Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2010, Blaðsíða 4
„Varla þarf að ræða það að Jón Ásgeir
Jóhannesson, Björgólfur Guðmunds-
son og Bakkabræðurnir [Ágúst og
Lýður Guðmundssynir] réðu ekki við
eignarhald á bönkunum. Sjálfir voru
þeir í fararbroddi við hömlulausa
þenslu útlána sem felldu bankana,“
segir danski bankamaðurinn Jørn
Astrup Hansen sem fór yfir útlán stóru
íslensku bankanna fyrir rannsóknar-
nefnd Alþingis og vann um það grein-
argerð. Íslensku bankarnir hafi ráðist
í gríðarlega stór viðskipti. Nefnir hann
því til staðfestingar að heildarskuld-
bindingar Baugssamstæðunnar hafi
numið liðlega 700 milljörðum króna
hjá stóru bönkunum þremur. Erfitt
sé að segja hvort Baugur hafi fallið á
undan, eða bankarnir.
Vægast sagt vafasamt
Hansen segir í greinargerðinni að
fimm stærstu hluthafar bankanna
hafi líka verið fimm stærstu við-
skiptavinir þeirra. „Langstærstu! En
ekki nóg með það. Þeir sátu einnig í
bankastjórn eða áttu fulltrúa þar. Fyr-
irkomulagið virðist vægast sagt vafa-
samt. Hætta á klíkuskap og sjálfsaf-
greiðslu vofir yfir. Yfirlit yfir stærstu
viðskipti bankanna segir sína sögu.
Samþjöppun eignarhalds á bönkun-
um, sem má að miklu leyti rekja til
einkavæðingar bankanna árið 2002,
átti eftir að leiða til mikilla hamfara,“
segir hann.
„Stóru íslensku bankarnir þrír
voru í raun hver á valdi síns stórhlut-
hafa eða vel skilgreinds hóps hlut-
hafa. Ekki þarf meirihluta hlutabréfa
til að stjórna fyrirtæki sem er skráð í
kauphöllinni og með dreifða eign-
araðild að öðru leyti. Björgólfur gat
haft Landsbankann á valdi sínu einn
og óstuddur. Jón Ásgeir (með aðstoð
Karls Wernerssonar) stjórnaði Glitni,
en Ágúst og Lýður Guðmundssynir
(með aðstoð Ólafs Ólafssonar) stjórn-
uðu Kaupþingi.“
Vanræktu ábyrgðir
Að mati Hansens vanræktu bank-
arnir mjög að krefjast persónulegra
ábyrgða á mjög áhættusömum skuld-
bindingum. „Fjármögnun virðist oft
hafa verið í formi eingreiðslulána
(kúlulána). Það bendir einmitt til þess
að ekki hafi verið búist við því að veð-
ið dygði til að greiða niður lánið. Oft
virðast banki og lántaki ekki hafa gert
sér raunhæfar hugmyndir um hvern-
ig lán- ið skyldi gert upp á
gjalddaga,“ segir
Hansen. Hann
nefnir líka að
mjög umdeilt
fyrirkomulag
hafi verið að
hafa Sigurð
Einarsson
sem
starfandi sjórnarformann hjá Kaup-
þingi. Slíkt sé bannað í Danmörku.
Tíu manns hafi stjórnað bönkunum
þremur. Sigurður Einarsson, Björgólf-
ur Thor Björgólfsson og Jón Ásgeir Jó-
hannesson hafi verið þar valdamestir.
Brutu mikilvægustu
bankaregluna
Íslensku bankarnir brutu að sögn
Hansens mikilvægustu regluna í
bankalöggjöfinni. „Ísland er lítið
land. Þrír tiltölulega stórir bankar
hefðu hæglega átt að geta þjónað jafn-
vel stærstu fyrirtækjum landsins án
þess að brjóta mikilvægustu regluna
í bankalöggjöfinni sem kveður á um
að takmarka beri hámarksstærð ein-
stakra skuldbindinga við 25 prósent af
áhættugrunni bankans. Allt of stórar
einstakar skuldbindingar hafa eflaust
orðið fleiri bönkum að falli en nokk-
uð annað. Full ástæða er því til að taka
fyrrnefnda reglu bankalöggjafarinnar
alvarlega,“ segir Hansen. Eins og sjá
má í töflu með frétt má áhætta eins
eða fleiri innbyrð- is
tengdra við-
skiptamanna
ekki fara fram
úr 25 prósentum
af áhættugrunni
bankans (CAD).
Stærstu eigendur
bankanna eins og
Björgólfsfeðgar og
Baugsfeðgar
fóru langt
fram úr
þessu.
4 MIÐVIKUDAGUR 14. apríl 2010 FRÉTTIR
www.airfree.com • www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Airfree lofthreinsitækið
• Byggir á nýrri tækni sem eyðir
ryki, frjókornum og gæludýraflösu
• Eyðir ólykt, bakteríum, vírusum, myglu og öðrum örverum
• Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt – tilvalið í svefnherbergið og á skrifstofuna
Betra
loft
betri
líðan
Málningu slett
á Landsbankann
Málningu var slett á útibú Lands-
bankans á Laugavegi 77 seint í fyrra-
kvöld. Væntanlega var skemmd-
arverkið engin tilviljun enda kom
skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis
út sama dag. Umtalsverðri gusu
af blárri málningu var slett á rúðu
útibússins eins og meðfylgjandi
mynd sýnir. Landsbankinn, líkt og
aðrar stórar fjármálastofnanir, fékk
á baukinn í skýrslunni og verður að
teljast líklegt að skemmdarverkin
eigi rætur sínar að rekja til þess sem
menn lásu í einhverju níu binda
hennar.
