Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2009, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2009, Síða 6
Þriðjudagur 19. maí 20096 Fréttir inu. Gísli Árni Eggertsson, skrif- stofustjóri Íþrótta- og tómstunda- „Við lítum svo á að börnin séu að taka þátt í formlegu frístunda- starfi á frístundaheimilunum en þar fer fram margs konar starf- semi sem er sniðin að aldri þeirra og þörfum. Þá taka ekki öll börn sem sækja frístundaheimilin þátt í öðru frístundastarfi og þótti ástæða til að gefa foreldrum þeirra möguleika á að nýta kortið til að greiða niður dægradvölina. Það skal þó tekið fram að full vistun á frístundaheimili kostar um 8.000 Lýsa óánægju með morðrannsókn í Dóminíska lýðveldinu: morðingi fái refsingu Rúmlega 4.500 manns hafa skráð sig í Facebook-hóp sem vill réttlæti fyrir Hrafnhildi Lilju Georgsdóttur, sem var myrt á hrottafenginn hátt í Dóminíska lýðveldinu þann 21. september á síðasta ári. DV greindi frá því nýlega að formlegri rann- sókn á málinu hefði verið hætt án þess að nokkur hefði verið ákærð- ur. „Enn hefur enginn verið sak- felldur fyrir að taka þessa fallegu stúlku frá okkur, á þennan hrylli- lega hátt. Lögreglan í Dóminíska lýðveldinu hefur hætt formlegri rannsókn á morðinu, án nokkurr- ar niðurstöðu. En þeir munu skoða málið frekar ef nýjar vísbendingar koma í ljós,“ segir á Facebook-síð- unni um Hrafnhildi. Hópurinn skorar á íslensk stjórnvöld að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að réttlætið nái fram að ganga. „Hrafnhildur Lilja var yndisleg manneskja, falleg að innan sem utan. Hún hafði sterka réttlætiskennd og vildi öllum vel. Hún hafði gaman af því að ferð- ast og kynnast öðrum menningar- heimum. Hún var fljót að kynnast fólki, og átti marga góða vini sem elskuðu hana. Hún á einnig fjölskyldu hér á Íslandi, móður, föður, tvær syst- ur, bræður, ömmu, afa, frænkur og frændur sem öll elskuðu hana svo mikið og sakna hennar svo sárt. Við sem eftir sitjum getum ekki sætt okkur við að sá sem tók líf henn- ar fái ekki sína refsingu!!! Við finn- um ekki frið í hjörtum okkar fyrr en réttlætið sigrar!“ segir á síðunni. Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir Var myrt í dóminíska lýðveldinu í september í fyrra. Jóhanna funheit Jóhanna Guðrún Jónsdóttir er að gera það gott með Is it true? í vefverslun iTunes á Norðurlönd- unum. Í gær var lagið í öðru sæti yfir mest sóttu lögin á iTunes í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Þá var hún í fjórða sæti í Dan- mörku. Sigurvegari Eurovision, Norðmaðurinn Alexander Ry- bak, vermdi hins vegar toppsæt- in í löndunum fjórum. Lagið var svo í 31. sæti yfir mest sóttu lög- in í Bretlandi en Jóhanna hefur klifið þann lista hægt og bítandi síðan á laugardaginn. Kveiktu óvart í sinu Slökkviliðið á Selfossi var kallað að Úthlíð í Biskupstungum eftir hádegi í fyrradag vegna elds í sinu. Ástæðan fyrir þessu var sú að fólk sem var að grilla á kolag- rilli losaði kolin á jörðina með fyrrgreindum afleiðingum. Fólk- inu tókst ekki að slökkva eldinn þó það bæri vatn á hann úr föt- um. Lögreglan á Selfossi vekur athygli á því að gróður er mjög þurr þessa dagana og hvetur fólk til að fara með gát. Heitir lampar Aðfaranótt miðvikudags í síð- ustu viku var brotist inn í garð- yrkjustöð að Reykjum í Ölfusi og þaðan stolið 12 