Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Qupperneq 12
MIKILL MUNUR
Á BLU-RAY
Svokallaðir Blu-Ray-spilarar
kosta á bilinu 49.900 til 199.995
krónur samkvæmt verðkönnun
Neytendasamtakanna. Blu-Ray
er nýjasta kynslóð DVD-diska;
þeir líta eins út en geta inni-
haldið margfalt meira gagna-
magn en hefðbundnir DVD-
diskar. Alls reyndust fjórtán
mismunandi Blu-Ray-spilarar
vera til í þeim verslunum sem
athugaðar voru en enginn spil-
aranna var með upptökumögu-
leika. Könnunina geta meðlimir
Neytendasamtakanna skoðað á
vefsíðu samtakanna.
n Lastið fær klæðskera-
stofan Ateljé Sari.
Viðskiptavinur þurfti
að láta breyta flík og
átti breytingin að kosta
3.800 krónur. Hann fékk svo
símtal þar sem honum var sagt
að aðgerðin kostaði 1.000 krónur
í viðbót. Þegar hann maldaði í
móinn var honum sagt að
fyrirtækið óskaði ekki eftir frekari
viðskiptum
við hann;
hann gæti sótt
flíkina.
n Lofið fær Bónus fyrir að selja humar
á ágætu verði. Blaðamaður hugðist
kaupa humar fyrir síðustu helgi og
fór í Krónuna og Bónus til að
bera saman verð. Lægsta
kílóverðið í Krónunni var
liðlega 4.000 krónur en í Bónus
var hægt að kaupa humar á um
3.300 krónur kílóið, þó
að umbúðirnar væru
klárlega síðri.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 201,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 197,9 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 202,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 199,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 199,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 196,9 kr.
BENSÍN
Bolungarvík VERÐ Á LÍTRA 192,5 kr. VERÐ Á LÍTRA 189,2 kr.
Bolungarvík VERÐ Á LÍTRA 192,7 kr. VERÐ Á LÍTRA 190,4 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 204,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 201,9 kr.
UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / ney tendur@dv.is
el
d
sn
ey
ti
Hermann Gunnarsson, forstjóri N1, segir síðustu bensínhækkanir óhjákvæmilegar:
„ÞETTA ER HÖRMUNGARÁSTAND“
Meðalbílstjóri, sem ekur 18 þús-
und kílómetra á ári á bíl sem eyð-
ir 10 lítrum á hundraðið, getur gert
ráð fyrir því að þurfa að borga nærri
370 þúsund krónur í bensín á þessu
ári. Bensínið fór í fyrsta sinn yfir
200 krónur þegar N1 tilkynnti um
fimm króna hækkun á bensín- og
dísilolíu lítranum á mánudaginn.
Lítrinn kostar nú 204,20 krónur. Að
fylla einn 50 lítra tank kostar því
10.200 krónur.
Hermann Gunnarsson, forstjóri
N1, sagði í samtali við DV að hækk-
unin væri óhjákvæmileg. „Við vor-
um búnir að bíða í tæpa viku eft-
ir að olíuverð lækkaði eða krónan
styrktist. Það gerðist bara ekki og því
þurftum við að hækka,“ sagði hann
og benti á að tonnið af bensíni hefði
hækkað um meira en 100 dollara á
undanförnum tveimur vikum. Doll-
arinn hafi auk þess verið að styrkj-
ast. Hann hafi farið úr 122 krón-
um í 129. „Nú er verðið 204 krónur
12 MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 NEYTENDUR
ÓDÝRAST Á
VESTFJÖRÐUM
Bensínverð er nú lægst á Vest-
fjörðum. Hjá Orkunni kostar
lítr inn 192,5 krónur í Bolungar-
vík, Súðavík og á Ísafriði. Hjá ÓB
kostar lítrinn 0,2 krónum meira
á þessum stöðum. Á höfuð-
borgarsvæðinu er hvergi hægt
að kaupa einn lítra af bensíni á
undir 200 krónum. Eins og fram
kemur hér á opnunni reið N1 á
vaðið og hækkaði verðið um 5
krónur á mánudaginn, eftir að
hafa „haldið í sér“ dögum sam-
an. Í kjölfarið kepptust sam-
keppnisaðilar N1 við að hækka
verðið yfir 200 krónur.
