Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Síða 8
8 þriðjudagur 15. september 2009 fréttir
„Skyndilega fékk ég þungt högg á
höfuðið,“ segir konan sem bloggar-
inn Anna María Baldursdóttir hefur
meðal annars sakað um líkamsár-
ás á bloggsíðu sinni. Konunum lenti
saman á Geirsnefi á mánudaginn fyr-
ir viku þar sem þrætueplið var meint
ill meðferð á hundi.
Anna María stofnaði bloggsíðu
í síðustu viku þar sem hún greindi
frá fólskulegri líkamsárás sem hún
varð fyrir þegar hún skipti sér af eig-
endum hunds. Á bloggsíðunni lýsti
Anna málavöxtum og sagði að hún
hefði skipt sér af mæðgum við bifreið
á Geirsnefi og séð móðurina berja
hundinn í andlitið með stórri gler-
skál. Anna sagði að konurnar hefðu
brugðist ókvæða við og skipað henni
að koma sér í burtu. Eftir nokkurt
orðaskak segir Anna að konan hafi
ráðist á sig svo stórsér á henni.
Hótanir í bloggheimum
DV hafði upp á yngri konunni sem
Anna María ber þessum sökum.
Hún féllst á að segja sína hlið á mál-
inu þar sem henni ofbýður frásögn
Önnu Maríu sem hún segir ekki vera
á neinum rökum reista. Hún vill þó
ekki koma fram undir nafni af ótta
við hótanir í bloggheimum. Hún á
tvo syni, annar þeirra, sem er í tíunda
bekk, var með móður sinni og ömmu
þegar átökin brutust út á Geirsnefi.
Hún hefur undir höndum ljósmyndir
af áverkum sem hún hlaut eftir árás-
ina og birtar eru með fréttinni.
Reyndu að róa hundinn niður
Konan lýsir aðdraganda atviksins á
þann veg að hún og móðir hennar,
ásamt syni, hafi verið að viðra tvo
hunda á Geirsnefi síðdegis á mánu-
dag. Hundur móður hennar, sem
er af tegundinni border collie, hafi
stungið af og þær beðið við bílinn þar
til hann kom aftur. „Þegar hann kem-
ur loksins nær móðir mín honum
og við förum að bílnum. Hún opnar
skottið og setur hundinn inn. Hann
urrar og glefsar í hana því hann var
eitthvað pirraður á að þurfa að fara
í búrið,“ segir konan og bætir við að
það sé ekki óvanalegt hjá hundin-
um. „Hún tók þá vatnsskálina hans
og lamdi henni í búrið og sagði „nei“
við hann. Svo fór hún með höndina
inn í búrið til að athuga hvort hann
héldi áfram að sýna tennurnar sem
hann og gerði. Hún lamdi skálinni þá
aftur í búrið og gerði það í smástund.
Ég stóð bara þarna og horfði á,“ seg-
ir konan og bætir við að skálinni hafi
aldrei verið lamið í hundinn. Aðeins í
búrið. Hún bætir við að þá hafi Anna
María komið að þeim.
Mömmu brugðið
Anna María sagðist hafa horft á þær
mæðgur berja hundinn með skál-
inni. Konan segist hafa þagað á með-
an Anna María talaði við móður
hennar en Anna hafi haldið áfram
að ausa úr skálum reiði sinnar yfir
móður hennar sem hafi verið mjög
brugðið. Enn fremur, eins og Anna
María lýsir í bloggfærslu sinni, hót-
aði hún að kæra móðurina fyrir
brot gegn dýraverndunarlögum. „Á
endanum fékk ég bara nóg af henni
og sagði: „Kærðu hana þá bara en
komdu þér burt því þér kemur þetta
ekkert við.“ Hún hélt samt áfram og
við skiptumst á orðum. Eftir smá-
stund fór mamma inn í bíl og lokaði
skottinu og ég stóð hjá farþegahurð-
inni,“ segir konan.
Sparkaði í bringuna
Eftir þessi orðaskipti segir konan að
Anna María hafi gengið burt en hún
sjálf hafi ekki getað setið á sér og
sagt við hana: „Já, komdu þér í burtu
þarna, druslan þín.“ Konan segir að
skyndilega hafi hún fengið þungt
högg á höfuðið. „Hún náði taki á hár-
inu þannig að við fórum strax í göt-
una. Ég var bara föst því hún ríghélt
í hárið á mér. Þá rauk sonur minn út
úr bílnum og byrjaði að reyna að losa
hendurnar á henni úr hárinu á mér
og sagði henni að láta mig í friði.“
Konan segir að Anna María hafi
ekki losað takið strax en sonur henn-
ar hafi þó komið henni til hjálpar.
