Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2009, Síða 12
12 þriðjudagur 15. september 2009 fréttir Þjarmað að þuklurum Lögreglan í Tókýó, höfuðborg Japans, hóf í gær vikulanga her- ferð gegn þuklurum í lestum, en þukl hefur færst mjög í aukana undanfarið. Lögreglumenn í dulargervi ferðast með lestum á sumum leiðum í von um að geta gripið hina handóðu glóðvolga. Á síðasta ári voru yfir 6.000 manns handteknir vegna gruns um að stunda þukl um borð í lestunum eða að hafa tekið óvið- urkvæmilegar ljósmyndir. Samkvæmt könnun hafa nærri tveir þriðju hlutar ungra kvenna sem ferðast í almenn- ingslestum orðið fyrir barðinu á þuklurum og á sumum leiðum er boðið upp á vagna sem ein- göngu eru ætlaðir konum. Slakað á reyk- ingabanni Reykingamenn í Króatíu geta hugsanlega tekið gleði sína að nýju því þarlend stjórnvöld íhuga nú að slaka á lögum um umdeilt reykingabann sem sett var fyrir fjórum mánuðum. Ástæða ákvörðunar stjórnvalda eru kvartanir af hálfu kaffihúsa- eigenda sem sögðu farir sínar ekki sléttar. Samkvæmt nýrri tillögu verða reykingar leyfðar á kaffihúsum á sérstöku svæði sem verður að vera stærra en tíu fermetrar, en má ekki vera stærra en sem nemur 20 prósentum heildar- stærðar kaffihússins. Reykingabann mun þó áfram gilda um veitingastaði, sjúkra- hús, skóla og flugvelli. Sjálfsvígsalda hjá France Telecom Ríkisstjórn Frakklands hefur farið þess á leit við yfirmann France Telecom að hann grípi til tafarlausra aðgerða til að draga úr streitu starfsmanna fyrir- tækisins. Ástæðan er sú að 23 starfsmenn fyrirtækisins hafa framið sjálfsvíg síðastliðna átján mánuði. Stéttarfélög skella skuldinni á breytingar hjá fyrirtækinu sem ollu því að 10.000 starfsmenn skiptu um starf á síðustu þrem- ur árum þar sem tæknifólk var meðal annars fært yfir í þjón- ustumiðstöðvar og söludeildir. Í síðustu viku kastaði starfs- maður, 32 ára kona, hjá Orange, farsímadeild fyrirtækisins, sér út um glugga á fjórðu hæð skrif- stofu hennar í París. Popparann sir Elton John langar til að ættleiða dreng. Elton gerði það heyr- inkunnugt um helgina þegar hann var í heimsókn á munaðarleysingja- heimili í borginni Makeyevka í Úkr- aínu. Heimilið er sérstaklega hugsað fyrir HIV-smituð börn sem misst hafa foreldra sína. Drengurinn sem „stal hjarta“ Elt- ons heitir Lev og er fjórtán mán- aða. Elton John hefur ekki fyrr viðr- að áhuga á ættleiðingu, en sagði við tækifærið að sambýlismaður hans, David Furnish, hefði oft og tíðum látið í ljós löngun til þess. „David og ég höfum alltaf rætt um ættleiðingu, David langaði alltaf til þess, en ég sagði ávallt „nei“ því ég er 62 ára og í ljósi ferðalaganna og lífsstíls míns þá yrði það kannski ekki sanngjarnt gagnvart barninu,“ sagði Elton í Ma- keyevka. Langt og dýrt ferli Skammt er síðan önnur stjarna lenti í kröppum dansi vegna ætteiðing- ar. Stjarnan sem um ræðir er popp- drottningin Madonna og drengurinn er frá Malaví. Madonna hafði erindi sem erfiði á endanum en ekki gekk það þrautalaust. Nú velta menn fyrir sér hvort Elt- on bíði svipað hlutskipti ef hann tek- ur þá ákvörðun að taka slaginn. Þess má geta að tíðni alþjóðlegra ættleiðinga er hvergi lægri en í Bret- landi á meðal þróðuðu landanna. Ferlið tekur allt að tveimur árum og kostar að minnsta kosti 20.000 sterl- ingspund, rúmlega fjórar milljónir króna, sem veldur því að aðeins pör sem eru fullkomlega staðráðin leggja í þá vegferð. Rannsókn á heimilisaðstæðum lýtur sömu reglum og ef um innlenda ættleiðingu væri að ræða og tekur í það minnsta