Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Qupperneq 6
Fjöldi starfsmanna tölvudeildar Arion banka gaf yfirmanni sínum falleinkunn í nýlegri starfsmanna- könnun fyrirtækisins. Bankinn brást við með því að senda hina óánægðu starfsmenn í sálfræði- viðtöl en hinn óvinsæli yfirmaður slapp við slíka meðferð. Það eru undirmennirnir óánægðir með og hefur hópur óánægðra leitað til sviðsstjóra bankans vegna máls- ins. Fyrir um það bil tveimur mán- uðum var könnun framkvæmd og þegar búið var að vinna úr gögn- unum kom í ljós að yfirmaður tölvudeildar bankans, Hilmar Karlsson, fékk skell meðal undir- manna sinna. Stjórnendur bank- ans ákváðu að leysa málið með því að fá sálfræðing til liðs við sig og voru hinir óánægðu starfsmenn sendir í viðtal til sálfræðingsins. Hilmar þurfti ekki að fara í ráðgjöf til sálfræðingsins og við það geta undirmenn hans illa unað. Fyr- ir vikið var kvartað yfir úrvinnslu málsins til sviðsstjóra. Skrítin viðbrögð Svala Guðmundsdóttir, aðjunkt í mannauðsstjórnun við viðskipta- fræðideild Háskóla Íslands, er hissa á úrlausn málsins og telur það undarlegt að umræddur yfir- maður hafi ekki verið skikkaður í svipaða sálfræðiráðgjöf. Aðspurð segist hún skilja vel óánægju starfsmanna tölvudeildarinnar en tekur fram að hún hafi ekki kynnt sér þetta einstaka mál. „Eins og þetta hljómar þá kemur þetta frekar spánskt fyrir sjónir. Mér finnst þetta einkennileg aðferð til að leysa úr svona ágreiningi. Það sem þyrfti að gera er að greina gögnin mjög vel, sjá að hverju óánægjan beinist, og síðan vinna með báða hópana,“ segir Svala. „Í raun er það gott skref hjá bankanum að kalla til sálfræðing til ráðgjafar en hún á að beinast bæði að starfsmönnunum og yf- irmanninum. Að mínu mati á yf- irmaðurinn alls ekki að vera und- anskilinn sálfræðiráðgjöfinni. Vissulega skil ég vel óánægju undirmannana með þessa úr- vinnslu.“ Standa með stjórnandanum Karl Sigurðsson, forstöðumaður á vinnumálasviði Vinnumálastofn- unar, er sammála því að æskilegra hefði verið að veita öllum málsað- ilum ráðgjöf. „Persónulega finnst mér þessi aðferðafræði ekki góð. Mér finnst óskynsamlega úr mál- inu unnið því yfirmaðurinn ætti alls ekki að vera undanskilinn.“ Friðbert Traustason, fram- kvæmdastjóri Samtaka starfs- manna fjármálafyrirtækja, tekur í sama streng og skilur vel óánægju starfsmanna deildarinnar. „Mín reynsla er sú að nauðsynlegt sé að taka allan hópinn í ráðgjöf, fyrst einstaklingsviðtöl og síðan hópa- meðferð,“ segir Friðbert. „Ég hefði talað að yfirmaður- inn ætti að sjálfsögðu að fara líka í ráðgjöf því það er alveg ljóst að undirmennirnir eru ekki bara ómögulegir. Mér koma þessi við- brögð mjög á óvart því ég hefði búist við betri úrvinnslu. Því mið- ur er það stundum svo að stjórn- endur standa með öðrum stjórn- endum en því þyrfti að breyta.“ Starfsmaður sem DV ræddi við staðfesti atburðinn en vildi ekki koma fram undir nafni. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fengust hvorki svör frá Bryndísi Jóns- dóttur, starfsmannastjóra Arion banka, né Berghildi Erlu Bern- harðsdóttur, upplýsingafulltrúa Arion, við vinnslu fréttarinnar. 6 MIÐVIKUDAGUR 20. janúar 2010 FRÉTTIR ÓÁNÆGÐIR TIL SÁLFRÆÐINGS Því miður er það stundum svo að stjórnendur standa með öðrum stjórnendum en því þyrfti að breyta. Starfsmenn tölvudeildar Arion banka kvörtuðu yfir yfirmanni deildarinnar í starfsmannakönnun. Bankinn brást við með því að senda starfsmennina í viðtöl hjá sálfræðingi en það þurfti óvinsæli yfirmaðurinn ekki að gera. Hópur óánægðra hefur leitað til sviðsstjóra vegna málsins. