Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2009, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2009, Blaðsíða 16
Geir R. Andersen blaðamaður Geir fæddist í Reykjavík en ólst upp hjá Geirþrúði Sigurjónsdóttur og Boga R. Guðlaugssyni í Móakoti í Garði. Bogi lést 1938 en Geirþrúð- ur 1974. Seinni maður hennar var Kristinn J. Einarsson sem lést 1993. Geir lauk prófi frá VÍ 1956 og stundaði síðan nám í hótelfræð- um við École Hoteliere í Lausanne í Sviss þar sem hann lauk prófi 1959. Þá sótti hann námskeið Blaða- mannafélags Íslands 1969. Að námi loknu var Geir hótel- stjóri á Hótel KEA á Akureyri 1960- 62, deildarstjóri og yfirmaður far- þegaþjónustu Loftleiða 1962-80, auglýsingastjóri Vikunnar 1980-87 og var blaðamaður á DV 1987-2003 er blaðið hætti í þáverandi mynd. Hann hefur sinnt verkefnum tengd- um hótel- og veitingarekstri, m.a. með ráðgjöf hér á landi og í tengsl- um við félag fyrrv. nemenda hótel- skólans í Sviss, Association des anc- iens éléves de L’École Hoteliere de la S.S.H. Lausanne’ sem er vel þekkt víða um heim. Þá hefur hann skipu- lagt náms- og vinnuferðir fyrir ís- lenska matreiðslumenn á þekkta veitingastaði í Frakklandi og Sviss. Geir hefur skrifað fjölda blaða- greina um þjóðmál og er enn að. Þá hefur hann þýtt greinar um ýmis efni, m.a. ritið Val og venjur í mat og drykk, útg. 1976. Fjölskylda Kona Geirs er Brynhildur Krist- insdóttir Andersen, f. 28.5. 1938, húsmóðir. Hún er dóttir Kristins Kristjánssonar, deildarstjóra Gjald- heimtunnar í Reykjavík, og Sigríðar Ásthildar Guðjónsdóttur húsmóð- ur. Börn Geirs og Brynhildar eru Kristinn Andersen, f. 7.9. 1958, doktor í rafmagnsverkfræði, kvænt- ur Þuríði Erlu Halldórsdóttur hár- greiðslumeistara úr Hafnarfirði og eru börn þeirra Halldór, f. 1988, verkfræðinemi, og Geir, f. 1994; Ívar Andersen, f. 28.8. 1963, flugmaður og verslunarmaður, en kona hans er Þórhalla Þórisdóttir, húsmóðir frá Auðbrekku í Hörgárdal og eru synir þeirra Anton Geir, f. 1993, og Kjart- an Már, f. 1996; Sigríður Ásthildur Andersen, f. 21.11. 1971, lögfræð- ingur og vþm. en maður hennar er Glúmur Jón Björnsson, efnafræð- ingur og framkvæmdastjóri og eru dætur þeirra Brynhildur, f. 2005, og Áslaug, f. 2009. Foreldrar Geirs: Harald O. And- ersen, f. 13.9. 1891, d. 22.6. 1934, kaupmaður í Reykjavík, og Ásta Anna Björnsdóttir Leví, f. 26.7. 1897, d. 10.12. 1977, húsmóðir og talsíma- kona. Ætt Harald var bróðir Franz Albert, föð- ur Hans G. Andersen sendiherra. Harald var sonur Hans Andersen, klæðskera í Reykjavík, af sænskum ættum, og k.h., Helgu Jónsdóttur, pr. í Glæsibæ, bróður Þorvalds, afa Vigdísar Finnbogadóttur. Annar bróðir Jóns var Ingimundur, langafi Ragnars Tómassonar lögfræðings. Jón var sonur Jakobs, pr. í Steinnesi Finnbogasonar. Móðir Jakobs var Arndís Teitsdóttir, ættföður Vef- araættar Sveinssonar. Móðir Jóns var Sigríður Egilsdóttir frá Kiðja- bergi. Móðir Helgu var Helga, syst- ir Jóns Norðfjörð, langafa Matthí- asar Johannessen, skálds og fyrrv. Morgunblaðsritstjóra, og Louisu Matthíasdóttur myndlistarkonu. Helga var dóttir Magnúsar Norð- fjörð, beykis í Reykjavík Jónsson- ar, beykis í Reykjarfirði, bróður Hallgerðar, langömmu Ágústs H. Bjarnasonar, heimspekings og há- skólarektors. Jón var sonur Magn- úsar, pr. á Kvennabrekku Einars- sonar. Móðir Helgu Norðfjörð