N1 reið á vaðið Bensínið
kostar í fyrsta sinn meira
en 200 krónur lítrinn.
SVONA SKALTU VELJA ÁVEXTI
VATNSMELÓNUR
n Góð og nægjanlega þroskuð melóna gefur aðeins eftir þegar þrýst
er á endana, sérstaklega þeim megin sem hún hefur hangið.
Ef melónan er glerhörð þá er hún óþroskuð og ekki
eins bragðgóð. Einnig má heyra hvort melóna er
fullþroskuð með því að banka laust í skelina. Ef
hljómurinn er holur þá er melónan tilbúin
til átu.
Besti árstími: Svipaðar allt árið en
spænsku melónurnar (þær sem koma
á sumrin) þykja bestar.
GULAR MELÓNUR
n Lyktaðu af gulri melónu þeim megin sem hún
var slitin af. Ef melónulyktin er greinileg þá er hún
tilbúin til átu. Ef engin lykt finnst þá er hún ekki
nógu þroskuð.
Besti árstími: Svipaðar allt árið en spænsku
melónurnar (þær sem koma á snemma á sumrin)
þykja bestar.
FERSKJUR OG NEKTARÍNUR
n Ferskjur geymast skemur en nektarínur og eru mjög viðkvæmar.
Uppskeran er á sumrin og það er besti tíminn til að flytja þær inn; á
meðan þær eru nýjar. Ferskjur eru þó fáanlegar allt árið á Íslandi en eru
mjög misjafnar að gæðum yfir vetrartímann. Ferskleiki ferskjanna sést á
því hvort hýðið er krumpað eða ekki.
Besti árstími: Sumar og haust.
APPELSÍNUR
n Appelsínur, klementínur og mandarínur eru
súrastar í byrjun vetrar þegar þær byrja að koma frá
Spáni (október eða nóvember) og svo snemma á
sumrin (maí, júní) þegar þær koma frá Suður-Afríku
og Argentínu. Þumalputtareglan er samt sú að eftir
því sem „naflinn“ er stærri því sætari er ávöxtur-
inn. Veljið stinnar appelsínur en brúnir blettir á
appelsínum eru oft til marks um gæði. Enn fremur
er appelsínan safarík ef hún er þyngri en hún lítur
út fyrir að vera. Appelsínur má geyma í ísskáp svo
vikum skiptir en hendið þeim strax ef þær eru
farnar að skemmast.
Besti árstími: Síðla vetrar eða seint á sumrin, þá
eru þær sætastar.
GREIP
n Greip er til í fjölmörgum
afbrigðum og er yfirleitt hægt að
miða við það að greipávöxturinn er
sætari eftir því sem kjötið er rauðara.
Veljið greip sem virkar þungt
miðað við stærð, hýðið er misþykkt
eftir afbrigðum og ætti að vera þétt.
Hægt að geyma greip í ísskáp en það
mun ekki þroskast meira, þrátt fyrir
góðan ásetning þinn. Ávextirnir með
þynnsta hýðinu eru safaríkastir.
PERUR
n Þreyfið á perunni við stilkinn. Ef
hún er mjúk þá er hún mjög
þroskuð en ef hún er græn
og mjög stinn þá er gott
að geyma hana aðeins
við stofuhita. Smáar
perur þroskast
hraðar, en perur
sem fást úti
í búð eru
yfirleitt lítið
þroskaðar.
Hefur þú keypt fullan poka af girnilegum ávöxtum sem reyndust
síðan meira og minna óætir þegar heim var komið? DV leitaði
til þekkingarfyrirtækisins Matís og til Banana ehf., eins stærsta
innflutningsfyrirtækis landsins, og fékk upplýsingar um það
hvernig velja skuli bestu ávextina. baldur@dv.is