Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. janúar 2010 FRÉTTIR
Ásbjörn Óttarsson, þigmaður Sjálf-
stæðisflokksins úr Snæfellsbæ,
greiddi árið 2008 sér og Margréti
Scheving, eiginkonu sinni, 65 millj-
óna króna arð úr útgerðar- og fisk-
vinnslufélaginu Nesveri ehf. á Rifi.
Þetta var gert þrátt fyrir að félag-
ið hefði tapað 574 milljónum króna
þetta sama ár og bókfært eigið fé hafi í
árslok verið neikvætt um 157 milljón-
ir króna.
Núverandi stjórnarmenn í Nes-
veri eru Friðbjörn Ásbjörnsson, son-
ur Ásbjörns, og móðir hans. Margrét.
Þar sem Ásbjörn og Margrét voru einu
eigendur Nesvers ehf. árið 2008 voru
þau ein bær til þess að taka ákvarð-
anir um arðgreiðsluna, en hún nem-
ur 3.200 prósentum af hlutafé sam-
kvæmt ársreikningi félagsins 2008.
Sama ár og ákvörðun um að greiða
65 milljóna króna arð var tekin nam
bókfært tap Nesvers 574 milljónum
króna. Ári áður greiddu Ásbjörn og
Margét sér aðeins 20 milljónir króna
í arð eða sem nemur 1.000 prósentum
af tveggja milljóna króna hlutafé. Það
árið hagnaðist félagið hins vegar um
558 milljónir króna.
Löglegt?
Lögfræðingar, sem DV hefur leitað
til, telja vafa leika á því að heimilt sé
að úthluta arði úr einkahlutafélögum
þegar skuldir eru langt umfram eign-
ir, enda geti það gengið á hlut lánar-
drottna. Strangt til tekið er fyrirtæki
gjaldþrota sem á ekki lengur eignir
fyrir skludum.
Í lögum um einkahlutafélög seg-
ir meðal annars í 74 grein: „Einungis
er heimilt að úthluta sem arði hagn-
aði samkvæmt samþykktum ársreikn-
ingi síðasta reikningsárs, yfirfærðum
hagnaði frá fyrri árum og frjálsum
sjóðum eftir að dregið hefur verið frá
tap sem ekki hefur verið jafnað og það
fé sem samkvæmt lögum eða félags-
samþykktum skal lagt í varasjóð eða
til annarra þarfa.“
Ársskýrslan var undirrituð af
endurskoðanda fyrir réttu ári, eða
skömmu áður en Ásbjörn fór í fram-
boð.
„Þetta er arðgreiðsla af hagnaði
ársins á undan. Það er nauðsynlegt að
það komi fram. Ákvörðunin var tek-
in í febrúar árið 2008,“ segir Ásbjörn í
samtali við DV.
Skortur á gögnum
Ásbjörn Óttarsson var kjörinn á þing
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðvest-
urkjördæmi í þingkosningum í apríl
á síðasta ári. Ljóst er á þessum tíma-
punkti að Nesver ehf., sem hann átti
75 prósenta hlut árið 2008, er stór-
skuldugt og rís varla undir skuldum. Í
áritun óháðs endurskoðanda Deloitte
segir meðal annars að mjög óvenju-
legar og sérstakar aðstæður hafi skap-
ast á fjármálamarkaði með setningu
neyðarlaganna árið 2008. „Þar af leið-
andi gátum við ekki aflað allra þeirra
gagna sem við töldum nauðsynlegt
til að staðfesta virði eigna og skulda
félagsins auk þess sem óvissa er um
hæfi félagsins til að geta staðið við
skuldbindingar sínar í náinni framtíð
við þessar sérstöku aðstæður á fjár-
málamarkaði.“
Í lok árs 2008 skuldaði Nesver ehf.
nærri 1,3 milljarða króna, þar af voru
langtímaskuldir við bankana á ann-
an milljarð króna. „Þetta eru miklar
skuldir, en við eigum fyrir afborgun-
um af lánum næstu 18 mánuði,“ seg-
ir Ásbjörn.
Þess má geta að samkvæmt árs-
reikningi þurfti Nesver að óbreyttu
að greiða 74 milljónir króna af lang-
stímaskuldum í fyrra og upp undir
annað eins af skammtímaskuldum.
Afborganir Nesvers af langtímaskuld-
um árið 2008 námu hins vegar um
250 milljónum króna og voru upp
undir tífalt meiri en árið áður.
Engar tekjur annars staðar
Í skrá Alþingis um hagsmunatengsl
þingmanna segir að Ásbjörn þiggi
engin laun fyrir stjórnarsetu í einka-
reknum eða opinberum félögum.
Ekki er að sjá að hann vinni önnur
störf samhliða starfi þingmanns sem
gefur honum tekjur eða félagi sem
hann á sjálfur í. Tekið er fram að hann
hafi enga eftirgjöf fengið eða ívilnandi
breytingar á skilmálum samninga við
lánardrottna. Í skránni kemur fram að
hann eigi nú 50 prósenta hlut í Nes-
veri ehf. á Rifi og jafnstóran hlut í
Hlíðarfossi ehf. á sama stað. Jafnframt
er hann sagður eigandi Fiskmarkaðar
Íslands hf.
Hlíðarfoss gerði út Herdísi SH 174,
sex tonna plastbát, sem brann og
sökk úti fyrir Bjargtöngum seint í maí
í fyrra. Tveir menn voru á bátnum og
fóru þeir í gúmmíbjörgunarbát og var
bjargað.
Eftir því sem næst verður komist er
Hlíðarfoss óvirkt félag og hafa eignir,
þar á meðal aflaheimildir verið flutt-
ar til Nesvers, en það gerir út Tryggva
Edvalds, tólf tonna fiskiskip.
„Þetta er í höndum sonar míns og
útgerðin gengur ágætlega,“ segir Ás-
björn.
Árið sem bankakerfið hrundi var
bókfært verð aflaheimilda Nesvers
tæpar 950 milljónir króna og því ljóst
að kvótinn er helsta en um leið óefnis-
leg eign félagins. Athyglisvert er að 26
prósent aflaheimildanna eru skráðar
sem ósundurliðaðar aflaheimildir, en
hlutdeild útgerða í heildarkvóta verð-
ur ávallt að tilgreina í tegundum við
úthlutun.
Útgerðarfélagið Nesver ehf. í eigu Ás-
björns Óttarssonar alþingismanns var
illa statt í árslok 2008. Það skuldaði bönk-
unum á annan milljarð króna og tapaði það
árið hátt í 600 milljónum króna með þeim
afleiðingum að skuldir urðu rúmlega 150
milljónum krónum meiri en eignir. Engu
að síður greiddi Ásbjörn sér 65 milljóna
króna arð út úr félaginu.
TÓK SÉR 65 MILLJÓNIR Í
ARÐ Í MIÐRI KREPPU
Þar sem Ásbjörn og Margrét voru
einu eigendur Nesvers
ehf árið 2008 voru þau
ein bær til þess að taka
ákvarðanir um arð-
greiðsluna, en hún nem-
ur 3.200 prósentum af
hlutafé félagsins.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Ólafsvík Ásbjörn sigraði í prófkjöri sjálf-
stæðismanna í Norðvesturkjördæmi í fyrra
og skipaði efsta sæti listans í kjördæminu
fyrir þingkosningarnar í lok apríl í fyrra.
Arður úr taprekstri Ásbjörn Óttarsson
ákvað að greiða sér og eiginkonu sinni 65
milljóna króna arð úr Nesveri þótt skuldir
félagsins væru langt umfram eignir.