Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2009, Side 36
föstudagur 13. mars 2009xx Lífsstíll
Fatamarkaður í kreppunni Nokkrar vinkon-
ur hafa tekið sig saman og ætla að halda fatamarkað
á efri hæð Nýlenduvöruverslunar Hemma og Valda
á morgun, laugardag, á milli 13 og 18. síðan íslenska
bankakerfið hrundi hafa fatamarkaðir verið vinsælir
sem aldrei fyrr og ættu allir að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi á morgun. Lofað er sanngjörnu verði, frá fimm
hundruð krónum og upp úr.
K´naan er fæddur og uppalinn í
Mógadisjú í Sómalíu. Hann fædd-
ist inn í listamannafjölskyldu sem
flúði Sómalíu er borgarastyrjöld-
in hófst 1991. Aðeins 13 ára gamall
flutti hann til Bandaríkjanna og tal-
aði enga ensku fyrir utan það sem
hann hafði lært úr textum Nas og
Rakim. Seinna fluttist fjölskyldan
hans til Toronto þar sem K´naan býr
enn í dag.
Hann hætti í skóla á unglings-
aldri til þess að einbeita sér að tón-
listinni. K´naan naut leiðsagnar
Youssou N’Dour og steig sín fyrsta
skref sem tónlistarmaður í heims-
reisu með söngvaranum. Hann
gaf út sína fyrstu breiðskífu árið
2005. Hún hlaut heitið Dusty Foot
Philosopher og hlaut verðskuld-
aða athygli víða um heim. Nýjasta
plata hans, Troubadour, er að gera
magnaða hluti vestanhafs og er
óhætt að segja hann gefi hip hop-
heiminum ferskan blæ með frum-
legu rími og skemmtilegum tökt-
um. Einn blaðamaður vestanhafs
líkti tónlist K’naans við Eminem
að sjúga helíum út úr Lil´ Wayne.
Troubadour kom í verslanir 23.
febrúar.
Hinn sómalíski K´naan fangar athygli gagnrýnenda með plötu sinni Troubadour:
Ferskur blær í hip hop-tónlist
tísKa og tónlist umsjóN: HaNNa eiríksdóttir, hanna@dv.is
Glamúr hjá
badGley mischka
í tilefni af 20 ára starfsafmæli
fatahönnunarteymisins Badgley
mischka voru nokkrar stórglæsilegar
Hollywood-stjörnur fengnar til þess
að pósa saman í glæsilegri
myndatöku, sem annie Leibovitz sá
um. Þessar flottur konur eiga það
allar sameiginlegt að vera miklir
aðdáendur Badgley mischka.
konurnar eiga ekki margt annað
sameiginlegt en glamúrinn tengir
þær allar. Á myndinni má meðal
annars sjá Carrie underwood, evu
Longoriu, Brooke shields, Lauren
Hutton, angelicu Houston ásamt
hönnuðunum sjálfum.
scary spice
selur Fötin sín
fyrirverandi tengdadóttir íslands
melanie Brown, einna þekktust sem
mel B úr spice girls hefur ákveðið að
selja gamlar og þekktar flíkur á
uppboði. allur ágóði rennur til
líknarmála. söngkonan er þekkt fyrir
djarfan og litríkan klæðnað og ættu
aðdáendur spice girls ekki að eiga í
neinum vandræðum með að finna
uppáhaldsflíkina sína. mel B ætlar
einnig að selja skó og persónulega
muni á uppboðinu. uppboðið fer
fram á heimasíðu söngkonunnar,
melaniebrown.com, og rennur
ágóðinn til barnaspítalans í Los
angeles og meals on Wheels.
hælalaus
stíGvél
Victoria Beckham vakti heldur betur
athygli á síðasta ári er hún sást í
háum hælalausum stígvélum frá
antonio Berardi. Á tískuvikunni í
París mátti finna svipuð stígvél í línu
Ninu ricci, há og hælalaus. stella
mcCartney var einnig með svipaðan
skófatnað í sinni línu. stígvélin líta út
fyrir að vera mjög óþægileg, en
fyrirsæturnar á sýningu Ninu ricci
laumuðu því að blaðamönnum að
stígvélin væru mjög þægileg. Við
skulum vona að það sé rétt ef þetta
er tískan sem bíður okkar í haust.
draumkenndir
straumar
Tískuvikan í París:
jeremy scott
vivienne
WestWood
christian dior
maison martin
marGielalanvin
comme
de Garcon
balenciaGa
jean paul
Gaultier
Árlega eru
haldnar
svokallað-
ar tískuvik-
ur í helstu
tískuborg-
um heims
og er vikan í
París sú síð-
asta í röðinni.
Litadýrðin var
mikil að þessu
sinni og mátti
finna fegurð-
ina í smáatrið-
unum. Haustið
2009 verður draumi
líkast.