Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Blaðsíða 18
Blysför án fyrirheits föstudagur 13. mars 200918 Umræða Sandkorn n Reiðin gegn svokölluðum útrásarvíkingum hefur fram að þessu beinst að mestu gegn Björgólfi Thor Björg- ólfssyni og Jóni Ásgeiri Jó- hannessyni en Exista-bræður og Kaup- þingsstjórar hafa flotið með. Aðrir útrásarvík- ingar hafa sloppið. Þannig tala fáir um Jón Helga Guð- mundsson, aðaleiganda Nor- vik og stærsta eiganda Byko, Nóatúns og Krónunnar. Hann nýtur svo mikillar friðhelgi að í bloggheimum er áberandi að skorað er á fólk að sniðganga Bónus en versla við Krónuna. n Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgun- blaðsins, skuldaði hartnær 100 millj- ónir hjá Lands- bankanum á sínum tíma. Ekki var gengið að ritstjór- anum vegna þessa en pólitískir andstæð- ingar notuðu skuldina til að koma höggi á hann í umræð- unni og vildu meina að hann væri háður Landsbankan- um. Styrmir hefur sjálfur ekki viljað ræða það mál opinber- lega. Kvittur er uppi um að láni hans hafi verið komið inn í Straum og það sé því í hönd- um skilanefndar núna. n Margir hafa brugðið sér í Eymundsson undanfarna viku til að næla sér í eintak af bókinni Justice �nd- er Siege eftir Evu Joly þar sem hún segir söguna um hvernig hún eltist við fjárglæframenn í Frakklandi. Athygli vekur að bókin er gefin út af forlaginu Citizen Press sem Björn Jón- asson bókaútgefandi rekur í Noregi, en hann var einu sinni kenndur við forlagið Svart á hvítu á Íslandi. n Formála bókar Evu Joly skrifar Kristín Þorsteins- dóttir sem á sínum tíma var sjónvarpsfréttamaður á RÚV. Kristín rekur ævi Joly og fer um hana fögrum orðum, svo ljóst er að þær þekkjast vel. Eins og allir vita kom Eva Joly hingað á dögunum til að veita íslenskum stjórnvöldum ráðleggingar um hvernig rétt sé að gera upp bankahrun- ið og eltast við okkar eigin fjárglæframenn. Ekki er ljóst hvort þær Eva og Kristín hitt- ust við það tækifæri en það kann þá að hafa verið frekar vandræðalegt með tilliti til þess að Kristín hefur undan- farið starfað sem fjölmiðla- fulltrúi Baugs Group. LyngháLs 5, 110 reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Ég ætla að halda áfram og vera aldrei grimmari en nú.“ n Jóhannes Jónsson, eigandi Bónuss, um hvort hann óttist að missa verslanir sínar eftir að Baugur Group varð gjaldþrota. - DV „Hvor skyldi nú hafa vinninginn í upplýstri umræðu fyrir alla sem vilja taka þátt, marskálkurinn eða krulli?“ n Egill Helgason um bloggdeilur hans og Róberts Marshall sem snúast meðal annars um ljótt sjónvarpssett sem Egill var í á sínum tíma. - DV „Hópurinn mun meðal annars leika veigamikið hlutverk í næsta Spaugstofuþætti.“ n Karl Ágúst Úlfsson leikari um hóp fyrrverandi nemenda sinna sem kom frá Bandaríkjunum til heimsækja kappann. - DV „Ég leit út alveg eins og Fred Astaire.“ n Geir Ólafsson söngvari um fermingarklippinguna sína. Annars var hann kæddur í leðurjakka, hvíta skyrtu, gráar buxur og með grænt bindi. - DV Auður Íslands Leiðari Í allri ringulreiðinni sem ríkir á Íslandi eftir hrunið gleym-ist hvað er gott á Íslandi. Fólk er bugað af tali hagfræðinga og annarra spekinga sem eru samtóna um það helst að hafa sjálfir séð fyrir hrunið og varað við því. Í stað þess að lofsyngja útrásina er nú hópur manna í því að klappa fyrir hagfræðingunum sem sáu allt en sögðu fátt. Mest- öll umræðan