Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Side 22
föstudagur 13. mars 200922 Fókus um helgina Sól og blíða í ParadíS Útvarpsleikhúsið frumflytur nýjan þríleik eftir Andrés Indriðason í leikstjórn Ásdísar Thoroddsen. Verkið er í þremur sjálfstæðum hlutum og heitir fyrsta verkið Sól og blíða í Paradís. Það verð- ur frumsýnt á sunnudaginn klukkan 14. Leikendur eru Margrét Guðmundsdóttir og Pétur Einarsson. Næsta verk verður flutt 22. mars næstkomandi og það þriðja sunnudaginn 29. mars. Veturinn og kyrrðin Sýningin Kyrrt vatn eftir japanska listamanninn og ljósmyndarann Keiko Kurita hófst í gær í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Keiko heimsótti Ísland sjö sinnum á ár- unum 2004 til 2006 og samanstend- ur sýningin af myndaröð þar sem íslensk vetrarstemning fær að njóta sín. Á sýningunni eru 10 c-týpu print ásamt bók sem er fáanleg í aðeins 10 eintökum. Bókin er myndafrásögn 43 ljósmynda og eru 10 þeirra sýnd- ar í myndvarpasýningunni. Sýningin stendur fram til 12. maí og er styrkt af Nomura-menningarstofnuninni í Japan. Keiko er einnig með sýningu í Listasafni ASÍ 4. apríl næstkomandi. Sú sýning ber heitið tree/sleep. Vinir alfreðS flóka Rithöfundurinn Sjón og Jóhann Hjálmarsson þýðandi hittast á sunnudaginn til þess að rýna í ritverk og myndlist listamanns- ins Alfreðs Flóka. Báðir voru þeir miklir vinir listamannsins. Í sam- einingu munu þeir tala um kynni sín af listamanninum og um leið leiða gesti inn í skáldskaparlegar uppsprettur verka Alfreðs Flóka. Einnig munu þeir lesa og ræða ljóð eftir Jóhann frá árunum 1960-1963, en á þeim tíma voru Jóhann og Alfreð Flóki „nokkurs konar tveggja manna súrrealista- hreyfing“ eins og fram kemur í fréttatilkynningunni. Sýningin hefst klukkan 15 í Hafnarhúsinu. Út í kött! Lýðveldisleikhúsið hefur hafið æf- ingar á dansleikhúsverkinu Út í kött! fyrir börn. Verkið er byggt á útgáfum Roalds Dahl á þremur Grimms-æv- intýrum. Texti og þýðingar á kvæð- um Roalds er í höndum Benónýs Ægissonar. Flytjendur eru Ragnheið- ur Árnadóttir söngkona og dansarar eru þau Guðmundur Elías Knudsen og Kolbrún Anna Björnsdóttir. Kol- brún er jafnframt leikstjóri og dans- höfundur verksins. Tveir leikarar af yngri kynslóðinni fara einnig með hlutverk í Út í kött! Stefnt er að frum- sýna dansleikhúsverkið í apríl. Árleg ljósmyndasýning Blaðaljós- myndarafélag Íslands verður opn- uð formlega á morgun klukkan 14 í Gerðarsafni. Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, opnar sýning- una en Valgarður Gíslason, formað- ur Blaðaljósmyndarafélagsins, mun tilkynna sigurvegara þetta árið. Veitt eru verðlaun í sjö flokk- um og þeir eru: Fréttamynd árs- ins, íþróttamynd ársins, portrett- mynd ársins, tímaritamynd ársins, umhverfismynd ársins, daglegt líf mynd ársins og myndaröð ársins. Einnig eru veitt verðlaun fyrir skop- legustu myndina, þá þjóðlegustu og að lokum mynd ársins. Dómnefndina skipa Anna Fjóla Gísladóttir, kennari og ljósmyndari, Bára Kristinsdóttir ljósmyndari, Ingi R. Ingason kvikmyndatökumað- ur, Pétur Thomsem ljósmyndari og Valgerður Jóhannsdóttir, aðj- unkt við Háskóla Íslands í blaða- og fréttamennsku. Sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands hefur notið mikilla vinsælda síðastliðin ár og ætti ekki að vera neitt lát á því þetta árið. Sýningin stendur til 3. maí. Á neðri hæð Gerðarsafns verður sýning ljósmyndarans Jims Smart sem nefnist einfaldlega Jim Smart í 30 ár. Sýningin er styrkt af Ljós- myndasafni Reykjavíkur. hanna@dv.is Ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands er opnuð á morgun í Gerðarsafni: mynd ársins valin „Verkið fjallar um heimsendi og hvern- ig venjulegt fólk á Íslandi bregst