Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 FRÉTTIR
„Við sjáum núna ljósið í myrkrinu,“
segir Valur Magnússon. DV fjallaði um
mál Vals og brasilískrar konu hans,
Thais Marques de Freitas, þann 12.
febrúar en þau hjónin hafa lifað í mikl-
um ótta að undanförnu þar sem tveir
fjölskyldumeðlimir fá ekki framlengt
dvalarleyfi hér á landi. Útlendinga-
stofnun hefur ekki viljað veita leyfin
því tekjur Vals þóttu of lágar.
Eftir að greinin birtist virðast þó
hafa liðkast verulega til í máli Vals og
Thais sem búa í Bolungarvík. Útlend-
ingastofnun hefur samþykkt að barna-
bæturnar sem Valur hefur þegið síðan
börn þeirra hjóna fæddust nægi til við-
bótar launatekjum hans til að uppfylla
skilyrði stofnunarinnar um lágmarks-
framfærslu.
Í langan tíma leit út fyrir að Thais
og dóttir hennar úr fyrra sambandi,
Leticia, yrðu að yfirgefa Ísland sem
hefði stíað fjölskyldunni í sundur.
Nú hafa málin færst til betri vegar og
þakkar fjölskyldan það umfjöllun DV.
Hafa gengið í gegnum áföll
Valur og Thais eiga tvö börn saman,
þá Magnús Guðjón og Ara. Auk þess
eiga Valur og Thais hvort sína dóttur-
ina úr fyrri samböndum. Fjölskyldan
býr í Bolungarvík en þar á Valur stór-
an ættgarð. Hann vinnur í fiskvinnslu
í bænum og er Thais heimavinnandi,
en vandræði við dvalarleyfisumsóknir
hafa þar fyrir utan gert atvinnumögu-
leika hennar mjög slæma. Þau hafa lif-
að í ótta og óvissu vegna leyfismála hjá
Útlendingastofnun í þó nokkurn tíma,
eða síðan þau fluttu frá Noregi í árslok
2007.
Þá settu veikindi drengjanna strik
í reikninginn þegar þeir komu í heim-
inn. Magnús fæddist með skarð í vör
og annað lungað sprakk í Ara þeg-
ar það fylltist af vatni við fæðingu í
keisaraskurði. Var Ara þá vart hug-
að líf. Báðir hafa þó dafnað bráð-
vel síðan. Það hefur því ýmislegt
gengið á hjá fjölskyldunni.
Greinin liðkaði fyrir
Heimilisfaðirinn segist loksins sjá
ljósið í myrkrinu því útlit er fyrir
að Thais og Leticiu verði leyft að
vera. Hann segir að eftir greina-
skrif DV hafi mikil bjartsýni ríkt hjá
fjölskyldunni því að viðræður við
Útlendingastofnun gangi nú mun
betur en áður. „Við sjáum núna
ljósið í myrkrinu. Það er að birta til
hjá okkur og við sjáum fyrir end-
ann. Við fáum að vera saman hér í
Bolungarvík. Eins og þeir tala núna
hefur mikið liðkast til í þessu og ég
get ekki neitað því að greinaskrif DV
hafi hjálpað til,“ segir Valur.
Útlendingastofnun hefur fett
fingur út í tekjur Vals sem þóttu ekki
nægja sem lágmarksframfærsla fyr-
ir fjölskylduna. Nú munu starfsmenn
stofnunarinnar hafa ákveðið að sam-
þykkja að barnabæturnar sem Val-
ur þiggur nægi ofan á laun hans til að
uppfylla skilyrðin.
Stefnir á sjóinn
Valur hefur unnið í slægingu hjá fisk-
vinnslustöð í nokkurn tíma. Hann
væntir þess nú að fara á sjóinn í byrjun
apríl með föður sínum. „Við feðgarnir
ætlum að róa á grásleppu. Þá förum
við hjá Óshlíð og upp eftir Stigahlíð-
inni. Báturinn er ekki stærri en svo að
við komumst ekki lengra. Svo gæti ver-
ið að við færum á strandveiðar í sum-
ar,“ segir Valur sem segist hafa ágæt tök
á að framfleyta fjölskyldunni.
