Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Page 10
Mánudaga til fimmtudaga er nammi
í lausasölu langódýrast í Bónus. Þar
kostar kílóið af nammi 949 krónur
alla daga vikunnar. Á föstudögum
er nammið ódýrast í Krónunni en á
sunnudögum er það ódýrast í Euro-
pris. Hjá Olís má hins vegar á laugar-
dögum finna ódýrasta nammi lands-
ins. Þar kostar kílóið 775 krónur og
er hvergi ódýrara, ef marka má verð-
könnun DV.
Vörugjöld á sykruð matvæli voru
sett á þann 1. september en kíló af
sykruðu sælgæti hækkaði um 160
krónur við þá breytingu. Ekki er víst
að hversu miklu leyti það hefur skilað
sér í verslanir en blaðamaður varð á
einum stað var við að sælgætið hafði
hækkað um um það bil 100 krónur.
Stórir pokar
Bland í poka er vinsælt meðal yngri
kynslóðarinnar. Það sést vel á því
að nammibarir, þar sem hægt er
að velja sér nammi í poka, eru nán-
ast í hverri einustu verslun. DV fór
á stúfana og athugaði kílóverð í tíu
verslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Sérstaka athygli vakti hversu stóra
poka og skeiðar verslanir bjóða
upp á. Á nokkrum stöðum voru allt
að fimm lítra pokar í boði og engir
minni.
Mikill verðmunur er á namm-
inu eftir því hvar það er keypt. Í
Bónus kostar nammið 949 kílóið
alla daga, eins og áður sagði, og er
langódýrasta nammið mánudaga
til fimmtudaga. Næstódýrast er
nammið í Olís en verðmunurinn er
63 prósent. Í Shell, N1, Nóatúni og
10-11 er nammið um 110 prósent-
um dýrara en í Bónus áðurnefnda
daga; kostar liðlega 2.000 krónur á
hvert kíló.
Afsláttur um helgar
Um helgar breytist verðið mikið
því allar verslanir bjóða nammið á
niðursettu verði á laugardögum; yf-
irleitt er veittur 50 prósenta afsláttur,
nema í N1, þar sem afslátturinn er 52
prósent. Í Bónus er verðið það sama;
949 krónur, en það er kynnt sem svo
að afsláttur sé veittur alla daga.
Á laugardögum er nammið ódýr-
ast í Olís; kostar 775 krónur. Fast á
hæla Olís kemur Europris, hvar verð-
ið er 795 krónur á laugardögum og
sunnudögum.
Þeir sem vilja kaupa nammi á
föstudögum ættu að gera það í Krón-
unni. Þar er helmingsafsláttur bæði á
föstudögum og laugardögum; nam-
mið kostar þá 900 krónur. Dýrast er
nammið í Nóatúni og 10-11, en þar
kostar nammið á laugardögum rétt
um 1.000 krónur á hvert kíló.
Mesta úrvalið í Hagkaupum
Til að komast að því hvort mismun
á kílóverði mætti rekja til úrvals eða
fjölda sorta var brugðið á það ráð að
telja hversu margar tegundir sælgæt-
is eru á boðstólum. Engin áberandi
fylgni reyndist þar á milli. Hagkaup
reyndust bera höfuð og herðar yfir
aðrar verslanir hvað úrval snertir. Eft-
ir að blaðamaður hafði ruglast nokkr-
um sinnum við talninguna brá hann
á það ráð að spyrja þann sem sér um
áfyllingar. Sá sagði án umhugsunar að
boxin væru 222 talsins en það rímaði
við grófa áætlun blaðamanns. Fáeinar
tegundir voru þó í fleiri en einu boxi,
svo áætla má að sortirnar séu alls um
200 talsins.
Aðrar verslanir standa Hagkaupum
langt að baki hvað úrval varðar. Í versl-
un nammi.is í Smáralind eru sortirn-
ar 74, í Shell 49, í Krónunni 47 og í 10-
11 42. Minnsta úrvalið er í Bónus. Þar
geta neytendur valið úr 25 sortum. Í
Olís eru sortirnar 28.
Bjóddu í Bíla
Á uppboðsvefnum bilauppbod.is
má stundum kaupa bíla af trygg-
ingafélögunum á kostakjörum.
Bílarnir hafa sumir hverjir orðið
fyrir tjóni en aðrir eru í fínu ásig-
komulagi. Hægt er að skoða upp-
boðsmuni í húsnæði Króks bíla-
stöðvar, í Suðurhrauni í Garðabæ,
auk þess sem myndir eru af
farartækjunum á vefnum en
uppboðstími er að jafnaði þrír til
fimm dagar, að því er fram kem-
ur á heimasíðunni. Þegar þetta
var skrifað var hægt að bjóða í 19
ökutæki. Bílarnir eru eðli málsins
samkvæmt seldir hæstbjóðend-
um, svo nauðsynlegt getur verið
að hafa hraðar hendur.
