Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Blaðsíða 8
föstudagur 13. mars 20098 Fréttir Lúxusjeppar, sjaldgæfir fornbílar og hraðskreiðir eðalvagnar eru með- al þess sem hægt er að finna í bíla- kjallaranum í Faxafeni sem DV fjall- aði um fimmtudaginn 26. febrúar. Húsnæðið er í eigu félagsins Hlíða- smára 6 ehf. en Hannes Smárason er eini meðlimur stjórnarinnar. Dótakassinn hefur vakið gríðarlega athygli en samkvæmt frétt Stöðvar 2, sem var birt sama dag og DV fjall- aði um málið, er hann meðal þess sem skattrannsóknarstjóri hefur til athugunar í rannsókn sinni á FL Group. Eftir að DV fjallaði um málið voru gerð eigendaskipti á fjölmörg- um lúxusbifreiðum. Þær voru færð- ar frá félaginu J-Einnátta ehf., sem vann töluvert fyrir FL Group, yfir á sambýliskonu Hannesar, Unni Sig- urðardóttur. Jagúar skiptir um eigendur DV hafði óskað eftir því að fá að mynda sjaldgæfa Jagúar-bifreið sem var talin vera geymd í bíla- kjallaranum en því var hafnað. DV hefur nú komist yfir ljósmyndir af bílakjallaranum og nokkrum þeirra glæsilegu lúxusbifreiða sem þar eru geymdar. Búið er að afmarka dóta- kassann inni í bílakjallaranum en bónstöð, sem hvergi auglýsir sím- ann hjá sér, starfar fremst í kjallar- anum. Bónstöðin eða dótakassinn er afmarkaður með bláum tjöldum svo engin leið er fyrir almenning að sjá drossíurnar bakvið tjöldin. Bíla- kjallarinn er tólf hundruð fermetr- ar samkvæmt fasteignaskrá. Ljósmyndirnar sýna svo ekki verður um villst að bílakjall- arinn er sannkallaður „dóta- kassi“ auðmanna sem hýs- ir fjölda glæsibifreiða. Þar á meðal er umræddur Jagú- ar. Samkvæmt upplýsingum sem DV hefur undir hönd- um er Jagúarinn skráður á sambýliskonu Hannesar Smárasonar, Unni Sigurð- ardóttur, en hún eignaðist bílinn í febrú- ar samkvæmt ökutækjaskrán- ingu. Fyrri eig- andi bifreiðar- innar er Jón Þór Sigurðsson en sá er forsvarsmaður félagsins J-Einnátta ehf. en bæði félagið og Jón Þór eru skráð með sama heim- ilisfang í Reykjavík. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 sá Jón Þór FL Group fyrir einka- bílstjórum sem síðan óku starfs- mönnum og viðskiptamönnum fyrirtækisins um bæ- inn eftir þörfum. Þá kom einnig fram í frétt Stöðvar 2 um málið að Jón Þór hefði staðfest að hann hefði unnið töluvert fyrir FL Group en samkvæmt ársreikning- um J-Einnátta ehf. var útseld vinna Jóns Þórs á árun- um 2006 og 2007 um 140 milljónir DÓTAKASSI HANNESAR SMÁRASONAR Dótakassinn í Faxafeni sem DV fjallaði um nýlega er að mestu í eigu Hannesar Smára- sonar og fjölskyldu. Þar er að finna hinar ýmsu bifreiðar eins og sjaldgæfan Jagúar frá árinu 1965 auk lúxusjeppa á borð við Range Rover og Lincoln Navigator. Útrásarvinir Hannesar hafa fengið að geyma lúxusbifreiðar sínar í bílakjallaranum en þangað fær enginn óviðkomandi að koma. DV hefur undir höndum myndir úr dóta- kassanum fræga en bílakjallarinn er gríðarlega stór. Samkvæmt upplýsingum sem DV hefur undir höndum er Jagúarinn skráður á sambýliskonu Hannesar Smárasonar, Unni Sigurðardóttur, en eigendaskiptin áttu sér stað í byrjun febrúar. Fyrri eigandi bifreiðarinnar var Jón Þór Sigurðsson en sá er forsvarsmaður félagsins J-Einnátta ehf. en bæði félagið og Jón Þór eru skráð með sama heimilisfang. Atli Már GylfAson blaðamaður skrifar: atli@dv.is Bílakóngur Hannes smárason gæti auðveldlega opnað bílasölu ef litið er á þær bifreiðar sem tengjast honum á einn eða annan hátt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.