Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2009, Page 22
Amor hefur hæft hugsjóna-
manninn Guðjón Má Guðjóns-
son, oftast kenndan við Oz, beint
í hjartastað eins og sagt var frá
í Séð og heyrt fyrir stuttu. Sú
heppna er hin íðilfagra Anna
Ólafsdóttir, lærður kennari og
fyrrverandi sambýliskona leikar-
ans Hallgríms Ólafssonar. Síðan
fréttin birtist í glanstímaritinu
hefur parið opinberað sam-
band sitt og leynir ekki ást sinni.
Þau eru byrjuð að æfa saman
í World Class og vekja athygli
gesta líkamsræktarstöðvarinnar
þar sem þau geta varla hlaupið
á brettunum, svo mikið er spjall-
að og hlegið. Þau hafa einnig
sést rúnta um víðan völl og geta
greinilega ekki slitið sig hvort frá
öðru. Guðjón rekur í dag sprota-
fyrirtækið Mezza og stendur á
bak við Hugmyndaráðuneytið
og ætti ekki að skorta hugmynd-
irnar svona yfir sig ástfanginn.
Frægir á
Fullri Fart
Fegurðardísin Ingibjörg Ragnheið-
ur Egilsdóttir komst í 15 manna úr-
slit fegurðarsamkeppninnar Miss
Universe sem fram fór á sunnudag.
Þar við sat en þrátt fyrir það má kalla
Ragnheiði eina af 15 fallegustu kon-
um heims um þessar mundir en alls
voru 84 þátttakendur í keppninni frá
jafnmörgum löndum.
Það var hin 18 ára gamla Stefania
Fernandez frá Venesúela sem hreppti
titilinn ungfrú alheimur 2009 en með-
al þeirra sem sátu í dómnefnd var
leikarinn Dean Cain sem gerði það
gott sem Superman í þáttunum Lois
& Clark.Í öðru og þriðja sæti voru svo
ungfrú Dóminíska lýðveldið og ung-
frú Kosóvó.
Fyrir keppnina spáði karlatíma-
ritið heimsfræga Playboy Ingibjörgu
sigri. Á vef tímaritsins er sérstakur
dálkur sem kallast Girlwatchers er
þar er fylgst með fegurðardísum úti
um allan heim. „Girlwatchers setur
Miss Iceland, Ingibjörgu Egilsdóttur,
efst á listann sinn,“ segir meðal ann-
ars á playboy.com en þar var Ungfrú
Indónesíu, Búlgaríu, Hondúras og
Rússlandi spáð sætunum fyrir neð-
an.
asgeir@dv.is
Meðal 15 Fegurstu
IngIbjörg komst í 15 manna úrslIt mIss UnIverse:
Þekkt andlit í mannhafi ReykjavíkuRmaRaÞonsins:
Mörg stór nöfn hafa geng-
ið til liðs við Borgarleikhúsið í
sumar. Þar á meðal eru Hilmir
Snær Guðnason, Rúnar Freyr
Gíslason, Ilmur Kristjánsdóttir,
Jörundur Ragnarsson og Nína
Dögg Filippusdóttir sem gjarnan
er kennd við Vesturport. Þessi
fríði hópur mun koma að fjöl-
mörgum verkefnum á fjölum
leikhússins í vetur og reyndar
virðast verkefnin ekki einskorð-
ast við svið Borgarleikhúss-
ins í tilviki Nínu Daggar. Þegar
blaðamaður DV hringdi í miða-
sölu leikhússins á dögunum gat
hann nefnilega ekki betur heyrt
en að það væri rödd Nínu sem
segði honum að allar línur væru
uppteknar í augnablikinu. Þessi
grunur fékkst hvorki staðfestur
né hrakinn þegar eftir því var
leitað hjá starfsfólki Borgarleik-
hússins í gær.
síMa NíNa?
22 þriðjudagur 25. ágúst 2009 Fólkið
Ingibjörg Egilsdóttir Stórglæsileg á
sunnudaginn þegar Miss Universe fór fram
á Bahamaeyjum.
saMrýNt par
Eins og kunnugt er var met slegið
í þátttökufjölda í Reykjavíkurmar-
aþoninu sem fram fór síðastliðinn
laugardag. Þar lét fræga fólkið ekki
sitt eftir liggja og mátti sjá mörg þekkt
andlit í Lækjargötunni, þreytuleg en
um leið sælleg með afrek dagsins.
