Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2010, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 20. janúar 2010 FRÉTTIR
„Dauðaflugs“-flug-
stjóri framseldur
Spænskur dómstóll hefur úrskurð-
að að flugstjórinn Julio Alberto
Poch skuli framseldur til Argentínu
vegna meints hlutverks hans í „skít-
uga stríðinu“ í Argentínu í valdatíð
herforingjastjórnarinnar frá 1976 til
1983. Poch hefur verið í varðhaldi
á Spáni síðan hann var handtekinn
þar í síðasta mánuði.
Hann er eftirlýstur í Argentínu og
gefið að sök að hafa flogið flugvél-
um sem notaðar voru til að henda
andstæðingum stjórnarinnar í hafið.
Um 30.000 manns hurfu sporlaust
eða dóu í valdatíð herforingjastjórn-
arinnar.
Aðgerðir gegn
óhófsdrykkju
Innan nokkurra mánaða verður bör-
um og klúbbum á Bretlandi bannað
að viðhafa vinnubrögð sem geta
stuðlað að óhófsdrykkju. Ef vertar
auglýsa „Drekktu eins og þú vilt fyrir
10 pund“ eða „Ókeypis drykkir fyrir
konur undir 25 ára aldri“ geta þeir
átt yfir höfði sér allt að 20.000 punda
sekt eða allt að hálfs árs fangelsis-
vist.
Talið er að fyrirhugaðar hertar
reglur séu viðurkenning á að tilraun
Hazels Blear, fyrrverandi ráðherra,
um að innleiða „barmenningu meg-
inlandsins“ í Bretlandi, og leyfa að
vínveitingastaðir séu opnir allan sól-
arhringinn, hafi beðið skipbrot.
Smáskilaboð
leyfð á ný
Sex mánuðum eftir mannskæðar
þjóðernisróstur í Xinjiang-héraði í
Kína í júlí hafa þarlend stjórnvöld
heimilað sms-skilaboð á ný í hér-
aðinu. Samkvæmt Xinhua-frétta-
stofunni hefur smáskeytaþjónustu
smám saman verið komið á að nýju,
en á sínum tíma lokuðu kínversk
stjórnvöld á hana, að sögn til að við-
halda samfélagslegri ró á meðal Úí-
gúra og Han-Kínverja.
Um 200 manns létust í óeirðun-
um í júlí, sem að sögn kínverskra
embættismanna voru runnar undan
rifjum Úígúra.
Lengi hefur það orðspor loðað við Ít-
ali að þeir sleppi seint pilsfaldi móð-
ur sinnar. Ítalskir karlmenn hafa löng-
um verið taldir í meirihluta hvað þetta
varðar, en að ítalskar konur eigi þetta
til er ekki með öllu óþekkt.
Heima fyrir hefur ástrík móðir
nánast möglunarlaust séð um að þvo
óhrein föt og borið rjúkandi pasta
á borð fyrir afsprengin. Nú kann að
verða breyting þar á því nú hyggjast Ít-
alir skera upp herör gegn kynslóðum
mömmudrengja og -stúlkna, „bam-
boccioni“ og reyna að neyða þau til að
finna sér sína eigin leið út í heiminn.
Búið um rúm í 30 ár
Ráðherra í ítölsku stjórninni, Renato
Brunetta, krefst nú nýrra laga sem
myndu skylda Ítali til að yfirgefa
hreiður foreldranna við átján ára ald-
ur og með þeim hætti koma í veg fyr-
ir að þeir verði óeðlilega háðir foreldr-
unum.
Renato Brunetta hefur sjálfur við-
urkennt að móðir hans hafi búið um
rúmið hans þar til hann varð þrítug-
ur. En nú finnst honum sennilega nóg
komið og kornið sem fyllti mælinn
var dómsúrskurður sem kvað á um
að Gian carlo Casagranda, fráskyld-
um föður, væri skylt að greiða 350 evr-
ur, um 63.000 krónur, mánaðarlega til
framfærslu dóttur sinnar, Martinu 32
ára, sem hefur stundað nám í heim-
speki síðan 2002.
