Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 FRÉTTIR Vilja Jóhannes úr Bónus Fjórir af hverjum fimm landsmönn- um vilja ekki að Jóhannes Jónsson fái að kaupa allt að tíu prósenta hlut í Högum af Arion banka. Þetta kem- ur fram í nýrri skoðanakönun MMR. Því virðist sem fólk vilji Jóhannes í Bónus úr Bónus. 59 prósent eru mjög andvíg því að Jóhannes fái að kaupa hlutinn í Högum samkvæmt könnuninni og 21 prósent til viðbót- ar er því frekar andvígt. 13 prósent sögðust frekar fylgjandi því að Jó- hannes fengi að kaupa hlutinn og 7 prósent mjög fylgjandi. Baráttufundur í Sandgerði Fullt var út úr dyrum á fundi á Vitan- um í Sandgerði á mánudag þar sem fjallað var um helstu álitamál í ís- lenskum sjávarútvegi. Að sögn stað- arhaldara var um að ræða fjölmenn- asta fund sem haldinn hefur verið í húsakynnum Vitans. Í upphafi fundarins var Ásmundi Jóhannssyni, baráttumanni úr Sandgerði sem lést á dögunum, vottuð sérstök virðing. Mál hans átti að taka fyrir í héraðs- dómi í vikunni en honum voru gefn- ar að sök ólöglegar veiðar. Vann í Lottó Vinningshafarnir í Lottóinu síðasta laugardag skiluðu sér allir á mánu- dag til Íslenskrar getspár með vinn- ingsmiðana.  Fyrsti vinningshafinn keypti miðann í Olís við Sunda- garða og notaði reyndar vinning frá helginni á undan til að greiða fyrir miðann en þá hafði hann fengið 3 réttar tölur. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að þetta hafi verið ungur fjöl- skyldufaðir sem á tvö lítil börn og býr fjölskyldan í tveggja herbergja íbúð í höfuðborginni og voru þau farin að leita sér að stærra húsnæði. Skuldugur skila- nefndarmaður Fjögur félög Heimis V. Haralds- sonar, fulltrúa í skilanefnd Glitnis, skulduðu 1,2 milljarða króna í lok árs 2008, að mestu Landsbankan- um. Heimir hefur setið í skilanefnd bankans í sautján mánuði, eða frá falli bankanna. Heimi var fyrst boðið að setjast í skilanefnd Landsbank- ans en hafnaði því vegna hagsmuna- árekstra. Gunnar Andersen, forstjóri Fjár- málaeftirlitsins, sagði við Fréttablað- ið að staðan væri alvarleg en ekki er ljóst að hve miklu leyti Fjármálaeft- irlitið kannaði fjárhagslegar skuld- bindingar þeirra sem settust í skila- nefndir bankanna. Sigurður Kristinn Einarsson syrgir son sinn, Hörð Heimi laganema, sem lést aðfara- nótt sunnudags eftir að hafa örkumlast þegar ekið var á hann í fyrra. Hann segir son sinn á endanum hafa gefist upp á aðstæðum sínum. Erfitt hafi verið að horfa upp á líðan Harðar Heimis, sem átti bjarta framtíð fyrir sér þar til hann lamaðist. SYRGIR JÁKVÆÐAN OG DUGLEGAN SON „Þetta er búin að vera löng og erf- ið barátta. Það er engin spurn- ing að atburðurinn var hroðaleg- ur. Það hefur verið ofsalega erfitt að horfast í augu við þetta allan þennan tíma,“ segir Sigurður Krist- inn Einarsson, faðir Harðar Heimis Sigurðssonar laganema sem and- aðist um nýliðna helgi eftir að hafa örkumlast þegar ekið var á hann á Laugavegi í janúar í fyrra. Hann lést aðfaranótt sunnudagsins, 27 ára að aldri, á endurhæfingar- deildinni við Grensásveg þar sem hann hafði verið í líknarmeðferð. Ekið var á Hörð Heimi við gatnamót Vegamótastígs og Laugavegar laugardaginn 24. jan- úar í fyrra. Það var Jón Kristinn Ásgeirsson, sonur Ásgeirs Dav- íðssonar eiganda Goldfinger, sem ók á hann með þeim afleiðingum að Hörður Heimir hlaut alvarlega höfuðáverka. Hann var þá í meist- aranámi í lögfræði. Fyrir ákeyrsl- una, og önnur brot, var Jón Krist- inn dæmur í þriggja og hálfs árs fangelsi. Gafst upp „Hörður kom eiginlega aldrei til baka, ekki nema að hluta til í smá tíma síðasta sumar að svo miklu leyti sem hægt er að tala um bata. Við héldum auðvitað í vonina um að hann myndi