Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Blaðsíða 13
Ummyndanir, Metamorphoses, eftir rómverska skáldið Óvíd er eitt af stórvirkjum klassískra bókmennta. Þetta er gríðarmikill söguljóðabálk- ur í fimmtán bókum, um efni úr grískum goða- og hetjusögum, ritaður snemma á fyrstu öld. Verkið naut óhemju vinsælda á miðöldum og endurreisnartímanum, en hefur sjálfsagt þokað nokkuð til hliðar á síðari tímum. Trúlega þolir mannkynið ekki nema vissan skammt af meist- araverkum og þegar Evrópuþjóðirnar eignuð- ust snilldarbókmenntir á eigin tungumálum, í lok miðalda og við upphaf nýaldar svokallaðrar, hlaut hinn klassíski arfur að hverfa í skuggann, einkum hinn rómverski hluti hans. Fleyg orð Hórasar um að hinir sigruðu Grikkir hefðu her- tekið sinn hrjúfa drottnara, Rómaveldi, með list- unum, hafa reynst spámannleg, enn spámann- legri en skáldið rómverska gat séð fyrir. Nú eru Ummyndanir komnar út á íslensku í þýðingu Kristjáns Árnasonar, sem er afskaplega gott. Þar við bætist að útgáfan sjálf er svo vönd- uð, með sögulegum inngangi, efniságripi, at- hugasemdum og nafnaskrám, að til fyrirmynd- ar er. Ummyndanir voru áhrifamikið verk, til dæmis hafði William Shakespeare mikið dálæti á því; vísast las hann það fyrst í skóla og nýtti sér síðar söguefni úr því með margvíslegum hætti í leikritum sínum. Kannski sogaði hann líka til sín eitthvað af þeim anda sem hann fann hjá Róm- verjanum, þó að um það kunni að mega deila. Ummyndanir eru safn af alls kyns sögum sem tengjast lítt sín á milli, að öðru leyti en því að myndbreytingar eða ummyndanir á einstökum persónum koma þar við sögu. Ekki skipta þær þó alltaf meginmáli, að manni finnst. Í sagna- heimi Óvíds getur allt gerst, hann er eins og æv- intýri eða draumur, einhvers konar forngrískur súrrealismi sem getur á köflum orðið ágengur. Það er tæpast tilviljun að Picasso sé í hópi þeirra fjölmörgu listamanna sem hafa myndskreytt verkið. Sumum hefur fundist veröld Óvíds myrk og snauð að von; það má hugsa ég til sanns veg- ar færa. Guðirnir, sem eiga að stjórna heim- inum, eru fullir af munúð og girndum (eink- um auðvitað kvennabósinn Júpíter), harðir og hefnigjarnir. Mennirnir eru að sínu leyti ofur- seldir ástríðum sem bera dauðann í sér: það má benda á Narkissus, sem varð ástfanginn af eigin spegilmynd, Býblis, sem unni bróður sín- um, og Myrru, sem lagðist með föður sínum. Narkissos breyttist í blóm, Býblis í uppsprettu- lind, Myrra að sjálfsögðu í myrrutré. Í raunatöl- um þessara persóna og fleiri slíkra rís list Óvíds í hæðir; þegar maður les þær skilur maður hvers vegna Shakespeare heillaðist af honum og hafði Ummyndanirnar og raunar fleiri verk skáldsins ávallt innan seilingar. Verkið er í bundnu máli á frummálinu, en Kristján Árnason þýðir á laust mál. Hann hefði líkað getað þýtt það á bundið mál, því að hann er jafnvígur á hvoru tveggja. Eiginlega finnst mér svolítil synd að hann skuli ekki hafa tekið nokkra valda kafla úr verkinu og þýtt með þeim hætti; það væri auðvitað fráleitt að ætlast til annars og meira af honum. Hann þýðir að vísu blálokin á hexametur, til samanburðar, en það er aðeins örlítið sýnishorn. Lausamálsþýðing- ar á fornum ljóðatextum eiga sér langa hefð og hafa sína kosti; þær henta vel við lestur textanna á frummálinu, geta verið nákvæmari og trúrri frumtextanum en hinar. Gallinn við þær er sá, að þær verða