Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2009, Blaðsíða 2
2 þriðjudagur 25. ágúst 2009 fréttir
„Mér er ekki heimilt að tjá mig um
stöðu þessa máls,“ segir Bryndís
Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri
þegar hún er spurð að því hvernig
rannsókn embættisins gangi í máli FL
Group. Rannsókn stendur enn yfir hjá
embætti skattrannsóknarstjóra vegna
rökstudds gruns um að skattalagabrot
hafi verið framin hjá FL Group. Emb-
ættið framkvæmdi húsleit í höfuð-
stöðvum fyrirtækisins sem nú heitir
Stoðir í nóvember 2008. Var þar lagt
hald á bókhaldsgögn frá árunum 2005
til 2007.
Skoða umfjöllun fjölmiðla
„Við höfum verið að skoða ýmis ann-
ars konar mál meðal annars frétt-
ir sem hafa birst í fjölmiðlum, þar á
meðal umfjöllun DV,“ segir Bryndís.
Undanfarið ár hafi verið að koma til
þeirra mál sem hafi verið annars eðl-
is, þá helst mál tengd fjármálageir-
anum. Hún segir að verkefnum hjá
embætti skattrannsóknarstjóra megi
skipta í þrennt. „Við fáum send mál
frá skattstjóra ef grunur er um refsi-
verð brot. Sömuleiðis fáum við send
mál frá efnahagsbrotadeid ríkislög-
reglustjóra ef grunur kemur upp um
skattsvik. Síðan tökum við upp mál að
eigin frumkvæði ef við sjáum ástæðu
til,“ segir Bryndís.
Að hennar sögn hefur embætti
skattrannsóknarstjóra ekki fengið
aukið fjármagn þrátt fyrir að málum
embættisins hafi fjölgað mikið eft-
ir bankahrunið síðasta haust. „Við
stöndum frammi fyrir því að það voru
skertar fjárheimildir fyrir þetta ár sem
nú er að líða. Það er staðan. Ég von-
ast þó til að fá meira fjármagn því
það hefur aldrei verið jafnmik-
ið að gera eins og núna. Ef vel
ætti að vera þyrfti að fjölga
starfsfólki um helming og
á það sérstaklega við núna
vegna brota í tengslum
við bankahrunið,“ segir
Bryndís.
Mannekla hjá
efnahagsbrotadeild
„Þetta hefur sinn gang.
Málinu miðar en starfs-
menn hafa verið í sum-
arfríum hér eins og
annars staðar,“
segir Helgi
Magnús
Gunnarsson,
saksóknari
efnahags-
brotadeild-
ar ríkislög-
reglustjóra,
aðspurð-
ur hvern-
ig rannsókn
embættisins
á málefnum
FL Group
miði. Emb-
ættið glími
líkt og aðrir
við fjárskort
og niður-
skurð.
Efna-
hagsbrota-
deild ríkis-
lögreglustjóra
hóf rannsókn
í sumar á því
hvort brot hafi
verið framin
hjá FL Group í
tengslum við viðskipti á danska
flugfélaginu Sterling. Eins og
þekkt er seldu félögin Fons
og FL Group flugfélagið á
milli sín nokkrum sinn-
um. Gerði efnahags-
brotadeildin húsleit á
heimilum Hannesar
Smárasonar, fyrrver-
andi forstjóra FL Group,
á Fjölnisvegi 9 og 11 í
sumar. Auk þess gerði
efnahagsbrotadeildin
húsleit hjá lögmannsstof-
unni Logos á sama tíma
en Gunnar Sturlu-
son, lögmaður
og einn stjórn-
enda Logos, sat
í framkvæmda-
stjórn tveggja fé-
laga Hannes-
ar Smárasonar
þegar brotin
eiga að hafa átt
sér stað.
„Starfsfólki
hjá okkur hef-
ur frá ára-
mótum verið
fækkað um
þrjár stöður.
Hjá embætt-
inu starfa
nú 12 starfs-
menn. Ég
myndi vilja
vera með
svona 30
starfs-
menn.
