Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 FRÉTTIR Þar sem óttinn ríkir Innanhússkönnun frá Downing- stræti númer 10, bústað forsætisráð- herra Bretlands, leiðir í ljós að flestir opinberir starfsmenn sem vinna hjá forsætisráðherranum Gordon Brown óttast að lýsa óánægju með þá starfs- hætti sem þar eru tíðkaðir. Á vefsíðu breska dagblaðsins The Times segir að þrátt fyrir opinbera fullyrðingu um afdráttarlausa stefnu gegn tuddaskap sýni innanhúss- könnunin, sem tók til starfsmanna skrifstofu forsætisráðherra, að þriðj- ungur starfsfólks vill losna og sex pró- sent vilja hætta „eins fljótt og auðið er“. Innan við helmingur starfsfólks- ins treysti sér til að tjá sig um málið. Handtökur vegna valdaránsáforma Tyrkneska lögreglan handtók fyrrver- andi yfirmenn sjó- og flughers lands- ins ásamt nokkrum öðrum háttsett- um foringjum úr röðum hersins á mánudag. Handtökurnar voru liður í aðgerðum gegn yfirmönnum sem tengdust áformum um að koma ríkis- stjórn landsins frá völdum. Hugmyndin að valdaráninu fæddist í kringum 2002 til 2003 og fékk áætlunin heitið Slaghamar. Upp komst um áformin í fyrra mánuði. Talið er að handtökurnar geti varðað tímamót í sögu lýðræðis í Tyrklandi þar sem fjórum fyrri ríkisstjórnum hefur verið bolað frá völdum af her- num en aldrei hefur verið réttað yfir nokkrum manni af þeim sökum. Leitað í húsi Mladics Serbneska lögreglan réðst til inngöngu í hús í eigu fjölskyldu Ratkos Mladics, yfirmanns hers Bosníu- Serba í Bosníustríðinu á síð- asta áratug síðustu aldar. Fjöldi grímuklæddra lögreglu- manna stóð vörð um húsið, sem er í úthverfi Belgrad, á meðan að leit fór fram í því. Samkvæmt fréttum í þarlendum fjölmiðlum var sonur Mladics, Darko, viðstaddur meðan á leitinni stóð, en um 70.000 evrur, rúmlega 12 milljónir, fundust í hús- inu. Ratko Mladic hefur farið huldu höfði eftir að Bosníustríðinu lauk og er eftirlýstur vegna ákæra um þjóðar- morð. Serbneskum yfirvöldum hefur verið gert ljóst að aðild landsins að Evrópusambandinu sé háð því að Mladic verði handtekinn. Breska olíu- og gaskönnunarfyrirtæk- ið Desire Petroleum er að byrja að bora undan ströndum Falklandseyja og talið nokkuð víst að spenna á milli Breta og Argentínumanna muni auk- ast verulega fyrir vikið. Í yfirlýsingu frá Desire Petroleum til kauphallarinnar í Lundúnum sagði að borpallurinn Ocean Guardian hefði hafið vinnu við borun tilraunaholu um 100 kílómetra norður af Falklandseyj- um. Fyrirtækið telur að þar geti verið að finna 3,5 milljarða tunna af olíu og að auki möguleika á gasi. Nú hafa vonir um mögulegan hagnað af olíu og gasi blásið nýju lífi í glóð langvarandi deilu á milli Bret- lands og Argentínu um eignarhald yfir eyjunum og í gær undirritaði for- seti Argentínu, Cristina Fernandez de Kirchner, tilskipun þess eðlis að allar skipaferðir frá Argentínu til Falklands- eyja séu háðar leyfi frá hinu opinbera. Eyjarnar, sem ganga undir nafninu Las Malvinas í Argentínu, eru í Suður- Atlantshafi undan strönd Argentínu og hafa verið undir breskum yfirráð- um síðan árið 1833. Argentínumenn hafa ávallt haldið fram yfirráðum yfir eyjunum og gengu svo langt árið 1982 að gera innrás á eyjarnar. Argentínu- menn höfðu ekki erindi sem erfiði en yfir sex hundruð Argentínumenn og 255 Bretar fórust í stríðinu sem fylgdi innrásinni. Um 2.500 manns búa á Falklands- eyjum og hefur breski herinn aðsetur á eyjunum sem eru breskt sjálfstjórn- arsvæði. Talsmaður Desire Petroleum sagði að fyrirtækið legði fyrst og fremst áherslu á borun á svæðinu og ekki ætti að líta á þá framkvæmd sem yf- irlýsingu hvað varðaði stjórnmálaleg málefni. Þess má geta að verð á hluta- bréfum í Desire Petroleum hækkaði í kjölfar tilkynningar þess til kauphall- arinnar í Lundúnum. Tilraunaboranir norður af Falklandseyjum í óþökk Argentínumanna: Fyrirheit um olíu auka á spennu Dæmigerður olíu- og gasborpallur Tilrauna- borun er hafin norður af Falklandseyjum. Stjórnvöld í Íran virðast hafa fært stað- festu sína til að vernda fullveldi lands- ins upp á hærra stig, nánar tiltekið