gróðurhúsa- lömpum. Næstu nótt á eftir fékk garðyrkjustöðin í Asparlundi í Laugarási heimsókn þjófa sem brutust þar inn og höfðu á brott 15 lampa. „Við erum í sambýli við Olíudreif- ingu. Út af þessari hafnarvernd eru þetta kvaðir sem eru settar. Það má segja að Bush hafi skipað fyrir um þetta,“ segir Kristján Loftsson, fram- kvæmdastjóri Hvals hf., aðspurður hvers vegna búið sé að girða Hvals- töðina í Hvalfirði af. Kristján segir því ástæðuna ekki þá að hann óttist ágang erlendra mótmælenda í sum- ar. Ný siglingalög tóku gildi 1. júlí 2004 og byggja á fyrirmælum frá Alþjóðasiglingastofnuninni, IMO. Hluti af því er svokölluð hafnar- vernd sem felst meðal annars í því að girða hafnir af. Reglurnar voru settar í kjölfar hryðjuverkaárásanna 11. september 2001. Ekki spákaupmennska „Þegar þú tekur á móti olíuskipum eða lestar þau þarftu að vera með afgirt hafnarsvæði til að geta tak- markað aðgang að skipunum,“ segir Hörður Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Olíudreifingar. Hann segir að kostnaðurinn við hafnarverndina deilist til helminga milli Olíudreif- ingar og Hvals hf. Framkvæmdirnar hófust í fyrrasumar og eru nú á loka- stigi. Hörður segir að Olíudreifing geymi sjálft ekki eldsneyti í geym- unum í Hvalfirði. Geymarnir eru leigðir til finnska ríkisolíufélagsins Neste. Hann segir að í þessu tilfelli vanti Neste tímabundið lagerpláss. „Þeir geyma mikið eldsneyti sem fer á Bandaríkjamarkað á sumrin. Þá þurfa þeir svo mikið eldsneyti á stuttum tíma,“ segir hann. Neste sé því ekki í spákaupmennsku með olíu heldur snúist þetta fyrst og fremst um að staðsetning Íslands sé hent- ug til geymslu á eldsneyti. Olíudreif- ing leigir alla tanka sína í Hvalfirði til Neste. �m er að ræða níu tanka sem taka um 60 milljón lítra af eldsneyti. 150 starfsmenn Eins og kunnugt er gaf Einar Krist- inn Guðfinnsson, þáverandi sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra, út reglugerð um veiðar á hrefnu og langreyði í lok janúar. Þar er kveðið á um að á árunum 2009 til 2013 megi veiða allt að 150 langreyðar á ári og 100 hrefnur. Að sögn Kristjáns Lofts- sonar mun fyrirtæki hans Hvalur hf. veiða allar 150 langreyðarnar. Engin önnur fyrirtæki eigi kvóta. Hann gerir ráð fyrir að nota tvö hvalveiðiskip við veiðarnar í sumar og gerir hann ráð fyrir að hefja veið- ar eftir viku. Hjá Hval verða um 150 starfsmenn í sumar við veiðar og vinnslu á langreyði. Kristján telur næga eftirspurn vera eftir hvalkjöti erlendis. „Menn væru ekki að þessu annars,“ segir hann. Víggirt hvalstöð Vegna laga um hafnarvernd varð að girða Hvalstöðina í Hvalfirði af. mynd RakEL Ósk siGuRðaRdÓttiR Óttast ekki mótmælendur Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals, segist ekki óttast ágang mótmælenda í sumar. dV0905158995_8.jpg dV0905181237_2.jpg Vegna laga um hafnarvernd sem sett voru eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 þarf að girða Hvalstöðina í Hvalfirði af. kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals, segist ekki óttast ágang mótmælenda í sumar. Hann gerir ráð fyrir að hjá Hval verði 150 starfsmenn í sumar vegna veiða á 150 langreyðum. BusH fyrirsKipaði girðinguna annas siGmundsson blaðamaður skrifar: as@dv.is Út af þessari hafnarvernd eru þetta kvaðir sem eru settar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.