umhverfist enn um sekt einstaklinga eða hópa, sem vissulega er til staðar að ein- hverju marki. Fyrst og fremst er þó um að kenna hjarðeðli fólks sem horfir í svartnættið þegar fífl- ið bendir. Þótt útrásin hafi reynst langt utan skynsemi að mörgu leyti má ekki gleyma því að leita að ástæðum hrunsins í öðrum þáttum. Lánastefna útrásarbank- anna var vissulega út úr öllu korti en jafn- framt er ljóst að heimskreppan skall á Íslandi af þunga. Bankahrunið hefur enn ekki verið gert upp. Þar þarf að líta til aðgerða stjórn- enda Seðlabankans og stjórnmálamanna í aðdragandanum ekki síður en framgöngu eigenda bankanna. Það hjálpar þó engum að leggjast í vol eða víl yfir því hvernig kom- ið er. Nú dugir það eitt að nýta þau fjölmörgu gæði sem landið ræður yfir og rífa þjóðina upp aftur. Einhverj- ir tala um að þjóðargjaldþrot sé óumflýjanlegt. Það þýðir þó ekki að þjóðin flytji burt af eyjunni. Gjaldþrot er ekki endir alls og það getur allt eins markað nýtt upphaf að frábæru samfélagi sið- væðingar. Við þurfum að hlusta á þá stjórnmálamenn sem boða lausnir og endurreisn í stað þess að festast í svartagallsrausi með hinum sem komast ekki út úr þeirri hugsun að refsa mönnum eða hópum. Ísland býr að gjöf- ulum fiskimiðum, orkulindum, sterkum landbúnaði og frábær- um mannauði. Hagfræðingar og aðrir spekingar eiga að horfa til lausna þótt auðvitað verði skipulega að greina ástæður hrunsins. Nú skiptir öllu máli að mannauður Íslands nýtist sem best. Endurreisnin verður að hefjast sem allra fyrst. reynir traustason ritstjóri skrifar. Gjaldþrot er ekki endir alls. bókStafLega Breyskleiki og blygðun Í vikunni kom litli hagfræðingur- inn út úr skápnum og sagði okk- ur að hann hefði lánað sjálfum sér 150 milljónir og að hann hefði feng- ið annað eins á bestu kjörum hjá ís- lenskum banka. Aðspurður sagðist litli hagfræðingurinn ekki vita hvort hann hefði hugsanlega sloppið við að borga 75 milljónir. Hann viður- kenndi að vísu að honum hefði tek- ist að semja svo vel við sjálfan sig að hugsanlega myndu gjörningar hans allir teljast löglegir – jafnvel þótt sið- leysi fylgdi – einsog hver annar bögg- ull skammrifi. Og hvað svo? Jú, yndislegu Íslend- ingar, haldið þið að litli hagfræðing- urinn ætli ekki í framboð. Ha? Jú, auðvitað hjá Sjálfstæðisflokki. Litli hagfræðingurinn sagði okkur það einnig, að þó að hann vissi ekki um neina einstaklinga sem fengið hefðu sömu fyrirgreiðslu og hann sjálfur, þá vissi hann um heilu hópana sem slíka hjálp hefðu hlotið. (Þetta heitir víst á máli hagfræðinnar að sjá ekki trén fyrir skóginum.) En, kæra þjóð, núna er kosningamaskína frjáls- hyggjunnar farin af stað. Helminga- skiptaveldið ætlar að draga fram nokkra einstaklinga – setja þá í gapa- stokk um stundarsakir og gera þá að athlægi – svona rétt til að hressa uppá móralinn. Þeir vita það nefnilega að Sjálfstæðisflokkurinn er trúarhreyf- ing sem hefur ekkert með stjórnmál að gera. Fólk kýs þann flokk í blindni einsog villuráfandi sauðir tældir af löngun í vota tuggu. Núna erum við að bíða eftir því að þeir komi allir úr skápnum. Við vonum að þeir sýni sig, allir skó- sveinar Björns Bjarnasonar – sem hjálpaði okkur að búa til hið geð- veikislega fyndna embætti sérstaks saksóknara – embætti sem hefur það verkefni eitt að naga blýanta. Við erum að tala um skósmiði auð- valdsins – fólk einsog Davíð Odds- son, Finn