Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2009, Blaðsíða 16
Gunnar Levý Gissurarson
forstjóri GluGGasmiðjunnar
Gunnar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann var í skóla Ísaks
Jónssonar en að loknu hefðbundnu
barna- og gagnfræðaskólanámi
stundaði hann nám við Iðnskólann
í Reykjavík og lauk þaðan meistara-
námi í húsasmíði. Hann stundaði
síðan nám við Tækniskóla Íslands
og lauk prófi í byggingartæknifræði
með rekstrarnám sem valgrein.
Gunnar sinnti ýmsum störfum
með námi. Að loknu tæknifræði-
námi hóf hann störf hjá Húsnæð-
isstofnun ríkisins og starfaði þar í
fimm ár. Hann starfaði um skeið fyr-
ir Byggung í Garðabæ en 1980 hóf
hann störf hjá danska utanríkisráðu-
neytinu og flutti þá með fjölskyldu
sína til Afríku. Gunnar var rekstrar-
ráðgjafi í Tansaníu næstu þrjú árin
en starfinu fylgdu mikil ferðalög
um Afríku og samhliða starfinu fór
hann á villidýraveiðar og kleif hæsta
fjall Afríku, Kilimanjaro.
Gunnar og fjölskylda hans komu
heim til Íslands 1983. Hann hóf þá
störf hjá Gluggasmiðjunni þar sem
hann er nú forstjóri.
Gunnar hefur tekið virkan þátt í
félagsstörfum. Hann sat í nemenda-
ráði Tækniskólans, var fulltúi nem-
enda í skólastjórn, sat í stjórn Félags
ungra jafnaðarmanna, Sambands
ungra jafnaðarmanna, Æskulýðs-
sambands Íslands, Alþýðuflokksfé-
lags Reykjavíkur og flokkstjórn Al-
þýðuflokksins. Hann hefur auk þess
átt sæti í mörgum ráðum og nefnd-
um, s.s. sambandsstjórn Landssam-
bands iðnaðarmanna og Ráðgjafa-
ráði Samtaka iðnaðarins auk þess
sem hann er einn af stofnendum
Samtaka íslenskra húshlutafram-
leiðenda og var formaður þeirra
samtaka um langt árabil. Þá var
hann varaformaður stjórnar Rann-
sóknarstofnunar byggingariðnaðar-
ins í tólf ár
Gunnar var varaborgarfulltrúi
í borgarstjórn Reykjavíkur 1994-
98, formaður bygginganefndar
Reykjavíkur, varaformaður stjórnar
Orkuveitu Reykjavíkur, sat í stjórn
Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykja-
víkurborgar og Þróunarfélags
Reykjavíkur og var varaformaður
stjórnar Jarðborana.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 6.9. 1969 Huldu
Kristinsdóttur, f. 28.5. 1950, klæð-
skera. Hún er dóttir Kristins
Malmquist Gunnarssonar, f. 12.7.
1929, d. 15.10. 1977, vélstjóra í
Reykjavík, og Sigríðar Guðmunds-
dóttur, f. 19.6. 1930, húsmóður.
Börn Gunnars og Huldu eru
Kristinn Már, f. 2.10. 1968, forstjóri í
Þýskalandi en kona hans er Kirsten
Max og er dóttir þeirra Lilja María
og Max Jóhannes; Gissur Örn, f.
31.5. 1973, kvikmyndatökumað-
ur í Reykjavík; Anna Lilja, f. 17.4.
1984, skrifstofumaður í Reykjavík en
maður hennar er Kolbeinn Ólafs-
son og er dóttir þeirra Arndís Eva;
Eva Björk, f. 17.4. 1984, skrifstofu-
maður í Reykjavík og er dóttir henn-
ar Embla Huld.
Systkini Gunnars eru Jónina, f.
1948, búsett í Reykjavík; Símon Már,
f. 1953, búsettur í Bandaríkjunum;
Ingibjörg, f. 1956, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Gunnars eru Gissur
Símonarson, f. 16.9. 1920, d. 21.6.
2008, húsasmiðameistari í Reykja-
vík, og k.h., Bryndís Guðmunds-
dóttir, f. 17.7. 1925, húsmóðir.
Ætt
Gissur var sonur Símonar, bifreiða-
stjóra í Reykjavík Símonarsonar, b.
á Bjarnastöðum í Ölfusi Símonar-
sonar, b. á Bjarnastöðum Jónsson-
ar. Móðir Símonar Símonarson-
ar á Bjarnastöðum var Arnþrúður
Hannesdóttir, b. í Stóru-Sandvík í
Flóa Guðmundssonar og Vigdís-
ar Steindórsdóttur, ættföður Auðs-
holtsættar Sæmundssonar. Móðir
Símonar bílstjóra var Ingiríður Ei-
ríksdóttir, b. í Vetleifskoti Eiríksson-
ar, b. í Tungu Jónssonar, b. á Rauð-
nefsstöðum Þorgilssonar, ættföður
Reynifellsættar Þorgilssonar.