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Sendir í ráðgjöf Starfsmenn tölvudeildar Arion voru sendir í sálfræðiviðtöl eftir að hafa kvartað undan yfirmanni deildarinnar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er að leggja lokahönd á rannsókn sem snýr að stórfelldum eignaspjöll- um Björns Mikaelssonar, fyrrver- andi íbúa í Hólmatúni 44 á Álftanesi. Hann reif íbúðarhús sitt með belta- gröfu eftir að Frjálsi fjárfestingar- bankinn hafði krafist útburðar og á nú yfir höfði sér sex ára fangelsi að hámarki. Það var á þjóðhátíðardaginn í fyrra, 17. júní, sem Björn reif hús- ið sitt með beltagröfu og gróf einnig BMW-bifreið sína í innkeyrslunni. Eftir atburðinn hefur hann búið er- lendis og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hefur það tafið rann- sóknina. Friðrik Björgvinsson, yfir- lögregluþjónn rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu, segir rannsókninni nú miða vel áfram og að málið verði fljót- lega sent til saksóknara. Aðspurður á hann fastlega von á ákæru í mál- inu fyrir stórfelld eignaspjöll og seg- ir hámarksrefsingu vera sex ára fang- elsi. „Málið er á lokasprettinum og á næstunni sendum við það frá okkur. Ég reikna frekar með ákæru í málinu þar sem brotið snýr að meiri háttar eignaspjöllum. Á þessum tímapunkti hafi verið allt annar eigandi að eign- inni,“ segir Friðrik. Sjálfur hefur Björn lýst því yfir að hann sjái ekki eftir niðurrifi hússins heldur hefði hann þvert á móti séð eftir því hefði hann ekki rifið hús- ið niður. Hann hafi einfaldlega ver- ið kominn í þrot og engrar aðstoðar verið að vænta frá fjármálafyrirtæk- inu. trausti@dv.is Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er að ljúka rannsókn á niðurrifi húss á Álftanesi: Húsbrjótur á leið til saksóknara Meiri háttar spjöll Björn reif húsið niður með beltagröfu og gæti átt yfir höfði sér sex ára fangelsi fyrir vikið. Kosið í byrjun mars Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur í samráði við landskjörstjórn ákveðið að þjóðaratkvæða- greiðsla skuli fara fram hinn 6. mars 2010 um Icesave-lögin sem Ólafur Ragnar Grímsson vísaði til þjóðarinnar í byrjun mánað- arins. Kosningarétt við þjóðarat- kvæðagreiðsluna hafa þeir kjós- endur sem hafa kosningarétt til Alþingis. Þjóðaratkvæðagreiðsl- an fer fram á sömu kjörstöðum og notast er við í almennum kosningum. Atkvæðagreiðsla utan kjör- fundar hefst 28. janúar, bæði innan lands og utan. Íslenskur læknir til Haítí Friðbjörn Sigurðsson læknir hélt á miðvikudagsmorgun til Haítí þar sem hann starfar með læknateymi þýska Rauða krossins í einn mánuð. Frið- björn vann á sjúkrahúsi á Haítí í tvo mánuði fyrir tæpum 20 árum. Friðbjörn fer með flugvél á vegum utanríkisráðuneytisins sem fer þangað til að sækja ís- lensku alþjóðabjörgunarsveit- ina. Hjálpargögn sem Alþjóða Rauði krossinn hefur sérstak- lega beðið Rauða kross Íslands um að útvega fara einnig með flugvélinni. Um er að ræða 1.000 skyndihjálparpakka sem sjálfboðaliðar Rauða krossins pökkuðu í gær, loftkælibúnað- ur fyrir skurðstofur, dísilraf- stöðvar og annar sjúkrabún- aður. Kviknaði í ísskáp Á miðvikudaginn í síðustu viku barst lögreglunni í Vestmanna- eyjum tilkynning um að reyk legði frá húsi í Búhamri. Reyndist þarna hafa kviknað í út frá ísskáp í bílskúr og lagði þó nokkurn reyk frá bílskúrnum. Slökkviliðið var kallað út og gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins sem reyndist ekki mikill. Eitthvert tjón hlaust hins veg- ar af hita, reyk og sóti. Slökkvi- liðið sá um að reykræsta bíl- skúrinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.