Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Qupperneq 8
8 miðvikudagur 2. desember 2009 fréttir
Eiður Smári Guðjohnsen, knatt-
spyrnumaður hjá AS Monaco FC í
Frakklandi, skuldar rúmlega 1200
milljónir króna, eða nærri 7 milljónir
evra, um þessar mundir, samkvæmt
heimildum DV innan úr bankakerf-
inu. Knattspyrnumaðurinn hefur átt
í viðræðum við lánardrottna sína
um hvernig hann geti staðið í skilum
við þá því á móti þessum skuldum
eru eignir sem metnar eru á nærri
750 milljónir króna, eða sem nem-
ur rúmum 4 milljónum evra. Sam-
kvæmt heimildum DV er Eiði Smára
mikið í mun að ráða fram úr þessum
skuldavanda sínum og hefur hann
meðal annars leitað eftir frekari lán-
veitingum til þess.
Stærsti lánveitandi Eiðs er
Banque Havilland í Lúxemborg,
áður Kaupþing í Lúxemborg, en
knattspyrnumaðurinn skuldar þeim
banka um 4,5 milljónir evra, tæp-
ar 830 milljónir króna, samkvæmt
heimildum DV. Eiður hefur síðast-
liðin ár verið viðskiptavinur í einka-
bankaþjónustu þess banka. Þar á
eftir kemur Íslandsbanki með ríf-
lega tveggja milljóna evra skuld, eða
sem nemur meira en 385 milljón-
um króna á núverandi gengi. Aðrar
skuldir Eiðs eru ekki verulegar.
Fjárfesti í íþróttaakademíu, í
Tyrklandi og Hong Kong
Ástæðan fyrir því að Eiður Smári
stendur svo illa fjárhagslega um
þessar mundir er meðal annars sú
að hann hefur skuldsett sig mjög
á síðustu árum vegna ýmissa fjár-
festinga og fjárfest í verkefnum sem
ekki hafa skilað honum miklu. Til að
mynda liggja rúmlega 250 milljón-
ir króna af skráðum eignum hans í
fasteignaverkefnum í Tyrklandi og
í Íþróttaakademíunni Í Reykjanes-
bæ, samkvæmt heimildum, en Eið-
ur Smári veitti lán til verkefnisins á
sínum tíma. Eiður Smári mun hafa
reynt að selja kröfur sínar í þess-
um verkefnum en kaupandi hefur
ekki fundist eftir því sem DV kemst
næst.
Eiður Smári fjárfesti einnig í fast-
eignaverkefni í Hong Kong. Verk-
efnið bar heitið Chester Court. Sam-
kvæmt heimildum DV mun Eiður
Smári hafa dregið sig út úr verkefn-
inu fyrir skömmu og telst ekki leng-
ur meðal fjárfesta þess. Eiður Smári
mun hafa lagt ansi háar fjárhæðir
til þessa verkefnis árið 2007 og tap-
aði hann þeim fjármunum að lang-
mestu leyti áður en hann seldi hlut
sinn í því.
Það á því við um allar þessar fjár-
festingar að annaðhvort er Eiður
Smári búinn að losa sig út úr þeim
eða hefur reynt það án árangurs.
Aðrar helstu eignir Eiðs eru ýmis
skuldabréf, til að mynda í MP Banka,
Exista og sænska fjármálafyrirtæk-
inu Svensk Exportkredit Aktibolag-
et, en þessi skuldabréfaeign Eiðs
nemur um 300 milljónum króna.
Eiður Smári á svo einnig ýmsar
fasteignir hér á landi, einbýlishús,
íbúð og ýmsar lóðir og hefur hann
reynt að selja hluta þessara eigna
að því er heimildir DV segja. Meiri-
hlutinn af eignum Eiðs Smára er
því í söluferli.
