Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Síða 15
helgarblað
Sléttari og þéttari húð
Formar fótleggina
Minkar þrota og bjúg
Tekur burt þreytu
Eykur úthreinsun
sogæðakerfisins
Snyrtisetrið
Heilsuverndarstöðin (norður endi) l Barónsstíg 47 l 101 Reykjavík l Sími 533- 3100
CELLULITE
meðferð
Árangur sést strax
Betri líðan
Persónuleg ráðgjöf
Kveðja til þeirra sem eru í baráttunni við
Cellulite (appelsínuhúð)
l
l
l
l
l
Munið gjafakortin!
Óbreytt verð!
JÓLATILBOÐ!
30% afsl. af nr. 1 - Andlits-meðferð
30% afsl. af nr. 1 - Cellulite-meðferð
Gildir 16. - 17. nóvember
af stökum tímum
Sleitulaus útgáfa
í aldarfjórðung
„Upphaflega lögðum við bara upp
með að ná okkur í aukapening fyrir
jólin,“ segir Sigurjón J. Sigurðsson,
stofnandi héraðsfréttablaðsins Bæj-
arins besta á Ísafirði. Blaðið fagnar
nú 25 ára afmæli sínu en á laugardag-
inn er aldarfjórðungur liðinn frá því
að fyrsta tölublaðið rann úr prentvél-
inni hinn 14. nóvember 1984.
Af þessu tilefni kemur í dag út
veglegt sextíu og fjögurra síðna af-
mælisblað sem dreift er ókeypis á öll
heimili á dreifingarsvæði blaðsins.
Eftir áramótin, eða þann 4. janúar,
eru svo 10 ár liðin frá því að fréttavef-
urinn bb.is hóf göngu sína.
Sigurjón er enn þann dag í dag
ritstjóri Bæjarins besta. Hann var
útgefandi blaðsins fyrsta misserið.
Sumarið 1985 stofnuðu þeir Halldór
Sveinbjörnsson prentari og Sigurjón
fyrirtæki um reksturinn. Það hlaut
nafnið H-prent og hefur alla tíð síðan
verið útgefandi blaðsins. Enn í dag
eru þeir Sigurjón og Halldór ábyrgð-
armenn Bæjarins besta.
„Við vorum báðir í annarri vinnu
þarna í upphafi. Síðan vatt þetta upp
á sig og við höfum ekki misst úr viku
í öll þessi ár. Ég veit ekki betur en
að við séum með elstu héraðsfrétta-
blöðum á Íslandi,“ segir Sigurjón.
Fram til haustsins 1992 var Bæj-
arins besta dreift ókeypis á norður-
svæði Vestfjarða. Þá var svo komið að
auglýsingatekjurnar stóðu ekki und-
ir rekstrinum. Því var ekki nema um
tvennt að ræða, annaðhvort að hætta
útgáfunni eða að hætta frídreifingu
og fara að selja blaðið í áskrift og
lausasölu. Síðari kosturinn var tek-
inn og síðan hefur blaðið lifað góðu
lífi.
„Við sjáum ekki eftir því í dag að
vera með áskriftarblað. Það er erfitt
að reka fríblöð og ég held að dyggur
áskrifendahópur hafi bjargað okkur í
kreppunni,“ segir Sigurjón. erla@dv.is
Stofnandi Bæjarins besta segir dygga
áskrifendur hafa bjargað blaðinu:
Starfsfólk Bæjarins besta í dag Birgir Örn Sigurjónsson,
Halldór Sveinbjörnsson, Helga Einarsdóttir, Sigurjón J.
Sigurðsson, Thelma Hjaltadóttir og Friðrika Benónýsdóttir.