Lengi leit út fyrir að nýr kostnaðar-
liður bættist við. Vegabréf Thais renn-
ur út í september og höfðu hjónin tal-
ið að þau þyrftu að ferðast til sendiráðs
Brasilíu í Ósló til að fá nýtt vegabréf.
Nú hefur komið í ljós að ræðismað-
ur Brasilíu á Íslandi getur líklega séð
um að útvega Thais vegabréf. „Það
væri ódýrara fyrir okkur að fara suður
til Reykjavíkur en alla leið til Noregs,“
segir Valur.
Óvissan vond fyrir börnin
Nú lítur allt út fyrir að Thais og Leti-
cia fái dvalarleyfi til fjögurra mánaða
til að byrja með, þangað til þær verða
komnar með ný vegabréf. Eftir það ætti
að verða auðveldara að sækja um leyfi
til lengri tíma í senn. Leticia sækir nám
í grunnskólanum í Bolungarvík. Það er
mat Vals að slæmt hefði verið að rífa
hana upp úr náminu sem hún hefur
aðlagast að undanförnu. „Óvissa um
framtíðina er ekki holl fyrir krakka,“
segir hann.
„Ef Thais og Leticia hefðu verið
reknar úr landi hefðum við drengirn-
ir tveir fylgt þeim,“ segir Valur. „En það
hefði samt stíað fjölskyldunni í sund-
ur því að ég á eina dóttur úr fyrra sam-
bandi á Íslandi, Lóu Rakel.“
Valur Magnússon segir að um-
fjöllun DV hafi vakið mikla athygli og
furðu, bæði í Bolungarvík og á Ísafirði,
þar sem hann á marga ættingja. „Fólk
trúði ekki að yfirvöld gætu stíað okkur í
sundur og talaði mikið um þetta. Ég er
hins vegar feiminn að eðlisfari og hélt
mig heima þegar blaðið var nýútkom-
ið,“ segir hann að lokum.
Sjá ljósið í myrkrinu Útlit er fyrir
að íslensk-brasilíska fjölskyldan á
Holtabrún í Bolungarvík fái að búa hér
á landi. MYND HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON/BB
Fjölskyldan í Bolungarvík sem DV ræddi við fyrir tveimur vikum óttaðist að Útlendinga-
stofnun stíaði henni í sundur. Valur Magnússon og Thais Marques de Freitas, frá Bras-
ilíu, eru nú bjartsýnni og segja umfjöllun blaðsins hafa liðkað fyrir meðferð máls þeirra.
„VIÐ FÁUM AÐ
VERA SAMAN“
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
16 föstudagur 12. febrúar 2010
fréttir
Mikil óvissa ríkir hjá ungri fjölskyldu
í Bolungarvík því líkur eru á að tveir
fjölskyldumeðlimir fái ekki fram-
lengt dvalarleyfi og verði sendir úr
landi.
Hjónin Valur Magnússon og
Thais Marques de Freitas búa á Bol-
ungarvík. Þau eiga tvo drengi sam-
an, Magnús Guðjón, 3 ára, og Ara, 1
árs. Þá á Thais 9 ára dóttur, Leticiu,
úr fyrra sambandi sem stundar nám
í Grunnskóla Bolungarvíkur. Thais
er frá Brasilíu en flutti til Noregs fyrir
fjórum árum síðan þegar hún kynnt-
ist Vali.
Fjölskyldan bíður nú eftir úr-
skurði Útlendingastofnunar um
framlengingu á dvalarleyfi Thais og
Leticiu. Verði þeim hafnað um dval-
arleyfi mun öll fjölskyldan neyðast til
að flytjast úr landi.
Valur segir í samtali við DV að
meginástæðan fyrir vandræðum
mæðgnanna í beiðni þeirra um dval-
arleyfi sé að laun hans séu ekki næg,
að mati stofnunarinnar. Laun Vals
eru ekki talin nægja til að sjá fyrir
fjölskyldunni.