Ingólfsson og Valgerði Sverrisdóttur. Við erum að tala um einkavini Davíðs Oddssonar, fyrr- verandi bankamanns. Við erum að tala um karla og konur, fólk sem á einhvern hátt tengist valdaklíku helmingaskipta, fólk tengt þeim sem við toppinn sátu. Þökk sé Búsáhaldabyltingunni. Núna höfum við fengið ríkisstjórn sem þorir að setja fagmenn í vinnu við að rannsaka hrunið. Núna verð- ur skipað fjölmennt rannsóknart- eymi. Núna fáum við loksins að sjá sorann sem við þorðum ekki einu sinni að hugleiða. Núna mætir Eva Joly til starfa og sýnir okkur hvar Davíð keypti ölið. Í lífsins bók þeir letra hratt sem lofa svika vígi með harla margt að hálfu satt en hitt er bara lygi. kristján hreinsson skáld skrifar „Helmingaskipta- veldið ætlar að draga fram nokkra einstaklinga – setja þá í gapastokk um stundarsakir.“ SkáLdið Skrifar Svarthöfði Þórhallur Vilhjálmsson mark-aðsfræðingur hlýtur að íhuga alvarlega að skipta um titil í símaskránni eftir að hann varð að athlægi fyrir misheppnuðustu markaðsherferð sem sögur fara af eftir hrun. Þórhallur lagði upp í göfugan göngutúr með kyndil á lofti til þess að leysa hallærislega leiðtogakreppu Samfylkingarinnar. Hann hugðist bregða blysi skynseminnar á loft og leiða hóp villuráfandi samfylkingar- sauða að heimili Jóhönnu Sigurðar- dóttur og grátbiðja hana um að svara kalli fjöldans og fylla skarð Ingibjargar Sólrúnar. Mislestur Þórhalls á mark-aðsaðstæðum og vanmat á framboði og eftirspurn toppar næstum Icesave- herferð Landsbankans í fíflagangi. Nokkur eftirspurn er vissulega eftir kröftum Jóhönnu en framboðið á fólki sem nennir að sýna henni það í verki er ekkert. Eiginlega er framboðið á fótgönguliðum blysfarar Þórhalls jafn glæsilegt og framboðið á leiðtogaefn- um Samfylkingarinnar. Ástþór Magnússon á að baki farsælli leiðangra en þessa bálför aulahrollsins en að-eins einn villuráfandi vegfar- andi og nokkrir fjölmiðlungar mættu í skrúðgönguna sem varð fyrir vikið besti brandari vikunnar þrátt fyrir ein- lægan og göfugan hug eldhugans sem vildi bera elda að húsi Jóhönnu og þvinga hana til þess að taka að sér það sem nú virðist vera óáhugaverðasta og lummulegasta embætti sem er á lausu á Íslandi um þessar mundir. Hversu hallærislegur getur annars einn stjórnmála-flokkur verið? Einhvern reyting af fólki sem hefur tíma til að drepa langar að fá að leiða Frjálslynda flokkinn í sitt pólitíska grafhýsi. En enginn. Ekki ein einasta manneskja getur hugsað sér að leiða Samfylkinguna í fylgisuppsveiflu í gegnum kosningar. Varla hefði þurft að leggjast í djúpar markaðsrann- sóknir til þess að komast að því að þessa blysför ætti aldrei að fara. En Þórhallur virðist vera jafn skynugur á markaðsaðstæður og snillingarnir hjá gamla Landsbankanum sem ætluðu að troðfylla galtómar fjárhirslur sínar með því að hafa sparifé af blásaklausu fólki í gervallri Evrópu. Sem betur fer hafði peninga-ryksuga Landsbankamanna aðeins náð til vasa Breta og Hollendinga áður en bankinn hrundi. Annars stæðum við nú í fyr- irfram töpuðu stríði við sameinaða Evrópu. Eyðimerkurganga Þórhalls með kyndilinn var byggð á álíka mark- vissum mislestri á markaðsaðstæðum og Icesave-átak Landsbankans. Meg- inmunurinn á þessum tveimur mark- aðsherferðum er að brandari Þórhalls var ódýrari og fyndnari. En báðum fylgir sársaukafullur aulahrollur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.