gjarnan eilítið tilgerðarlegar, sök- um þess að þýðandinn vill ekki víkja of langt frá setningaskipan, líkingum og ýmsum stílbrögð- um sem eru upphaflega hugsuð inn í bragar- háttinn. Flæði textans og orðalag verður ekki alltaf jafn óþvingað og manni finnst það eigi að vera þegar sagt er frá. En fáir þýðendur hygg ég að kunni að varast slíkt betur en sá sem hér hef- ur um vélt. Ég myndi mæla með því að lesandi, sem þekkir lítið eða ekkert til verksins fyrir, byrji á því að lesa efniságripin sem birt eru aftast í bókinni og samin eru af Kristjáni. Þau eru í raun og veru lykill að verkinu og hefðu þess vegna mátt vera á undan megintextanum, strax á eftir inngangin- um. En væntanlega hefur hógværð þýðandans bannað það. Þau veita ekki aðeins greinargott yfirlit yfir söguefnin, heldur eru þau hreinasti skemmtilestur – sem kemur ekki á óvart þeim sem þekkja til fyrri verka Kristjáns. Eftir að Helgi Hálfdanarson hvarf af vettvangi eigum við ekki marga þýðendur sem geta talist jafnokar Kristjáns Árnasonar. Og eitt má ég til með að nefna: hvað hann er snjall leikritaþýð- andi. Þar hefur húmor hans og hugkvæmni, til- finning fyrir mæltu máli og skarpur skilningur, notið sín til fullnustu. Kristján gerði á sínum tíma afbragðsþýðingar á kómedíum Aristófa- nesar, Lýsiströtu og Þingkonunum, og mér hefur fundist dapurlegt að íslenskt leikhús skuli ekki hafa nýtt sér þessar gáfur hans meir og betur. En þó að Kristján sé kominn á áttræðisaldur, er ber- sýnilega ekkert lát á honum. Helgi heitinn var lengi að; við verðum að vona að Kristján verði það einnig. Jón Viðar Jónsson Fyllt í eyðu Fjölbreytninni er fyrir að fara í þessu bókablaði DV. Meðal annars er hér fjallað um uppvaxtarsögu Ólafs Hauks Símonarsonar, viðtalsbók við Jón „Bö“ Böðvarsson, stórmerkilega þýðingu á Ummyndunum Óvíds, Stórskemmtilegu stelpubókina, skopteikningabók Halldórs Baldurssonar og skáldævisögu Bjarna Bjarnasonar. Þá er ónefnd nýjasta „Útkallsbókin“ og tilvitnanabók sem Óli Björn Kárason tók sam- an úr málflutningi hinna ýmsu manna í góðærinu og hruninu sem því fylgdi. dæmir... Sá á skjöld hvítan – Við- talsbók við Jón Böðvarsson Guðrún Guðlaugsdóttir skráði „Of löng bók um sagnameistara sem er ef til vill ekki mikið söguefni sjálfur.“ Fuglalíf á Framnesvegi Eftir Ólaf Hauk Símonarson „Góð lýsing á upp- vexti ungra Reykja- víkurdrengja á sjötta áratug 20. aldar.“ Útkall við Látrabjarg Eftir Óttar Sveinsson „Góð lýsing á ótrú- legum mannraun- um.“ Stórskemmti- lega stelpubókin Eftir Andreu J. Buchanan og Miriam Peskowitz „Helsti gallinn er að börn gætu orðið hrædd við að lesa suma kaflana.“ Skuldadagar Eftir Halldór Baldursson „Þarna birtist margt það góða, slæma og hreint út sagt fáránlega sem við landsmenn höfum mátt búa við síðustu árin.“ Ummyndanir Eftir Óvíd „Stórvirki í íslensk- um þýðingabók- menntum sem mun lengi lifa.“ Leitin að Aud- rey Hepburn Eftir Bjarna Bjarnason „Falleg og fyndin skáldævisaga.“ SÖGULJÓÐ Ummyndanir (metamorphoses) Publius Ovidius Naso, ÓvídStórvirki í íslenskum þýðingabók- menntum sem mun lengi lifa. Kristján Árnason íslenskaði og ritaði inngang Útgefandi: Mál og menning Kristján Árnason, þýðandi Ummyndana „Eftir að Helgi heitinn Hálfdanarson hvarf af vettvangi, eigum við ekki marga þýðendur sem geta talist jafnokar Kristjáns Árnasonar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.