Segir stöðu Eiðs ekki geta
verið alvarlega
Eggert Skúlason, talsmaður Eiðs
Smára Guðjohnsen, kannast að-
spurður ekki við að Eiður Smári
eigi í fjárhagskröggum og að hann
hafi átt í viðræðum við lánardrottna
sína um hvernig hann geti staðið
við skuldbindingar sínar. „Ég kann-
ast ekki við það... Ég þekki ekki hans
fjármál. Ég veit bara að hann vinn-
ur sér inn margar milljónir evra. En
ég get alveg lofað þér því að ef þetta
væri eitthvað alvarlegt þá myndi ég
vita af því,“ segir Eggert og bætir því
við að Eiður hafi gert stóra samn-
inga við bæði Chelsea og Barcelona
og hafi því efnast vel. „Ég get alveg
lofað þér því að hann er með hærri
laun en forsætisráðherra,“ segir
Eggert sem getur heldur ekki rætt
um fjárfestingar Eiðs þar sem hann
þekki þær ekki og viti því ekki hver
staðan er á þeim.
Með rúmar 30 milljónir
á mánuði
Heimildir DV herma að Eiður Smári
ætli sér að greiða skuldirnar nið-
ur á næstu árum og að hann stefni
að því að greiða Banque Havilland
á milli 10 og 20 milljónir króna á
mánuði, 50 til 100 þúsund evrur,
allt þar til skuldir hans hafa verið
greiddar upp til fulls.
Eiður hefur hins vegar ekki getað
greitt mikið til lánardrottna sinna á
síðustu mánuðum þar sem hann
hefur „einungis“ verið með tæpar 3
milljónir króna í laun á mánuði frá
því hann samdi við Monaco. Í byrj-
un næsta árs mun hann hins vegar
byrja að fá hærri laun en heimildir
DV segja að hann eigi að fá um 30
milljónir króna á mánuði næstu tvö
árin auk hárra eingreiðslna upp á
meira en 100 milljónir króna í upp-
hafi hvers árs.
Eiður ætti því að vera borgun-
armaður fyrir þessum skuldum
jafnvel þótt hann þyrfti að greiða
á milli þriðjung og nærri tveimur
þriðju hluta mánaðarlauna sinna
til lánardrottna á næstu árum. Út-
reiknuð heildarlaun hans hjá Mon-
aco, sem nema rúmum fimm millj-
ónum evra, duga þó ekki til að
greiða skuldina upp á tæpar sjö
milljónir evra ein og sér og því er
ljóst að Eiður mun þurfa að ganga
nokkuð á eignir sínar til að standa
í skilum líkt og hann mun vera svo
áfram um samkvæmt heimildum
blaðsins.
Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður hjá
AS Monaco FC, skuldar rúmar 1200 milljónir á
móti rúmlega 800 milljóna eignum. Meirihluti
eigna Eiðs er í söluferli. Hann tapaði á fjárfest-
ingaverkefnum á Íslandi og í Hong Kong og
Tyrklandi. Drjúgur hluti rúmlega 30 milljóna
króna mánaðarlauna hans fer í að endurgreiða
skuldir á næstu árum. Skuldirnar eru meiri
en launin sem hann fær hjá Monaco.
Talsmaður Eiðs Smára segist
ekkert vita um fjármál hans.
EIÐUR SMÁRI Í KRÖGGUM
InGI F. VIlHjálMSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„En ég get alveg lofað
þér því að ef þetta væri
eitthvað alvarlegt þá
myndi ég vita af því.“
Meira en milljarðs skuld Eiður Smári
Guðjohnsen skuldar rúmar 1200 milljónir króna
samkvæmt heimildum DV innan úr bankakerf-
inu. Á móti þessari upphæð eru eignir sem
metnar eru á tæpar 830 milljónir. Eiður sést hér
með konu sinni, Ragnhildi Sveinsdóttur.
Frægðarför Eiður sigraði í
Meistaradeildinni með Barcelona
fyrr á árinu og sést hér halda á
bikarnum með þá Thierry Henry
og Lionel Messi í baksýn. Árin hjá
Barcelona virðast þó ekki hafa verið
eins fengsæl fjárhagslega fyrir Eið.
Fjárfestirinn Eiður Eiður er flestum
landsmönnum að góðu kunnur fyrir
afrek sín á knattspyrnuvellinum, með-
al annars með íslenska landsliðinu.
Fáir vita þó að hann hefur tekið þátt í
fjárfestingaverkefnum í Tyrklandi og
Hong Kong á liðnum árum.