ár og inniheldur fjölda heimsókna til viðkomandi foreldra og fjöldi atriða veginn og metinn. Takmarkanir og lítil hvatning Undanfarin ár, í kjölfar nýrra laga sem sett voru 2008 til að taka á vanda- málum vegna fjölgunar yfirgefinna barna, hefur gætt mikillar fjölgunar ættleiðinga á börnum frá Úkraínu. Á síðasta ári voru um 450 úkraínsk börn ættleitt af bandarísku fólki. Í Úkraínu hefur lítið borið á hvatningu af hálfu félagsráðgjafa til ættleiðinga út fyrir landsteinana. Það byggir á ótta um að börnin muni ekki bera barr sitt eftir að hafa verið flutt frá eigin samfélagi og muni eiga erf- itt með að finnast þau vera hluti af fjölskyldu. Enda voru fyrstu viðbrögð þeirra neikvæð í garð beiðnar Elton John og henni hafnað. Sé horft til Bretlands þá hafa svip- aðar efasemdir eða ótti orsakað nán- ast algjört bann við ættleiðingum þar sem kynþættir skarast. Vonir Elton John hljóta því að hafa dvínað. Leitað til fátækra landa Það hefur færst mikið í vöxt að stjörn- ur í tónlistar- og kvikmyndaheimin- um ættleiði börn og oftar en ekki eru börnin frá öðrum löndum og kveður Þetta gæti, að mati Di- Filipo, leitt til þess að for- stöðumenn munaðarleys- ingjaheimila horfðu fyrst til útlanda í slíkum mál- um, vegna fjárskorts. Sir Elton John vonast til að bætast í hóp þeirra ríku og frægu sem ættleitt hafa börn frá fátækum löndum. Slíkum ættleiðing- um hefur fjölgað mjög undanfarin ár, en ekki eru allir sammála um ágæti þess. ElTon vill æTTlEiða KoLbEinn þorsTEinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Harðlínumenn í Írak leita samkynhneigðra á netinu: fórnarlömbin „rannsökuð“ Ofbeldi gegn samkynhneigðum karl- mönnum hefur aukist mjög í Írak undanfarið. Á vefsíðu The Guardian lýsir Abu Hamizi, 22 ára Íraki, þeim aðferðum sem beitt er til að finna samkynhneigða. Hamizi eyðir allt að sex klukkustundum á dag fyrir fram- an tölvuna. Hann vafrar á milli spjall- þráða samkynhneigðra, en ekki með það fyrir augum að eignast nýja vini. Hann leitar fórnarlamba. „Þetta er einfaldasta leiðin til að finna þetta fólk sem er að eyðileggja íslam og vill ata auri það orðspor sem tók okkur aldir að byggja upp,“ segir Hamizi. Þegar hann hefur fundið einhvern á netinu gerir Hamizi ráð- stafanir til að ráðist verði á viðkom- andi og hann jafnvel drepinn. Hamizi er útskriftarnemi í tölvu- vísindum og í fremstu línu þeirra sem beita samkynhneigða karlmenn ofbeldi í Írak. Hópur hans sam- anstendur af harðlínuöfgamönnum og talið er að hópurinn beri ábyrgð á meira en 130 morðum á samkyn- hneigðum karlmönnum í Írak það sem af er ári. Hópur Hamizi gortar af því að í Bagdad séu að minnsta kosti tveir einstaklingar „rannsakað- ir“ daglega. Samkynhneigð var ekki glæpsam- leg í valdatíð Saddams Hussein ein- ræðisherra og reyndar var Írak þekkt fyrir tiltölulega mikið umburðar- lyndi gagnvart samkynhneigðum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, en í kjölfar innrásar Banda- ríkjanna og bandalagsþjóða þeirra, 2003, varð þar breyting á. En nú er öldin önnur og sam- kvæmt Ali Hali, formanni íröksku réttindasamtakanna LGBT, Lesbian, Gay, Bisexual, Transgender, í Lund- únum, hafa 680 samkynhneigðir karlmenn verið drepnir í Írak síðan 2004, þar af um 70 á síðustu fimm mánuðum. Samkvæmt Human Rights Watch- samtökunum er ekki loku fyrir það skotið að lögreglusveitir landsins eigi einhvern hlut að máli. Gaypride-ganga í brasilíu Samkynhneigðir karlmenn njóta ekki alls staðar sömu réttinda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.