Móðir Gissurar var Ingibjörg
Gissurardóttir, b. í Gljúfurholti í
Ölfusi Guðmundssonar, b. í Saur-
bæ Gissurarsonar. Móðir Gissurar í
Gljúfurholti var Sigríður Gísladóttir,
af Reykjakotsætt..Móðir Ingibjargar
var Margrét Jónína Hinriksdóttir, b.
í Seli á Seltjarnarnesi Helgasonar, af
Bergsætt.
Foreldrar Bryndísar voru Guð-
mundur Andrésson, iðnverkamað-
ur á Akureyri, og k.h., Jónína Arn-
ljótsdóttir húsmóðir.
Bergilnd fæddist í Reykjavík en ólst
upp á Hvolsvelli. Hún var í Hvols-
skóla, stundaði nám við Mennta-
skólann á Laugarvatni, lauk þaðan
stúdentsprófi, stundaði nám í við-
skiptafræði við HÍ og lauk þaðan
prófi í viðskiptafræði 2003 og lauk
löggildingarprófi í endurskoðun
2006.
Þá var Berglind í söngnámi við
Söngskóla Sigurðar Demetz í tvö
ár.
Berglind sinnti ýmsum störfum
með skóla og á sumrin. Hún var
endurskoðandi hjá Grant Thorn-
ton í Reykjavík 2001-2007 og hef-
ur síðan verið endurskoðandi hjá
Price Waterhouse og Cooper.
Berglind syngur með kirkjukór
Breiðabólstaðarprestakalls.
Fjölskylda
Eiginmaður Berglindar er Einar
Viðar Viðarsson, f. 25.1. 1981, vél-
virki.
Börn Berglindar og Einars Við-
ars eru Hákon Kári Einarsson, f.
6.10. 2004; Védís Ösp Einarsdóttir,
f. 4.12. 2008.
Systir Berglindar er Kristrún
Hákonardóttir, f. 5.4. 1986, söng-
nemi.
Birgir fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp fyrstu sex árin, síðan í
Hrísey um skeið og loks á Akureyri.
Hann var í Grunnskóla Hríseyjar
og síðan í Glerárskóla á Akureyri,
lauk stúdentsprófi frá MA, lauk
BA-prófi í ensku og sagnfræði frá
HÍ 2006, lauk MS-prófi í kínversk-
um fræðum frá Edinborgarháskóla
2008 og er nú að ljúka MS-prófi í
alþjóðaviðskiptum frá Edinborgar-
háskóla.
Birgir starfaði við Hagkaup
á Akureyri á árunum 1998-2002
með námi, starfaði hjá Banönum
í Reykjavík á árunum 2004-2006
og hefur starfað hjá Hagkaupum í
Spöng frá 2006.
Fjölskylda
Kona Birgis er Svanborg Guð-
mundsdóttir, f. 11.8. 1974, iðju-
þjálfi.
Börn: Emma Birgisdóttir, f. 8.3.
2007; Alex Þór Birgisson, f. 3.8.
2009.
Systkini: Gunnar Geir Jó-
hannsson, f. 27.11. 1980, tölvun-
arfræðingur í Reykjavík; Ingibjörg
Jóhannsdóttir, f. 31.5. 1986, mann-
fræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Birgis eru Ingibjörg
Ásgeirsdóttir, f. 13.12. 1956, verka-
kona á Akureyri, og Jóhann Birgir
Ingvarsson, f. 7.7. 1953, verkamað-
ur í Reykjavík.
