Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2009, Qupperneq 21
Þriðjudagur 19. maí 2009 21Fókus
á þ r i ð j u d e g i
StyttiSt í AiM
Miðasala í er í fullum gangi á midi.is fyrir AIM-tónlistarhátíðina á
Akureyri sem fram fer 29. maí til 4. júní. Hátíðin er nú haldin í fjórða
sinn og sem fyrr er boðið upp á fjölbreytt úrval tónlistar, allt frá
bílskúrshljómsveitum upp í kórtónleika. Á meðal þeirra sem troða
upp eru Retro Stefson, Hjálmar, Megas og Senuþjófarnir, Stórsveit
Reykjavíkur og Mótettukór Hallgrímskirkju. Nánar á aimfestival.is.
VinSælir englAr
og djöflAr
Angels & Demons er vinsælasta
kvikmyndin á Íslandi í dag sam-
kvæmt aðsóknarlista kvikmynda-
húsanna fyrir liðna helgi. 9.300
manns sáu myndina, sem byggð
er á samnefndri bók metsöluhöf-
undarins Dans Brown, þessa fyrstu
sýningarhelgi hennar hér á landi. Í
öðru sæti er Star Trek sem vermdi
toppsætið í síðustu viku og þar á
eftir myndin um ævintýri sjónvarps-
persónunnar Hannah Montana sem
áhorfendur ættu að kannast við úr
samnefndum þáttum á RÚV. Tæp-
lega fimmtán þúsund manns hafa
nú séð íslensku heimildarmyndina
Draumalandið sem er í tíunda sæti
listans.
leikrit óSkASt
Leikritunarsjóðurinn Prologos aug-
lýsir eftir umsóknum vegna þriðju
úthlutunar úr sjóðnum. Umsókn-
arfrestur er til 1. júní. Annars vegar
er auglýst eftir hugmynd að leik-
riti. Við umsókn skal leggja fram
leiktexta (5 bls.), lýsingu á verkinu
(2 bls.) og stutta ferilskrá höfund-
ar (1 bls.). Höfundur getur hlotið
600 þúsund króna styrk til að vinna
að handriti. Hins vegar er auglýst
eftir hugmynd að leiksmiðju- eða
tilraunaverkefni. Við umsókn skal
leggja fram lýsingu á verkefninu
(2-4 bls.), lista yfir þátttakendur og
stuttar ferilskrár þátttakenda. Nafn,
heimilisfang, sími og tölvupóst-
fang umsækjanda þurfa að fylgja
umsókn. Umsóknir skal senda með
tölvupósti á netfangið prologos@
leikhusid.is eða í almennum pósti,
merktar: Þjóðleikhúsið, Prologos,
Lindargötu 7, 101 Reykjavík.
ÚtSkriftArdAnS-
Sýning lHí
Útskriftarnemendur dansbraut-
ar Listaháskóla Íslands frumsýndu
fyrir helgi dansverkið Deadhead’s
Lament en það er nýtt verk sem
nýsjálenski danshöfundurinn Tony
Vezich hefur samið sérstaklega fyrir
hópinn. Í umsögn um verkið segir
meðal annars að í viðleitni okkar til
að láta gott af okkur leiða hljóti hvert
og eitt okkar að eiga í baráttu við
eitthvað, hvort sem um er að ræða
þrælatök fíknar, innibyrgða árás-
arhvöt, uppsvelgjandi græðgi eða
hina endanlegu undanlátssemi við
sjálfseyðilegginguna. Verkið er sýnt í
Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Sögusviðið er Bretland í ‘60 sveiflu.
BBC einokar útvarpstæki stífra Breta
og rokktónlist er álitin satanískari og
úrkynjaðri en nokkru sinni fyrr. Ungir
skæruliðaútvarpsmenn gera það upp
á sitt eindæmi að koma á fætur „ólög-
legum“ útvarpsstöðvum, senda út allt
það heitasta frá gullöld rokksins og um
leið njóta þess að senda ríkisvaldinu
löngutöngina með hina höndina um
hreðjarnar. Ein slíkra útvarpsstöðva
er Rock Boat. Ef leikaralið sem telur
Philip Seymour Hoffman, Nick Frost,
Rhys Ifans, Kenneth Branagh og Chris
O’Dowd úr IT Crowd er ekki nóg til
að freista þín til að sjá eina bíómynd á
þessu ári þá ert þú ráðherra í Bretlandi
frá þessum tíma og óhætt að fullyrða
að þú sért alræmdur ferningur.