59 prósent á Hótel Mömmu
Samanborið við aðra Evrópubúa eru
Ítalir stórkostlega háðir foreldrum
sínum. Samkvæmt La Stampa búa um
59 prósent ítalskra karla og kvenna á
aldrinum 18 til 34 ára enn heima hjá
foreldrunum. Samkvæmt La Stampa
er hlutfall Breta í sömu sporum um
35 prósent, á Spáni er hlutfallið 10
prósent, 16,5 prósent í Þýskalandi og
23 prósent í Frakklandi. Meðaltalið
innan Evrópusambandsins er 29 pró-
sent.
Enn fremur sagði í La Stampa að
um fjórðungur Ítala sem býr í for-
eldrahúsum gerði það vegna þess að
þeir væru í námi, en helmingur segð-
ist gera það af „fjárhagslegum ástæð-
um“.
Renato Brunetta grunar hins veg-
ar að þægindin hafi mesta aðdráttar-
aflið og fjölda Ítala líki einfaldlega að
fá þvott sinn þveginn, mat á borðið,
að ekki sé talað um umbúið rúm, allt
í boði mömmu.
Ævilangur dómur
Í máli Giancarlos Casagranda komst
Spænskum lögfræðingi, Gaspar Lla-
ma zares, sem bandaríska alríkislög-
reglan FBI notaði mynd af til að sýna
hvernig Osama bin Laden liti hugsan-
lega út í dag er ekki skemmt. Á þriðju-
daginn hafnaði Llamazares afsökunar-
beiðni af hálfu alríkislögreglunnar og
krafðist þess að bandarísk stjórnvöld
rannsökuðu málið. Einnig spurði Gas-
par Llamazares, sem er flokksmaður
sameinaða vinstriflokksins Izguierda
Unida á Spáni, hvort alríkislögregla
Bandaríkjanna legði í vana sinn að
halda skrá um vinstrisinnaða stjórn-
málamenn í Bandaríkjunum, Evrópu,
Suður-Ameríku eða annars staðar.
„Afsakanir nægja ekki,“ sagði Gas-
par á fréttamannafundi eftir að sendi-
herra bandaríkjanna á Spáni gaf út af-
sökunarbeiðni á mánudaginn. Gaspar
krafðist ítarlegrar rannsóknar á þessu
„svívirðilega máli“ sem auk þess að
valda áhyggjum vekti upp spurningar
um hegðun starfsmanna FBI.
Alríkislögregla Bandaríkjanna not-
aði hluta ljósmyndar af Gaspar Lla-
mazares til að
búa til mynd af
Osama bin La-
den. Útkoman
var síðan notuð
á veggspjald yfir
eftirlýsta menn
á vefsíðu utan-
ríkisráðuneytis
Bandaríkjanna
ásamt loforði um
allt að 25 milljóna
Bandaríkjadala
verðlaun.
Samkvæmt upplýsingum frá
FBI hafði sérfræðingum stofnunar-
innar ekki tekist að finna andlits-
mynd sem nota mætti til verksins
og því notað ljósmynd sem þeir fundu
á netinu. Hin tilbúna mynd hefur nú
verið fjarlægð af vefsíðu utanríkisráðu-
neytis Bandaríkjanna.
Spænskum lögfræðingi hugnast ekki vinnubrögð FBI:
Fyrirgefur ekki FBI
Gaspar Llamazares
Kynningarmynd af
lögfræðingnum.
Afrakstur myndvinnslu
FBI Ekki er að undra að
Llamazares sé ekki skemmt.
ÍTALSKIR HEIMALNINGAR
Samkvæmt La Stampa búa um 59
prósent ítalskra karla og
kvenna á aldrinum 18 til
34 ára enn heima hjá for-
eldrunum.
Ítölskum ráðherra þykir tími til kominn að skera upp
herör gegn ítölskum heimalningum sem hanga í pilsfaldi
móður sinnar fram yfir þrítugt. Hann vill lög sem skylda
Ítali til að fljúga úr hreiðrinu við átján ára aldur.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is