Kynntust í Noregi
Valur flutti til Noregs árið 2002. „Ég
ætlaði að vera í Noregi í sex mánuði
en var í tæp sex ár.“ Þar vann hann
hjá ferjufyrirtækinu Color Line í Lar-
vik, suður af Ósló. „Það er fyrirtæki
sem heldur úti ferjum á milli Norð-
urlandanna og Þýskalands. Ég vann
í fríhafnarbúðinni á ferjunni.“
Bróðir Vals bjó líka í Noregi á
þessum tíma og hafði kynnst bras-
ilískri konu. Árið 2005 kom systir
mágkonu Vals í heimsókn til Noregs.
Skemmst er frá því að segja að ástir
tókust á milli Vals og mágkonunnar,
Thais. Thais fór svo aftur til Brasilíu
en ekki leið á löngu þar til hún sneri
aftur til Noregs og í fang Vals. „Þá var
komið í ljós að hún var ólétt. Svo hún
varð eftir hjá mér og við giftum okk-
ur.“ Dóttir Thais, Leticia kom með og
hún hefur búið með þeim síðan þá.
Valur á tvo bræður, annar á brasil-
íska konu, sem fyrr segir og hinn á
taílenska eiginkonu.
Í Noregi fæddist Vali og Thais
sonurinn Magnús Guðjón. Hann
fæddist með skarð í vör og þurfti að
dvelja löngum stundum á norskum
sjúkrahúsum.
Friðsælt í Bolungarvík
Fyrst þegar þau komu til landsins í
desember 2007 dvöldu þau í Æðey
í Ísafjarðardjúpi þar sem foreldrar
Vals hafa dvalið undanfarin ár. „Við
vorum með þeim yfir jólin þar. En
fluttum svo til Bolungarvíkur og höf-
um verið hér síðan.“ Aðspurður segir
Valur að mikil viðbrigði hafi fylgt því
fyrir Thais að flytja í lítið sjávarþorp
á Íslandi. „Thais fannst kalt í Bolung-
arvík fyrst þegar hún kom og auðvit-
að fann hún fyrir smæðinni.“
En Valur segir að þeim hjónun-
um líki vel að eiga lítil börn á stað
eins og Bolungarvík. Það sé gjörólíkt
því sem Thais þekkir frá heimahög-
unum. Hún er frá höfuðborg Bras-
ilíu sem er samnefnd þessu stærsta
og fjölmennasta landi Suður-Am-
eríku. Í borginni Brasíliu er mikið
um glæpi eins og í öðrum stórborg-
um landsins. Rán og ofbeldi gagn-
vart börnum hefur færst í vöxt. Thais
segir foreldra helst þurfa að víggirða
garða, þar sem börn eru að leik, með
háum veggjum. „Börnin fara út í
garðinn hjá okkur og við höfum auga
með þeim,“ segir Valur um lífið í Bol-
ungarvík.
Fýluferðir suður
Eins og áður sagði fluttist fjölskyldan
til Bolungarvíkur í upphafi árs 2008.
Ljóst var að Thais og Leticia þyrftu á
dvalarleyfi hjá íslenskum yfirvöld-
um að halda ættu þær að setjast að
á landinu. „Það var þá sem ævin-
týrið með Útlendingastofnun byrj-
aði. Við fórum suður til Reykjavík-
ur, sem kostaði auðvitað sitt. En það
var fýluferð því við vorum ekki með
alla pappírana sem við töldum okk-
ur hafa. Svoleiðis gekk málið í hálft
ár, því okkur gekk illa að fá gögnin
sem vantaði að utan,“ segir Valur.
Við umsókn um dvalarleyfi þurfa út-
lendingar að leggja fram gögn á borð
við sakarvottorð, fæðingarvottorð og
vegabréf sem gildir í ákveðinn tíma
umfram umsóknartímann.