Þegar hún hafi losnað úr takinu hafi
Anna María sparkað af miklum krafti
í bringuna á henni. Sonur hennar
hafi þá tekið í Önnu og ýtt henni frá
sér. Konan segir að hún hafi náð að
stöðva Önnu Maríu áður en hún rauk
í son hennar og snúið hana niður og
haldið henni þar til lögregla kom á
staðinn.
Segir lögregluna hafa þekkt
Önnu Maríu
Konan segir að móðir hennar hafi
hringt á lögregluna og hún hafi kom-
ið á staðinn eftir nokkurn tíma. Hún
segir að það hafi hins vegar vakið at-
hygli að annar lögreglumannanna
sem kom á vettvang hafi þekkt Önnu
Maríu. Tekin hafi verið skýrsla af öll-
um málsaðilum, auk fjögurra vitna.
„Tuttugu mínútum síðar fór ég
niður á bráðamóttöku og þá sá ég
að lögreglan og Anna María voru
þar niður frá og voru að tala saman.
Ég fór inn á meðan mamma lagði
bílnum. Mamma ákvað því að taka
myndir á símann sinn,“ segir konan
sem fékk áverkavottorð á slysadeild.
Engin vitni skráð þótt þau hafi
gefið skýrslu
„Um nóttina ákvað ég að fara aftur
upp á slysadeild vegna verkja sem ég
var með í eyrum og af því að ég var
öll að drepast í skrokknum. Þá kíktu
þau á mig og voru skráðir fleiri áverk-
ar,“ segir konan en á miðvikudaginn
kærði hún Önnu Maríu fyrir líkams-
árás. Hún segir að sér hafi þó þótt
einkennilegt að hún væri skráð sem
árásaraðili í skýrslu lögreglu þótt
hún hafi setið ofan á Önnu Maríu
þegar lögregla kom á vettvang og
fjölmörg vitni hafi staðfest frásögn-
ina. Þá hafi engin vitni fundist í skrá
lögreglunnar að hennar sögn. „Við
horfðum samt á þá taka niður nöfn
og símanúmer fleiri vitna sem núna
hafa komið fram á netinu og stutt
mína frásögn. Ég fékk enga útskýr-
ingu á því og hef ekki verið kölluð til
skýrslutöku. Þessi vitni eiga eftir að
gefa sig fram,“ segir konan og veltir
því fyrir sér hvort tengsl lögreglunnar
við konuna hafi gert það að verkum
að vitnin hafi týnst.
Enginn lamdi hana
Konan segir að hún hafi í raun neyðst
til að segja sína hlið á málinu vegna
hótana. „Ég var farin að hugsa málið
hvort ég þyrfti að gefa einhvers kon-
ar yfirlýsingar í fjölmiðlum um mína
hlið á málinu. Hún er svoleiðis búin
að æsa upp almenning að það eru
komnar fram hótanir gegn okkur. Ég
kærði hana og ætla ekkert að bakka
frá því enda trúi ég ekki öðru en
sannleikurinn komi í ljós þegar tal-
að verður við vitnin. Þetta var bara
fólk sem var þarna á svæðinu. Ég
þekkti engan þeirra. Það er einhver
ástæða fyrir því að enginn hjálpaði
henni. Það var enginn sem lamdi
hana,“ segir konan að lokum.
Kona sem borin er þungum sökum á bloggsíðu Önnu Maríu Baldursdóttur, vegna átaka sem áttu sér stað á
Geirsnefi í síðustu viku, segir að frásögnin sé ekki á rökum reist. Hún hefur kært Önnu Maríu fyrir líkams-
árás og segist hafa neyðst til að koma fram af ótta við hótanir í bloggheimum.
„Komdu þér í burtu
druslan þín“ „Ég kærði hana og ætla ekkert að bakka frá því enda trúi ég ekki öðru en að sannleikurinn komi í ljós þeg-ar talað verður við vitnin.“
EinaR ÞóR SiguRðSSon
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Bloggari yfirbugaður Konan segist
hafa náð að stöðva Önnu Maríu áður
en hún rauk í son hennar og snúið
hana niður og haldið henni þar til
lögregla kom á staðinn.
Lögreglan Kom á staðinn og
ræddi við málsaðila og vitni en
konan er ekki sátt við að vera kölluð
árásaraðili í skýrslu lögreglunnar.
Bringuspark Konan sýnir hér
marblett á brjósti sínu sem
ætla má að sé eftir bringu-
spark Önnu Maríu.
Blá og marin Við seinni skoðun á slysa-
deild fundust ýmsir áverkar á konunni.