Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Page 9
föstudagur 13. mars 2009 9Fréttir
MÁLVERKAUPPBOÐ
Í GALLERÍ BORGsunnudaginn 15. mars kl. 20.30
Nú er daginn farið að lengja, stutt í sumarið. Við fögnum því.
Eyjólfur Kristjánsson skemmtir gestum. Boðið verður upp á veitingar.
Sýning uppboðsverka fer fram í Gallerí Borg, Skipholti 35, laugardag kl. 11 - 17 og sunnudag kl. 13 til 17
Nú er rétti tíminn til
að fjárfesta í verkum
gömlu meistaranna
ATH!
Uppboðið hefst
kl 20.30 og lýkur
um kl. 22.10Skipholti 35 - sími 511 7010
petur@galleriborg.is
króna. Það er ekki slæmt tímakaup.
Jagúarinn er af gerðinni XKE
Type E og er frá árinu 1965. Þar sem
bifreiðin er mjög sjaldgæf er erfitt
að verðmeta hana.
Bílaflotinn stækkaði í janúar
Hannes Smárason og frú virðast
hafa sankað að sér bifreiðunum í
janúar og febrúar á þessu ári. Þá
fóru fram eigendaskipti á glæsilegri
BMW-bifreið, sem nú er geymd
í bílakjallaranum, þegar eignar-
hald bílsins færðist frá félaginu
J-Einnátta ehf. til Unnar, sam-
býliskonu Hannesar. BMW-bif-
reiðin er ein sú flottasta sinn-
ar tegundar hér á landi en
hún er af gerðinni BMW 740,
svört að lit, frá árinu 2005.
Bílasalan Úranus, sem fékk
alla lúxusbíla Kaupþings á
góðu verði, flutti BMW-inn
til landsins.
Fyrsti eigandi bifreiðar-
innar var Jón Þór Sigurðsson, sá
sami og var skráður fyrir Jagúar-bif-
reiðinni þangað til hún var líka færð
á sambýliskonu Hannesar í febrúar.
Jón Þór og félagið hans, J-Einnátta,
losaði sig því við tvær lúxusbifreiðar
á mjög stuttum tíma og skráði þær
yfir á nafn sambýliskonu Hannes-
ar. Ekki náðist í Hannes Smárason
eða Jón Þór Sigurðsson. Eftir situr
spurningin af hverju tvær lúxusbif-
reiðar voru færðar yfir á nafn sam-
býliskonu Hannesar aðeins einum
degi eftir umfjöllun DV um dóta-
kassann í Faxafeni eða 27. febrúar.
Pabbi fær að geyma
Faðir Hannesar, Smári Sigurðsson,
er skráður fyrir Porsche Cayenne-
lúxusjeppa sem situr stífbónaður í
dótakassanum í Faxafeni. Bifreiðin
var til að byrja með í eigu Hannes-
ar en fluttist síðan yfir á föður hans
um sumarið árið 2006. Bensínknú-
in túrbóvél Porsche-lúxusbifreið-
arinnar skilar fjögur hundruð og
fimmtíu hestöflum.
Þá er einnig þrjú hundruð hest-
afla Lincoln Navigator í dótakassa
Hannesar en bifreiðin er skráð
á hann sjálfan. Bifreiðina keypti
Hannes í upphafi FL Group-ævin-
týrisins í lok árs 2005.
Flottasti Range Rover-inn
Enginn útrásarvíkingur gat ver-
ið án Range Rover-lúxusbifreiðar í
góðærinu en eina slíka er að finna
í bílakjallaranum. Range Rover-inn
er að sjálfsögðu gríðarlega flottur
auk þess sem hann er „Supercharg-
ed“ sem þýðir stærri vél og meiri
lúxus. Lúxusbifreiðin afkastar fjög-
ur hundruð hestöflum við smá kitl.
Jagúarinn, sem var nefndur
hér að ofan, er ekki eini fornbíll-
inn í bílageymslunni að Faxafeni
því þar er að finna Mercury Mont-
ery frá árinu 1954. Bifreiðin var eitt
sinn skráð á Egil Ágústsson, fram-
kvæmdastjóra Íslensk Ameríska, en
sama ár var hún flutt yfir á Agnesi
Viggósdóttur.
Hannes býr í Bretlandi ásamt
sambýliskonu sinni en kemur til
Íslands af og til en hann á veglegt
húsnæði hér á landi. Úrvalið í dóta-
kassanum í Faxafeni bendir svo til
þess að hann sé ekki í vandræð-
um með fararskjóta á meðan hann
dvelur á Íslandi.
DÓTAKASSI HANNESAR SMÁRASONAR
Flott þrenna Leifar útrásarinnar eru í bílakjallara í faxafeni.
Ekki leiðinlegur bílakostur, audi Q7, range rover og Lincoln
Navigator.
Jagúar 1965 Þessi Jagúar er sjaldgæf sjón í heiminum í dag en
hann er frá árinu 1965 og er type E.
BMW lúxus Bifreiðin var áður í eigu J-Einnátta en er nú í eigu
sambýliskonu Hannesar. Einn sá flottasti á landinu.
Fornbílar Það eru ekki bara nýjar drossíur í dótakassanum
heldur einnig fornbílar eins og þessi mercury montery frá árinu
1954.
Í stuttu máli
n dótakassi Hannesar er í faxafeni
n Nokkrar bifreiðar eru skráðar á
sambýliskonu hans
n Nokkrar bifreiðar voru áður skráðar
á J-Einnátta ehf.
n J-Einnátta ehf. var verktaki hjá fL
group
n fjölskyldan á nóg af lúxusbifreiðum
n Hannes á sjaldgæfan Jagúar frá
1965
n Eigendabreyting fer fram degi eftir
umfjöllun dV