Berglind Hákonardóttir
endurskoðandi á Hvolsvelli
Birgir Jóhannsson
ms í kínverskum fræðum
30 ára í dag 30 ára í gær
30 ára
n Dusana Poláková Sunnubraut 9, Reykjanesbæ
n Mariusz Drozdz Túngötu 64, Eyrarbakka
n Helgi Ingólfur Ingólfsson Lindarhvammi 7,
Kópavogi
n Rafal Cybulski Fellsmúla 4, Reykjavík
n Arnar Dór Hlynsson Hagaflöt 9, Akranesi
n Áslaug Kristvinsdóttir Dúfnahólum 4, Reykjavík
n Inga Þórunn Hallgrímsdóttir Lagarási 8, Egils-
stöðum
n Þorlákur Snær Helgason Tjarnarlundi 17d,
Akureyri
n Hallur Dan Johansen Úthlíð 5, Reykjavík
n Sólveig Lilja Snæbjörnsdóttir Víðimel 52,
Reykjavík
40 ára
n Miglena Kostova Apostolova Hólsgötu 4, Nes-
kaupstað
n Carla Maria Nogueira Matias Sigtúni 35, Reykjavík
n Jóhanna Norðdahl Sogavegi 119, Reykjavík
n Ívar Örn Þórhallsson Miðtúni 3, Reykjavík
n Ásdís Kristjánsdóttir Suðurhvammi 17, Hafnarfirði
n Engilbert O Friðfinnsson Hjaltabakka 22,
Reykjavík
n Kristín Helga Ólafsdóttir Laugalind 6, Kópavogi
n Gunnhildur Lilja Gísladóttir Austurbraut 10, Höfn
í Hornafirði
n Sigríður Baldursdóttir Vogagerði 3, Vogum
n Margrét Leifsdóttir Tómasarhaga 31, Reykjavík
n Grétar H Sigurgíslason Sandgerði 15, Stokkseyri
n Sonja Kristín Jakobsdóttir Ljósabergi 2, Hafn-
arfirði
n Sveinbjörg Jónsdóttir Smáraflöt 8, Garðabæ
n Ragnar Þór Einarsson Birkihlíð 10, Sauðárkróki
n Guðni Benjamínsson Langholtsvegi 18, Reykjavík
50 ára
n Ólafía Bjarnadóttir Álfholti 26, Hafnarfirði
n Sigurður Helgason Víðiteigi 10d, Mosfellsbæ
n Hans Hafsteinn Þorvaldsson Hamrabyggð 12,
Hafnarfirði
n Ása Kristveig Þórðardóttir Faxabraut 31b,
Reykjanesbæ
n Þórir Haraldsson Traðarbergi 15, Hafnarfirði
n Sigurður Óskar Pétursson Nýbýlavegi 88, Kópa-
vogi
60 ára
n Jóhannes L Blöndal Drápuhlíð 20, Reykjavík
n Sólveig Elíasdóttir Grænlandsleið 28, Reykjavík
n Elísabet Una Einarsdóttir Sóltúni 16, Reykjavík
n Einar Baldursson Galtalind 26, Kópavogi
n Gerður Torfadóttir Ásvallagötu 63, Reykjavík
n Sigurður Baldursson Sléttu, Reyðarfirði
n Katrín Selja Gunnarsdóttir Stillu, Mosfellsbæ
n Sveinn Sveinsson Bjargi 2, Mosfellsbæ
n Þórhalla Guðmundsdóttir Dúfnahólum 2,
Reykjavík
n Anita Fríða Oddsdóttir Orrahólum 7, Reykjavík
n Jónína Loftsdóttir Laugarásvegi 45, Reykjavík
n Sveinn Bjarnason Hörgsholti 27, Hafnarfirði
70 ára
n Sigríður Magnúsdóttir Vesturvangi 22, Hafnarfirði
n Sveinn Sveinsson Ljósalandi 18, Reykjavík
n Fjóla Kristjánsdóttir Sogavegi 54, Reykjavík
n Guðrún Ágústa Sæmundsdóttir Bólstaðarhlíð
52, Reykjavík
n Páll Vilhjálmsson Hraunbæ 39, Hveragerði
n Ásthildur Salbergsdóttir Grænlandsleið 49,
Reykjavík
n Sigrún Guðmundsdóttir Lundarbrekku 10,
Kópavogi
n Ingvi Þór Þorkelsson Hafnarbergi 5, Þorlákshöfn
75 ára
n Jóhannes Helgason Óðinsgötu 19, Reykjavík
n Sigríður Ólafsdóttir Æsufelli 6, Reykjavík
n Halldór Halldórs Fagrahvammi 12, Hafnarfirði
n Hafsteinn Snæland Heiðargerði 12, Vogum
n Ellen M Thors Miðleiti 5, Reykjavík
n Andrea Kristín Tómasdóttir Austurbrún 6,
Reykjavík
80 ára
n Guðrún Margeirsdóttir Sólheimum 27, Reykjavík
n Guðrún Kristjánsdóttir Fannafold 129a, Reykjavík
Til
hamingju
með
afmælið!
60 ára í gær
16 þriðjudaGur 25. ágúst 2009 ættfræði
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf Smáauglýsingasíminn er515 5550
smaar@dv.is
30 ára í dag
Anita Harðardóttir
sjúkraliði á stokkseyri
Anita fæddist á Selfossi en ólst upp
á Stokkseyri. Hún var í Grunnskóla
Stokkseyrar, stundaði nám við Fjöl-
brautarskóla Suðurlands á Selfossi
og lauk þaðan sjúkraliðaprófi 2008.
Anita hóf störf við dvalar- og
hjúkrunarheimilið Kumbaravog á
Stokkseyri árið 2000 og hefur starfað
þar síðan.
Fjölskylda
Systkini Anitu eru Ásta Harðardóttir,
f. 4.7. 1969, kennari, búsett í Hafnar-
firði; Guðfinnur Harðarson, f. 30.5.
1970, sjómaður, búsettur á Selfossi.
Foreldrar Anitu eru Rosemarie
Karlsdóttir, f. 31.7. 1951, hestakona
í Reykjavík, og Hörður Antonsson, f.
20.5. 1939, fyrrv. sjómaður, búsettur
á Stokkseyri.