var Helga Ingimundardóttir, systir Ól- afs, langafa Valgerðar, ömmu Ein- ars Benediktssonar sendiherra. Systir Helgu var Ingigerður, lang- amma Bjargar, ömmu Garðars Cortes óperusöngvara, föður Garð- ars Thors Cortes óperusöngvara. Ásta var dóttir Björns Leví, sím- stöðvarstjóra á Blönduósi, bróður Sigfúsar, langafa Sigfúsar í Heklu. Annar bróðir Björns var Guð- mundur á Torfalæk, faðir Páls Kolka læknis og Jóns á Torfalæk, föður Torfa, oddvita þar. Annar sonur Jóns var Guðmundur, skóla- stjóri á Hvanneyri, faðir Ásgeirs námsgagnastjóra. Þriðji sonur Jóns var Björn Leví, veðurfræðing- ur og yfirlæknir, faðir Guðmundar verkfræðings. Fjórði sonur Jóns er Jónas fræðslustjóri, faðir Ögmund- ar heilbrigðisráðherra. Björn var sonur Guðmundar, b. í Nípukoti, Jónssonar, bróður Sveins, lang- afa Guðmundar Björnssonar próf- essors. Móðir Ástu var Guðlaug Sveinsdóttir, systir Hildar, hús- freyju á Geitaskarði í Langadal, móður Ísleifs Árnasonar prófess- ors og Guðrúnar Árnadóttur, móð- ur Ólafs Johnson yngri. Geir heldur sig til hlés á þessum tímamótum en sækir ræktina að venju. Ósk fæddist á Akureyri en ólst upp á Ólafsfirði. Hún var í Barna- skóla Ólafsfjarðar og Gagnfræða- skóla Ólafsfjarðar, stundaði nám í viðskiptafræði við framhaldsdeild Gagnfræðaskólans, lauk próf- um frá Förðunarskóla Íslands og er jafnframt sérfræðingur í nagla- fræðum. Ósk byrjaði sex ára gömul að að- stoða við fiskvinnslu hjá föður sín- um á Ólafsfirði, vann við fiskvinnslu á Ólafsfirði til sautján ára aldurs. Hún var starfsmannastjóri líkams- ræktarstöðvarinnar Hress í Hafnar- firði með námi, starfaði við snyrti- vöruverslunina Aveda í Kringlunni í fimm ár en opnaði síðan eigin snyrtistofu, Stofuna, að Strandgötu 17 í Hafnarfirði árið 2007 og hefur starfrækt hana síðan. Fjölskylda Maður Óskar er Hilmar Erlends- son, f. 8.11. 1972, starfsmaður við sölu- og markaðsmál hjá 365. Börn Óskar og Hilmars eru Irena Hilmarsdóttir, f. 11.6. 2006; Elmar Hilmarsson, f. 6.10. 2008. Systur Óskar eru Lena Rós Matthíasdóttir, f. 7.9. 1972, sóknar- prestur í Grafarvogskirkju; Telma Matthíasdóttir, f. 16.2. 1976, einka- þjálfari í Hafnarfirði. Hálfbræður Óskar eru Ísleif- ur Atli Matthíasson, f. 10.8. 2001; Matthías Elí Matthíasson, f. 11.4. 2006. Foreldrar Óskar eru Matthías Sæmundsson, f. 17.8. 1952, eigandi Ektabrauðs í Hafnarfirði, og Jón- ína Björk Óskarsdóttir, f. 25.1. 1953, forstöðumaður í Hraunseli í Hafn- arfirði. Ósk Matthíasdóttir eigandi Stofunnar í Hafnarfirði Júlíus fæddist í Keflavík en ólst upp í Sandgerði. Hann var í Grunnskóla Sandgerðis. Júlíus var í fiskvinnslu hjá Flug- fiski í Sandgerði á unglingsárunum og starfaði þar til 2004. Þá hóf hann störf hjá Adidas á Íslandi og er nú lagerstjóri hjá fyrirtækinu. Júlíus æfði og keppti í knatt- spyrnu með Reyni í Sandgerði á æsku- og unglingsárunum. Hann er nú framkvæmdastjóri knatt- spyrnuliðsins FC Kajak frá Sand- gerði. Fjölskylda Kona Júlíusar er Birna Eiríksdóttir, f. 5.12. 1980, starfsmaður hjá Lýs- ingu. Börn Júlíusar og Birnu eru Ísak Leon Júlíusson, f. 17.4. 2003; Krist- ín Marý Júlíusdóttir, f. 23.9. 2005. Systkini Júlíusar eru Sigursveinn Bjarni Jónsson, f. 6.5. 1976, sölu- maður hjá Iceland Seafood; Ástrós Jónsdóttir, f. 17.8. 1989, var að ljúka stúdentsprófi. Foreldrar Júlíusar eru Jón Bjarni Sigursveinsson, f. 10.8. 