Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2010, Blaðsíða 25
Norski skíðagöngukappinn Pett- er Northug náði loksins í gull á Ólympíu leikunum þegar hann og félagi hans, Oeystein Pettersen, sigr- uðu í liðakeppni í sprettgöngu karla með frjálsri aðferð. Ólympíuleikarn- ir höfðu verið fram að því mikil von- brigði fyrir þetta þjóðarstolt Norð- manna en Northug sem er langbesti skíðagöngukappi heims hefur ekki átt góða leika. Fyrir Ólympíuleikana var Nort- hug kosinn vinsælasti maðurinn í Noregi, hann er þrefaldur heims- meistari í skíðagöngu frá því í fyrra en skíaðgangan er gífurlega stórt sport þar í landi. Mikil pressa var á honum fyrir leikana í Kanada að landa í það minnsta tvennum gull- verðlaunum en hann stóð ekki undir pressunni. Northug varð 41. í 15 kíló- metra göngunni, grein sem búist var við að hann gæti unnið með bundið fyrir augun. Hann varð svo ellefti í 30 km eltigöngunni eftir að hafa brot- ið annan stafinn sinn í árekstri við annan mann en náði í brons í sprett- göngunni. „Mig langaði í þetta gull,“ sagði Northug þreyttur eftir gönguna. Hann kláraði lokasprettinn með glæsibrag, gjörsamlega stakk Þjóð- verjann Teichmann af á síðustu metrunum. „Mér hefur gengið svona upp og ofan hérna þannig að það var virkilega sætt að hirða þessi gull- verðlaun,“ sagði Northug. „Ég ætlaði mér einfaldlega að vinna þessa keppni. Ég var svo brjál- aður eftir eltigönguna að það kom ekkert annað til greina. Oeystein gekk alveg frábærlega á næstsíðasta sprettinum og kom mér í góða stöðu fyrir síðasta sprettinn. Þetta heppn- aðist fullkomlega hjá okkur og ég gæti ekki verið ánægðari,“ sagði Pett- er Northug sem leiðir heimsbikarinn í skíðagöngu karla. tomas@dv.is HM-MIÐAR EKKI Á ÚTSÖLU Meira af Alþjóðaknatt- spyrnusambandinu, FIFA, en þar er nóg að gera þessa dagana og verður alveg fram að HM í sumar. Sögur hafa gengið að FIFA ætli að sjá til þess með öllum ráðum og dáðum að mótið í Suður-Afríku heppnist hvað sem það kostar. Hefur verið greint frá því að sambandið muni selja miða á út- sölu þegar nær dregur mótinu til þess að tryggja að allir vellir verði fullir á öllum leikjum. „Það kemur ekki til greina að lækka verðið,“ svaraði aðalrit- ari FIFA, Jerome Valcke, þeim ásökunum harðorður á blaðamannafundi. „Miðaverðið vita allir sem hafa kynnt sér það og það mun ekki breytast.“ TÖFRALÆKNAR LEYFÐIR Á HM Alþjóðaknatt- spyrnusambandið, FIFA, hefur heimilað afrískum liðum, og auðvitað öllum sem vilja, að hafa með sér töfralækni á heimsmeistaramótið í sumar en það fer fram í Suður-Afríku. Töfralæknar eru þekkt stærð hjá afrískum liðum en þeir eru notaðir mikið í þeirri heimsálfu. Sækja leikmenn liðanna sér styrk til læknanna fyrir leiki og gegna þeir vegamiklu hlutverki í undirbúningi margra afrískra liða. Fylgst verð- ur afar náið með heilsu leikmanna og líkamlegu ástandi af hálfu FIFA en töfralæknarnir sjá meira um andlegan undirbúning. SPORT 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 25 ENGINN ÍSLENDINGASLAGUR n Dregið var í átta liða úrslit Evr- ópukeppni félagsliða, EHF-bikar- inn, í handbolta