við,“ segir Snæbjörn Brynjarsson, leiklist- arfræðingur og leikskáld, um verkið Þöglir farþegar sem Stúdentaleikhús- ið frumsýnir á Eyjaslóð á laugardag- inn. Snæbjörn útskrifaðist frá Lista- háskóla Íslands úr námi sem nefnist fræði og framkvæmd síðasta vor og hefur sterkar skoðanir á íslensku leik- húslífi. Snæbjörn kallar eftir meiri ný- sköpun í íslensku leikhúsi en segist viss um að meiri gróska sé fram und- an. Allt hrunið „Í verkinu fylgjumst við með aðal- söguhetjunni Perlu. Hún vaknar einn daginn og allt er hrunið í kringum hana,“ segir Snæbjörn sem er höf- undur verksins sem og leikstjóri þess. „Perla veit ekki hvað gerðist þannig að hún fer á stúfana í leit að svörum. Hver beri ábyrgð á þessum ósköp- um, var þetta Guðs vilji eða er engin svör að fá?“ Snæbjörn lýsir því verk- inu sem sannleiksleit en Perla og aðr- ar persónur verksins þurfa að takast á við algjört veruleikahrun. Lýsingin á verkinu er alls ekki svo ólík því sem hefur átt sér stað á Íslandi undanfarna mánuði. Snæbjörn vill þó ekki meina að verkið endurspegli einungis atburðarásina hér heima heldur verði að skoða söguna í víðara samhengi. „Ég byrjaði að skrifa verkið fyrir hrunið en óneitanlega varð mað- ur fyrir ýmsum áhrifum úr umhverf- inu í þessu mikla umróti sem hefur verið. Þetta er ekki pólitísk ádeila en án efa nútímatengt verk.“ CERN-tilraunin kveikjan „Ég hef lengi verið heillaður af þessu hugtaki um heimsendi,“ segir Snæ- björn um kveikjuna að verkinu. Frétt- ir af tilraunum CERN-stofnunarinnar í Sviss á síðasta ári vöktu einnig at- hygli hans. Stofnunin gerði tilraun- ir með öreindir sem margir töldu að gætu endað með ósköpum. „Þar voru menn að vinna með svakalegan ofur- hraðal en hefði tilraunin farið á versta veg vildu sérfræðingar meina að svart- hol hefði getað myndast með þeim af- leiðingum að jörðin yrði að engu.“ Það var í kringum mánaðamót- in september-október í fyrra sem til- raunin fór fram og heimurinn hefði getað fallið saman. Þá reyndi CERN- stofnunin að skjóta öreindum á ljós- hraða gegn hver annarri en sem betur fer varð ekkert af svartholinu ógur- lega. Það hafa þó eflaust einhverjir hækkað yfirdráttinn og keypt sér bát- inn sem þá langaði alltaf í. „Í kjölfarið fór ég líka að skoða hluti eins og ofsatrú og kristilega spádóma um endalok og annað. Þetta bland- aðist svo allt saman og útkoman varð svo þessi saga.“ Æfa eins og fagfólk Snæbjörn segir undirbúning verksins hafa gengið frábærlega. „Það er svo mikið af skapandi fólki í þessum hóp sem vill taka þátt og leggja sitt af mörk- um,“ en í kringum 30 manns koma að sýningunni. Þó svo að Stúdentaleik- húsið sé áhugamannaleikhús er mikil vinna lögð í verkið og hefur hópurinn æft stíft undanfarna mánuði. „Við erum búin að æfa alla daga síðustu átta vikurnar.“ Snæbjörn er ánægður með árangurinn en æfing- arnar hafa ekki gengið vandræðalaust fyrir sig frekar en annars staðar. „Text- inn er svolítið erfiður þó ég segi sjálf- ur frá. Það er stundum snúið að vinna með hann og við erum ennþá að velta ýmsu fyrir okkur.“ Afkastamikið skáld Eins og áður sagði útskrifaðist Snæ- björn frá Listaháskólanum vorið 2008 Stúdentaleikhúsið frumsýnir verkið Þöglir farþegar um helgina. Snæbjörn Brynjars- son leikstýrir og skrifar handrit verksins sem fjallar um heimsendi í íslenskum raun- veruleika. Snæbjörn segir nýsköpun af skornum skammti í íslensku leikhúslífi og sér ekki sjarmann í því að setja upp Grease á tveggja ára fresti. HeimSendir Heill di Stúdentaleikhúsið Hópurinn hefur æft upp á dag síðustu átta vikurnar. Gunnar I. Birgisson Bæjarstjórinn í Kópavogi sló í gegn á bestu mynd síðasta árs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.