Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2009, Síða 22
fimmtudagur 5. mars 200922 Fólkið
Eins og oft hefur komið fram
áður nýtur Ásdís Rán Gunnars-
dóttir mikilla vinsælda í Búlg-
aríu. Eins og DV hefur greint frá
áður er í bígerð raunveruleika-
þáttasyrpa sem nefnist Foot-
baller’s wives þar sem mynda-
vélar munu fylgja Ásdísi eftir
og mynda hennar daglega líf.
Tökur standa nú yfir í nokkra
daga og verða sýndir fjórir þættir
með Ásdísi. Síðan verða þættir
með öðrum fótboltaeiginkon-
um sýndir. Á bloggsíðu sinni
tekur Ásdís það fram að hún
muni sýna þættina á heimasíðu
sinni, asdisran.com, sem tekin
verður í notkun á næstu dög-
um. Á myndinni með Ásdísi er
Elena, önnur fótboltaeiginkona.
Myndin er tekin fyrir glanstíma-
ritið OK!
Gaf tvo
þumla upp
„Íþróttamenn á borð við John Terry
og Thierry Henry hjá Barcelona munu
tjá sig um Pétur Jóhann Sigfússon
og íþróttahæfileika hans en einnig
munu þeir sem betur til hans þekkja,
þeir Eiður Smári Guðjohnsen og Ól-
afur Stefánsson, fara fögrum orðum
um kappann,“ segir Auðunn sem lof-
ar góðri skemmtun í síðasta þættinum
af Atvinnumönnunum sem sýndur er í
kvöld. Þátturinn sem notið hefur mik-
illa vinsælda er sýndur á Stöð 2 Sport
klukkan 20.00.
Í þættinum mun Pétur Jóhann sýna
allar sínar bestu hliðar en þessi ástsæl-
asti íþróttamaður Íslands fyrr og síð-
ar, eins og segir á heimasíðu Stöðvar 2
Sport, mun leiða Auðun Blöndal í allan
sannleikann um hæfileika sína á hin-
um ýmsu sviðum.
Auðunn Blöndal hefur fjallað um
helstu íþróttahetjur þjóðarinnar í
þættinum undanfarnar vikur, rætt við
maka þeirra og sýnt á þeim nýjar hlið-
ar. Það verður því fróðlegt að sjá hvað
hann mun draga fram hjá Pétri Jóhanni
í kvöld.
terry og Henry
fíla pétur Jóhann
Ólafur f. Magnússon:
Þóra Tómasdóttir fjölmiðlakona
úr Kastljósinu er á leið í nám
í sumar. Þessu segir Þóra frá
á Facebook-síðu sinni en fjöl-
miðlakonan er á leiðinni í meist-
aranám í menningarstjórnun.
Þóra segist vera orðin spennt fyr-
ir náminu en hún hafði áður lok-
ið námi í heimildarmyndagerð í
Noregi. Þóra hefur verið að nýta
sér það nám undanfarið en hún
er að leggja lokahönd á heimild-
armynd um íslenska kvenna-
landsliðið í knattspyrnu og leið
þess á Evrópumótið í sumar.
Á leið í
meistaranÁm
„Mér finnst ekkert að því að þjóð-
þekkt persóna mæti á tónlistarat-
burð hvort sem það er ópera, djass-
hátíð, Party Zone eða techno.is,“
segir Helgi Már Bjarnason, ann-
ar af tveimur aðstandendum Party
Zone. Birtar voru myndir í DV
í gær af Ólafi F. Magnús-
syni, fyrrverandi borgar-
stjóra, að skemmta sér
á Party Zone-kvöldinu
þar sem þýski plötu-
snúðurinn Stephan
Bodzin spilaði fyr-
ir 800 manns. Fjör-
ið var svo mikið að það
þurfti að taka rafmagnið
af plötusnúðabúrinu um
morguninn.
„Ég sá Ólaf þarna, hnippti
aðeins í hann og spurði
hann hvað hann væri
að gera hér. Hann
sagðist vera að
skemmta sér. Ég
spurði hann þá
hvernig honum
litist á Stephan
Bodzin. Þá gaf
hann mér tvo
þumla upp og
sagði: „Já, þetta
er frábært.“
Það var gam-
an að sjá hann
þarna,“ segir
Helgi og tekur
fram að rjóm-
inn úr íslensku
rafsenunni hafi
verið saman-
kominn þarna
þetta kvöld
ásamt þekkt-
asta plötusnúði
Þýskalands.
„Raftónlistar-
senan er að eld-
ast. Það styttist í
það að teknótæf-
urnar verði ömm-
ur, “ segir Helgi
og hlær. En hann
tekur það fram að
flestallir þeir sem
komu fram þetta
kvöldið voru á fer-
tugsaldrinum.
Aðspurður seg-
ist Helgi ekki finna
fyrir þessum nei-
kvæða stimpli
á Party-Zone-
kvöldunum.
Hann er sjálf-
ur búinn
að vera
með
Party
Zone-þáttinn í 19 ár.
„Við hjá Party Zone
njótum ákveðinnar
virðingar. Erum bún-
ir að vera lengi að og
erum í flottu slotti hjá Rás
2. Ég myndi segja að við
fáum virðulegri hlutann
af senunni á kvöldin okkar
og er meðalaldurinn töluvert
hærri en á öðrum kvöldum,“ seg-
ir Helgi og bætir við: „Við fáum sömu
kynslóð og Gus Gus-menn. Þetta
er fólkið sem byrjaði að djamma á
Rósenberg 1992-1993.“ Hann seg-
ir þá vera frá 18 til 45 ára sem sækja
Party Zone-kvöldin. „Þessi neikvæði
stimpill fylgir næturlífinu almennt
held ég. Við höfum lent í þessari
umræðu oft, en danstónlistin hefur
fengið miklu meiri viðurkenningu í
seinni tíð sem slík.“ hanna@dv.is
Helga Má Bjarnasyni, öðrum af tveimur aðstandendum Party Zone, finnst lítið að því
að þjóðþekkt persóna mæti á tónlistaratburð á borð við Party Zone-kvöld. Helgi spjall-
aði lítillega við Ólaf um kvöldið og að sögn Helga skemmti hann sér stórvel á Stephan
Bodzin.
Á fullu
í tökum
Pétur JóHann í lokaþættinum af atvinnumönnunum okkar:
thierry Henry tjáir sig
um Pétur Jóhann í atvinnu-
mönnunum okkar.
auðunn Blöndal Hefur slegið í gegn með at-
vinnumönnunum okkar undanfarið og mun síðasti
þátturinn án efa ekki svíkja áhorfendur þar sem
Pétur Jóhann sigfússon verður stjarna kvöldsins.
ólafur F. á Stephan Bodzin Það
var Party Zone sem bauð upp á
stephan Bodzin en ekki techno.is
eins og dV hélt fram í gær.
Ekkert skrýtið „mér finnst ekkert
að því að þjóðþekkt persóna mæti
á tónlistaratburð hvort sem það er
ópera, djasshátíð, Party Zone eða
techno.is,“ segir Helgi már Bjarnason,
aðstandandi Party Zone.