Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2009, Blaðsíða 10
Rætt um að
banna sölu
tóbaks
Á föstudag fer fram Tóbaksvarn-
arþing þar sem meðal annars
verður rædd sú hugmynd að taka
tóbak úr almennri sölu á Íslandi
sem forvarnaaðgerð.
Í tilkynningu frá Læknafélagi
Íslands kemur fram að reyking-
ar séu stærsti heilbrigðisvandi
þjóðarinnar. Sjúkdómar tengdir
reykingum kosta íslenskt þjóð-
félag tæpa 30 milljarða á ári en
tekjur ríkisins vegna tóbaks-
sölu eru einungis sjö milljarðar.
Ögmundur Jónasson heilbrigð-
isráðherra sagðist í samtali við
DV ekki hlynntur svo róttækum
aðgerðum.
DýRaRi
þuRRmjólk
Verð á þurrmjólk í Bónus hef-
ur tvöfaldast frá því um miðjan
apríl, að því er Neytendasamtök-
in greina frá. Varan kostaði 498
krónur þann 20. apríl en kostar
nú 995 krónur. Skýring Bónuss er
sú að í sumar hafi keðjan keypt
16 þúsund dósir af umboðsað-
ila vörunnar á lækkuðu verði,
vegna þess að birgirinn átti of
mikið magn. Verðið hafi verið
í samræmi við tilboðið. Nú séu
dósirnar búnar og því hafi var-
an hækkað í verði. Frá þessu er
sagt á ns.is en þar kemur fram að
varan sé tveimur krónum dýrari í
Krónunni en töluvert dýrari í öðr-
um verslunum.
n Vegfarandi hafði
samband við DV og vildi
kvarta yfir verðlagi hjá
Hótel Reynihlíð í
Mývatnssveit. Hann
hafði keypt tvær hálfs
lítra flöskur af Coca-
Cola, eina Appelsín í gleri og eina
Coke í gleri. Fyrir herlegheitin
greiddi hann 2.000 krónur, að
eigin sögn. Hann sagði að hálfur
lítri
kostaði
750 krónur.
n Lofið fær Olís við Sæbraut. Blaða-
maður átti í vandræðum með
ljósabúnað á bíl sínum síðastliðinn
föstudag og bað um aðstoð.
Vaktstjóri gerði allt sem í hans
valdi stóð til að fá ljósin í lag og
tókst, eftir töluverða stund og
með smá viðgerð, að fá hluta
ljósanna í lag.
Fyrirmyndar
þjónusta.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Dísilolía
algengt verð verð á lítra 185,9 kr. verð á lítra 188,9 kr.
skeifunni verð á lítra 187,4 kr. verð á lítra 180,2 kr.
algengt verð verð á lítra 188,9 kr. verð á lítra 181,6 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 184,6 kr. verð á lítra 177,3 kr.
Fjarðarkaupum verð á lítra 187,4 kr. verð á lítra 180,2 kr.
algengt verð verð á lítra 188,9 kr. verð á lítra 181,6 kr.
UmSjóN: BALDUR GUÐmUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
10 þRiðjuDaguR 8. september 2009 neytenDuR
Bíógestir á Íslandi þurfa að bíða í tíu til
fimmtán mínútur, umfram auglýstan
sýningartíma, eftir því að kvikmyndir í
bíó hefjist. Þetta fullyrða forsvarsmenn
kvikmyndahúsanna á Íslandi. DV hefur
fengið ábendingar um að kvikmynda-
húsin sýni auglýsingar og sýnishorn
úr kvikmyndum í allt að hálfa klukku-
stund eftir að sýning myndarinnar á
að hefjast. Slíkt kannast talsmenn kvik-
myndahúsanna ekki við.
Hámarksbið
er 15 mínútur
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Forsvarsmenn kvikmyndahúsanna segja að tólf til fimmtán mínútur séu hámarksbið-
tími bíógesta vegna auglýsinga á undan kvikmyndasýningu. Í Sambíóunum er miðað
við 12 mínútur en hjá kvikmyndahúsum Senu og í Laugarásbíói er biðin ekki lengri
en 15 mínútur. Neytendasamtökunum hafa borist margar kvartanir vegna fjölda sýn-
ishorna og auglýsinga áður sjálf kvikmyndin hefst.
12 mínútur í Sambíóunum
„Viðmiðið er um tíu mínútur hjá okkur.
Það getur í mesta lagið farið upp í tólf
mínútur samtals, það er að segja bæði
sýnishorn og auglýsingar,“ segir Alfreð
Ásberg Árnason, framkvæmdastjóri
Sambíóanna. Sambíóin eru annar af
tveimur stærstu aðilunum í rekstri kvik-
myndahúsa á Íslandi; reka kvikmynda-
hús í Reykjavík, Keflavík, á Akureyri og
Selfossi. Alfreð segir aðspurður að það
komi sjaldan fyrir að sýningu myndar
seinki meira. Það sé erfitt í framkvæmd
enda séu sýningarnar tölvustýrðar. „Tíu
mínútur eiga að duga þannig að allir
séu komnir í sæti,“ segir hann.
