Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2009, Síða 4
Þriðjudagur 19. maí 20094 Fréttir
Icelandair
sýknað
Héraðsdómur Reykjavíkur synj-
aði í gær skaðabótakröfu fyrr-
verandi flugmanns Icelandair á
hendur félaginu. Flugmaðurinn
fór fram á að Icelandair greiddi
honum rúmar tvö hundruð
þúsund krónur auk dráttarvaxta
vegna starfsloka hans. Tíma-
bundin ráðning hans í stöðu
flugstjóra féll niður á fyrir fram
ákveðnum degi án þess að til
þyrfti að koma uppsögn, sam-
kvæmt kjarasamningi. Dómur-
inn féllst ekki á að flugfélagið
væri bótaskylt í málinu.
Atvinnuleysi
aldrei meira
Atvinnuleysi hefur ekki
mælst jafn mikið hér á landi
síðan samræmdar mælingar
hófust, samkvæmt upplýsing-
um frá Vinnumálastofnun.
Atvinnuleysi í apríl mældist
9,1 prósent. Í upphafi níunda
áratugarins var fyrst farið
að halda utan um atvinnu-
leysi hér á landi og hefur það
lengst af mælst á bilinu 1 til
2 prósent. Atvinnuleysi fór
upp í fimm prósent árið 1995
og jókst svo einnig á árunum
2002 til 2003.
Vinnumálastofnun ráð-
gerir að taka á móti þús-
undum umsókna frá há-
skólanemum sem verða án
atvinnu í sumar.
Fangelsaður eftir viðtal
Móðir krúnukúgarans hefur áhyggjur af syninum:
Paul Einar Aðalsteinsson er kom-
inn aftur í fangelsi í Bretlandi eftir að
hann sagði írsku tímariti sögu sína á
dögunum. Paul Einar hafði verið laus
úr fangelsi í nokkra mánuði, en hann
var sakfelldur í Bretlandi á síðasta
ári fyrir að kúga fé út úr náfrænda
Elísabetar Bretadrottningar. Hann
fékk fimm ára fangelsisdóm, en fékk
síðar reynslulausn á skilorði. Elisa-
beth Strachan, móðir Pauls Einars,
er miður sín yfir því að syni henn-
ar hafi verið stungið í fangelsi aftur.
„Ástæðan fyrir því að þeir settu hann
aftur í fangelsi var að hann talaði við
fjölmiðla, þó hefur viðtalið ekki ver-
ið birt í Bretlandi,“ segir hún og bætir
við: „Tímaritið er gefið út í öðru landi
og það hefur ekkert með konungs-
fjölskylduna að gera.“
Elisabeth segir að breska leyni-
þjónustan, MI5, hafi tilkynnt sér að
ástæðan fyrir því að Paul Einar hafi
verið settur í fangelsi sé sú að hann
hafi stefnt konungsfjölskyldunni í
hættu. Hún tekur þær skýringar ekki
trúanlegar: „Hverju eru þeir að reyna
að ná fram með því að senda hann
í lokað fangelsi með nauðgurum og
morðingjum? Ég er reið út í yfirvöld
og ég vildi að ég gæti gert eitthvað til
að breyta þessu. Það á að vera mál-
frelsi í þessu landi, það er nú meiri
brandarinn.“
Sjálfur er Paul Einar mjög undr-
andi yfir því að vera kominn aftur á
bak við lás og slá. Í skilaboðum sem
hann kom áleiðis til blaðamanns DV
sagði hann: „Viðtalið kom mér aftur
í fangelsi vegna skipunar frá MI5, ég
veit það hljómar brjálæðislega, en ég
er í fangelsi og ég er lafhræddur.“
Í febrúar á þessu ári veitti Paul
Einar helgarblaði DV ítarlegt viðtal
og eitt af skilyrðum hans var að við-
talið myndi ekki birtast í Bretlandi, af
því að hann óttaðist yfirvöld.
valgeir@dv.is
Paul Einar Aðalsteinsson Veitti
írsku tímariti viðtal og var skömmu
síðar stungið aftur í fangelsi.
Mynd/BErgur AðAlstEinsson
Þegar eldur kom upp í bifreið hans á leið frá Akureyri á dögunum sendi ragnar ingi
Bjarnason kærustu sína inn í Húsasmiðjuna til að sækja slökkvitæki. Þar fékk hún þau
svör að tækið fengi hún ekki fyrr en hún hefði borgað fyrir það. Fyrir utan verslunina
reyndi Ragnar að kæfa eldinn með peysum. Misskilningur, segir verslunarstjórinn.