Á meðal þeirra pólitíkusa sem
hlupu voru að minnsta kosti þrír
ráðherrar. Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra tók tíu kílómetra á
rúmum 55 mínútum, Gylfi Magnús-
son viðskiptaráðherra fór hálfmar-
aþon sem hann var tvær klukku-
stundir og fjórtán mínútum betur að
ljúka og loks fór Árni Páll Árnason
félagsmálaráðherra einnig 21 kíló-
metra eins og Gylfi. Árni virðist betur
á sig kominn en kollegi hans þar sem
hann fór kílómetrana á mun betri
tíma, eða 1:51:59.
Af öðrum stjórnmála- og emb-
ættismönnum sem hleyptu heim-
draganum á laugardaginn fór seðla-
bankastjórinn fráfarandi, Svein
Harald Öygard, hálft maraþon eins
og DV sagði frá á dögunum að hann
hygðist gera, og Magnús Orri Schram,
þingmaður Samfylkingarinnar, fór
tíu kílómetra.
Jónsi í Í svörtum fötum og fata-
hönnuðurinn Gunnar Hilmarsson í
GK mættu saman á ráslínuna klukk-
an 8.40 á laugardagsmorgun til að
bruna 21 km. Þeir virðast að mestu
leyti hafa verið samferða í hlaupinu,
til dæmis var einungis sekúndumun-
ur á millitíma þeirra við 10 kílómetra
markið, en Jónsi hefur tekið tísku-
kónginn á endasprettinum þar sem
hann var tæpri mínútu á undan yfir
marklínuna.
Últrahnakkinn og frasameistarinn
Jón Gunnar Geirdal skildi þá Jónsa
og Gunnar hins vegar gjörsamlega
eftir í reyk í hálfmaraþoninu. Hann
fór vegalengdina á frábærum tíma,
1:31:39. Ekki einu sinni atvinnu-
og landsliðsmaðurinn fyrrverandi í
handbolta, Júlíus Jónasson, átti roð
í Geirdalinn sem var næstum fimm
mínútum á undan honum. Önnur
handboltakempa, Stjörnumaðurinn
Sigurður Bjarnason, var á hinn bóg-
inn í deild með Gylfa viðskiptaráð-
herra og fleirum um og yfir tveimur
klukkustundum.
Af fjölmiðlafólki sást til Steingríms
Sævars Ólafssonar, fyrrverandi
fréttastjóra Stöðvar 2,
hlaupa tíu kílómetra
og sömuleiðis Sindra
Sindrasonar í Íslandi
í dag. Þá er ónefndur
maður sem vægast sagt
var mikið í fjölmiðlum síð-
astliðinn vetur, Vilhjálmur
Bjarnason, fjárfestir með meiru,
sem skottaðist hálft maraþon.
Loks ber að geta afreks ofur-
hlauparans Gunnlaugs Júlíus-
sonar sem hljóp tvö maraþon
á laugardaginn. Gunnlaugur
komst í fréttirnar fyrr á árinu
þegar hann hljóp 334 kíló-
metra á tveimur sólar-
hringum og joggaði svo frá
Reykjavík til Akureyrar á
nokkrum dögum. Kapp-
inn hóf fyrra hlaup sitt
klukkan hálffimm, eða
um fjórum klukkutímum
áður en ræst var út í mar- aþon-
ið. Ekki var nóg með að hann væri
búinn að hlaupa heilt maraþon þeg-
ar hersingin fór af stað heldur kom
Gunnlaugur við heima hjá sér með-
an á fyrri maraþonhringnum stóð og
vakti son sinn sem ætlaði að hlaupa
hálft maraþon. Þá fannst Gunnlaugi
miður að hvergi hafi verið hægt að fá
kók á drykkjarstöðvum eða í enda-
marki. Hann dó þó ekki ráðalaus því
hann kom við í búð í seinna maraþ-
oni dagsins og fékk eina kók lánaða
svo hann hefði eitthvað að drekka
annað en Powerade og vatn.
kristjanh@dv.is
Jónsi í Í svörtum fötum
Hljóp hálft maraþon á
rúmum tveimur klukku-
stundum.
MYND GuNNar GuNNarssoN
Jón Gunnar
Geirdal
Frasameist-
arinn náði
flottum tíma.
MYND EGGErt
steingrímur J. sigfússon
Gekk þvert yfir Ísland fyrir
nokkrum árum. Lét sér duga tíu
kílómetra skokk á laugardaginn.