15 mínútna hámark
„Í Smárabíó, Regnboganum og Há-
skólabíó erum við bundnir við sjö mín-
útur í skjáauglýsingar. Að þeim loknum
erum við með þrjú til fjögur sýnishorn
úr kvikmyndum. Hvert um sig er á bil-
inu 1:20 til 2:30 mínútur að lengd, mis-
munandi eftir myndum. Í heild eru
þetta um 15 mínútur,“ segir Guðmund-
ur Breiðfjörð, markaðs- og sölustjóri
kvikmyndadeildar Senu. Hann seg-
ir aðspurður að þessi tími verði aldrei
lengri en 15 mínútur en hins vegar geti
hann verið styttri. Stundum sé aug-
lýsingaglugginn ekki fullnýttur og þá
styttist tíminn sem líður áður en mynd-
in hefjist.
Guðmundur segir að allar mynd-
ir séu tímamældar og því sé vitað ná-
kvæmlega hversu langar þær eru og
hversu langar auglýsingarnar eru á
undan. „Við reiknum með hléi og byrj-
um á slaginu. Við uppfærum alltaf
tvisvar í viku sýnishornin og auglýsing-
arnar þannig að við erum alltaf með
á hreinu hversu langt líður áður en
myndirnar hefjast,“ segir Guðmundur.
Neytendur kvarta
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir að sam-
tökin hafi fengið þó nokkrar kvartanir
frá óánægðum viðskiptavinum kvik-
myndahúsanna vegna þessa. „Fólk er
óánægt með að þurfa að horfa á aug-
lýsingar í langan tíma eftir að auglýst-
ur sýningartími er hafinn,“ segir Jó-
hannes.
Hann bendir á að fólk sé ekki að
kaupa sér miða inn á auglýsingar
en segir að kvikmyndahúsunum sé
í sjálfsvald sett hvernig þau hagi sín-
um málum. „Það væri gaman ef eitt-
hvert kvikmyndahús myndi byrja að
sýna kvikmyndirnar á réttum tíma.
Það myndi væntanlega verða af ein-
hverjum auglýsingatekjum en í stað-
inn fengi það ánægðari viðskipta-
vini,“ segir Jóhannes og bætir við að
það geti verið mjög ergjandi að horfa
lengi á auglýsingar áður en kvik-
myndirnar hefjist. „Kvikmyndahúsin
ættu að hugsa sinn gang áður en þau
flæma frá sér kúnna. Ég ítreka að fólk
er að kaupa sér miða inn á bíó en ekki
auglýsingar,“ segir Jóhannes.
DV hefur, eins og Neytendasam-
tökin, einnig fengið ábendingar frá
óánægðum viðskiptavinum kvik-
myndahúsanna, sem segjast hafa
þurft að bíða afar lengi eftir að kvik-
myndirnar sjálfar hefjist.
Svipað í Laugarásbíó
Geir Gunnarsson, markaðsstjóri
Myndforms ehf. sem sér um sýningar
í Laugarásbíói, hefur svipaða sögu að
segja og hinir aðilarnir tveir. „Lengd-
in getur verið mismunandi. Við reyn-
um að halda auglýsingunum í kring-
um fimm mínútur auk þess sem við
sýnum þrjú til fjögur sýnishorn úr
væntanlegum kvikmyndum,“ segir
Geir. Hann segir afar fátítt að lengri
tími en 15 mínútur líði áður en kvik-
myndirnar hefjast. „Það er í mesta
lagi einu sinni á ári sem það verður
einhver ruglingur á filmum. Það er
samt varla neitt til þess að tala um,“
segir Geir. Hann segir að hámarks-
lengd á auglýsingum sé 6 mínútur
en á eftir þeim séu þrjú sýnishorn úr
kvikmyndum. Ef um stutt sýnishorn
er að ræða sýni þeir stundum fjögur.
Heildartíminn geti því mestur orðið
um 15 mínútur.
Lengd augLýsinga
og sýnisHorna*
12–15 mínútur
Sambíóin Reykjavík, Keflavík Akureyri
og Selfossi.
um 15 mínútur
Smárabíó, Regnboginn,
Háskólabíó og Laugarásbíó.
*Samkvæmt forsvarsmönnum
kvikmyndahúsanna.
„Það væri gaman ef
eitthvert kvikmynda-
hús myndi byrja að
sýna kvikmyndirnar á
réttum tíma.“
Beðið í korter
Kvikmyndahúsin segja
að gestir þurfi að bíða í
12 til 15 mínútur eftir að
kvikmyndirnar hefjist.
MyND BRAGi þóR jóSefSSON