Eins og áður segir fjallar myndin
um hóp sjóræningjaútvarpsmanna
sem senda út frá ryðguðum dalli und-
an ströndum Bretlands árið 1966 og
njóta gríðarlegra vinsælda. En ríkis-
stjórninni er ekki skemmt og kem-
ur það í hlut ráðherrans Dormandys,
sem leikinn er gjörsamlega óaðfinn-
anlega af Kenneth Branagh, að finna
leið til að loka á hið úrkynjaða rokk
og ról sem spillir unga fólkinu. Hæst-
ráðandi á rokkskipinu er grúví náungi
að nafni Quentin, sem sömuleiðis er
leikinn frábærlega af Bill Nighy, sem
fer fyrir hópi ofursvalra útvarpsmanna
sem elska sitt rokk, dóp og kynlíf fram
úr hófi. Óþarfi er að kynna Philip
Seymour Hoffman til leiks, enda skilar
hann alltaf dagsverki sínu án þess að
hafa fyrir því. Hoffman leikur Greifann
á skipinu, vinsælasta ólöglega útvarps-
manninn í Tjallalandi. Og veitið sér-
staklega aðalleikaranum í myndinni,
hinum unga Tom Sturridge sem leikur
Carl, eftirtekt. Richard Curtis skrifar og
leikstýrir, hann kann þetta allt saman
eins og ferilskráin hans sannar.
Ef þú elskar frábæra rokktónlist og
ef þú elskar vel heppnaðar grínmynd-
ir með melódramatísku ívafi þá munt
þú elska The Boat that Rocked. Mynd-
in er eins og sælkeraveisla fyrir skiln-
ingarvitin. Góðir leikarar, skotheldur
söguþráður og geðveik tónlist fá bát-
inn virkilega til að vagga og velta.
Sigurður Mikael Jónsson
Báturinn sem rokkaði
Tom Hanks er ofmetinn og frekar leið-
inlegur leikari, Ron Howard er ofmet-
inn og steríll leikstjóri og Dan Brown
er ofmetinn rithöfundur sem skrif-
ar ágætis spennusögur. Þessir þrír
herramenn slá nú saman í púkk öðru
sinni með kvikmyndinni Angels and
Demons en þetta var auðvitað með
öllu óhjákvæmilegt eftir að kvikmynd
byggð á Da Vinci lykli Browns mal-
aði þremenningunum og öðrum að-
standendum gull í tonnavís.
Það verður ekki af Dan Brown tek-
ið að honum er lagið að skrifa æsi-
spennandi, skemmtilega og auðlesna
reyfara. Da Vinci lykillinn svínvirkaði
sem slíkur og ekki spillti fyrir að ofan
í kaupið töldu lesendur sig vera út-
skrifaða í guðfræði, táknfræði og ætt-
artölu Jesú Krists að lestri loknum.
Ron Howard og félögum mistókst því
miður með öllu að skila háspennunni
af síðum bókarinnar á hvíta tjaldið og
táknfræðin og trúarvellan, sem hélt
einhvern veginn vatni á prenti, bar
myndina algerlega ofurliði.
Þá var Tom Hanks engan veginn
að virka í hlutverki aðalpersónunn-
ar, táknfræðingsins Roberts Lang-
don. Þessi margverðlaunaði leikari
var eins og álfur út úr hól og ömurleg
hárgreiðsla hans var síður en svo til
bóta. Mögnuð metsala skáldsögunn-
ar tryggði þó auðvitað þessari frek-
ar gamaldags, stirðu og langdregnu
spennumynd örugga miðasölu og
vinsældir á heimsvísu sem beinlínis
öskruðu á framhald.
Því kalli var auðvelt að svara þar
sem bókin Englar og djöflar lá fyr-
ir. Brown skrifaði þá bók á undan Da
Vinci lyklinum við litlar undirtektir.
Það breyttist allt eftir að Robert Lang-
don lagði heiminn að fótum sér í ann-
arri tilraun í margnefndum Da Vinci
lykli. Munurinn á þessum tveim-
ur bókum er samt sáralítill og í raun
hnoðar Brown í báðum tilfellum æs-
andi atburðarás, þar sem kaþólsk trú
kemur mikið við sögu, á sömu grind-
ina. Í báðum bókum er Langdon kall-
aður til vegna yfirburðaþekkingar á
trúartáknum og þarf svo að leysa ban-
vænar gátur í félagi við ungar og fal-
legar konur á meðan hann er hundelt-
ur ýmist af lögreglu eða kaldrifjuðum
morðingjum.
Da Vinci lykillinn snerist um víð-
tækt samsæri kaþólskra fauta um að
halda því leyndu að Kristur hefði get-
ið barn með Maríu Magdalenu og
leynifélag sem hafði í gegnum aldirn-
ar haldið verndarhendi yfir afkom-
endum frelsarans. Í Englum og djöfl-
um býður Brown aftur á móti upp á
tilkomumikinn hátæknivaðal í kring-
um Evrópsku rannsóknamiðstöðina í
öreindafræði (CERN) í Genf, öreinda-
hraðalinn og framleiðslu andefnis sem
ill öfl hyggjast nota til þess að jafna
Vatíkanið við jörðu í miðju páfakjöri.