„Við vorum búin að fara þrívegis
suður í höfuðborgina með tilheyr-
andi kostnaði þegar ég gafst ég upp
á þessu. Ég bað systur mína að fara
með pappírana fyrir mig, en hún er
búsett fyrir sunnan. En þá brjálaðist
konan í afgreiðslunni á stofnuninni.
Og minntist svo á að það væri hægt
að skila gögnunum til sýslumanns í
viðkomandi sveitarfélagi,“ segir Val-
ur. „Þetta var hálfu ári eftir fyrstu
ferðina suður. Það er miklu ódýrara
fyrir okkur að rölta hérna niður eft-
ir til sýslumanns í stað þess að fara
með alla fjölskylduna til Reykjavík-
ur.“
Umsóknarferlið tók að lokum
enda þegar Thais og Leticia fengu
dvalarleyfi á Íslandi til eins árs.
Sprengdi annað lungað
Á meðan á öllu þessu stóð hafði
Thais orðið ófrísk á ný, bar Ara und-
ir belti en hann fæddist í septem-
ber 2008. „Ari fæddist með keisara-
skurði. En vatn varð eftir í lungunum
á honum. Honum lá svo á að losa
sig við það að hann sprengdi annað
lungað.“ segir Valur. Ari var fluttur
með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar
sem hann gekkst undir tilheyrandi
aðgerðir. „Læknarnir sögðu, þeg-
ar þeir útskrifuðu Ara af gjörgæslu-
deild, að honum hafi eiginlega ekki
verið hugað líf á leiðinni suður. Við
höfum gengið í gegnum ýmislegt,“
segir Valur en bætir við að börnun-
um heilsist vel í dag.
Hefur ekki nægar tekjur
Dvalarleyfi Thais rann út fyrir
nokkrum mánuðum og sem stend-
ur er umsókn um nýtt leyfi í vinnslu.
Alls óvíst er hvort leyfið fáist því
fjölskyldan uppfyllir ekki skilyrði
umsóknar að mati Útlendingastofn-
unar. Fjölskyldan lifir því í miklum
ótta og óvissu.
„Á öllum bréfunum frá Útlend-
ingastofnun stendur að ég hafi ekki
nægt fjárhagslegt bolmagn til að
framfleyta fimm manna fjölskyldu,“
segir Valur. Hann vinnur við slæg-
ingu í fiskvinnslustöð í Bolungar-
vík. Þar hefur aflinn ekki verið mikill
undanfarið sem meðal annars út-
skýrir lágar tekjur Vals. Hins vegar
segir hann að tekjurnar dugi alveg
fyrir fjölskyldunni. „Barnaverndar-
yfirvöld eða skólayfirvöld hafa ekki
kvartað yfir heimilishaldinu og upp-
eldinu hjá okkur. Þannig að einhvern
veginn nær maður að framfleyta sér
á þessum litlu launum sem mað-
ur hefur,“ segir Valur en hann telur
óréttlátt að tekjur fólks skipti máli í
umsóknum hjá Útlendingastofnun.
Íslendingum vísað úr landi
Til að ljúka núverandi ferli þarf lík-
lega að endurnýja vegabréf Thais,
en til þess þarf að leita til brasilíska
sendiráðsins í Ósló. Sem hefði mik-
inn kostnað í för með sér. Umsókn
um þriggja ára dvalarleyfi Thais og
Leticiu veltur nú á þessum þáttum.
Það sem vegur þyngst eru þó lágar
tekjur Vals. Á næstu dögum mun
koma í ljós hvort mæðgunum verð-
ur leyft að búa á Íslandi. Valur seg-
ir að verði umsókninni neitað muni
fjölskyldan öll neyðast til að flýja af
landi brott. „Ef okkur verður synj-
að um dvalarleyfi er í raun verið að
vísa þremur íslenskum ríkisborg-
urum úr landi,“ segir Valur og á þá
við drengina sína tvo og sjálfan sig.
„Við myndum auðvitað fylgja þeim.“
Ung fjölskylda í Bolungarvík hefu
r
gengið í gegnum miklar raunir. Þa
u
eiga nú á hættu að vera splundrað þa
r
sem tveir fjölskyldumeðlimir fá ekk
i
framlengt dvalarleyfið hér á land
i.
