Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Page 7
FRÉTTIR 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 7 TÖPUÐU 42 MILLJÖRÐUM Eignarhaldsfélag Pálma Haralds- sonar og Jóhannessonar Kristins- sonar, Fons, tapaði tæplega 42 millj- örðum króna árið 2008. Árið áður hafði félagið skilað tæplega 4,7 millj- arða hagnaði og voru 4,4 milljarðar greiddir út sem arður til móðurfé- lags Fons, Matthews Holding í Lúx- emborg, fyrir árið 2006. Þetta kem- ur fram í ársreikningi Fons fyrir árið 2008 sem skilað var til ársreikninga- skrár ríkisskattstjóra þann 10. febrú- ar síðastliðinn. Þrotabú Fons skoðar nú hvort hægt sé að rifta greiðslu arðsins og verður stefna þess efnis gegn Pálma og Jóhannesi þingfest fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur á fimmtudag, ásamt um tíu öðrum stefnum. Stöð 2 greindi frá því fyrir nokkrum dög- um að Fons hefði fengið lán fyrir arð- greiðslunni hjá Landsbankanum. Kröfur í þrotabú Fons nema um 40 milljörðum króna og er ætlunin með stefnum þrotabúsins að ná um 9 milljörðum króna til baka fyrir kröfu- hafa Fons. Eignir þrotabús Fons duga hvergi nærri fyrir skuldunum. Enginn arður var hins vegar greiddur til hluthafa Fons fyrir árið 2007 samkvæmt ársreikningnum 2008. Ekki búið að ganga frá samstæðu uppgjöri Fons Heimildir DV herma að eitt af því sem þykir athugavert við greiðslu Fons á 4,4 milljarða arðinum er að ekki hafi verið búið að ganga frá samstæðuuppgjöri Fons þeg- ar arðurinn var greiddur út úr félaginu. Arðurinn mun meðal annars hafa komið vegna hagn- aðar frá breska eignarhaldsfélag- inu Corporal Limited sem hélt utan um 35 prósenta hlut Fons í bresku leikfangaversluninni Hamleys - Baugur átti 65 prósent í Corporal og Hamleys. Corporal var því dótturfélag Fons. Fyrrverandi forstjóri Fons, Pétur Már Halldórsson, sem sat í stjórn Corporal og situr enn eftir því sem næst verður komist, og Gunn- ar Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Baugs í Bretlandi, gerði það sömu- leiðis, líkt og greint var frá í fréttum á síðastliðnu ári. Fyrri eigendur Fons og Baugs hafa hins vegar misst yfir- ráð yfir félaginu þar sem þau félög bæði eru gjaldþrota. Stærsti hluti Fonsarðsins mun þó hafa komið frá Iceland-versl- anakeðjunni bresku, sem Fons var hluthafi í ásamt Baugi, líkt og Stöð 2 greindi sömuleiðis frá fyrir nokkrum dög- um. Arðgreiðslurnar frá þessum dótt- urfélögum Fons, Corporal og Ice- land munu svo hafa verið not- aðar til að greiða Lands- bankanum lánið til baka, samkvæmt heimildum DV. Andstætt góðri rekstrarvenju Heimildir DV herma að þar sem ekki hafi verið búið að ganga frá sam- stæðuuppgjöri Fons, uppgjöri móð- urfélagsins og allra dótturfélaga fé- lagsins, þegar arðurinn var greiddur út árið 2007 hafi arðgreiðslan ver- ið andstæð góðri rekstrarvenju. Í ákvæði hlutafélagalaga er kveðið á um að jafnvel þó að skilyrði séu til staðar fyrir arðgreiðslu innan sam- stæðu þá megi ekki gera það ef það er andstætt góðri rekstrarvenju. „Það er meðal annars þetta sem er verið að skoða,“ segir heimildar- maður DV sem þekkir vel til starf- semi Fons. Eitt af vand- málunum við arðgreiðslu Fons er að það þykir, líkt og gefur að skilja, skjóta skökku við að rúmlega 4,4 milljarð- ar króna hafi verið teknir út úr félagi sem tapar 42 millj- örðum á rúmu ári þar á eftir og skilur eftir sig 40 milljarða króna skuldir. Riftunarmálið vegna arðgreiðsl- unnar út úr Fons mun vera það fyrsta af þessu tagi sem höfð- að er hér á landi. Fons tapaði tæpum 42 milljörðum króna árið 2008. Árið 2007 greiddu eigendur Fons sér 4,4 milljarða í arð fyrir árið 2006. Skiptastjóri þrotabús Fons vill að arðgreiðslunni verði rift. Það er meðal annars þetta sem er verið að skoða ... INGI F. VILHJÁLMSSON blaðamaður skrifar ingi@dv.is Andstætt góðri rekstrarvenju 4,4 milljarða arðgreiðsla Fons fyrir árið 2006 er hugsanlega riftanleg þar sem hún hafi verið andstæð góðri rekstrarvenju. Átti félögin með Pálma Jón Ásgeir var hluthafi í félögunum tveimur með Pálma en arðgreiðslan út úr Fons fyrir árið 2006 var vegna góðs gengis þeirra félaga. Swopper vinnustóllinn • Bylting fyrir bakið • Styrkir magavöðvana • Frelsi í hreyfingum • Ánægja við leik og störf • Fæst í ýmsum litum www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 OXYTARM Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar DETOX 30days& Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is. Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman -120 töflu skammtur -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.