Hættustig í
Keflavík
Hættustigi var lýst á Keflavíkur-
flugvelli um miðjan dag í gær
vegna Boeing 767-farþegaflugvél-
ar American Airlines-flugfélags-
ins sem var á leið frá París vestur
um haf. Flugmálayfirvöld fengu
tilkynningu um að einkennileg
lykt, sem hugsanlega mætti rekja
til reyks eða efnagufu, væri í vél-
inni. Vegna þessa var brugðið á
það ráð að lenda vélinni í Kefla-
vík enda var einhverjum farþeg-
um farið að svima. Vélin lenti í
Keflavík heilu höldnu en að sögn
Friðþórs Eydals, upplýsingafull-
trúa Keflavíkurflugvallar, liggur
ekki fyrir hvaðan lyktin kom.
Gleðskapur fór
úr böndunum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
var kölluð til þegar unglingagleð-
skapur í Reykjavík fór úr böndunum
á laugardagskvöld. Vel gekk að koma
gestunum út en þó voru nokkrir sem
vildu alls ekki yfirgefa samkvæmið
og reyndu hinir sömu að fela sig í
húsinu.
Að lokum tókst að koma öllum
krökkunum út en þó varð ekki hjá
því komist að handtaka einn. Um
var að ræða sextán ára pilt sem neit-
aði með öllu að fara úr partíinu. Var
hann fluttur á lögreglustöð þar sem
hann var sóttur af foreldrum sínum.
„Ég stend algjörlega á mínu,“ segir
Pétur Gunnlaugsson, útvarpsmað-
ur á Útvarpi Sögu, en hann gagn-
rýndi setu Kristrúnar Ástgeirsdóttur
í rannsóknarnefnd Alþingis á blaða-
mannafundi á mánudag. Pétur bar
upp þá spurningu hvort Kristrún
væri ekki vanhæf til þess að sitja í
nefndinni sem fjallaði um siðferði
vegna pólitísks bakgrunns og tengsla
hennar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur og Jóhönnu Sigurðardóttur.
Pétur ruglaði svo saman Krist-
rúnu og nöfnu hennar Árnadótt-
ur sem Ingibjörg tilnefndi sem full-
trúa Íslands í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna en Pétur segir það minni
háttar mistök í máli sínu. „Til dæm-
is ef þú skrifar góða grein en í henni
er ein stafsetningarvilla er hún þá
bara ónýt? Mér finnst þetta mjög
óeðlilegt. Hún var í Kvennalistanum
ásamt Ingibjörgu og Jóhönnu og hef-
ur sterkar pólitískar skoðanir. Auð-
vitað myndast mikil tengsl á milli
fólks sem vinnur svo náið saman.
Það er nú ekki lengra síðan en 2007
sem Jóhanna Sigurðardóttir skipaði
hana framkvæmdastýru Jafnréttis-
stofu.“
Í skýrslu siðferðisnefndarinnar er
heill kafli um forseta Íslands og Pétur
telur mjög óeðlilegt að Kristrún felli
siðferðislegan áfellisdóm yfir fyrrver-
andi pólitískum andstæðingi sínum.
„Þarna er ekki að finna neinar sið-
ferðilegar úttektir á hvorki Ingibjörgu
né Jóhönnu. Er það í lagi?“
asgeir@dv.is
Pétur Gunnlaugsson vegna ummæla um Kristrúnu Ástgeirsdóttur:
Stendur á sínu
Pétur Gunnlaugsson
Segir nafnaruglinginn
minni háttar mistök.
HÖMLULAUS ÚTLÁN
FELLDU BANKANA
Danski bankamaðurinn Jørn Astrup Hansen segir að útrás-
arvíkingarnir hafi verið í fararbroddi við hömlulausa útlána-
þenslu sem fellt hafi bankana. Óvíst sé hvort Baugur hafi fallið
á undan eða bankarnir. Innbyrðis tengsl viðskiptamanna mega
ekki fara fram úr 25 prósentum af áhættugrunni banka en hjá
Landsbankanum voru Björgólfsfeðgar með 140 prósent.
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamaður skrifar: as@dv.is
Samkvæmt bankalögum má áhætta
vegna eins eða fleiri innbyrðis tengdra
viðskiptamanna ekki fara fram úr
25% af áhættugrunni bankans, (CAD).
Stærstu eigendur bankanna fóru hins
vegar langt fram úr þessum viðmiðum
árið 2007.
n Landsbanki - Björgólfsfeðgar - 140,3%
n Kaupþing - Bakkavararbræður - 41,6%
n Kaupþing - Robert Tchenguiz - 57,4%
n Glitnir - Baugsfeðgar - 51%
n Glitnir - Karl Wernersson - 35,7%
n Landsbanki -Straumur-Burðarás - 28,3%
Fram úr viðmiðum
Hætta á klíku-skap og sjálfs-
afgreiðslu vofir yfir.