Fékk ekkI slökkvItækI
meðan bíllInn brann
„Ég var að keyra út úr Akureyri og
var rétt að koma að Húsasmiðjunni
þegar ég byrjaði að finna reykj-
arlykt. Þannig að ég brá mér inn
á plan og lagði bílnum til að líta
undir húddið. Þá mætti mér bara
eldtunga þegar ég opnaði,“ segir
Ragnar Ingi Bjarnason, sem lenti í
þessum óskemmtilegu aðstæðum á
dögunum. Hann undrast viðbrögð
starfsfólks Húsasmiðjunnar á Akur-
eyri þegar kærasta hans óskaði eftir
slökkvitæki til að bregðast við neyð-
arástandinu. Hún fékk þau svör að
tækið fengi hún ekki án þess að
greiða fyrir það. Á meðan logaði í
bílnum á planinu fyrir utan.
Vantaði slökkvitæki strax
„Ég dreif mig aftur í bílinn til að ná
í peysur sem ég hafði meðferðis til
að freista þess að kæfa mesta eld-
inn,“ segir Ragnar Ingi og kveðst
hafa sent kærustu sína inn í Húsa-
smiðjuna til að sækja slökkvitæki í
hvelli.
Þar hafi henni verið vísað af-
greiðslumanna á milli. Hún fékk
þær upplýsingar að slökkvitækin
væru til og hún gæti valið sér og
keypt tæki en út færi hún ekki með
slökkvitæki nema að greitt yrði fyr-
ir það. Hún sagðist að sjálfsögðu
myndu greiða fyrir tækið en tím-
inn væri dýrmætur þar sem bíllinn
stæði í logum.
„Þeir héldu að hana vantaði
slökkvitæki til kaups en hún sagði
að sig vantaði slökkvitæki núna, það
væri kviknað í bíl hérna úti á plani.
Þá rönkuðu menn eitthvað við sér,
bentu á tvo áður en einhver ákvað
að aðhafast nokkuð,“ segir Ragnar
sem aldrei fékk slökkvitækið.
Kókflaska til bjargar
Á meðan kærasta Ragnars reyndi að
koma Húsasmiðjumönnum í skiln-
ing um að um neyðartilvik væri að
ræða stóð hann sjálfur úti á plani
að berjast við eldinn undir húdd-
inu. „Svo fattaði ég að ég var með
kókflösku í bílnum sem ég notaði
til að skvetta úr yfir eldinn og náði
þar með að ráða niðurlögum hans,“
segir Ragnar og segir það ekki hafa
verið Húsasmiðjunni að þakka að
ekki fór verr.
„Manni fannst þetta svolítið
skondið svona eftir á. Ég fór að velta
því fyrir mér hvort hún hefði þurft
að hlaupa aftast í röðina við af-
greiðslukassann með slökkvitækið
áður en hún kæmist út til aðstoðar.“
slökkvitæki til reiðu
Steingrímur Magnússon, verslun-
arstjóri Húsasmiðjunnar á Akur-
eyri, telur starfsfólk sitt hafa brugð-
ist hárrétt við.
„Þau eru með bílinn úti á plani
og stúlkan stekkur inn í verslun-
ina, talar við stelpuna á kassanum
og segir að þau vanti slökkvitæki.
Afgreiðslustúlkan talar við mig og
segir mér að það vanti slökkvitæki.
Mín fyrsta hugsun var að þau vant-
aði slökkvitæki til að kaupa. Þegar
ég gerði mér grein fyrir því að það
var til að slökkva eld í bíl úti á plani
hóaði ég í starfsmann sem er fyrr-
verandi lögregluþjónn og vanur
ýmsu. Þegar hann kom út var búið
að slökkva eldinn og parið þurfti
ekki slökkvitæki lengur. En tækið
var alltaf til reiðu.“
sigurður MiKAEl og
liljA KAtrín
blaðamenn skrifa
lilja@dv.is og mikael@dv.is
„Ég fór að velta því fyr-
ir mér hvort hún hefði
þurft að hlaupa í röð-
ina við afgreiðslukass-
ann með slökkvitækið
áður en hún kæmist út
til aðstoðar.“
Ekki án þess að borga
Kærasta ragnars fékk þau
skilaboð að hún yrði að borga
fyrir slökkvitækið áður en hún
sinnti brennandi bíl á planinu.
til reiðu Steingrím-
ur í Húsasmiðjunni
var tilbúinn með
slökkvitækið.
skondið eftir á ragnar
var með kókflösku í
bílnum sem hann notaði
til að slökkva eldinn.
töluðu fyrir 24,6
milljónir
Símakostnaður alþingismanna
nam 24,6 milljónum króna í
fyrra samkvæmt upplýsingum
frá Alþingi. Morgunblaðið grein-
ir frá því í dag að símakostnaður
ráðherranna tólf sem sátu í fyrra
sé greiddur af viðkomandi ráðu-
neyti. Því skiptist fyrrgreindur
kostnaður á milli 51 þingmanns.
Þessi upphæð jafngildir því að
símreikningur hvers þingmanns
hafi verið rétt rúmlega 40 þús-
und krónur á mánuði, sem ein-
mitt er sú upphæð sem Alþingi
miðar við, áður en send er til-
kynning um upphæð reiknings-
ins og þeim boðið að gera „við-
eigandi ráðstafanir“.