Annað barn hjónanna fæddist me
ð
skarð í vör og dvaldi á sjúkrahúsum
.
Tekjur fjölskylduföðurins eru ekk
i
nægilega háar og þar með eru skilyrð
i
Útlendingastofnunar í uppnámi.
GÆTU ORÐIÐ BROTTRÆK
Helgi HraFN guðmuNdSSoN
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Ef okkur verður synjað um dval-
arleyfi er í raun verið að
vísa þremur íslenskum
ríkisborgurum úr landi.
Valur, Thais, magnús og ari Fjölskyld-
an á Holtabrún í Bolungarvík býr við
mikla óvissu vegna útlendingalaga.
mYNd Halldór SVeiNBjörNSSoN/BB
erfið staða „Við höfum gengið í gegnum ými
slegt.“
Magnús og Ari fæddust báðir veikir. Nú rík
ir óvissa um
framtíð fjölskyldunnar. mYNd Halldór SVeiNBjö
rNSSoN/BB
Eins og þeir tala núna hefur mikið
liðkast til í þessu og ég get
ekki neitað því að greina-
skrif DV hafi hjálpað til.
Þrjú stuðtæki
á Flateyri
Í mánudagsblaði DV var fjallað um
að það hefði komið viðbragðsfull-
trúum á Flateyri á óvart að hjarta-
stuðtæki vantaði á stærsta vinnustað
bæjarins, fiskvinnsluna Eyrarodda.
Þar var tækið áður og eftir því sem
DV kemst næst var það fært til við-
gerðar af fyrri rekstraraðila á heilsu-
gæslustöð bæjarins. Til viðbótar eru
tvö önnur hjartastuðtæki á Flateyri
og því um þrjú tæki að ræða í bæn-
um.
Ósammála Jóhönnu
Einar Kristinn Guðfinnsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, segir
þingmenn eiga
að hafa skoðan-
ir á því hvernig
þjóðfélaginu sé
stillt upp. Gerir
Einar Kristinn
þetta að umtals-
efni á heimasíðu
sinni eftir um-
mæli Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra á
Viðskiptaþingi. Hún sagði að stjórn-
málamenn ættu ekki að hafa bein
afskipti af fjármalakerfinu. „Stjórn-
málamenn eiga að hafa skoðun á því
hvort hér þróist samfélag, þar sem
stærsta smásölukeðjan ráði líka lög-
um og lofum á fjölmiðlamarkaðn-
um,“ skrifar Einar.
Hundasýning
í Víðidal
Um helgina má búast við að um 870
hreinræktaðir hundar af 88 hunda-
kynjum komi saman á hundasýn-
ingu Hundaræktarfélags Íslands,
sem fram fer í Reiðhöllinni í Víðidal.
Sýningar félagsins hafa stækkað ár
frá ári og segja aðstandendur sýn-
ingarinnar að það endurspegli mik-
inn áhuga Íslendinga á hundum og
hreinræktun þeirra.
Megintilgangur hundasýninga
er að meta hundana út frá ræktun-
armarkmiði hvers kyns og leiðbeina
ræktendum þannig í starfi sínu.
Í bága við lög um
persónuvernd
Ómar Stefánsson, formaður bæj-
arráðs í Kópavogi, gæti hafa brotið
persónuverndarlög með því að segja
frá því á bloggi sínu að dætur og
tengdasynir Gunnars I. Birgissonar,
fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs,
séu flokksbundin í Framsóknar-
flokknum. Segir í 2. grein, 8. lið a. í
persónuverndarlögum að til við-
kvæmra persónuupplýsinga teljist
upplýsingar um uppruna, litarhátt,
kynþátt, stjórnmálaskoðanir, svo og
trúar- eða aðrar lífsskoðanir. „Ég er
búinn að fá símtal þar sem ég var
beðinn um að skoða þetta,“ segir
Ómar í samtali við DV.
12. f brúar 2010.