Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2009, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 8. september 2009 fRéttIR
FINNUR OG KRISTINN
TENGDIR Á 850 VEGU
Viðskiptavensl Finns Ingólfsson-
ar, athafnamanns og fyrrverandi
ráðherra og seðlabankastjóra, og
Kristins Hallgrímssonar, lögmanns
S-hópsins sem keypti Búnaðar-
bankann árið 2003, eru meira en
850 talsins. Með viðskiptavensl-
um er átt við hvernig þeir Finn-
ur og Kristinn tengjast í gegnum
ýmis eignarhaldsfélög og fyrirtæki
sem þeir hafa verið prófkúruhafar
og stjórnarmenn fyrir og í gegnum
sameiginlega viðskiptafélaga. Sé
endurskoðendafyrirtækið Deloitte
einnig talið inn í tengslanet Finns
og Kristins tengjast þeir á yfir 1300
vegu en slík tengsl í gegnum end-
urskoðendafyrirtæki teljast nú ekki
vera mjög mikil.
Tengsl Finns og Kristins eru
meðal annars í gegnum fjárfestinga-
félagið Gift, Icelandair Group, VGK
Invest, Frumherja Invest, Langflug,
Eglu hf. og fleiri fyrirtæki.
Upplýsingarnar um viðskipta-
tengsl Finns og Kristins er að finna
í gagnagrunninum rel8 sem tölvun-
arfræðingurinn Jón Jósef Bjarnason
hefur unnið að síðastliðin tvö ár.
Gagnagrunnurinn er aðgengilegur
á Internetinu á slóðinni www.rel8.-
com.
Gagnagrunnurinn sýnir tengsl
þeirra félaga í viðskiptalífinu fram
til 1. ágúst 2007 og því er hægt að
nota gagnagrunninn til rannsókna
á íslenskri viðskiptasögu. Jón á eft-
ir að láta inn upplýsingar í gagna-
grunninn fyrir árin 2008 og 2009.
Gagnagrunnurinn er byggður á
gervigreindarforriti sem Jón notaði
þegar hann vann fyrir kreditkorta-
fyrirtækið Europay International
fyrir nokkrum árum. En Jón þróaði
gagnagrunn fyrir Europay sem not-
aður var til að koma í veg fyrir til-
tekna tegund kreditkortasvindls.
Nátengdir S-hóps menn
Ólafur Ólafsson, kenndur við Sam-
skip, er einnig nátengdur þeim
Finni og Kristni. Tengsl Finns og Ól-
afs eru tæplega 170 talsins, meðal
annars í gegnum Eglu sem var aðili
að kaupum S-hópsins á Búnaðar-
bankanum, á meðan tengsl Kristins
og Ólafs eru rúmlega 500 talsins.
Þessi tala hækkar í báðum tilfellum
mikið ef endurskoðendafyrirtæki
eru tekin með.
Tengsl Ólafs og Kristins í við-
skiptalífinu eru gríðarlega umfangs-
mikil. Meðal annars í gegnum Ker,
Olíufélagið, Samskip, Kjalar og Ice-
landic Seafood. Segja má að Krist-
inn tengist afar mörgu af því sem
Ólafur Ólafsson gerir í viðskiptalíf-
inu og hefur gert á liðnum árum.
Til að mynda vakti það nokkra at-
hygli í fréttum af máli sjeiksins Al-
Thanis þegar meðeigandi Kristins á
lögmannsstofunni Fulltingi, Telma
Halldórsdóttir, var stjórnarmaður
í eignarhaldsfélagi sem keypti hlut
í Kaupþingi skömmu fyrir banka-
hrunið. Málið hefur verið til rann-
sóknar hjá sérstökum saksóknara
efnahagshrunsins og liggur Telma
undir grun í því en talið er að um
sýndarviðskipti hafi verið að ræða
til að hífa upp hlutabréfaverð í
Kaupþingi og auka tiltrú markaðar-
ins á bankanum. Ekki leikur mikill
vafi á því að Telma vann fyrir sjeik-
inn og settist í stjórn félagsins út af
nánu samstarfi Kristins og Ólafs í
INgI F. VIlhjálmSSoN
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
hönnuðurinn Jón Jósef Bjarnason
hefur unnið að gagnagrunni síðastliðin
tvö ár sem gerir eftirlitsaðilum kleift að
rannsaka tengsl manna í viðskiptalífinu
í gegnum fyrirtæki og eignarhaldsfélög.
Nýr gagnagrunnur jóns jósefs Bjarnasonar tölvunarfræðings gerir mönnum kleift
að rannsaka tengsl aðila í viðskiptalífinu. Uppflettingar í gagnagrunninum sýna
fram á gríðarleg tengsl þekktra samstarfsmanna úr viðskiptalífinu, til að mynda
úr S-hópnum. Fjármálaeftirlitið hefur keypt aðgang að gagnagrunninum. Höfund-
urinn segir að hann sé fyrst og fremst ætlaður fyrir eftirlitsaðila til að fylgjast með
viðskiptalífinu. Hann vonast þó til að geta veitt almenningi aðgang að gagnagrunn-
inum.
gríðarleg tengsl Myndin sýnir hluta viðskiptatengsl-
anna á milli Finns Ingólfssonar og Kristins Hallgríms-
sonar úr rel8 gagnagrunninum. engslin eru svo mikil
og skýringarmyndin af þeim svo stór og flókin að ekki
reyndist mögulegt að gera myndina skiljanlegri.