upp í algenga flughæð farþegaflugvéla. Íranska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að héðan í frá verði hverju því flugfé- lagi sem vísar til hafsvæðisins á milli Írans og Arabalandanna sem Arabíska flóans, í stað Persaflóans, meinuð för um íranskt loftrými. Talið er að viðvörun íranskra stjórnvalda sé fyrst og fremst beint gegn flugfélögum nágrannalandanna og hefur, samkvæmt írönsku dagblaði, erlendum starfsmanni íransks flug- félags verið refsað fyrir að uppnefna „Persaflóann“. Samkvæmt dagblaðinu var um að ræða grískan starfsmann Kish-flugfélagsins og hafði hann sett „Arabíski flóinn“ en ekki „Persaflóinn“ á tilkynningatöflu. Viðkvæmt mál Hamid Behbahani, samgönguráð- herra Írans, varaði flugfélög landa við suðurhluta flóans við því að gera sömu mistök og hinn óheppni gríski starfs- maður. „Að öðrum kosti verður þeim úthýst úr írönsku loftrými í einn mán- uð fyrir fyrsta skipti og við endurtekn- ingu verða flugvélar kyrrsettar í Íran og flugleyfi til Írans afturkallað,“ sagði Hamid Behbahani Flóinn hefur löngum verið við- kvæmt mál í þeim löndum sem liggja að honum: Sádi-Arabíu, Kúveit, Katar, Barein, Óman, Írak, Íran og Samein- uðu arabísku furstadæmunum. Í fyrra mánuði tilkynnti Sameinaða íslamska íþróttasambandið, sem hefur höfuð- stöðvar í Sádi-Arabíu, um þá ákvörð- un þess að kasta fyrir róða íslömsku leikunum sem áttu að fara fram í Íran í apríl. Ástæðan er deila landanna um hvort flóinn er arabískur eða persnesk- ur. Íranir segja að flóinn sé persnesk- ur og Arabaþjóðirnar segja hann ar- abískan og því geta aðrar þjóðir notað flóann til að særa eða móðga Írani eða Arabaþjóðirnar, eða látið það vera með því að kalla hann eingöngu „Flóann“. Sagan endalausa En það kemur fleira til í ósætti Írans og Arabaþjóðanna, og reyndar Írans og alþjóðasamfélagsins og það er vafstur Írana við auðgun úrans. Einhver Ar- abaríkjanna við Flóann, sem sum hver kaupa vopn frá Bandaríkjunum í stór- um stíl, og bjóða bandaríska hernum aðstöðu, deila áhyggjum ráðamanna í Washington af því að Íranir vinni að framleiðslu kjarnorkuvopna. Deilan um kjarnorkuáætlun Írans hefur staðið lengi yfir og þarlendir ráðamenn segja að áformin miði ein- göngu að því að framleiða rafmagn. Engu að síður hefur kjarnorkuáætlun Írans farið fyrir brjóstið á ríkisstjórn- um súnní-múslíma, sem hugnast ekki heldur möguleg útþenslustefna Írans í Mið-Austurlöndum. Þrátt fyrir að Íran virðist sem ey- land fer því þó fjarri því Íranir eiga bandamenn í Sýrlandi, sjía-múslíma sem eru við völd í Írak, Hisbolla-sam- tökin í Líbanon og Hamas-samtökin sem fara með völdin á Gaza. Enginn bilbugur Vesturlönd hafa til langs tíma litið hornauga vinnu Írana í kjarnorku- málum og hafa Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra unnið að hertum refsiaðgerðum gegn þeim vegna kjarn- orkuáætlunar þeirra, sem talin er miða að framleiðslu kjarorkuvopna. Á þriðjudaginn varaði Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, við því að Íran muni „höggva hendurnar af“ hverjum þeim sem ræðst á landið. „Ekkert getur skaðað Íran ... Íranska þjóðin mun höggva hendurnar af handleggjum allra árásaraðila hvaðan sem þeir koma,“ sagði Íransforseti. Ráðamenn í Íran hafa ávallt for- dæmt nærveru herja Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í nágrannaríkj- unum og ráðamenn í Bandaríkjunum og Ísrael hafa ekki útilokað að grípa til vopna gegn Íran vegna kjarnorku- málsins. Flóinn sem liggur á milli Írans og Arabíuskagans hefur löng- um verið viðkvæmt málefni þjóðanna sem liggja að hon- um og Íranir segja að hann heiti Persaflói og Araba- þjóðirnar nefna hann Arabíska flóann. KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Flóinn á milli Írans og Arabíuskagans Er þekktur sem Persaflói í sögulegu samhengi. Flugvél frá Gulf Air Flugfélögum nágrannalanda Írans er hollast að fara rétt með nafn Persaflóa. MILLIRÍKJADEILA UM HEITIÐ Á PERSAFLÓA Íranska þjóð-in mun höggva hendurnar af handleggj- um allra árásaraðila…

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.