Til að bæta gráu ofan á svart rænir
leigumorðingi þeim fjórum kardínál-
um sem líklegastir þykja til að verða
páfar. Morðingjanum er svo uppá-
lagt að brennimerkja guðsmennina
og drepa á ógeðslegan hátt á klukku-
tíma fresti þar til Páfagarður springur
á miðnætti.
Englar og djöflar er vitlausari en Da
Vinci lykillinn en jafnvel skemmtilegri
aflestrar og það er skemmst frá því að
segja að aðlögun þessarar bókar að
bíóinu heppnast mun betur en Da
Vinci lykillinn fyrir nokkrum árum.
Howard og félagar kjósa, góðu heilli,
að skauta að mestu framhjá tæknibulli
bókarinnar þannig að við fáum frekar
einfalda sögu um tilraunir Langdons
til að nota þekkingu sína til þess að
bjarga Páfagarði og finna hin rændu
páfaefni og bjarga þeim frá píslar-
dauða. Semsagt allt einfaldara og að-
gengilegra en áður.
Þá er atburðarásin nú látin gerast á
eftir atburðum Da Vinci lykilsins frek-
ar en að setja Engla og djöfla fram sem
forleik að Jesúdramanu eins og raun-
in er á pappírnum. Tom Hanks er aft-
ur á móti álíka óspennandi og flatur
og í fyrri myndinni. Hann hefur þó
blessunarlega verið sendur í klipp-
ingu þannig að nú er mun auðveldara
að afbera hann. Ayelet Zurer er hvorki
fugl né fiskur, frekar an Audrey Tou-
tou í Da Vinci, sem fylgdarkona próf-
essorsins en þau fá hins vegar góðan
stuðning frá toppmönnunum Ewan
McGregor, Armin Mueller-Stahl og
Stellan Skarsgård sem klikkar aldrei
og er fjalltraustur sem yfirmaður
svissnesku lífvarðanna í Vatíkaninu.
McGregor hefur lítið fyrir því að gera
fláráðri hægri hönd páfans góð skil og
Mueller-Stahl er svo næs eitthvað sem
aðalkardínálinn í pleisinu að kaþólska
kirkjan fær ansi mikið samúðarfylgi
þótt á hana sé deilt í myndinni.
Howard nær á köflum upp ágætis
spennu en tekst ekki að halda dampi.
Aðallega vegna þess hversu geld-
ur leikstjóri hann er. Maðurinn tekur
aldrei áhættu þannig að myndin líður
bara áfram áferðarfögur og hnökralít-
il. Gallinn við þessa tilhneigingu How-
ards að gera bíómyndir sem eru jafn
dauðhreinsaðar og amerísk apótek
er sá að myndin gæti hæglega verið
fjörutíu ára gömul. Maður á einhvern
veginn alltaf von á því að CERN „bími“
Hanks og Zurer burt að hætti Star Trek
og að í stað þeirra birtist Gregory Peck
og Sophia Loren.
Howard tekst ekki einu sinni að gera
almennilega ógeðsveislu úr morðun-
um á páfaefnunum sem eru það pæld
að með réttri matreiðslu ættu þau að
vera á pari við Se7en. Sú er því mið-
ur ekki raunin. Það er rétt svo að það
glitti í smá hryllingstakta þegar einn
klerkurinn er brenndur lifandi. Annars
er þetta allt sauðmeinlaust 3 bíó. Fag-
mannlega unnin og meinlaus spennu-
mynd fyrir 60 ára og eldri.
Þórarinn Þórarinsson
The BoaT ThaT
Rocked
Leikstjóri: richard Curtis
Aðalhlutverk: Philip Seymour Hoffman,
Bill Nighy, rhys ifans, Nick Frost
kvikmyndir
Ruggandi bátur
góðir leikarar, skotheldur
söguþráður og geðveik tónlist.
angels & demons
Leikstjóri: ron Howard
Aðalhlutverk: Tom Hanks, ayelet Zurer,
Ewan mcgregor, Stellan Skarsgård
kvikmyndir
SpennuMynd
fyrir gAMAlt fólk
Nýtt hár, sami spýtukallinn Tom Hanks
bregður sér í hlutverk táknfræðingsins og
prófessorsins roberts Langdon í annað
sinn og útskýrir hér eitthvað mjög merki-
legt fyrir ítölskum sérsveitarmönnum.