á þriðjudaginn. Fjögur íslensk lið voru í pottinum en ekkert þeirra dróst saman. Landsliðs- markvörður- inn Björgvin Páll Gústavs- son og félag- ar í svissneska liðinu Kadetten mæta þýska liðinu Göppingen, Alexander Pettersson og félagar í Flensburg taka á móti Celje Lasko frá Slóveníu, Vignir Svavarsson og Logi Geirsson mæta með Lemgo til Aragon á Spáni og þá leikur Ragnar Óskarsson með Dun- kerque gegn Naturhouse La Rioja frá Spáni. ÁTJÁNDA UMFERÐIN Í KÖRFUNNI n Heil umferð fer fram í Iceland Express-deildinni í körfubolta á fimmtudag og föstudag. Hæst ber leik Stjörnunnar og Grindavík á fimmtudagskvöldið en þá mæt- ast einnig Snæfell og ÍR í Stykkis- hólmi og Fjölnir tekur á móti FSu í Grafarvoginum. Á föstudaginn leika Keflavík og Tindastóll, Breiðablik og Njarðvík og Hamar og KR. Fimm umferðir eru eftir af deild- arkeppnini og hefur KR tveggja stiga forskot á toppnum. Á eftir meisturunum koma svo Keflavík og Stjarnan en FSu og Breiðablik sitja í fallsætum. TVEIR LEIKIR Í LENGJUBIKAR n Lengjubikarinn í knattspyrnu heldur áfram á fimmtudags- kvöldið en hann fór af stað með látum um síðustu helgi. Tvíhöfði verður í Egilshöllinni þar sem sjálfir Íslandsmeistararnir og ríkjandi Lengjubikarsmeistar- ar, FH, taka á móti fyrstu deildar liði Víkings. Víkingar hafa leikið frábærlega á undirbúningstíma- bilinu og eru taplausir í mótsleikj- um. Sá leikur hefst klukkan 19:15 en strax á eftir mætir efstu deildar lið Fram fyrstu deildar liði Leikn- is, sá leikur hefst klukkan 21:00. Fram hóf Lengjubikarinn með sigri á Selfossi en Leiknir tapaði gegn Fjölni. NÝR ÞJÁLFARI HJÁ HANSA n Helgi Valur Daníelsson og Garðar Jóhannsson, leikmenn Hansa Rostock, hafa fengið nýj- an þjálfara. Andreas Zachhuber var rekinn frá félaginu eftir ömurlegt gengi og tók aðstoðarþjálf- arinn, Thom- as Finck, við. Helgi og Garð- ar hafa báðir verið í byrjun- arliðinu í síðustu þremur leikjum og er vonandi að nýr þjálfari haldi því áfram. Því miður hefur það oft verið þannig að nýr þjálfari skutli Íslendingum á bekkinn, hver svo sem ástæðan fyrir því er. Hansa er í harðri fallbaráttu, situr í 14. sæti af 18 liðum í næstefstu deild í Þýskalandi. MOLAR Fyrstur í mark Petter Northug náði í sitt fyrsta gull í liðakeppni í sprettgöngu karla. MYND AFP Norska þjóðarhetjan Petter Northug stóð loks undir nafni: Landaði loksins Ólympíugulli „Þetta er klárlega einn af þessum stóru,“ segir Kristinn Jakobsson, fær- asti dómari Íslands, um stórleikinn sem bíður hans á fimmtudagskvöld- ið í 32 liða úrslitum í Evrópudeild- inni. Kristinn, ásamt fimm manna teymi sínu, dæmir seinni leik þýska stórliðsins Werder Bremen og næst- efsta liðsins í hollensku úrvalsdeild- inni, Twente. Hollendingarnir unnu fyrri leikinn og er því von á spenn- andi og eflaust erfiðum leik fyrir Krist- in í Brimarborg. Kristinn vonast til þess að fá að dæma í 16 liða úrslitum keppninnar en til þess verður hann, eins og leikmennirnir, að eiga stórleik. Kristni til aðstoðar á línunni verða Sig- urður Óli Þorleifsson og Ólafur Ingvar Guðfinnsson. Jóhannes Valgeirsson er fjórði dómari