Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Page 5
FRÉTTIR 20. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 5
Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavík-
ur, ÍTR, hefur fellt niður spurninga-
keppni grunnskólanna, Nema hvað?,
í ár sökum niðurskurðar. Grunnskóla-
nemendur eru ekki sáttir með þá
ákvörðun þar sem keppnislið sumra
skólanna hafa verið að æfa stíft fyrir
keppnina frá því í haust.
Nema hvað? er spurningakeppni
ÍTR fyrir unglingadeildir grunnskól-
anna í Reykjavík. Þriggja manna lið
keppir fyrir hönd hvers skóla um far-
andgripinn Mímisbrunn auk þess
sem sigurliðið fær bikar til eignar að
launum. Keppnin er útsláttarkeppni
þar sem meistarar hvers borgarhluta
komast í undanúrslitakeppnina. Lið
Foldaskóla sigraði í keppninni í fyrra
en í ár hefur spurningakeppnin verið
felld niður.
Vildu verja titilinn
Sólveig Vaka Eyþórsdóttir, fulltrúi
í Nemendafélagi Hagaskóla, seg-
ir nemendur og ekki síst meðlimi
keppnisliðs skólans hundfúla yfir
niðurfellingu spurningakeppninnar
í ár. Henni líst illa á að niðurskurður
borgarinnar bitni á ungmennum með
þessum hætti. „Við erum mjög ósátt
með þetta enda hefur liðið okkar ver-
ið að æfa frá því í haust. Við tökum
þessa keppni mjög alvarlega og því
eru keppendurnir ekki hrifnir. Okkur
hjá nemendaráðinu var tilkynnt þetta
nýlega og hérna eru allir brjálaðir
held ég,“ segir Sólveig Vaka.
„Þegar við tilkynnum þetta yfir
skólann býst ég við mikilli óánægju
meðal nemenda. Undir allar keppnir
undirbúum við okkur snemma. Það
var valið í liðið í haust og það hefur
verið að æfa síðan. ÍTR hefur lagt mik-
ið í þetta en það hafa skólarnir líka
gert. Við vorum orðin mjög spennt
fyrir keppninni enda ætluðum við að
ná aftur í titilinn.“
Mikið niðurbrot
Keppnislið Foldaskóla sigraði keppn-
ina í fyrra, liðið atti kappi við lið
Hagaskóla í úrslitaviðureigninni en
Hagskælingar sigruðu árið á und-
an. Davíð Örn Arnarsson, stuðn-
ingsfulltrúi í Foldaskóla, hefur hald-
ið utan um keppnisliðið og segir sitt
fólk brjálað yfir ákvörðuninni. Þegar
leitað hefur verið skýringa innan ÍTR
segir hann að þar á bæ bendi menn á
borgarráð. „Krakkarnir eru hundfúlir
því þetta er orðinn fastur liður í skóla-
starfinu og við höfum verið að byggja
upp mikla starfsemi í kringum þessa
keppni,“ segir Davíð Örn.
„Mér finnst því miður hægt að
draga úr bruðli hjá ÍTR í stað þess að
láta niðurskurðinn bitna á ungling-
unum. Þá finnst mér líka skrítið að
taka bara þessa keppni út en ræðu-
keppni og hæfileikakeppni haldið
inni. Þar fyrir utan var ekki haft neitt
samráð um þessa ákvörðun heldur
þessu bara skellt allt í einu á okkur.
Óánægjan hjá nemendunum er mjög
mikil enda hafa þeir verið að æfa í
marga mánuði.“
Sársaukafullt
Soffía Pálsdóttir, skrifstofustjóri tóm-
stundamála ÍTR, segir stöðuna ein-
faldlega þannig að skera þurfi niður
og keppnin hafi orðið fyrir valinu í ár.
Hún segir mun fleiri þátttakendur í
hæfileikakeppni grunnskólanna en
þessari og því hafi þeirri keppni verið
haldið inni. „Því miður þurftum við
að skera keppnina niður og hún fer
nú í biðstöðu. Keppnin er rosalega
skemmtileg og ákvörðunin er sárs-
aukafull. Eðlilega eru nemendurn-
ir sárir yfir þessu enda bárust svörin
of seint til þeirra. Það er allt í lagi að
gagnrýna okkur fyrir það,“ segir Soff-
ía.