vakna til lífsins. Síðan var eins og hann hefði átt- að sig á aðstæðum sínum og gafst hreinlega upp. Hann hætti að borða og hreyfa sig og ákvað þetta sjálfur. Fyrir okkur var rosalega erf- itt að geta ekkert hjálpað,“ segir Sigurður Kristinn. „Allir sem að umönnun hans komu reyndu allt sem hægt var og það var ofsalega vel um hann hugsað, það vantaði ekkert upp á það. Það var skelfilega erfitt að horfa upp á drenginn sinn svona því hann átti góða framtíð fyr- ir höndum sem hann hafði unn- ið hörðum höndum að. Hann var ofsalega duglegur, kappsamur og jákvæður strákur. Að sjá hann síð- an svona var auðvitað mikið áfall.“ Ekki tekið upp Einar Laxness, lögfræðingur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu, útilokar möguleikann á því að framhaldsákæra verði gefin út í ljósi fráfalls Harðar Heimis. „Mál- ið breytist ekkert og ákæruvaldið getur ekki tekið það upp út frá nýj- um sökum. Réttaráhrifin eru kom- in fram og málinu er lokið,“ segir Einar. Sigríður Friðjónsdóttir vararík- issaksóknari tekur í sama streng og segir útilokað að málið verði tekið upp á nýjan leik. „Um þetta saka- refni er dómurinn endanlegur og ég sé ekki neina leið til að taka upp málið þó að afleiðingarnar hafi í rauninni orðið þessar. Það voru gefnar út viðbótarákærur fram að því að dómur féll en þarna er kom- inn endanlegur dómur. Ég get ekki séð neina heimild til að breyta því,“ segir Sigríður. Kveikti í húsi Jón Kristinn Ásgeirsson, sem ók á Hörð, var sem fyrr segir dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir at- hæfið. Í dómnum yfir Jóni Kristni kemur fram að hann hafi verið ölv- aður þegar hann ók á Hörð sem var að skemmta sér ásamt vinum sínum í miðbænum þegar Hum- mer-bifreið kom aðvífandi á mikl- um hraða. Jón Kristinn stakk af frá vettvangi, en atvikið náðist á myndband. Hann var handtekinn skömmu seinna. Aðeins nokkrir mánuðir liðu þar til hann framdi sitt næsta brot. Í júní í fyrra kveikti Jón Kristinn í félagi við tvo aðra menn í húsi við Kleppsveg, en talið er að íkveikj- an hafi tengst handrukkun. Þeim var gefið að sök að hafa hellt bens- íni úr bensínbrúsa á útidyrahurð íbúðarhússins á horni Langholts- vegar og Kleppsvegar snemma á laugardagsmorgni og borið eld að. Einn vitorðsmaður hans, sem ók bílnum um morguninn, reynd- ist vera undir áhrifum amfetam- íns. Fyrir að valda Herði örkuml- um var Jón Kristinn dæmdur til að greiða um 2 milljónir í skaða- bætur. Ólýsanlegt Hörður Heimir verður jarðsunginn í næstu viku. Sigurður Kristinn á von á því að sorgin hellist yfir fjöl- skyldu og vini næstu daga. „Nú lít- ur málið öðruvísi út þegar strákur- inn minn er dáinn. Við höfum rétt á að fara í einkamál og munum við skoða það. Það er búið að dæma viðkomandi til fangelsisvistar og því verður ekki breytt,“ segir Sig- urður Kristinn „Það er varla hægt að lýsa því hvernig það er að missa son sinn með þessum hætti. Eiginlega erum við ekki búin að gera okkur grein fyrir þessu enn þá því við höfum verið að berjast fyrir því að hann komi til baka. Nú þegar við horf- umst í augu við það að hann er farinn á ég von á því að sorgin og söknuðurinn hellist yfir.“ TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Það var skelfi-lega erfitt að horfa upp á drenginn sinn svona því hann átti góða framtíð fyr- ir höndum sem hann hafði unnið hörðum höndum að. Hann var ofsalega duglegur, kappsamur og jákvæð- ur strákur. Laugavegur Jón Kristinn Ásgeirsson ók bifreið á Hörð Heimi Sigurðsson laganema í janúar í fyrra við gatnamót Vegamótastígs og Laugavegar. Hörður Heimir Sigurðsson Örkumlaðist þegar ekið var á hann í janúar á síðasta ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.