Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Qupperneq 13
FRÉTTIR 20. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 13
Sjóvá-Almennar líftryggingar: Mikilvægasta skref
Milestone var kaupin á Sjóvá 2005. Kaupin lögðu
grunninn að Milestone-veldinu. Átti félagið þar til
síðasta sumar. Bótasjóður félagsins var veðsettur til
að fjármagna fjárfestingar úti í heimi. Ríkið þurfti að
leggja félaginu til 16 milljarða til að bjarga því frá
þroti. Viðskipti Milestone í Sjóvá eru til rannsóknar
hjá sérstökum saksóknara.
Banque Invik (Moderna AB):
Milestone keypti sænska bankann
Invik á 7,4 milljarða sænskra króna
í apríl 2007. Kaupverðið var u.þ.b.
fimmfalt yfirverð. Bankinn var síðar
skírður Moderna AB og átti hann að
verða stofninn í Milestone-veldinu
eftir flutning eigna þess til Svíþjóðar í
árslok 2007. Sænska fjármálaeftirlitið
var mótfallið flutningnum. Svo kom
hrunið.
Askar Capital: Fjárfestingabanki á
Íslandi sem ráðgert var að yrði einn
sá stærsti í Evrópu. Stofnaður í árslok
2006 og laut stjórn Tryggva Þórs
Herbertssonar. Fasteignaviðskipti
víða um heim voru stór þáttur í rekstri
bankans en einnig bílalán á Íslandi í
gegnum dótturfélagið Avant.
Þáttur International: Félagið hélt
utan um 7 prósenta hlut eigenda
Milestone og Einars og Benedikts
Sveinssona í Glitni. Félagið þurfti að
bjarga sér frá því í ársbyrjun 2008 að
missa bréf sín í Glitni eftir að veðkall
barst frá fjárfestingabankanum
Morgan Stanley. Þá var búið til félag
sem heitir Vafningur til að Þáttur gæti
haldið hlutnum. Þegar Glitnir féll var
ljóst að Milestone myndi falla.
Vafningur: Félag sem búið var til
vegna þess að Þátt International
vantaði eignir til veðsetningar til
að bjarga bréfum félagsins í Glitni.
Lúxusturninum í Makaó og breska
fjárfestingasjóðnum KCAJ var hent
inn í félagið til að hægt væri að
veðsetja lán frá Glitni til að greiða
Morgan Stanley.
Lyf og heilsa: Á myndina vantar lyfja-
verslanirnar Lyf og heilsu sem Milestone
átti í gegnum eignarhaldsfélagið L&H.
Lyfjaverslanirnar voru seldar út úr
Milestone og til félags í eigu Karls og
Steingríms Wernerssona þann 31. mars
2008 án þess neitt eigið fé væri greitt
fyrir þær. Skiptastjóri Milestone skoðar
nú hvort hægt sé að rifta viðskiptunum.
Milestone:
Dótturfélög: Tæplega 140
Eigendur: Karl og Steingrímur
Wernerssynir
Forstjóri: Guðmundur Ólason
Viðskipti: Vátryggingar, bankastarfsemi,
fasteignafjárfestingar, verslun með
eldsneyti ofl., ofl.
Staða: Gjaldþrota
Hápunktur: Kaupin á Sjóvá 2005
n Tæplega 140 eignarhaldsfélög í 21 landi voru í Milestone-samstæðunni
í október árið 2008. Samstæðan er líklega sú flóknasta í viðskiptasögu
Íslands og tók hún stöðugum breytingum eftir því sem fleiri og fleiri félög
voru stofnuð og teygði hún alltaf meira og meira úr sér.
n Samstæðan var með dótturfélög á Íslandi, í Svíþjóð, Lúxemborg, Hollandi,
Noregi, Írlandi, Makedóníu, Frakklandi, Gíbraltar, Jersey, Þýskalandi, Belgíu,
Máritíus, Bresku Jómfrúareyjum, Indlandi, Króatíu, Bretlandi, Tyrklandi,
Hong Kong, Rúmeníu og Ungverjalandi.
Vefur Milestone