1957, fram- kvæmdastjóri Flugfisks í Sandgerði, og Júlía Sigurbjörg Stefánsdóttir, f. 5.3. 1960, starfsmaður hjá Flugfiski. 30 ára í dag 30 ára n Daniel Eduardo Pinedo Quintero Njálsgötu 86, Reykjavík n Heiðveig María Einarsdóttir Álfahvarfi 5, Kópa- vogi n Aurimas Simonis Nökkvavogi 11, Reykjavík n Rekka Ramachandran Njálsgötu 19, Reykjavík n Bragi Hjartarson Álfhólsvegi 86, Kópavogi n Sigurður Eiríkur Sigurðsson Laufengi 9, Reykjavík n Guðrún Þorgeirsdóttir Sóltúni 16, Reykjavík 40 ára n Hildur Jóhannsdóttir Bollagörðum 23, Seltjarn- arnesi n Þorbjörg Sigurðardóttir Galtalind 4, Kópavogi n Kristján P Vilhelmsson Óðinsgötu 2, Reykjavík n Anna Kristín Davíðsdóttir Sunnubraut 6, Blöndu- ósi n Ísól Fanney Ómarsdóttir Björtusölum 4, Kópavogi n Alda Guðlaug Leifsdóttir Vörðugili 4, Akureyri n Loftur S Magnússon Syðra-Langholti 4, Flúðum n Ingvar Helgi Kristjánsson Böðvarsnesi, Akureyri n Atli Gunnarsson Miðsölum 4, Kópavogi n Júlíus Steinar Heiðarsson Óðinsgötu 8, Reykjavík 50 ára n Jóhanna M Thorlacius Krókabyggð 1a, Mosfellsbæ n Alda Björk Sigurðardóttir Vesturási 36, Reykjavík n Ólafur Ragnarsson Kambahrauni 47, Hveragerði n Jórunn Sigríður Ólafsdóttir Eiðismýri 24, Sel- tjarnarnesi n Auðbjörg Svava Björgvinsdóttir Áshamri 58, Vestmannaeyjum n Unnar Freyr Bjarnason Kastalagerði 3, Kópavogi n Gylfi Markússon Kirkjulækjarkoti 4, Hvolsvelli n Karl Frímannsson Hrafnagilsskóla, Akureyri n Suncana María Slamnig Eiðum Garði, Egilsstöðum 60 ára n Ámundi H Þorsteinsson Hvassaleiti 16, Reykjavík n Svanhvít Sigurðardóttir Aðalstræti 75, Patreksfirði n Jóhann Kröyer Miðleiti 8, Reykjavík n Haraldur Huginn Guðmundsson Einholti 28, Akureyri n Guðmundur Sigurðsson Karfavogi 58, Reykjavík n Guðbjörg Vignisdóttir Lautasmára 1, Kópavogi n Hulda Einarsdóttir Furulundi 9b, Akureyri 70 ára n Svanheiður Friðþjófsdóttir Tindaflöt 5, Akranesi n Karen María Pálína Gestsdóttir Ársölum 1, Kópavogi n Sigrún Jónsdóttir Hjaltabakka 24, Reykjavík n Hreinn Jónsson Smáragrund 8, Sauðárkróki n Ásdís Hrólfsdóttir Aðalstræti 19, Bolungarvík 75 ára n Árni Arinbjarnarson Geitlandi 3, Reykjavík n Ólöf Erla Þórarinsdóttir Lækjargötu 30, Hafnarfirði n Sigurjón Kristinsson Kistuholti 21, Selfossi n Pálmar Þorsteinsson Þúfubarði 10, Hafnarfirði n Maríanna Sigurðardóttir Búhamri 68, Vest- mannaeyjum n Arndís Björnsdóttir Austurströnd 14, Seltjarnarnesi 80 ára n Cecilia Steingrímsdóttir Skarðshlíð 31b, Akureyri n Sigurður K Eiríksson Norðurkoti 3, Sandgerði n Karl Sigurbjörn Kristjánsson Hljóðalind 5, Kópavogi n Sveinn Steinsson Bjargarstíg 6, Reykjavík n Sveinbjörg Eiríksdóttir Frostafold 14, Reykjavík n Paul D B Jóhannsson Gullsmára 10, Kópavogi 85 ára n Sturlína Sturludóttir Hraunvangi 7, Hafnarfirði n Sigurður Jóhannsson Víkurbraut 30, Höfn í Hornafirði n Elísabet Jónsdóttir Stóragerði 38, Reykjavík n Garðar Halldórsson Vitateigi 5, Akranesi n Einar Sigtryggsson Raftahlíð 4, Sauðárkróki 95 ára n Guðríður Hjaltested Karfavogi 52, Reykjavík 100 ára n María Kristjánsdóttir Austurbrún 4, Reykjavík Til hamingju með afmælið! 75 ára í dag 16 ÞriðJudagur 8. september 2009 ættfræði Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkilauf 30 ára í dag Júlíus M. Jónsson lagerStJóri í Kópavogi auglýsingasíminn er 512 70 50

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.