Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Síða 23
Mér þykir bera nýrra við ef forsætis- ráðherra þjóðarinnar veit fyrirfram um niðurstöður dómstólanna. Alexander Hamilton var einn þeirra sem lögðu grunninn að stjórn- skipan og stjórnarskrá Bandaríkj- anna í lok átjándu aldar. Hamilton ritaði meðal annars: „Ég hef ávallt litið svo á að geðþótta- legar ákærur, handahófskenndar að- ferðir við að lögsækja meinta brota- menn og geðþóttaleg viðurlög við gerræðislegri sakfellingu, kyndi und- ir réttarfarslegri harðstjórn.“ Þann 17. maí árið 2004 gekk Dav- íð Oddsson, þáverandi forsætisráð- herra, á fund Ólafs Ragnars Gríms- sonar forseta Íslands. Þetta var mánudagur og í miðopnu Morg- unblaðsins þennan sama dag hafði Davíð – aldrei þessu vant – skrifað mikla grein gegn forsetanum og sak- að hann um að ganga erinda Baugs- manna í fjölmiðlamálinu sem tröll- reið íslenska þjóðfélaginu þessar vikur og mánuði. Á greininni mátti skilja að forsetinn hefði ekkert leyfi til þess að beita stjórnarskrárbundn- um málsskotsrétti sínum og synja væntanlegum fjölmiðlalögum stað- festingar. „Ef svo ólíklega færi, að forsetinn undirritaði ekki, væri sú neitun þýðingarlaus og lögin tækju gildi sem staðfest væru og án þess að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram,“ sagði Davíð óhikað í greininni. Davíð gekk lengra og sagði að Ól- afur Ragnar forseti væri einnig van- hæfur til afskipta af fjölmiðlalögun- um yfirleitt. „Því svo vill til að það fyrirtæki og fjölmiðlar þess sem jafn- an eru nefndir til sögunnar hafa haft og hafa fyrirsvarsmenn sem eru nán- ustu stuðningsmenn forsetans og hafa haft gríðarleg áhrif á persónu- legan hag hans og stöðu. Og eins og fram hefur komið hafa þessir aðil- ar opinberlega kallað eftir afskipt- um forsetans í málinu! Það gefur því auga leið að þarna eru komin upp al- varleg álitamál.“ Bíltúr til Bessastaða Með yfirlýsingar af þessum toga í far- teski sínu sté Davíð upp í ráðherra- bílinn fyrir hádegi umræddan mánu- dag og lét bílstjórann aka sem leið lá til Bessastaða. Ólafur Ragnar hafði vafalaust les- ið Moggann sinn þegar Davíð birtist á hlaðinu. Engum sögum hefur farið af um- ræðuefni þessa fundar. Ekki heldur í forsetabók Guðjóns Friðrikssonar. Og blaðamenn skildi Davíð eftir með sárt ennið er hann kom af fundinum. Ekki einu sinni smjörklípa. Þann 2. júní árð 2004, 16 dögum eftir mánudagsfundinn á Bessastöð- um, synjaði Ólafur Ragnar fjölmiðla- lögum Davíðs staðfestingar með yfir- lýsingu á blaðamannafundi. Hvað hafði farið þeim á milli á Bessastöðum? Varla fór forsætisráð- herrann fram á það umbúðalaust að forsetinn léti vera að synja væntan- legum fjölmiðlalögum staðfesting- ar. Enda hefði það verið kjánalegt af Davíð; hann hafði komið boðskap sínum á framfæri í því blaði sem hann ritstýrir nú. Miklu líklegra er að Davíð hafi farið í kringum fjömiðlamálið eins og köttur í kringum heitan graut er hann hitti forsetann. Brot úr samtali þeirra skömmu fyrir hádegi þennan mánudag á Bessastöðum gæti með verulegum líkum hafa verið eftirfarandi: Brot úr samtali Davíð: Þetta eru mikil átök um jafn- sjálfsagðan hlut og það er að setja lög um eignarhald á fjölmiðlum. Ólafur Ragnar: Þú skefur nú ekk- ert af því í miðopnu Moggans í dag. Þetta eru ónotalegar kveðjur forsæt- isráðherra til þjóðkjörins forseta. Davíð: Þú veist að þessir Baugs- menn verða komnir á bak við lás og slá áður en langt um líður. Ólafur Ragnar: Mér þykir bera nýrra við ef forsætisráðherra þjóð- arinnar veit fyrirfram um niðurstöður dómstólanna. Við þetta stendur Dav- íð upp, þakkar fyrir sig, og kveð- ur heldur þurr á manninn. Á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins 2009 sté þessi persónudýrkaði maður í pontu, þá smáður og flæmdur úr stöðu seðlabankastjóra og sagði full- ur haturs: „Eyðilegging fjölmiðlalag- anna er því mesta pólitíska skemmd- arverk sem unnið hefur verið í síðari tíma sögu Íslands.