Varið ykkur
á hringingum
Fregnir hafa borist af því að
óprúttnir náungar hafi hringt í
fólk og þóst vera að selja öryggis-
gæslu. Þetta er einföld leið til að
komast að því hvort viðkomandi
er með öryggiskerfi á húsinu. Ef
fólk telur að um sölumann sé að
ræða er hætta á að það gefi upp
viðkvæmar upplýsingar sem geta
nýst óprúttnum aðilum.“ Frá
þessu segir á heimasíðu Neyt-
endasamtakanna. Þar er fólk
varað við því að veita upplýsing-
ar um öryggisvarnir heimilisins
símleiðis. Ef símtöl berast um ör-
yggisvarnir eigi fólk að hringja til
baka í opinbert símanúmer þess
öryggisfyrirtækis, þannig sé hægt
að tryggja að ekki sé um óprúttna
aðila að ræða.
n Viðskiptavinur Símans
hafði samband við DV og
kvartaði yfir fyrir-
komulagi við net-
áskrift. Hann sagðist
vera með 12 megabæta
tengingu og 40 gígabæta
niðurhalskvóta. Vilji hann 60
gígabæta kvóta minnki hraðinn
niður í 8 megabæt. Engu að síður
greiði hann 200 krónum meira
en áður.
n Lofið fær Borgarbókasafn Reykjavík-
ur í Grafarvogskirkju. Viðskiptavinur
þurfti á bók að halda seint á
föstudegi en var hvorki með
bókasafnskort né skilríki. Hjá
afgreiðslukonu mætti hann
góðri þjónustu og skilningi á
aðstæðum en afgreiðslukonan
leysti farsællega úr
vandanum.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Dísilolía
algengt verð verð á lítra 182,9 kr. verð á lítra 185,9 kr.
Skeifunni verð á lítra 184,4 kr. verð á lítra 178,2 kr.
algengt verð verð á lítra 185,9 kr. verð á lítra 179,6 kr.
bensín
dalvegi verð á lítra 181,6 kr. verð á lítra 175,3 kr.
Fjarðarkaupum verð á lítra 184,4 kr. verð á lítra 178,2 kr.
algengt verð verð á lítra 185,9 kr. verð á lítra 179,6 kr.
UmSjóN: BALDUR GUÐmUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
Vefsíðan pintprice.com fylgist með bjórverði:
Ölið ódýraSt í Finnlandi
Ódýrasti bjórinn á
Norðurlöndunum fæst í
Finnlandi, ef marka má
vefsíðuna pintprice.-
com. Þar kostar krús-
in 4,15 evrur eða 745
íslenskar krónur á nú-
verandi gengi. Notend-
ur um allan heim geta
skráð sig inn á vefsíðuna
og gefið upp verð á bjór
á þeim stöðum sem þeir
heimsækja. Meðaltal þess
verðs sem þeir gefa upp
er svo gefið upp sem verð
í viðkomandi landi.
Samkvæmt vefsíðunni
kostar bjór-
inn 750 krón-
ur í Færeyjum,
813 í Svíþjóð,
840 krónur hér
á Íslandi, 883
krónur í Dan-
mörku og heil-
ar 1.008 krónur á
Grænlandi. Eins
og sést á þessu
er bjórinn hvergi
sérlega ódýr fyr-
ir Íslendinga en
þar má gengis-
hruni krónunnar
að einhverju leyti
kenna um. Dýrasti bjórinn á Norð-
urlöndunum er í Noregi en þar kost-
ar ölkrús hvorki meira né minna en
1.247 krónur, samkvæmt vefsíðunni,
eða 6,95 evrur. Bjórinn í Noregi er
sá næstdýrasti í heiminum. Hafa
verður þó í huga að tölurnar eru
ekki byggðar á vísindalegum athug-
unum, heldur einungis notendum
pintprice.com.
Víða um heim er þó hægt að gera
góð kaup. Þannig kostar bjórinn
ekki nema 54 krónur, eða 0,3 evrur
í Tadsjikistan. Það er gott að hafa í
huga næst þegar ferðinni er heitið
þangað.
baldur@dv.is
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
10 þriðjudagur 15. september 2009 neytendur
Ódýrasta
nammið í Olís
Bónus býður besta verðið á nammi í lausasölu þá daga sem aðrir bjóða ekki upp á
afslátt. Á laugardögum, þegar allir bjóða helmingsafslátt, er nammið ódýrast hjá Olís.
Úrvalið er hins vegar langmest í Hagkaupum. Þar eru um 200 sortir á boðstólum.
Hagkaup reyndist bera
höfuð og herðar yfir aðrar
verslanir hvað úrval snertir.
Kílóverð á nammi í
lausasölu virKa daga
Verslun Kr/kg Sortir Munur
Bónus Smáratorgi* 949 25
Olís Mjódd 1550 28 63,3%
europris Dalvegi 1590 36 67,5%
Krónan lindir** 1799 47 89,6%
nammi.is Smáralind 1890 74 99,2%
Hagkaup Smáralind 1890 222 99,2%
Shell við Smáralind 1990 48 109,7%
N1 Stórahjalla 1990 30 109,7%
Nóatún Hringbraut 1998 34 110,5%
10-11 Dalvegi 1999 42 110,6%
*kynnt í verslun sem 50% afsláttur alla daga.
** 900 kr. á föstudögum
Kílóverð á nammi í
lausasölu á laugardögum
Verslun Kr/kg Sortir Munur
Olís 775 28
europris* 795 36 2,6%
Krónan 900 47 16,1%
nammi.is 945 74 21,9%
Hagkaup 945 222 21,9%
Bónus** 949 25 22,5%
N1 955 30 23,2%
Shell 995 48 28,4%
Nóatún 999 34 28,9%
10-11 1000 42 29,0%
* 795 kr. líka á sunnudögum
**kynnt í verslun sem 50% afsláttur alla daga
Bland í poka Áberandi var
hversu stórir pokar voru á
boðstólum í mörgum verslunum.
Þessi er úr Krónunni og hefði
rúmað nammi fyrir tugi manna.