og marklínudómararnir verða þeir Magnús Þórisson og Þor- valdur Árnason. Kristinn er ánægður með þetta nýja fimm dómara kerfi. Sá stærsti til þessa „Það er mikil spenna að byggjast upp hjá okkur og hefur verið alveg frá því í síðasta leik í riðlakeppninni,“ segir Kristinn sem er mjög ánægður með stærð leiksins sem hann fær. Hann er í raun verðlaun fyrir góða frammistöðu hingað til. „Fyrst og fremst er þetta mikil hvatning fyrir það sem koma skal og mikil verðlaun sem UEFA er að veita manni, að treysta okkur í svona stórt verkefni. Þetta er risa- leikur, seinni viðureignin og þeir sem tapa fara heim,“ segir Kristinn. Stærð leiksins gefur vísbendingu um að þeir hjá UEFA hafi verið ánægð- ir með störf Kristins segir hann og góð frammistaða í honum gæti gefið þeim félögunum eitthvað enn stærra og meira. „Á meðan við klárum okk- ar verkefni með sóma erum við alltaf í útdrættinum í stærri verkefni og gæt- um fengið að dæma í 16 liða úrslitun- um. Þetta er bara stóri úrslitaleikur- inn hjá okkur,“ segir hann. Ánægður með nýja kerfið Kristinn dæmdi sinn fyrsta Meistara- deildarleik árið 2008 en fyrir þetta tímabil var hann valinn ásamt öðrum til þess að fylgja eftir nýja fimm dóm- ara kerfinu í Evrópudeildinni. „Það er mikill heiður að því að vera valinn í þetta verkefni. Þetta er sérhæft verk- efni og þeir sem voru valdir einbeittu sér algjörlega að því. Þess vegna feng- um við fleiri leiki en þó eingöngu í Evrópudeildinni. Það er mikil hvatn- ing að vera valinn í þetta verkefni því aðeins voru valdir dómarar sem þeir treystu til að gefa skýrslur um nýja kerfið. Við erum kannski að uppskera smávegis núna með þessum leik á fimmtudaginn,“ segir Kristinn. Nýja fimm dómara kerfið er leið UEFA til þess að sporna við mynd- bandstækninni. Frekar vill sam- bandið bæta við augum á völlinn og er því sinn hvor dómarinn núna við hvort markið sem aðstoðar að- aldómarann þá helst við að sjá brot inni í teig. „Þetta virkar ótrúlega vel og til framtíðar held ég að þetta eigi eftir að koma til með að vera ofan á myndbandstækninni. Kerfið hef- ur fengið mikið lof, jákvæða dóma og virkar vel. Ég sé þetta alveg verða notað á stórmótum og í stærri deild- unum, það væri helst peningahliðin sem kæmi í veg fyrir það en ég held að UEFA og stóru deildirnar vilji frek- ar fá betri dómgæslu heldur en að spara aurinn,“ segir Kristinn Jakobs- son. TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is ÞEIR BESTU MÆTAST Rússinn rosalegi Alexander Ovechkin hefur verið valinn besti leikmaður NHL-deildar- innar undanfarin tvö ár. ÚRSLITALEIKUR HJÁ KRISTNI Kristinn Jakobsson dæmir einn stærsta leikinn í seinni hluta 32 liða úrslita Evrópudeildarinnar, stórleik Werder Bremen og Twente. Hann segir þetta uppskeru góðrar vinnu hingað til og góð frammistaða gæti skilað honum enn lengra í keppninni. Hann er ánægður með nýja fimm dómara kerfið og telur það verða notað á stórmótum og í stærri deildum. Stærsti leikurinn í langan tíma Kristinn Jabkosson dæmir leik Werder Bremen og Twente í Evrópudeildinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.