Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 FRÉTTIR
87 fangar af Litla-Hrauni hafa látið
lífið á síðustu sex árum, hvort sem
þeir hafa verið á leið í afplánun, setið
inni eða höfðu lokið afplánun. Þetta
er niðurstaða forsvarsmanna Stoða,
hagsmunafélags aðstandenda fanga,
sem hafa
fylgst með andláti félaga sinna frá 1.
janúar 2004. Tölurnar sýna að nærri
fimmtán fangar látast ár hvert.
Hlutfall þeirra fanga sem láta lífið
er í kringum 10 prósent heildarinn-
ar ár hvert og niðurstöður fanganna
gefa til kynna að endurkomuhlutfall á
Litla-Hraun sé yfir 80 prósent. Rann-
sóknaraðferð fanganna byggist á því
að þeir töldu andlátin út frá birtum
dánartilkynningum í fjölmiðlum og
skráðu hjá sér látna félaga sína sem
setið hafa inni á Litla-Hrauni. Hinir
látnu hafa flestir ýmist svipt sig lífi eða
látist af völdum of stórra skammta af
eiturlyfjum eftir að hafa annaðhvort
sótt aftur í slæman félagsskap eða
ekki séð aðra leið út úr ógöngum sín-
um en þá að fremja sjálfsmorð.
Gefast upp
Séra Hreinn Hákonarson, fanga-
prestur Þjóðkirkjunnar á Litla-
Hrauni, segir óreglu fanganna helsta
óvin þeirra. „Ég tel ekki ástæðu til að
efast um þessar tölur. Ef valið stend-
ur á milli þess að gera eitthvað til
að bæta úr eða þess að fangar haldi
áfram að láta lífið er augljóst mál að
eitthvað verður að gera. Í sumum til-
vikum leita fangarnir til mín og ég
skynja á sálarlífi þeirra að þeir kvíða
erfiðleikunum þegar út í samfélagið
er komið,“ segir Hreinn.
Matthías Halldórsson aðstoð-
arlandlæknir segir ljóst að
bæta þurfi við meðferðarúr-
ræðum í fangelsin. Hann
segir fjárskort fangelsanna
vera hluta vandans. „Inn í
fangelsin vantar mun fleiri
meðferðarúrræði en boðið er upp á
í dag þó að þau hafi verið aukin upp
á síðkastið. Vandinn snýr hins vegar
ekki bara að því að veita mönnum
meðferðarúrræði heldur þarf einn-
ig að bæta aðstæður þeirra að öðru
leyti. Ég tel hiklaust skorta hjálp
þegar fangar hafa lokið afplánun
þannig að þeir nái sér betur á strik.
Eðli málsins samkvæmt geta fangar
verið illa settir í samfélaginu, marg-
ir þeirra eru mikið skuldugir og jafn-
vel ekki með mikið bakland þegar út
er komið. Það þarf að hjálpa föngum
að lokinni afplánun þannig að þeirra
bíði ekki aðeins þeir tveir valkostir,
að sækja aftur í slæman félagsskap
eða svipta sig lífi,“ segir Matthías.
Mikil neyð
Tölur fanganna sýna að hinir látnu
fangar af Litla-Hrauni voru á bil-
inu 17 til 50 ára. Þór Óliver Gunn-
laugsson fangi hefur sjálfur reynt
sjálfsvíg og segir minningarathafn-
ir haldnar í fangelsinu um látna fé-
laga. „Í hvert skipti sem félagi okk-
ar fer minnumst við hans og tölum
um hann. Sá yngsti sem ég man eft-
ir var 17 ára. Ég man vel eftir ein-
um ungum vini mínum. Hann kom
hingað inn 18 ára með ársfangelsi á
herðunum. Fljótlega eftir að hann
fór út hengdi hann sig í kirkjugarði.
87 FALLNIR FANGAR
Nærri hundrað fangar hafa látið lífið
á undanförnum árum. Fangar á Litla-
Hrauni hafa fylgst með dánartilkynning-
um um fallna félaga sína og hafa komist
að því að á síðustu sex árum hefur nær
níundi hver fangi látið lífið á meðan beðið
var afplánunar, í fangelsi eða að lokinni
afplánun. Talning fanganna sýnir að
nærri fimmtán fangar látast ár hvert.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Hræðilega sorgmædd
„Það er svo erfitt að missa barnið sitt.
Það er eitthvað sem ekkert foreldri ætti
að þurfa að upplifa,“ segir Ásthildur
Cecil Þórðardóttir, garðyrkjustjóri á Ísa-
firði. Síðastliðið haust fylgdi hún syni
sínum til grafar en hann lést eftir að hafa
tekið inn of stóran lyfjaskammt.
Einn af fylgifiskum fíkniefnaneysl-
unnar eru tíð afbrot og Júlíus var inn og
út úr fangelsum í gegnum tíðina. Ást-
hildur segir alfarið skorta samhæfingu
í kerfið þar sem fíkniefnaneytendum sé
sýnd of mikil harka. „Málið er bara það
að kerfið lítur á fíklana sem ekki bara
annars flokks heldur fimmta flokks. Að-
ferðafræðin er alveg kolröng þar sem
kerfið sýnir alltof mikla hörku. Koma
þarf á fót lokaðri meðferðardeild, með
fólki sem hjálpar fíklunum að komast út
úr þessu, og dæma menn þangað inn í
staðinn fyrir í fangelsið,“ segir Ásthildur.