Verk-
efnum
hjá okk-
ur hef-
ur fjölgað
um svona 40 prósent á undanförnum
mánuðum í málum sem bíða rann-
sóknar. Ég þyrfti að vera með tvöfalt
fleiri starfsmenn til að anna verkefn-
um okkar. Við munum ekki eiga auð-
velt með það á næstunni að standa
undir þeim kröfum sem mannrétt-
indasáttmálar og stjórnarskrá gera
um málshraða og annað slíkt. Það er
alveg á hreinu, því miður,“ segir Helgi
Magnús.
Horfa í hvern eyri
„Ríkisstjórnin hefur ítrekað aukið fjár-
framlög til rannsóknar á bankahrun-
inu. Þá hafa aðgerðir á vegum skatta-
yfirvalda verðið efldar, meðal annars
með frumvarpi um heimild til skatt-
rannsóknarstjóra til að kyrrsetja eign-
ir,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra aðspurður hvort ekki
þurfi að auka fjárframlög til emb-
ættis skattrannsóknarstjóra og efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra.
Staða ríkisfjármálanna sé þó þannig
að horfa þurfi í hvern eyri sem fari úr
ríkissjóði. „Rannsókn bankahrunsins
er þó eitt af forgangsverkefnum ríkis-
stjórnarinnar og því munum við veita
allt það fé sem við treystum okkur til í
það verkefni,“ segir Steingrímur.
Að hans mati er mikilvægt að mál
af þessu tagi gangi eins hratt og kostur
er. „Það ber þó að hafa í huga að um
flókin mál er að ræða sem þarf tíma
til að rannsaka. Ef hægt er að hraða
og bæta rannsókn þessara mála með
einhverjum hætti mun ríkisstjórnin
styðja við það eftir bestu getu,“ segir
Steingrímur.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar er einnig kveðið á um afdráttar-
lausar rannsóknir á efnahagsbrotum:
„Ríkisstjórnin mun gera það sem í
hennar valdi stendur til að tryggja öfl-
uga og skilvirka efnahagsbrotarann-
sókn og að bæði henni og niðurstöð-
um rannsóknarnefndar Alþingis um
bankahrunið verði fylgt eftir af fullum
heilindum.“
Töf mildar dóma
Á síðustu árum hefur það nokkuð oft
komið upp að sakborningar hafa hlot-
ið mildari dóma vegna þess að mál
hafa tafist við rannsókn. Í umfjöllun
Kastljóss sem fór fram í október 2008
stuttu eftir bankahrunið kom fram að
á fimm ára tímabili frá 2002 til 2007
hafi efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra gefið út 167 ákærur. Samkvæmt
athugun Kastljóss gerðu dómstól-
ar athugasemdir við 19 þessara mála
vegna tafa sem höfðu orðið á rann-
sókn efnahagsbrotadeildar. Töfin hafi
haft þau áhrif að sakborningar sem
hefðu fengið fangelsisdóma sluppu
eða dómar yfir þeim voru mildaðir.
Þeir sem hafa gerst sekir um efnahagsbrot gætu fengið mildari dóma vegna
þess að rannsókn á málum þeirra tefst. Ástæðan er fjárskortur. Bæði emb-
ætti skattrannsóknarstjóra og efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra
kvarta undan manneklu. Bryndis Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri
og Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrotadeildar, myndu
vilja tvöfalda starfsmannafjölda sinn til að geta komist yfir þau mál sem
þau hafa til rannsóknar.
FJÁRSKORTUR
TEFUR RANNSÓKN
„Við höfum verið að skoða
ýmis annars konar mál
meðal annars fréttir sem
hafa birst í fjölmiðlum, þar
á meðal umfjöllun DV.“
annaS SiGMundSSon
blaðamaður skrifar: as @dv.is
Skoðar umfjöllun fjölmiðla Bryndís
Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri
segir að embættið sé meðal annars að
skoða mál sem fjölmiðlar hafa upplýst
um. Mynd Heiða HelGadóTTir
Fjárskortur Helgi Magnús Gunnarsson,
saksóknari efnahagsbrotadeildar, myndi
vilja fjölga starfsmönnum um meira en
helming til að geta staðið undir kröfum
um málshraða. Mynd róBerT reyniSSon
rannsókn tefst
Húsleit hefur verið
gerð heima hjá Hann-
esi Smárasyni vegna
gruns um skattalaga-
brot. Rannsóknin tefst
þó vegna fjárskorts
rannsóknaraðila
og gæti það leitt til
mildari dóms en ella
ef til kemur.