Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Síða 9
FRÉTTIR 20. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 9
Á innanhússpóstvef Háskóla Íslands lýsa kennarar ósætti vegna ráðningar Ástu Möller, fyrrverandi
þingkonu, sem forstöðumanns Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála. Efast er um faglegan grunn
hennar til að sinna rannsóknum og stjórnmálatengsl hennar eru gagnrýnd.
KVARTA YFIR RÁÐNINGU
Ráðning Ástu Möller, fráfarandi þing-
konu, sem forstöðumanns Stofnun-
ar stjórnsýslufræða og stjórnmála
við Háskóla Íslands, HÍ, hefur kom-
ið af stað deilum á innanhússpóstvef
skólans. Háskólakennarar gagnrýna
ráðninguna og segja það áhyggju-
efni hverslu lágar kröfur eru gerðar
við ráðningu forstöðumanna rann-
sóknastofnana háskólans.
Ásta hefur störf í vikunni sem for-
stöðumaður stofnunarinnar og mun
þá jafnframt hefja kennslu við stjórn-
málafræðideild Háskóla Íslands.
Hún hafði áður sinnt kennslu við
hjúkrunarfræðideild skólans en hún
lauk BS-námi í hjúkrunarfræði árið
1980 og meistaranámi í opinberri
stjórnsýslu við HÍ árið 2006. Hún var
þingmaður og varaþingmaður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í áratug og tengsl
hennar við stjórnmálin eru meðal
þeirra þrætuefna sem kennarar HÍ
kasta fram ásamt því að hún hafi tak-
markaða rannsóknareynslu á sviði
stofnunarinnar.
Fagleg gagnrýni
Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í fé-
lagsfræði við Háskóla Íslands, rit-
aði pistil inn á vefsvæðið þar sem
hann gagnrýndi takmarkaðar kröf-
ur skólans sem væru ekki til þess
fallnar að koma skólanum í fremstu
röð. Aðspurður viðurkennir hann
að ráðning Ástu hafi verið kveikj-
an að pistlinum. „Í sjálfu sér eru til-
efni pistilsins of mörg en þetta er
eitt þeirra. Háskólinn gerir of lágar
kröfur og ég tel eðlilegt að gerðar
séu meiri kröfur til forstöðumanna
stofnana. Í kringum okkur miða há-
skólar iðulega við doktorsmenntun
og rannsóknareynslu en það gerum
við ekki,“ segir Rúnar.
„Að gera aðeins kröfu um meist-
aranám er of lág krafa. Ráðning
Ástu er eitt af þeim dæmum sem
vakti mig til umhugsunar því við
höfum sett okkur þá stefnu að kom-
ast í röð 100 bestu háskóla heims.
Það krefst þess að við gerum okkur
strangar kröfur við svona ráðningar
og það verðum við að gera.“
Of reynslulítil og of pólitísk
Ólafur Páll Jónsson, dósent í heim-
speki á Menntavísindasviði Háskóla
Íslands, gagnrýnir ráðninguna og
þakkar Rúnari fyrir að hafa kom-
ið umræðunni af stað. Hann setur
út á reynsluleysi Ástu þegar kem-
ur að rannsóknum og veltir fyrir sér
of nánum tengslum við stjórnmál-
in. „Úr því að stofnunin er öðrum
þræði rannsóknarstofnun, þá hefði
ég haldið að nær væri að ráða mann-
eskju sem hefði reynslu af rannsókn-
arstarfi á þessum vettvangi en því er
ekki að dreifa hjá hinum nýráðna for-
stöðumanni ef marka má náms- og
starfsferil,“ segir Ólafur Páll og bæt-
ir við:
„Og úr því að viðfangsefni stofn-
unarinnar er öðrum þræði stjórn-
mál, þá hefði ég haldið að óheppilegt
væri að ráð jafnpólitíska manneskju í
þetta starf og hinn nýráðni forstöðu-
maður er.“
Sent beint
Rúnar segist hafa fengið jákvæð við-
brögð meðal samkennara við pistli
sínum en bendir á að þeir hafi nær
allir svarað honum persónulega í
stað þess að tjá sig inni á fjöldapóst-
vef kennaranna. Hann tekur und-
ir gagnrýni á pólitískan bakgrunn
Ástu. „Það orkar alltaf tvímælis þeg-
ar stjórnmálamenn eru ráðnir við
háskóla. Ásta Möller hefur ekki þá
rannsóknarþjálfun sem ég tel nauð-
synlega og heldur ekki doktors-
menntun. Kennarar undrast þetta og
ég hef fengið svarpósta til mín, alla
jákvæða um mín almennu sjónar-
mið. Þeir eru hins vegar allir til mín
persónulega en ég hefði kosið að við
ræddum þetta á vefnum,“ segir Rún-
ar.
Ásta segir efasemdir háskóla-
kennaranna koma flatt upp á sig og
telur faglegt mat hafa ráðið för við
ráðninguna þar sem hún hafi upp-
fyllt öll skyrði til starfsins. „Ég sótti
um starfið og faglegt mat lá til grund-
vallar ráðningunni. Ég hef mikla
reynslu úr opinberri stjórnsýslu og
tel þvert á móti heppilegt að hafa
langan pólitískan feril. Það tel ég
að hljóti að hafa verið talið mér til
tekna. Þar sem ég var ráðin uppfylli
ég greinilega kröfurnar og það eru
reglur háskólans sem þar ráða um,“
segir Ásta.
Fagleg
ráðning Ásta
segir faglegt
mat ráða för
enda hafi
hún uppfyllt
allar kröfur
samkvæmt
reglum
Háskóla
Íslands.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Þar sem ég var ráðin uppfylli ég
greinilega kröfurnar og
það eru reglur háskólans
sem þar ráða um.