði raunin vegna stuðnings leiðandi vestrænna ríkja við ákvörðun dómstólsins. Sameinuðu þjóðirnar, hjálparstofn- anir og vestræn sendiráð hafa gert var- úðarráðstafanir ef svo skyldi fara að ákvörðun dómstólsins ylli ofbeldi í garð útlendinga í Súdan. Einnig telja sumir sérfræðingar ekki loku fyrir það skotið að Bashir beini spjótum sínum að sam- tökum andstæðinga sinna á komandi mánuðum ef honum sýnist sem hann sé að missa völdin. HandtöKuHeimild á foRseta Omar al-Bashir, forseti Súdans, nýtur þess vafasama heiðurs að vera fyrsti sitjandi þjóðarleiðtogi heims sem gefin er út handtökuheimild á. Alþjóðlegi glæpadómstóllinn í Haag hefur lagt fram kærur á hendur Bashir vegna stríðsglæpa og glæpa gegn mannkyninu. Bashir sagði dómstólnum að „éta“ handtökuheimildina. KOlBeinn þOrsteinssOn blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Búddalíkneski Eitt líkneski dugði ekki hinum trúrækna þjófi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.