“ Hamilton hafði rétt fyrir sér um hætturnar samfara geðþótta og gerræði. Ef geðþótti gegnumsýrir ákæruvald, lögreglu og dómstóla er veruleg hætta á ferðum. Það er einnig hættulegt ef réttar- vörslu- og dómskerfið reynist ófært um að dæma fyrirfólk og ríka og leyf- ir þeim að lifa í hægindum refsileysis eins og Eva Joly hefur bent á. Geðþóttinn varð Davíð að falli. Hver er maðurinn? „Vignir Vatnar, sex ára.“ Hvar ert þú uppalinn? „ Á Hornafirði en mamma flutti svo til Keflavíkur fyrir stuttu.“ Uppáhaldsbarnaefnið? „Ég veit það ekki. Ég horfi ekkert mikið á barnaefni.“ Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? „Stærðfræði.“ Hvað eru tíu plús tíu? „Tveir og núll.“ Hvað hefurðu teflt lengi? „Mjög lengi.“ Hver er uppáhaldstaflmaðurinn á borðinu? „Drottningin. Hún er best.“ Af hverju? „Hún gefur svo marga möguleika.“ Hver er uppáhaldsskákmaður- inn þinn? „Hann heitir Úlfur.“ Æfir þú einhverjar aðrar íþróttir? „Ég æfi bara tafl. Ég er samt mikið í fótbolta.“ Hver er uppáhaldsfótbolta- maðurinn þinn? „Edvin van der Sar, markvörður Manchester United.“ TreysTir þú íslensku bönkunum? „Já.“ IngIBjörg FAnney PálsdóttIr 30 Ára nUDDari og HÚSMóðir „nei, ekki lengur.“ FAnnAr CArlsson 21 ÁrS VaKTSTJóri „nei. Hver gerir það eiginlega?“ HjAltI HArðArson 26 Ára nEMi „nei, ég geri það ekki.“ júlíAnA BjArnAdóttIr 36 Ára lögrEglUMaðUr Dómstóll götunnar VIgnIr VAtnAr steFánsson, sex ára skáksnillingur, sló í gegn í fjöltefli í Myllubakkaskóla þar sem hann vann sex skákir af sjö. Vignir sigraði nemendur allt upp í tíunda bekk. Hann er uppalinn á Hornafirði og horfir lítið á barnaefni. Hann veit samt hvað tíu plús tíu eru. Drottning gefur mestu möguleikana „Hvað er íslenskur banki? Er ekki betra að útlendingar sjái um þá því við getum ómögulega gert það?“ jón rAFnAr jónsson 70 Ára HElDri borgari Á biðlaUnUM maður Dagsins Samtal á Bessastöðum og réttarfar geðþóttans kjallari mynDin 1 Bubbi bíður eftir byltingu bubbi segist í viðtali við Mannlíf ekki geta borgað af húsinu sínu þegar bankafryst- ingu á láninu lýkur. 2 jóla-babb í bátinn hjá loga Handboltakappinn logi geirsson leitar nú að söngvara til að syngja jólalag en hann segist eiga erfitt með að finna gullbarka í Þýskalandi. 3 ásdís rán: Ætli ég sé ekki of „sexy“ fyrir Facebook Súperstjarnan Ásdís rán segist vera of kynþokkafull fyrir Facebook eftir að aðgangi hennar var lokað. 4 Illugi notaði 4,4 milljónir Sjálfstæðismaðurinn illugi gunnarsson notaði 4,4 milljónir króna í prófkjörsbar- áttu sína. 5 ólafur ragnar: útrásarvíking- arnir misnotuðu traust mitt Forseti Íslands, ólafur ragnar grímsson, segir útrásarvíkinga hafa misnotað traust hans til þeirra. 6 dabbi grensás sakaður um tvær líkamsárásir Davíð Smári Helenarson, betur þekktur sem Dabbi grensás, er sakaður um þrjú hegningarlagabrot en mál gegn honum var þingfest í Héraðsdómi reykjavíkur í morgun. 7 sérkennileg staða landsbanka- eigenda Þegar Jón gerald Sullenberger bauð skuldabréf frá Venesúela fyrir 30 milljarða króna í landsbankanum árið 2006 var baugsmálið fyrir dómstólum. mest lesið á DV.is jóHAnn HAUksson útvarpsmaður skrifar „Það er einnig hættu- legt ef réttarvörslu- og dómskerfið reynist ófært um að dæma fyrirfólk og ríka.“ umræða 2. desember 2009 miðvikudagur 23 Vegir liggja til allra átta Meðal annars frá Hafnarfirði til reykjavíkur en þá leið fór fólk undir fullu tungli og sígildum íslenskum skammdegisdrunga. Mynd róBert reynIsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.