„Það þýðir ekki lengur að hugsa
þannig að slíkt gangi ekki því fíklarn-
ir vilji ekki hjálpa sér sjálfir. Ég veit að
sonur minn vildi svo sannarlega hætta
en hann gat það bara ekki sjálfur. Það
versta sem ég upplifði var þegar litli
ræfillinn minn var búinn að rífa sig upp
og svo sá maður hvernig kerfið slökkti
þennan neista bara strax, með alls kon-
ar bréfum sem rifu hann niður aftur.
Fangelsismálastofnun þarf einfaldlega
að fara í endurhæfingu og hugsa alfar-
ið sinn gang. Kerfið fær sko ekki mína
bestu einkunn, ef kerfið hefði verið til
staðar fyrir hann ætti samfélagið nú
stórkostlegan listamann í drengnum
mínum. Ég er alveg klár á því. Í staðinn
sit ég uppi með það að hafa þurft að setja
drenginn minn ofan í jörðina. Þannig
að ég var þarna bara að fálma út í loft-
ið eftir aðstoð en fékk alls enga. Úrræð-
in voru bara ekki til og enga aðstoð að fá
fyrir foreldra fíkla. Ég hef hjá mér fallega
mynd af fallegum dreng sem átti í veru-
legum vandræðum með fíknina. Ég er
rosalega tóm. Söknuðurinn er svo mik-
ill. Þetta er rosalega erfitt, eiginlega al-
veg ólýsanlega erfitt. Sorgin er bara svo
mikil og ég er hræðilega sorgmædd. Ég
hefði svo mikið viljað hafa hann lengur
hjá mér.“
JÚLÍUS
KRISTJÁN
THOMASSEN
Fæddur 8. júlí
1969
Dáinn 28.
september 2009
Meira en fólk
áttar sig á
Steinar Jónsson, fósturfaðir Hilmars Más Gíslason-
ar, sem ríflega tvítugur svipti sig lífi á Litla-Hrauni
19. ágúst 2007, var í viðtali við DV skömmu eftir
lát Hilmars Más. Hann saknar umræðu um andlát
fanga hér á landi og þær erfiðu aðstæður sem fangar
búa við. „Sonur okkar er
einn þeirra sem hafa lát-
ið lífið í afplánun. Fjöldi
þeirra fanga sem svipta
sig lífi eða látast með öðr-
um hætti er miklu meiri
heldur en fólk almennt
gerir sér grein fyrir. Í
fyrstu geta svona tölur
virkað ótrúlegar en þetta
er því miður stað-
reyndin. Þessum töl-
um hefur oft verið
haldið leyndum því
ég held að þetta sé
meira en fólk veit. Það er alls ekki alltaf þannig að
mennirnir láti lífið innan veggja fangelsanna heldur
gerist þetta líka utan þeirra. Þó að fangar séu bún-
ir að ljúka afplánun standa þeir áfram frammi fyr-
ir vandamálum sínum og þeir þurfa hjálp. Miðað
við tölur látinna virðast þeir þurfa hjálpina en síð-
an getur verið að þessi hópur manna sé of stoltur til
að sækja sér hana. Það er því miður allt of lítið rætt
um þessi mál því það gefur augaleið að þessi andlát
fanga koma of sjaldan upp á yfirborðið.“
Foreldrarnir, Ásta K. Vilhjálmsdóttir og
Guðmundur Guðjónsson, syrgja son
sinn, Guðjón Björgvin Guðmundsson,
sem svipti sig lífi í dönsku fangelsi 23.
september 2007, þá rúmlega þrítug-
ur. Í viðtali við DV skömmu eftir and-
látið sögðu þau framkomu íslenskra
og danskra fangelsismálayfirvalda í
garð sonar þeirra hafa verið
verri en framkomu við skepn-
ur. „Við myndum aldrei koma
svona fram við skepnur, það
yrði aldrei gert. Það hefði sam-
stundis verið kært til dýra-
verndunarsamtaka. Sonur minn þurfti á hjálp að halda,
sem hann fékk hvorki hér heima né í Danmörku. Þegar ég
hugsa til baka og fer yfir bréfið sem hann sendi okkur mán-
uði áður en hann fyrirfór sér, sé ég miklu gleggra hvað hann
var orðinn vonlaus á þeim tímapunkti. Ég þarf ekki annað
en skoða rithöndina til að sjá það, hún var orðin eins og rit-
hönd gamalmennis,“ sagði Guðmundur í viðtali við DV. Ásta
sagði í sama viðtali erfitt að rifja upp sögu sonar síns í ljósi
þess að ekki reyndist unnt að hjálpa honum. Hún segir hann
ávallt hafa komið vel fram við alla. „Það var alveg hræði-
legt að upplifa það að fá tíðindin af sonarmissinum. Hann
glímdi við þunglyndi og var sviptur lyfjum sínum í einangr-
un. Það er algjör hryllingur að gera þetta svona. Guðjón var
mjög glaðlyndur, góðhjartaður og hjálplegur. Þannig minn-
umst við hans. Guðjón var virkilega vel gefinn strákur og
menntaður og hann var búinn að halda sig frá eiturefnum í
tæp fjögur ár. Við börðumst alla leið og trúðum því ávallt að
hann gæti einhvern veginn rifið sig upp úr þessu,“ segir Ásta.
Fékk enga hjálp
GUÐJÓN BJÖRGVIN
GUÐMUNDSSON
Fæddur 7. ágúst 1975
Dáinn 23. september 2007
HILMAR MÁR GÍSLASON
Fæddur 16. nóvember 1985
Dáinn 19. ágúst 2007
Mér líður nátt-úrulega hrika-
lega illa með það að ár
eftir ár þurfi maður að
sjá á eftir góðum vinum
sínum í gröfina.
Hjálpina skortir Matthías segir ljóst að mikið
skorti á aðstoð við fanga að lokinni afplánun.