„Við þurftum að draga saman segl-
in og vildum halda úti grunnþjónust-
unni. Okkur var hins vegar gert að
hagræða með ákveðnum hætti. Þegar
við stóðum frammi fyrir því að þurfa
kannski að loka félagsmiðstöðvum
og segja upp fólki eða leggja nið-
ur keppnina þá var þetta ekki mikill
valkostur fyrir okkur. Við höfum ekki
mikið kjöt eftir til að taka af beinun-
um. Fyrir nemendurna er það að
sjálfsögðu slæmt að keppnin falli nið-
ur og ef ég mætti ráða myndi ég vilja
halda allar keppnirnar. Við erum alls
ekki að skera niður með bros á vör.“
UNGLINGAR MISSA
SPURNINGAKEPPNI
Ákvörðun Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, ÍTR, um að fella niður spurninga-
keppni grunnskólanna í ár fellur í grýttan jarðveg hjá nemendum. Sum keppnisliðin
hafa verið við æfingar fyrir keppnina frá því í haust og taka keppnina mjög alvarlega.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Ósáttir keppendur Keppnislið
Foldaskóla sigraði í fyrra og eru nem-
endurnir hundfúlir yfir stöðunni í ár.
Fellt niður Þrátt fyrir langan undirbúning keppnisliða hefur ÍTR ákveðið að fella
niður spurningakeppni grunnskólanna í ár.
Erfiðir kostir Soffía segist hafa staðið frammi fyrir erfiðum möguleikum, að loka
félagsmiðstöðvum eða hætta við spurningakeppnina.
Mér finnst því miður hægt
að draga úr bruðli hjá
ÍTR í stað þess að láta
niðurskurðinn bitna á
unglingunum.
Geta borgað
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, gagnrýnir
harðlega linkind Alþýðusambands
Íslands. Samkvæmt kjarasamning-
um áttu laun að hækka 1. janúar
síðastliðinn en ASÍ samþykkti frest-
un þess til 1. júní næstkomandi.
Vilhjálmur gagnrýnir harðlega þessa
frestun.
Vilhjálmur telur fjölda fyrirtækja
hérlendis, einkum útflutningsfyr-
irtækin, hafa fjárhagslega burði til
að hækka launin og skilur ekkert í
því hvers vegna samið hafi verið um
frestun launahækkana. Hann bendir
á að fyrirtæki á Vesturlandi hafi nú
þegar staðið við hækkanirnar og
skorar hann á önnur fyrirtæki að
gera slíkt hið sama.
30 milljónir í
kvennastörf
Félags- og tryggingamálaráðu-
neytið ætlar að úthluta 30 millj-
ónum króna í styrki til atvinnu-
mála kvenna. Slík úthlutun fer
fram árlega og hefur nú ver-
ið auglýst eftir umsóknum um
styrki.
Hluti þess fjár sem verður út-
hlutað núna hefur verið eyrna-
merktur atvinnulausum konum
sem hafa góðar viðskiptahug-
myndir, þó er sett það skilyrði að
þær hafi sótt um styrk hjá Vinnu-
málastofnun til að þróa eigin við-
skiptahugmynd.
Lagafrumvarp
um siðareglur
Ríkisstjórnin samþykkti á þriðju-
dag frumvarp Jóhönnu Sigurð-
ardóttur forsætisráðherra um
lagalega umgjörð fyrir siðareglur
ráðherra og starfsmanna ríkis-
ins. Í frumvarpinu er lagt til að
fjármálaráðherra geti staðfest
almennar siðareglur fyrir ríkis-
starfsmenn en forsætisráðherra
siðareglur fyrir ráðherra, aðstoð-
armenn ráðherra og starfsmenn
stjórnarráðsins.
Sameinar stofnanir
Ragna Árnadóttir, dómsmála- og
mannréttindaráðherra, hefur ákveð-
ið að sameina starfsemi Þjóðskrár og
Fasteignaskrár Íslands eigi síðar en
um næstu áramót.
Ráðherra fól samráðshópi að
skoða hagkvæmni sameiningarinn-
ar. Það var sameiginleg tillaga hóps-
ins að sameina starfsemi Þjóðskrár
og Fasteignaskrár Íslands í eina
stofnun. Miðað er við að réttindi og
kjör starfsmanna haldist óbreytt við
þessa breytingu og að hin samein-
aða starfsemi verði í Borgartúni 21
þar sem Fasteignaskráin er til húsa.